blaðið - 10.03.2007, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 10. MARS2007
blaöið
Létust í fellibyl
Þrír eru látnir og tugir slasaöir eftir aö fellibylurinn
George gekk yfir norðvesturhluta Ástralíu í gær. Fjöldi
heimila og rafmagnslínur eyðilögðust í þorpinu Port
Hedland, en yfirvöld segja bylinn vera þann versta
sem gengur yfir landshlutann trá árinu 1999.
Tvöfalda fjölda hermanna í írak
Stjórnvöld í Georgíu hafa tilkynnt að fjöldi georgískra hermanna í
írak verði rúmlega tvöfaldaður á næstunni. Nú eru 850 georgískir
hermenn í landinu, en ætlað er að fjölga þeim í tvö þúsund. Eftir
fjölgunina verða einungis Bandaríkjamenn, Bretar og Suður-Kór-
eumenn með fjölmennara herlið í Irak en Georgíumenn.
Þyrluslys á Hawaii
Fjórir létust og þrír slösuðust þegar þyrla með
ferðamönnum hrapaði á eyjunni Kauai á Hawaii í
Bandaríkjunum í gær. Þyrlan hrapaði á Princeville
flugvelli, skömmu eftir að flugmaðurinn hafði
tilkynnt um að hann ætti í vanda með hreyfilinn.
Bush í Brasilíu:
Tuttugu særðust
Óeirðir brutust út í borginni
Sao Paolo í Brasilíu við komu
George Bush Bandaríkjaforseta,
en hann hóf sex daga heimsókn
sína um heimshlutann á fimmtu-
daginn. Að sögn lögreglu særðust
rúmlega tuttugu manns í óeirð-
unum, en þúsundir manna höfðu
flykkst út á götur borgarinnar til
að mótmæla heimsókn forsetans.
Lögregla beitti táragasi og
kylfum eftir að hluti mótmælenda
hafði kastaði steinum, flöskum
og öðru lauslegu í átt að lögreglu.
Að Brasilíuheimsókn Bush lok-
inni mun hann leggja leið sína til
Orúgvæ, Kólumbíu, Gúatemala
og Mexíkó, en ætlunin með heim-
sóknunum er að styrkja bönd ríkj-
anna í heimshlutanum.
Stigahönnun í sérflokki
Stigalagerinn
Dalbrekku 26 - www.stigalagerinn.is
Kaupþing keypti
Efri árin Margur nýtir sér boð um
viðbótarsparnað til að tryggja sér
betri tíð á efri árunum. Kaupþing lét
gera úttekt á sölugögnum Allianz
varðandi viðbótarlífeyrissparnað.
Margoft kvartað til
Fjármálaeftirlitsins
■ Eins og villta vestrið án lögreglustjórans ■ Vildu skýra út samanburðinn
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Þessi markaður er eins og villta
vestrið, bara án lögreglustjóra. Út-
tektin virðist okkur heimatilbúin
frá Kaupþingi og aldrei var leitað til
okkar til að afla gagna eða fá svör við
neinum liðum skýrslunnar. Okkur
gafst því aldrei kostur á að koma
okkar skoðunum á framfæri," segir
Ágúst Daði Guðmundsson, forstöðu-
maður Allianz á íslandi. Á síðasta
ári óskaði Kaupþing eftir því við ráð-
gjafarfyrirtækið IMG að gera úttekt
á sölugögnum Allianz í tengslum
við viðbótarlífeyrissparnað. Niður-
staða ráðgjafarfyrirtækisins var í
þá veru að fúllyrðingar í gögnunum
væru ýmist villandi eða rangar og
voru niðurstöðurnar síðan sendar
út til fjölda viðskiptavina bankans.
Til þess að fræða
Helena Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Kaupþings, segir tilgang úttekt-
arinnar eingöngu hafa verið þann
að skýra betur út fyrir viðskipta-
vinum skilmála sem fyrirtækin eru
að bjóða. Aðspurð segir hún ekki
hafa staðið til að nýta niðurstöðuna
til frekari aðgerða.
„Okkar lausn var sú að fá óháð
fyrirtæki til að varpa ljósi á þessa
skilmála þar sem okkur höfðu bor-
ist ábendingar frá viðskiptavinum
um ólíka túlkun. Við vildum bara
skýra út samanburðinn og þær
flækjur sem höfðu komið upp,“
segir Helena. „I okkar huga voru
engin illindi sem komu þessu af
stað og við ekki með neitt stríð
í huga. Við sendum þetta til ein-
hverra viðskiptavina okkar og þjón-
ustufulltrúa til aukinnar fræðsíu."
Ekki algengt
Ragnar Harðarson, ráðgjafi
IMG, segir sérstakar aðstæður
hafa leitt til úttektarinnar þar
sem þónokkrar kvartanir hafi
komið fram. Hann telur eðlilegt
að niðurstöðurnar hafi verið not-
aðar í kynningarstarfi bankans.
„f þessu tilviki stóð orð gegn orði
og ákveðið að fá utanaðkomandi
aðila til að meta hvar sannleikur-
inn liggur. Kaupþing mat það sem
svo að þeirra eigin gleraugu væru
of lituð til að sýna fram á að farið
væri með rangt mál,“ segir Ragnar.
„Svona úttektir eru ekki algengar
þar sem grunnnálgunin er að fá
önnur augu til að meta hluti. f sam-
keppnislegu samhengi, líkt og hér
er, er þetta sjaldgæft."
Vilja meiri ró
Áðspurður segir Ágúst Daði fyr-
irtækið ítrekað hafa kvartað undan
vinnubrögðum Kaupþings til Fjár-
málaeftirlitsins. Hann telur mikil-
vægt að hagsmunir viðskiptavina
séu hafðir að leiðarljósi. „Það sem
okkur finnst verst í þessu máli er
að Kaupþing banki getur opnað
sama málið aftur og aftur en öllum
þessum liðum hefur verið svarað
til Fjármálaeftirlitsins. Við höfum
margoft kvartað yfir vinnuaðferðum
Kaupþings," segir Ágúst Daði. „Við
höfum alltaf verið í góðu sambandi
við FME og aldrei hefur staðið á
svörum frá okkur. Við höfum óskað
eftir fundum með Kaupþingi til að
hafa þessi mál á hreinu en þeir hafa
aldrei mætt. Það er okkar vilji að
skapa meiri ró á þessum markaði."
Ifíð vildum
bara skýra út
samanburðinn
Helena Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri
Kaupþings.
GARÐHEIMAR
heimur heillandi
hluta og hugmynda
Stekkjarbakka 6 - Sími 540 3300
www.gardheimar.is - gardheimar@gardheimar.is