blaðið - 10.03.2007, Blaðsíða 26

blaðið - 10.03.2007, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 10. MARS 2007 blaðið hag Islendinga". í staðinn fóru þeir í vörn og voru sífellt að reyna að má af sér rasistastimpilinn. Ég held að þeir muni ekki ná árangri í kosningum. Það sama held ég að gildi með framboð Margrétar Sverr- isdóttur. Margrét Sverrisdóttir er lúser. Jakob Frímann Magnússon, sá góði Stuðmaður og yndislegi tón- listarmaður, er lúser. Ómar Ragn- arsson er orðinn lúser. Það er margt gott í Ómari og hann meinar vel en hann er barnslega einfaldur. Hann gerði íslendinga að umhverfis- sinnum en gerðist síðan öfgamaður þegar hann fór að berjast fyrir því að ekki yrði fyllt í Hálslón.“ Hver er uppáhaldsstjórnmála- maðurinn þinn? „Geir Haarde er einhver best menntaði stjórnmálamaður sem við höfum átt. Ég vann með honum á Mogganum og fékk strax mikið álit á honum. Hann er vinnusamur og samviskusamur, harður af sér og fylginn sér en um leið býr hann yfir mýkt. Ef honum mislíkar eitthvað þá lætur hann vita af því en gerir það á sinn hátt. Ég hef líka mikið álit á Össuri Skarphéðinssyni. Það er alltaf glampi í augunum á Össuri og hann er skemmtilegur. Ég hef gríðarlega mikið álit á Guðlaugi Þór Þórðarsyni sem er klár strákur og vinnusamur. Duglegir menn uppskera yfirleitt alltaf. Sá stjórn- málamaður sem ég hef minnst álit á er bekkjarsystir mín úr barna- skóla, Jóhanna Sigurðardóttir. Ég hef aldrei fyrirgefið henni að hafa hlaupið úr félagsmálaráðuneytinu á sínum tíma. Hún fór á taugum, ég veit ekki hvað annað er hægt að kalla það, og yfirgaf skjólstæðinga sína. Síðan þá hefur mér fundist hún vera lýðskrumari.“ The Great White God Erþér alltafjafn illa viðforseta íslands, Ólaf Ragnar? „Ég hef ítrekað sagt að þegar kemur að útrásinni, viðskiptum og því að kynna ísland út á við þá finnst mér Ólafur Ragnar ekki eiga sinn jafnoka. Ég á heiðbláa vini sem hafa farið með honum til út- landa og þeir segjast munu fylgja honum til heimsenda ef þörf væri á. Þetta eru menn sem fóru með honum til Asíu og landa þar sem Ólafur Ragnar nýtur gríðarlegrar virðingar. Þar er litið á hann sem The Great White God. Athyglissýki hans fer hins vegar í taugarnar á mér. Hann er athyglis- fíkill og ég veit að hann viðurkennir það sjálfur. Þegar ekkert hefur verið um hann talað í einhverja mánuði þá dettur hann í það og gefur út yf- irlýsingar um fátækt á Islandi eða sest í indverskt þróunarráð. Hann fyllist óþoli og fer að skipta sér af pólitík. Mér finnst að hann eigi ekki að gera það. Það hefur ekki áður gerst í sögu forsetaembættis- ins. En menn máttu vita það þegar þeir kusu Ólaf Ragnar Grímsson að ekkert yrði eins og það var.“ Er það ekki einkenni sterkra stjórnmálamanna að þurfa sinn skammt af athygli? „Ekki spurning. Sjáðu Jón Bald- vin. Hann hleypur á milli funda, hvort sem það er á Þjórsárbökkum, Hafnarfirði eða Mosfellsbæ. Hann gerir allt vitlaust í Silfri Egils og Ingibjörg Sólrún rekur hann frá hirð sinni. Davíð Oddsson er annað dæmi um fyrrverandi stjórn- málamann sem minnir reglulega á sig. 1 sporum Geirs Haarde væri ég brjálaður yfir þessu endalausa stýrivaxta-uppistandi Davíðs Odds- sonar. Ég ber virðingu fyrir Davíð og Jóni Baldvini en ég ber ekki virð- ingu fyrir því hvernig þeira haga sér sem fyrrverandi stjórnmála- menn. Gamlir hershöfðingjar eiga að draga sig rólega í hlé.