blaðið - 10.03.2007, Side 36
36 LAUGARDAGUR 10. MARS 2007
blaöiö
Hann fann lítil skæri inni á bað-
herberginu. Hann faldi þau í
hægri hendi sem_hann hélt fyrir
aftan bak og fór aftur inn.
IR KARLMENN TÓKU TAL SAMAN ^LI OG FÓRU ÞAÐAN TIL HEIMILIS ANNARS ÞEIRRA.
Af geðdeildinni á Óðal c >g þaðan...
Gestur Sigurbjörnsson var laus af
geðdeild Landspítalans. Kvöldið eft-
ir að hann gekk þaðan út fór hann á
Óðal, þrátt fyrir að hann væri enn
þá miður sín, vansvefta, leiður í
skapi og upptrekktur. Á Óðali fékk
hann sér í glas. Hann þekkti fáa á
Óðali, reyndar bara einn gestanna
en sá starfaði sem gæslumaður á
geðdeildinni. Guðjón spjallaði við
gæslumanninn um stund en ráfaði
síðan um húsið.
Hans Wiedbusch, Þjóðverji, sem
búið hafði á íslandi um nokkurt
skeið, var líka á Óðali þetta kvöld.
Að því kom að Hans ávarpaði Gest.
Hann talaði ekki lýtalausa íslensku.
Þegar kom að því að barnum var
lokað bauð Hans Gesti með sér
heim, sagðist eiga þar vín. Gestur
þáði boðið og stakk upp á því að
þeir næðu sér í stelpur en Hans
vildi það ekki. Eftir að þeir höfðu
náð i leigubíl fóru þeir saman heim
til Hans en hann bjó í húsi við
Grenimel.
Ertu hommi?
Þegar þeir voru sestir inn bauð
Hans í glas. Hann gaf Gesti viskí-
blöndu en drakk sjálfur eitthvað
úr staupi. Hans setti plötu á fón-
inn og þeir hlustuðu, spjölluðu
og drukku. „Ertu hommi?“ Þessa
spurningu setti Gestur fram þar
sem honum þótti einkennilegt að
Hans vildi ekki að þeir næðu sér í
stelpur. Hans þverneitaði að hann
væri hommi.
„Viltu marijuana?" Það var Hans
sem bauð og Gestur þáði. Gestur
hafði aldrei áður reykt marijuana
og reyndar hafði hann heldur ekki
áður neytt neinna fíkniefna. Hans
sótti pípu sem hann setti eitthvert
brúnt efni í og kveikti síðan í og
Gestur reykti. Hans fékk sér tvo
smóka eða þrjá en annars reykti
Gestur úr pípunni meðan efnið ent-
ist. Hann fann greinileg áhrif, varð
undarlegur og slappur. Hans bauð
honum að gista um nóttina sem
Gestur þáði.
Vaknað upp við vondan draum
Hans bauð Gesti að leggjast í
rúm í borðstofunni sem var inn af
stofunni, þeirri sem þeir höfðu ver-
ið í. Gestur háttaði sig úr öllu nema
nærbuxum og bol. Hann gat ekki
sofnað og kallaði í Hans og sagði
honum að sér liði ekki vel. Hans
kom með vatnsglas og tvær hvítar
töflur. Gestur tók töflurnar og sofn-
aði fljótlega.
Hans svaf vært þar til hann vakn-
aði upp við vondan draum. Hans,
sem var allsnakinn, var kominn of-
an á hann og var að hafa við hann
mök. Hans hafði afklætt Gest svo
hann var einnig allsnakinn. Hans
hafði náð að setja liminn á sér inn
í endaþarm Gests. Gestur fann mik-
ið til og brá mjög og varð reyndar
skelfingu lostinn. Honum fannst
hann verða að gera út af við Hans.
Gestur sagðist þurfa að fara á sal-
ernið og þá fór Hans ofan af hon-
um. Gestur fór inn á salernið og
leitaði þar að vopni.
Hann fann lítil skæri inni á
baðherberginu. Hann faldi þau í
hægri hendi sem hann hélt fyrir
aftan bak og fór aftur inn til Hans
sem var sestur upp. Án þess að
hika reiddi Gestur upp skærin og
ætlaði að stinga þeim í hjartastað
Hans en hitti ekki og skærin fóru
í brjóst hans. Gestur kippti skær-
unum úr sárinu og hörfaði. Hans
stóð upp og gekk að Gesti, tók um
úlnlið hans og sagði: „Biddu Guð
að hjálpa þér.“
Þeir tókust á og leikurinn barst
fram á gang. Að því kom að Gestur
hafði betur og Hans hneig niður.
Gestur sá að skærin höfðu brotn-
að þegar hann stakk þeim í Hans
og hljóp því fram í eldhús og sótti
þangað brauðhníf.
Gestur lagði hnífnum í brjóst
hans og hreyfði hann í sárinu sem
mest hann mátti. Næst dró hann
Hans inn í stofuna og tók fyrir vit
hans til að stytta honum aldur en
Hans gaf frá sér hryglukennd hljóð
og braust um. Gesti þótti ekki nóg
að gert. Hann náði í önnur skæri
og stakk þeim í auga Hans. Hann
stakk Hans líka nokkrum sinnum
í brjóstið og neðan við naflann.
Að því loknu tók hann peninga úr
veski Hans, kvikmyndavél, nokkr-
ar filmur og segulbandstæki
Varð ekki svefnsamt
Gestur gekk heim til sín. Hon-
um varð ekki svefnsamt um nótt-
ina og gekk um gólf þar til hann
varð að mæta í vinnu um morg-
uninn. Þegar hann kom heim um
kvöldið ákvað hann að losa sig við
það sem hann hafði stolið. Hann
fór út með myndavélina, filmurn-
ar og segulbandið og kom því fyrir
í leirleðju við enda Tjarnarinnar.
Gestur gat enn ekki sofið og fór
ekki í vinnu daginn eftir. Hann
gekk um borgina og sú hugsun
leitaði stöðugt á hann hvort hann
ætti að gefa sig fram en hann gerði
það ekki. Um kvöldið drakk hann
en gat ekki sofið. Það var ekki fyrr
en undir morgun, eftir að hafa tek-
ið eina lyfjatöflu, sem hann festi
svefn. Hann vaknaði við að bank-
að var harkalega. Hann fór til dyra.
Rannsóknarlögreglan var komin.
Dómurinn
Það var að morgni 18. septemb-
er 1981, rúmum sólarhring eftir
morðið sem lík Hans fannst í íbúð-
inni. Fingraför Gests voru víða í
íbúðinni. Lögreglan lét rannsaka
plöntur sem fundust í íbúðinni.
Niðurstaðan varð sú að þær væru
kannabisjurtir. Við leit í Tjörninni
fundust filmurnar, kvikmynda-
vélin og segulbandið. Filmurnar
reyndust vera klámspólur en á
þeim voru karlmenn að hafa mök
hver við annan
Gestur var dæmdur til að sæta
fangelsi í tólf ár fyrir morð.