blaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 25
blaðið
FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 25
lengdar að vera aðeins sólisti því að þá
ertu svo mikið einn, bæði við æfingar
og ferðalög. Það er gaman að stunda
það með og mér finnst alls ekki leiðin-
legt að spila sóló. Það er mjög gaman
og ég vil alls ekki sleppa því en ég held
að ég geti ekki einblínt á það. Ég verð
að spila kammermúsík líka og vinna
með öðru fólki,“ segir Elfa.
Býsjálftil pressuna
Það vakti athygli þegar Elfa Rún
hlaut verðlaun sem bjartasta vonin
við afhendingu Islensku tónlistar-
verðlaunana fyrir skemmstu. Þau
eru þó ekki einu verðlaunin sem
henni hafa hlotnast á undanförnum
misserum. {júlí á síðasta ári hlaut
hún fyrstu verðlaun í virtri alþjóð-
legri keppni fyrir unga hljóðfæra-
leikara sem kennd er við tónskáldið
Jóhann Sebastian Bach og er haldin
í þýsku borginni Leipzig. Alls tóku
yfir eitt hundrað hljóðfæraleikarar
þátt í þremur flokkum (fiðlu, sembal
og píanó), þar af um 40 fiðluleikarar.
Hún hlaut einnig sérstök verðlaun
fyrir að vera yngsti keppandinn í
úrslitum. Elfa er enn fremur eini
íslendingurinn sem hefur sigrað í
keppninni. Það liggur beint við að
spyrja Elfu hvaða þýðingu það hafi
fyrir hana að hljóta slík verðlaun.
„Þetta er fyrst og fremst mikill
heiður og frábær reynsla. Þetta
kemur manni kannski eitthvað
áfram líka. Það er auðveldara að
koma sér á framfæri þegar maður
er búinn að vinna svona verðlaun,“
segir hún.
Elfa segist alls ekki finna fyrir
því að fólk geri meiri væntingar til
hennar eftir að hún hlaut verðlaunin
en áður.
„1 rauninni finn ég ekki fyrir
neinni pressu nema þeirri sem ég bý
til sjálf. Ég var svolítið stressuð þegar
ég þurfti að koma fram rétt eftir verð-
launin því að mér fannst ég þurfa
að vera svo rosalega góð. Núna er ég
búin að læra af reynslunni og reyni
að líta á þetta sem jákvæða hvatn-
ingu,“ segir hún.
Nýlega var hún tilnefnd til hvatn-
ingarverðlauna Evrópska menning-
arsjóðsins Pro Europa. Verðlaunin
verða afhent síðar í mánuðinum og
verður Elfa viðstödd afhendinguna.
Að öðru leyti segist hún ekki vita
mikið um verðlaunin.
„Ég fékk bara bréf í haust þar sem
mér var tilkynnt að ég væri tilnefnd.
Það var í gegnum kennarann minn
sem hefur góð sambönd. Hann hafði
mælt með mér,“ segir hún.
Margir frægir og góðir hljóðfæra-
leikarar hafa hlotið þessi verðlaun í
gegnum tíðina og er Elfa því ekki í
slæmum félagsskap ef hún hreppir
hnossið.
Nauðsynlegt að fá frí
Elfa Rún er á leið aftur til Þýska-
lands en íslenskir tónlistarunnendur
mega þó eiga von á að heyra i henni á
næstu mánuðum.
„Ég kem í rauninni aðeins heim
í hverjum mánuði fram á sumar. í
næsta mánuði kem ég heim í nokkra
daga til að æfa með pabba mínum
því að við erum að fara að spila í
Danmörku í byrjun apríl. Svo kem ég
heim í lok apríl og spila með nýstofn-
aðri barokksveit sem heitir Camerata
Drammatica. Svo verð ég hérna aftur
í maí til að spila á Listahátíð," segir
Elfa. Aðspurð segir hún að sér finnist
aldrei lýjandi að vera stöðugt að spila
á nýjum stöðum og með nýju fólki.
Þá fær hún seint nóg af tónlistinni
sem hefur fylgt henni alla tíð.
