blaðið - 02.03.2007, Blaðsíða 34
OFMETIÐ
Skoðanaskiptin
VANMETIÐ
Grímur Helgi Gíslason
Aldur: 20 ára
Hjúskaparstaða: Laus og liðugur
Starf/menntun:Nemi (
Verzlunarskóla l’slands
Bók: Það eru tvær, Svartur á leik og Fight Club.
Kvikmynd: Það eru svo margar en ég verð allavega að nefna þrjár; Fight Club,
American History X og The Departed.
Skemmtistaður: Ég fer yfirleitt á Prikið eða Hverfisbarinnn.
Staður i veröldinni: New York og London eru í uppáhaldi en ég myndi vilja ferð-
ast um alla vesturströnd Bandaríkjanna.
Fyrirmyndir: Það er fólkið sem ég umgengst dagsdaglega, fjölskyldan og vinirnir.
Draumurinn: Draumurinn er tvískiptur þessa dagana, annað hvort að sinna
listagyðjunni eða viðskiptagyðjunni, það er annað hvort eða. Ég er að reyna að
ákveða mig.
Hamingjan felst í: Er ekki enn búinn að finna það út. Ætli fólk verði ekki bara að
ákveða það sjálft.
ísland er: Óþolandi þegar maður er of mikið á því en ómissandi þegar maður er
lengi í burtu.
Tónlist er: Það besta sem guð hefur skapað.
Hundur eða köttur: Ég þoli ekki svona dýr af þvi að ég er með ofnæmi fyrir köttum og
hræddur við hunda þannig að ég segi hvorugt.
Bjór eða vín: Bjór.
Inni eða úti: Það fer eftir veðri.
Hægt eða hratt: Ég vil hafa rosalega mikið að gera, ég verð brjálaður ef það er of Ktið
að gera.
Penelope Cruz eða Cameron Diaz: Cameron Diaz.
Nafn: Ólöf Jara Skagfjörð
Valgeirsdóttir
Aldur:18ára
Hjúskaparstaða: Á föstu
Starf/menntun: Nemi í
Verzlunarskóla íslands
Bók: Það er svo langt síðan ég hef lesið eitthvað annað en skólabækurnar. Ég er samt
frekar mikið fyrir ævintýrabækur þannig að ég myndi mæla með bók sem heitir Abarat eftir
Clive Barker.
Kvikmynd: Moulin Rouge er uppáhaldsmyndin mín og svo verð ég líka að segja Singin’ in
the Rain.
Skemmtistaður: Ég fer nú bara í heimahús, finnst hálfhallærislegt að fara á skemmtístaði.
Staður í veröldinni: Ég myndi vilja fara til Indlands en svo langar mig líka mikið til Parísar.
Fyrirmyndir: Ég á eiginlega ekki neinar fyrirmyndir nema þá foreldra mína og fólkið I
kringum mig.
Draumurinn: Draumurinn er að vinna Eurovision.
Hamingjan felst í: Ég þarf að fá að velta því betur fyrir mér.
fsland er: (sland er best í heimi.
Tónlist er: Tónlist er nú eiginlega bara lífið fyrir mér.
Hundur eða köttur: Köttur. Ég átti kött og það er bara minna vesen heldur en
að eiga hund.
Bjór eða vín: Ég drekk ekki.
Inni eða úti: Ég held að ég sé meiri útimanneskja.
Hægt eða hratt: Ég vil miklu frekar hafa mikið að gera en lítið.
Johnny Depp eða Brad Pitt: Johnny Depp án efa. segja Brad Pitt.,
Hvað finnst þér um fegurðarsam-
keppnir? Mér finnst fegurðarsamkeppnir
glataðar. Mér finnst eiginlega ekkert jafn
giatað. Ef fólk notar þessar keppnir til þess
að koma sér áfram þá er það kannski í lagi
en mér finnst þetta það hallærislegasta
sem ég hef séð.
Hvað finnst þér um reykingabann sem
gengur í gildi 1. júlí? Mér finnst óþolandi
þegar verið er að banna hlutina þó að ég sé
með reykingabanninu. Mér finnst samt að
staðareigendur eigi að fá að ráða því sjálfir.
Mér finnst bara of mikið verið að banna
hluti en ég er með því þannig séð af því að
það hefur auðvitað jákvæð áhrif.
Er spilling á fslandi? Já, ég held það en
ég held að hún sé jákvæð að vissu leyti.
Spilling þarf ekkert alltaf að vera neikvæð.
Það er auðvitað mikið lifsgæðakapphlauþ
á Islandi en við höfum það svo gott að
kannski er sþilling í lagi, fólk er allavega
ekkert að velta sér upp úr því. Það er samt
eiginlega of erfitt að svara þessu.
'i*
Hvað finnst þér um fegurðarsam-
keppnír? Ef stelpur vilja endilega taka
þátt til þess að upphefja sjálfa sig þá er
það bara fínt en ég myndi aldrei taka
þátt í slíku. Mér finnst samt óþolandi
þegar þessar keppnir eru í gangi og
femínistar missa sig yfir því. En þessar
stelpur velja þetta sjálfar og það er eng-
inn að neyða þær í neitt. Ef þeim finnst
þetta gaman þá er það bara fínt fyrir
þær en mér sjálfri finnst fegurðarsam-
keppnir rosalega hallærislegar.
