blaðið - 02.03.2007, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007
blaöiö
INNLENT
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Tveir;
1 á tvöföldum hámarkshraða
Tveir ökumenn mega búast við ökuleyfissviptingu og
háum sektum eftir að hafa verið gripnir á rúmlega
tvöföldum hámarkshraða. Sá fyrri var tekinn í
Arnarbakka en hann mældist á 73 þar sem leyfilegur
hámarkshraði er 30. Sá síðari á 150 á Fiskislóð.
SAMFYLKINGIN
Leggur til að kosti 100 krónur í strætó
Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu í gær fram
tillögu í borgarráði þar sem því er beint til stjórnar Strætó
bs. að gerð verði sú tilraun í mars að staðgreiðslugjald í
strætó verði 100 fyrir alla til að sporna við svifryksmengun.
Tillögunni var vísað til umsagnar umhverfisráðs.
ÁTAK SÝSLUMANNSINS i REYKJAVÍK
Um tuttugu prósent komin
Tuttugu og þrír af þeim hundrað og tuttugu sem voru á
listanum yfir þá sem hafa hunsað boðanir sýslumanns
vegna fjárnáms höfðu komið til embættisins seinnipartinn í
gær. Ekki lá Ijóst fyrir hve margir þeirra höfðu komið í fylgd
lögreglunnar, samkvæmt cfeildarstjóra fullnustudeildar.
1
Nýtt námskeið í fluguköstum hefst sunnudaginn 4.
mars íT.B.R.húsinu Gnoðavogi 1 kl 20:00.
Kennt verður 4., 1118. og 25. mars.
Við leggjum til stangir.
Skráning á staðnum gegn greiðslu (ekki kort).
Mætið tímanlega. Munið eftir inniskóm.
Verð kr 8.500,- en kr 7.500.- til félagsmanna,
gegn framvísun gilds félagsskírteinis.
llpplýsingar veita Gísli í síma 894-2865 og Svavar í síma 896-7085
KKR,SVFR og SVH 4
Auglýsingasíminn er
510 3744
I II I II
Vital skórnir
komnir aftur
Frábærir skór með nuddinnleggi
Kringlunni, sími 553 2888
Opið til kl. 21 í kvöld
SOFT DEATH OF A SOLITARY MASS eftir André Gingras
IN THE NAME OF THE LAND eftir Roberto Oliván
SÝNINGAR: 04.03 11.03 18.03 25.03
MIÐASALA: s. 568 8000 - www.id.is
------------
Missti fingur Verkalýðsfé-
lagið GMB fjallaði um lélegan
aðbúnaö og lág laun i frét-
tabréfi sínu. Það segir konuna
hafa misst fingurna vegna þess
að vélarnar eru óvarðar.
Verkalýðshreyfing kvartar undan verksmiðju Bakkavarar Group:
Missti útlim vegna
vinnuaðstöðunnar
■ Öryggi ógnað og hreinlæti ábótavant ■ Svört skýrsla birt ■ Vörum skilað
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
Eitt stærsta verkalýðsfélag Englands
í matvælaiðnaði, GMB, gerir alvar-
legar athugasemdir við aðbúnað
í verksmiðjum dótturfyrirtækis
Bakkavarar Group, Katsouris Fresh
Foods, og telur öryggi starfsmanna
þess ógnað. Fyrirtækið framleiðir
ýmsa ferskrétti, til dæmis salöt og
meðlæti, fyrir flestar af stærstu mat-
vörukeðjum landsins. Jafnframt
eru gerðar athugasemdir við launa-
greiðslur fyrirtækisins. Þrátt fyrir
ítrekaðar tilskipanir um úrbætur
hefur ekkert verið brugðist við af
hálfu Katsouris og nú hefur GMB
leitað til yfirstjórnar Bakkavarar
Group. „Við höfum fengið ótal kvart-
anir vegna heilsu- og öryggismála
í verksmiðjunum. Starfsfólk hefur
verið að slasast alvarlega og missa
útlimi í illa vörðum vélum og hættu-
legri vinnuaðstöðu,“ segir Rose
Conroy, upplýsingafulltrúi GMB.
Vörum skilað
Heilbrigðis- og öryggismála-
stofnun Englands, HSE, hefur rann-
sakað aðbúnað í verksmiðjunum.
Stofnunin hefur níu sinnum gefið
út tilskipun þess efnis að úrbætur
yrðu gerðar á starfseminni. Nýverið
voru endursendir vörufarmar af
hummus frá Katsouris þar sem í vör-
unum fannst salmonella. „Þar sem
öryggismál eru í ólagi fylgir óneit-
anlega oft óhreinlæti. Við höfum
einnig verið að benda á þá staðreynd
um þónokkurt skeið og nú fengust
sannanir fyrir því að við höfðum
rétt fyrir okkur,“ segir Conroy.
Röng gagnrýni
Bakkavör Group hefur gefið út yf-
irlýsingar á vef sínum þar sem fram
kemur að fyrirtækið leggi áherslu
á öryggi á vinnustað og gæði vöru.
Lögð er áhersla á að saga Katsou-
ris, þegar kemur að heilbrigðis- og
öryggismálum, sé með þeim betri
í matvælaiðnaðinum. Forstjóri fyr-
Dótturfyrirtæki Bakkavarar Heilbrigðis- og
öryggismálastofnun Englands, HSE, hefur níu
sinnum gefið út tilskipun þess efnis að úrbætur
yrðu gerðar á starfsemi fyrirtæksins.
irtækisins, Ágúst Guðmundsson,
vildi ekki veita Blaðinu viðtal vegna
deilunnar. Fyrir áramót tjáði hann
sig við Viðskiptablaðið vegna um-
fjöllunar BBC um málið og sagði þá
gagnrýnina vera til þess fallna að
rægja fyrirtækið og valda usla.
Þagga niður vandann
Paul Kenny, framkvæmdastjóri
GMB, undrast mjög viðbrögð Bakka-
varar vegna málsins, sem hann
kallar móðgandi. Hann útilokar
ekki frekari aðgerðir. „Saga Katsou-
ris varðandi hreinlæti og öryggi er
slæm, svo ekki sé meira sagt. Eg he-
fði haldið að Bakkavör hefði frekar
verið ánægt með ábendingar okkar
um alvarlega bresti þegar kemur að
hreinlæti og öryggisreglum, áður
en slíkt barst til fjölmiðla," segir
Kenny í bréfi sem Blaðið hefur undir
höndum. „Framvegis neyðumst við
til að sniðganga fyrirtækið þegar
farið verður yfir aðrar athugasemdir.
Við lýsum yfir áhyggjum okkar yfir
augljósum tilraunum fyrirtækisins
til að þagga niður vandann."
Svört skýrsla
Conroy leggur áherslu á að yfir-
stjórn Bakkavarar Group bregðist
hratt við. Hún gagnrýnir jafnframt
launastefnu fyrirtækisins. „Launin
sem fyrirtækið greiðir eru ekki góð.
Þeir greiða eingöngu lágmarkslaun
og hér er dýrt að lifa. Meirihluti
starfsmanna talar litla ensku og á
við tungumálaörðugleika að stríða,“
segir Conroy. „Við höfum verið að
kljást við þennan vanda í nokkur ár.
Gerð var ítarleg skoðun á starfsem-
inni og virkilega svört skýrsla um
aðbúnaðinn birt í kjölfarið. Engin
viðbrögð hafa fengist frá stjórnend-
unum Katsouris og því ákváðum
við að leita til eigendanna."