„Ég get ekki sagt að ég fái nokkurn
tíma leiða á henni en auðvitað getur
maður orðið þrey ttur þegar maður er
búinn að vera að undirbúa eitthvað
ákveðið í langan tíma. Maður þarf
náttúrlega að fá frí inni á milli. Ég
get ekki spilað og æft mig á hverjum
einasta degi allt árið. Ég verð að fá
einhver frí inni á milli. Núna í apríl
fer ég til dæmis í vikufri til Frakk-
lands með fjölskyldunni og það er
nauðsynlegt til að safna kröftum,"
segir hún.
Þegar tónlistin á ekki hug hennar
allan gefur Elfa sér gjarnan tíma til
að hitta vini og kunningja á kaffi-
húsum, fara í bíó, ferðast eða njóta
útvistar. „Þá hef ég líka mjög gaman
af því að teikna þó að ég geri reyndar
allt of lítið af þvi,“ segir hún.
Kann vel við tarnavinnu
Elfa finnur sér tíma til að sinna
öðrum áhugamálum sínum og hugð-
arefnum öðru hverju og segir hún að
hún ráði að vissu leyti sjálf hvað hún
eyði miklum tíma í æfingar.
„Það fer líka alveg eftir verkefnum.
Ég á það til að vera mjög sjálfhverf
ef stórir tónleikar eru framundan
en þess á milli reynir maður að
gera eitthvað annað. Það er engin
níu til fimm vinna að vera í tónlist-
inni, stundum fer allur dagurinn í
þetta, en sumir dagar eru rólegri en
aðrir. Þetta er i rauninni tarnavinna.
Mamma og pabbi eru bæði tónlist-
armenn þannig að það hefur aldrei
verið níu til fimm vinna á heimilinu.
Það er oft unnið á kvöldin og engin
regla á vinnutímanum,“ segir Elfa og
bætir við að það eigi vel við sig.
„Mér finnst gott að vinna í törnum.
Mér finnst gott að geta einbeitt mér
alveg að hlutunum og slaka svo á
inni á milli,“ segir hún.
Elfa Rún hefur náð langt á sínu
sviði þrátt fyrir ungan aldur og segir
hún að það sem skipti mestu máli
til að ná árangri sé að hafa áhuga á
því sem maður gerir. „Þú þarft að
vera ákveðinn í að gera það sem þú
vilt gera, setja þér háleit markmið og
reyna að ná þeim. Þessu fylgir vissu-
lega heilmikil vinna inni á rnilli en
maður hefur náttúrlega gaman að
þessu þannig að maður tekur ekki
endilega eftir því,“ segir Elfa Rún
Kristinsdóttir að lokum.
einar.jonsson@bladid.net
1 Samkeppni og gróska „Standardinn er mjög hár i
m Þýskalandi og það getur veríð mjög erfítt að komast inn
“ i hljómsveitir og það em gerðar miklar kröfur. Það er þvi
mikil samkeppni en um leið mikil gróska og það er i raun-
, inni bara gaman, “ segir Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikarí.
5. Veisluborð
6. Sálmabækur
Sendu skeyti
Skeytaþjónusta Póstsins er á www.postur.is eða
(síma 1446
Skeyti standa alltaf fyrir sínu og bæði er Ijúft að senda þau
og taka við þeim. Hvert sem tilefnið er: skfrn, ferming,
brúðkaup, útskrift, ástarjátning, frábær árangur, þakklæti
eða jólakveðja. Samúðarskeyti sýna í verki hlýhug sem oft
er erfitt að koma orðum að.
Á www.postur.is velurðu hvaða mynd á að vera á skeytinu
og skrifar textann. Þú getur pantað skeyti fram I tlmann
svo það gleymist ekki á stóra deginum!
Pósturinn býður einnig upp á: • Hugskeyti
• Almenn skeyti
• Hraðskeyti
1. Blöðrur
_________________________iu&Gdi
. tfðiMB.'iajvvvuasflS
2. Terta 3. Hjónasærig
4. Hringar
7. Skirnarkjóll
13. Herðubreið 14. Hengifoss 15. Strandir
Wt*m
16. Snæfellsjökull
17. Reykjavíkurtjörn
18. Reynisdrangar
mmmm
19. Islenski fáninn 20. Holtasóley
#
21. Fótboltastelpur
22. Rósabúnt
23. Liljur
24. Calla/Fenjadísir
Pöntunarsíminn er 1446
eða á www.postur.is