“ Niður veisældarhjólsins Hvernig horfir klámumrœðan við þér? „Mér fannst engin ástæða til að bjóða þetta fólk sem vildi gista á Hótel Sögu velkomið. Þótt ekki hefði verið nema einn linkur á heimasíðu þessa fólks sem vísaði á barnaklám- síðu þá var það nóg til að segja: Við viljum ekki sjá þetta fólk. Mér fannst flott hjá Vilhjálmi bo'rgastjóra að segja: Þetta fólk passar ekki hér á landi. Og allar kvennahreyfingar og öll jafnréttissamtök sögðu: Hallelúja. Svo kom gamli bóndinn á sauðskinn- skónum, Bændasamtökin, og sagði: Lok, lok og læs og allt í stáli. Það er mikið framboð á klámi og klámneysla hér á landi frá tólf ára til áttrætt er landlæg. Ef Islendingar stæðu fyrir framan spegil og segðu „Ég ber virðingu fyrir Davíð og Jóni Baldvini en ég ber ekki virðingu fyrir því hvernig þeira haga sér sem fyrrverandi stjórn- málamenn. Gamlir hers- höfðingjar eiga að draga sig rólega í hlé." ,ég hef aldrei skoðað klám“ þá er ég hræddur um að svartur blettur kæmi á tunguna á mönnum um landið þvert og endilangt. En menn læsa að sér, fara í tölvuna og lækka í henni svo stunurnar heyrist ekki. Þegar ég var að alast upp skoðuðu litlir strákar frönsk póstkort með fáklæddum konum og þar sást í geirvörtu og nælonsokkur var upp á læri. Við strákarnir vorum froðufell- andi yfir þessu. Þetta er bara hluti af lífinu.“ Finnst þér gott að vera íslend- ingur í dag? „Við höfum það rosalega gott. Ég er óskaplega bjartsýnn. Mér finnst ég heyra niðinn í velsældarhjólinu. Þesi þjóð er ekki hnípin og ekki í vanda. Sjálfum finnst mér ákaflega gaman að lifa. Ég segi að ég eigi ío.ooo Hrafnaþingsaðdáendur og auk þess eru cirka 20. þúsund sem elska að hata mig. Ég fæ sendan póst þar sem stendur: Þú ert svo ógeðs- legur... Þú ert svo leiðinlegur... Þú ert svo brjálaður. Þá svara ég: Takk fyrir að horfa - Takk fyrir að hlusta. Svo hitti ég fólk á förnum vegi og það tekur í höndina á mér og segir: ,'fakk fyrir þættina þína. Ég er ekki alltaf sammála þér en helvíti ertu góður...“. Það er óskaplega gaman af þessu. Ég verð 65 ára í sumar og er ekkert unglamb lengur. Það er erfið- ara en áður að halda dampi í 15 -20 mínútna inngangi að þáttunum. En þegar ég sest niður við tölvuna og finn fyrstu setninguna þá kemur hitt af sjálfu sér. Ég held að það sé svipað með kollega mína, hvort sem það er Stymir Gunnarsson, Þor- steinn Pálsson, Sigurjón M. Egilsson eða Trausti Hafliðason. Þegar menn þurfa að setjast niður og skrifa leið- arann þá gera þeir það.“ kolbrun@bladid.net „Óskaríkisstjórnin mín hefði, undir eðlilegum kringumstæðum, verið Samfylking og Sjálfstæð- isflokkur. Ég hefbara ekki trú á því eins og Sam- fylkingin er núna að slík stjórn gæti gengið." PÓSTURINN allur pakkinn & M': Bítur hundurinn? Við hjá Póstinum biðjum hundaeigendur að sýna bréfberum tillitssemi og gæta þess að þeim standi ekki ógn af heimilis- hundinum. Æskilegt er að hundurinn sé hafður í bandi utandyra og að honum sé haldið frá bréfalúgunni. Það auðveldar okkur að koma póstinum til ykkar hratt og örugglega. Þjónustuver | sími 580 12001 postur@postur.is | www.postur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.