blaðið - 02.03.2007, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007
blaöiö
UTAN ÚR HEIMI
SÓMALÍA
Fyrstu friðargæsluliöarnir komnir
Fyrstu friðargæsluliðarnir á vegum Afríkusambandsins
hafa komið til Sómalíu. Búist er við átta þúsund friðar-
gæsluliðum til landsins og er þeim ætlað að taka við af
hermönnum Eþíópíuhers sem aðstoðuðu stjórnarher
Sómalíu við að hrekja íslamista á brott.
Barnaníðingur gripinn
Þýskri lögreglu tókst að hafa hendur í hári Uwe Kolbig
í gær, en hann er grunaður um að hafa rænt, nauðgað
og myrt níu ára dreng í austurhluta Þýskalands. Lík
drengsins fannst i bakgarði Kolbig á laugardag. Kolbig,
sem hafði áður verið dæmdur fyrir barnaníðingsskap.
Arthur Schlesinger látinn
Bandaríski sagnfræðingurinn Arthur M. Schlesinger
yngri lést á miðvikudaginn eftir að hafa fengið hjartaáfall
í New York. Schlesinger skrifaði fjölda rita, meðal ann-
ars um þá Kennedy-bræður, John og Robert, og vann
tvívegis til Pulitzer-verðlauna.
Fagralund við
Furugrund í Kópavogi
Námskeið hefjast
5. mars
Skráning í síma
891-7190
Kennari:
Sigriður Guðjohnsen
www.sigga.is
Auglýsingasíminn er
5103744
13;
Tilboð
m m
Tilboösverö:
38.900
L-1036
Edesa Þvottavél
6kg 10OOsn
RflFMKDflUERZLUN ÍSLflNDSIf
- A.NNO 1929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • ri@ri.is www.ri.is
Eiturlyf brennd í Mexikó
Felipe Calderon Mexíkófor-
seti hefur skorið upp herör
gegn ólöglegu eiturlyfja
smygli.
Nordicphotos/AFP ,.
Jh'-sí%:■
Bandarísk lögregla leysir upp mexíkóskan eiturlyfjahring:
Átján tonn af dópi
■ Tuttugu ára rannsókn ■ Fjögur hundruð manns handteknir
Eftir Atla isleifsson
atlii@bladid.net
Lögregla í Bandaríkjunum hefur
handtekið nærri fjögur hundruð
manns á síðustu tuttugu mán-
uðum og gert um átján tonn af
fíkniefnum upptæk í aðgerðum
sem beinast gegn mexíkóskum
eiturlyfjahring. Alberto Gonzales,
dómsmálaráðherra Bandaríkjanna,
sagði á miðvikudaginn að eiturlyfja-
hringurinn hefði smyglað og dreift
miklu magni kókaíns, marijúana
og öðrum eiturlyfjum víðs vegar
um Bandaríkin. Auk eiturlyfjanna
gerði lögregla upptækar rúmlega 45
milljónir Bandaríkjadala í reiðufé,
hundrað skotvopn og 94 bíla að
verðmæti 400 milljónir króna.
Dómsmálaráðherrann banda-
ríski sagði að eiturlyfjahringurinn
væri kenndur við og stjórnað af
Mexíkóanum Victor Emilio Caz-
ares Gastellum og að aðgerð lög-
reglu væri skýrt dæmi um það sem
mætti ná fram með samvinnu inn-
lendra og alþjóðlegra löggæslu- og
öryggisstofnana. Gonzales sagði
að talið væri að eiturlyfjunum
hefði verið smyglað til Bandaríkj-
anna meðal annars um brú úr sand-
pokum sem náði rétt undir yfir-
borð Coloradofljótsins nærri Yuma
í Arizona-ríki.
Talsmenn bandarísku lögregl-
unnar segja að 66 manns hafi verið
handteknir í borgum í Kaliforníu,
Phoenix og Chicago á miðvikudag-
inn þannig að endanlega mætti
stöðva starfsemi eiturlyfjahrings-
ins. Gonzales sagði handtökurnar
vera mikið áfall fyrir einn af
stærstu eiturlyfjasmyglhringum
heims. Helstu stjórnendur Cazares-
eiturlyfjahringsins hafa nú verið
ákærðir fyrir peningaþvott og
eiturlyfjasmygl, en efnunum var
smyglað alla leið frá Venesúela og
Kólumbíu.
Rannsóknin hófst fyrir tæpum
tveimur árum eftir að lögregla í
Kaliforníu stöðvaði bíl þar sem
mikið magn af marijúana fannst
og beindi lögregla athyglinni að
Cazares í kjölfarið. Að sögn lög-
reglu voru eiturlyfin sett í geymslu
á heimilinum í Kaliforníu áður
en þau voru sett í nýjar umbúðir
og dreift um Bandaríkin. Höfuð-
paurinn Cazares gengur enn laus
í Mexíkó og munu bandarísk yfir-
völd nú fara fram á að mexíkósk
lögregla handtaki hann.
OPERATION IMPERIAN EMPEROR:
Handtökur: 402
Kókaín: 4.323 kg
Heróín: 5 kg
Amfetamin: 424kg
Marijúana: 12.377 kg
Marijuanaplöntur: 18.465
Reiöufé upptækt: 45,2 milljónir Bandaríkjadala
Bilar upptækir: 94
Skotvopn upptæk: 100
Talsmaður fíkniefnastofnunar
bandaríska dómsmálaráðuneyt-
isins sagðist vera mjög ánægður
með aðgerðina. „Okkur tókst að
rífa burtu allt innra net smygl-
hringsins og kasta því á ruslahauga
sögunnar."
Yfirvöld í Mexíkó áætla að rúm-
lega tvö þúsund manns hafi verið
myrtir í tengslum við eiturlyfjavið-
skipti í landinu á síðasta ári. Felipe
Calderon Mexíkóforseti segist ætla
að taka fast á eiturlyfjavanda lands-
ins og senda tuttugu þúsund her-
menn og lögreglumenn til tveggja
mexíkóskra ríkja með landamæri
að Bandaríkjunum til að taka á
eiturlyfjasmyglinu.
Hafðu það Ijúft
um helgina
Opiðvirkadagafrákl 10-19 Laugardaga fráklH -17 Grensásvegi48 gallerykjot.is
Lambalundir í barbequesósu