Hvað finnst þér um reykingabann
sem gengur i gildi 1. júli? Mér finnst
það bara mjög gott framtak og ég
held ekki að fólk muni hætta að koma
á staðina af þv( að það fær ekki að
reykja. Það kemur bara algjörlega nýr
hópur inn á staðina, fólk sem kom
ekki áður út af miklum reykingum. Það
er bara mjög jákvætt, staðirnir eru of
reykmettaðir eins og er.
Er spilling á fslandi? Já, sums staðar.
Ég held að það sé alltaf spilling alls
staðar. Ég held bara að hún sé kannski
ekki jafn sjáanleg hér og annars staðar.
Fólk spáir kannski ekkert nógu mikið
í því og leiðir það hjá sér af því að það
vill ekki velta þv( fyrir sér. Er fólk ekki
bara alltaf í afneitun.
%
m
Snyrtibudduna sína
opnar að þessu sinni
Paris Hilton en hún
kemur fyrir í leiksýning-
unni Ismerica- Take
the Tour with Paris
and Tyra sem leikhóp-
urinn The Happy The-
ater stendur fyrir.
Eins og flestir vita er
Paris Hilton ein mesta
djammdrottning mann-
kynssögunnar og
snyrtibuddan hennar
er samkvæmt því, vel
troðin alls kyns dóti.
Oftar en ekki á hún
meira að segja sjálf
heiðurinn af vörunum
sem hún notar til þess
að líta alltaf óaðfinnan-
lega út.
Snyrtibuddan
Hvaða snyrtivöru veröurðu alltaf að eiga?
Kannski svitalyktareyði. Ég hannaði einn um daginn.
Hvað ertu alltaf með á þér? Sykurbleika varagljáann frá Nivea og tann
þráðinn frá Reach.
Hvað notarðu þegar þú ferð út á lífið? Ég nota ekki
mikið af snyrtivörum og er frekar náttúruleg
týpa en ég myndi segja að gloss, maskari,
augnblýantur, sólarpúður, nokkrír augn-
skuggar, kinnalitur og Cover Girl-aldursvarn-
arkrem fyrir andlit og likama væri algert
möst.
Hvað langar þig í ? A new Make Up Line
for your pets (it’s about time). (Snyrtivörur fyrir
gæludýr er eltthvað sem mikil þörf er á.)
Það nýjasta I snyrtibuddunni? Nýtt naglalakk
sem heitir tár Ararabíuprinsins og er hannað af
Britney Spears.
Ilmvatnið þitt? Bara ég, Paris Hilton-ilmvatnið
Fegrunarráð? Vertu þú sjálf, ef ekki hvað þá ...?
FOSTUDAGUR 2. MARS 2007
m*
Mjögfallegur og mjúkur
gjafahaldari í
í), í) <£>,£#G, G GJ-I
skálum á kr. 4.990,-
■flotturjyrir stóru brjóstin,
kemur í í), <D í), G
skálum á kr. 4.990,-
Elsta kynslóðin
Elsta kynslóðin
er svo sannarlega
vanmetin á íslandi.
Stjórnvöld hafa ekki
minnsta áhuga á því
að rétta kjör elstu
kynslóðarinnar og
loka augunum fyrri ástandinu í landinu.
Þetta er til skammar.
Gáfnafar
fslensku þjóðarinnar.
Þetta kom berlega i
Ijós þegar forsvars-
menn bankanna
reyndu að telja
almenningi
trú um að kjörin
sem þeir bjóða
okkur séu í raun og veru betri en kjörin
sem þeir bjóða almenningi í útibúum
sínum erlendis, þrátt fyrir að vaxta-
prósentan sé hér mun hærri, sem og
lántökukostnaður og flest önnur gjöld.
blaðiö
Samkynhneigðar mörgæsir
Yfirvöld í dýragarði í Þýskalandi hafa hætt við að slita í sundur samkynhneigð mörgæsapör sem búa í dýragarðinum en
ástæðan fyrir því var að fá mörgæsirnar til að fjölga sér. Sökum þrýstings frá réttindasamtökum samkynhneigðra í Þýska-
landi hefur nú verið hætt við áformin og dýragarðsstjórinn hefur sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að öll dýrin í garðinum hafi
frjáls val þegar kemur að því hvernig þau vilja haga ástarlifi sínu.
í skoðanaskiptunum mætast að þessu sinni Ólöf Jara Skagfjörð Valgeirsdóttir og Grímur Helgi Gíslason Ólöf og Grímur
eru nemendur í Verzlunarskóla íslands og eru í aðalhlutverkum í nemendasýningu skólans sem er á fjölum Austurbæjar um
þessar mundir. Skoðanir Ólafar og Gríms mætast um margt á miðri leið og eru þau sérstaklega sammála um að fátt slái feg-
urðarsamkeppnir út í hallærisleika.
Nýbyggingar
Nýjar byggingar hafa risið á ótrúlegum
hraða undanfarin ár og virðist ekkert
lát vera á. Menn byggja og byggja
eins von sé heilli þjóð til
landsins innan tíðar sem
setjast muni hér að og
bráðvanti húsnæði. Eru
fslendingar nógu margir
til þess að gera allar
þessar nýju byggingar að
sfnum. Ferframboðið ekki að
verða meira en eftirspurnin.
Pitsur
Hvar annars staðar
í heiminum borgar
fólk hátt í 3.000
krónur fyrir brauð
með tómatsósu og
áleggí, því pitsur eru
litið annað. Fyrir það
fyrsta þá eru pitsur
ekkert sérstaklega
hollar, hráefnið er ekkert sérstakt og
pitsu-kompaníin spara allt hvað þau
geta og setja eins lítið af áleggi ofan á
flatbökurnar og mögulega er hægt.