blaðið - 10.03.2007, Side 6
6 LAUGARDAGUR 10. MARS 2007
bla6ið
INNLENT
AKUREYRI
Lögga grunuð um ölvun
Lögreglumaður er grunaður um ölvun á vettvangi
banaslyssins í Hörgárdal um síðustu helgi. Þótti
lögreglumaðurinn lykta af áfengi og var þess vegna
tekið af honum blóðsýni. Málið hefur verið sent ríkis-
saksóknara, að því er mbl.is greinirfrá.
SJÓÐIR
Jafnháar greiðslur til foreldra
Jafnháar greiðslur verða greiddar til feðra og mæðra
úr Fjölskyldu- og styrktarsjóði BHM, BSRB og K( eftir
1. júní. Um er að ræða eingreiðslu sem háð erstarfs-
hlutfalli og er það gert að skilyrði að umsækjandi taki
að lágmarki þriggja mánaöa fæðingarorlof.
HÉRAÐSDÓMUR
Ætlaði að hefna innbrots
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær 24 ára karl-
mann, Gunnar Jóhann Gunnarsson, í 15 mánaða fang-
elsi fyrir stórhættulega líkamsárás í Reykjanesbæ þann
27. nóvember. Þá réðist hann á annan karlmann og sló
til hans ítrekað með hafnaboltakylfu í höfuðið.
Miðbær Garðabæjar Sam-
kvæmt tillögunum mun nýi
miöbærinn lita svona út.
Breytt ásjóna
Tillögur um deiliskipulag mið-
bæjar Garðabæjar, frá Garðatorgi
að Hafnafirði, verða kynntar bæj-
arbúum á borgarafundi í dag. Sam-
kvæmt samningi, sem undirrit-
aður var í desember síðastliðnum,
verðurbyggðurnýrmiðbæjarkjarni
í Garðabæ á næstu 3 til 4 árum eftir
hugmyndum sem Klasi hf. hefur
þróað í samstarfi við Garðabæ og
hagsmunaaðila á Garðatorgi.
Samkvæmt þeim tillögum sem
liggja fyrir er gert ráð fyrir að húsið
sem hýsir Hagkaup, Sparisjóð Hafn-
arfjarðar og Betrunarhúsið við
Garðatorg verði rifið.
KATTASYNING
Vorsýning Kynjakatta verður
haldi 10. og 11. mars 2007 í
Reiðhöll Gusts, Álalind, Kópavogi
Sýningin er opin frá klukkan 10-18
báöa dagana.
Amór L. Pálsson fsleifurjónsson Frímann Andrésson SvafarMagnússon
framkvæmdastjóri útfararstjóri útfararþjónusta dtfararþjónustíi
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Hugrúnjónsdóttir Guðmundur BaJdvinsson Þorsteinn Elísson EJJert Ingason
útfararþjónusta útfarad)jónusta útfararþjónusta útfararþjónusta
Sfieyar amlláí der að Höndum
Onnumst aíía þœtti útj-ararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Vatnajökulsþjóðgarður Frumvarp um
Vatnajökulsþjóðgarð er til umræðu hjá
umhverfisnefnd Alþingis. Sitt sýnist
hverjum um fyrirkomulag stjórnunar og
Umhverfisstofnun er ósátt viö að vera
ekki með i pottinum. >
4 y
iv > ■ xyZ'&C'
9 ÍihV:
Gagnrýni á frumvarp um Vatnajökulsþjóðgarö:
27 nefndarmenn
stjorm þjoðgarði
Klikkun Óskynsamlegt fyrirkomulag Tilraunastarfsemi
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Það á að skipa tuttugu og sjö manna
nefnd yfir þjóðgarðinum. Að mínu
mati er þetta klikkun og hvorki til
þess að einfalda stjórnsýsluna né
draga úr kostnaði. Við erum ekkert
að tala um neina smáaura," segir
Sigurjón Þórðarson, þingmaður
Frjálslyndra.
Frumvarp um stofnun Vatnajök-
ulsþjóðgarðs er til umræðu hjá um-
hverfisnefnd Alþingis. Samkvæmt
frumvarpinu yrði þjóðgarðurinn
ríkisstofnun undir stjórn umhverf-
isráðherra. Gert er ráð fyrir fjórum
svæðisstjórnum, sem í sitja tuttugu
einstaklingar, og sjö manna aðal-
stjórn. Alls munu því tuttugu og
sjö einstaklingar koma að stjórnun
þjóðgarðsins og ekki gert ráð fyrir
yfirumsjón Umhverfisstofnunar.
Óskynsamlegt fyrirkomulag
Davíð Egilsson, forstjóri Umhverf-
isstofnunar, segir ýmsar ástæður
fyrir gagnrýni á frumvarpið. Hann
fagnar engu að síður stofnun þjóð-
garðsins. „Þetta er mikið framfara-
skref en við teljum óskynsamlegt
að setja sérlög um þjóðgarðinn sem
séu á skjön við lög um náttúruvernd.
Stjórnsýslan þarf að vera samræmd
yfir landið og nýting opinbers fjár-
magns sem best,“ segir Davíð.
„Eg tel að þarna sé verið að víkja frá
stefnu ríkisins í náttúrvernd þegar
Umhverfisstofnun var stofnuð og
um þetta eiga að gilda ein lög. Með
einfaldri lagabreytingu er hægt að
ná fram því markmiði að heima-
menn geti haft virka aðkomu. Það
fyrirkomulag sem lagt er upp með er
afar flókið og óskynsamlegt, aðeins
til að sundra eðlilegri stjórnsýslu."
Leggst ekki gegn
Asta Möller, þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins og fulltrúi umhverf-
isnefndar, segir kannast vel við
gagnrýni á frumvarpið. Hún telur
fyrirkomulagið ekki í samræmi
við starfsemi Umhverfisstofnunar.
„Flestir þeirra sem undirbjuggu
frumvarpið voru heimamenn og
vildu skiljanlega hafa hönd í bagga
með stjórnun þjóðgarðsins. Þetta er
ekki í samræmi við hugsun og hlut-
verk Umhverfisstofnunar,“ segir
Ásta. „Það er eðlilegt að staldra
við því óneitanlega er þetta dálítið
stílbrot á stefnumörkuninni. Ég lít
á þetta sem tilraunastarfsemi sem
hægt verður að taka til endurskoð-
unar. Ég set fyrirvara gagnvart fyr-
irkomulaginu en mun ekki leggjast
gegn því.“
Tryggja aðkomu heimamanna
Kolbrún Halldórsdóttir, þing-
maður Vinstri grænna, telur mik-
ilvægt að sátt náist um stofnun
þjóðgarðsins. Hún leggur áherslu
á að Umhverfisstofnun komi þar
að. „Mér finnst mjög mikilvægt að
þjóðgarðurinn sé stofnaður. Hann
er sameign þjóðarinnar og við
höfum opinbera stofnun sem hefur
lögbundið hlutverk að marka stefnu
Að mínu mati er
þetta klikkun
Sigurjón Þórðarsson,
þingmaður Frjálslyndra.
Óskynsamlegt
að setja sérlög
um þjóðgarðinn
Davíð Egilsson,
forstjóri
Umhverfisstofnunar.
Églítá
þetta sem
tilraunastarfsemi
Ásta Möller,
þingmaður
Sjálfstæðisflokks.
Við stjómun þjóð-
garðs þarf mið-
iæga stjórnun
Kolbrún Halldórsdóttir,
þingmaöur Vinstri
grænna.
í umhverfismálum og um friðlýst
svæði," segir Kolbrún. „Það þarf
að tryggja algjöra aðkomu heima-
manna og Umhverfisstofnun hefur
verið að auka þá aðkomu mjög
mikið á undanfarið. Við stjórnun
þjóðgarðs þarf miðlæga stjórnun."
Kennarar og launanefnd semja:
Sex prósenta hækkun tryggð
„Þessi niðurstaða mætir auðvitað
ekki nema að litlu leyti því sem við
vorum að vonast eftir. Launanefnd
sveitarfélaga hafði ekki áhuga á að
málið færi fyrir úrskurðarnefnd
og við mátum stöðuna þannig að
það kæmi ekkert meira út úr við-
ræðunum við sveitarfélögin,“ segir
Ólafur Loftsson, formaður Félags
grunnskólakennara, um tillögu
ríkissáttasemjara sem deiluaðilar
hafa samþykkt.
Viðræðurnar snerust um endur-
skoðunarákvæði í kjarasamningi
frá 2004 þar sem segir meðal ann-
ars að taka eigi upp viðræður fyrir x.
september 2006 og meta hvort efna-
hags- og kjaraþróun gefi tilefni til
Skynsamlegra
en að vera án
samnings
Ólafur Loftsson,
formaður Félags
grunnskólakennara
viðbragða. Kennarar töldu eðlilegt
að samið yrði um 6 til 8 prósenta
launahækkun.
Samkvæmt tillögunni sem
samþykkt var fá kennarar 30 þús-
unda króna eingreiðslu 1. mai
2007, hækkunin um næstu áramót
verður 3 prósent í stað 2,25 pró-
senta auk þess sem allir hækka
um einn launaflokk (3 prósent) 1.
mars 2008. Kjarasamningurinn
gildir til loka maí 2008.
„Við töldum skynsamlegra að fall-
ast á þessa tillögu en að vera samn-
ingslausir um næstu áramót. Þá
hefðum við farið fyrstir allra í kjara-
viðræður og slíkt er erfitt. Þessi leið
hefur þó tryggt kennurum 6 pró-
senta launahækkun," segir Ólafur.