blaðið - 10.03.2007, Side 39
blaðið
LAUGARDAGUR 10. MARS 2007 39
sjónvarpið. Síðan vorum við beðnir
um að halda áfram með þessa hug-
mynd en Pálmi Gestsson kom í stað-
inn fyrir Ladda þegar hann þurfti að
hverfa til annarra starfa. Við höfum
því verið saman í tæp tuttugu ár. Það
getur verið erfitt en hefur gengið
átakalaust. Við höfurn ekki þurft að
rífast mikið enda frekar rólegir og
hógværir menn. Okkur hefur sem
betur fer komið ágætlega saman í
gegnum árin annars hefði þetta sam-
starf ekki gengið.“
Erum stjórnarandstaða
Randver segir að vikan fari nánast
öll í vinnu við Spaugstofuna en fimm-
menningarnir hittast á mánudögum
og þriðjudögum. „Þá vinnum við hug-
myndavinnuna saman en síðan tekur
hinn frábæri rithöfundur, Karl Ágúst,
við og skrifar handritið. Við tökum
þættina upp á fimmtudögum og föstu-
dögum og það geta verið mjög langir
dagar. Velgengni okkar er að mildu
leyti falin í því að hjá Ríkissjónvarp-
inu er frábært starfsfólk sem hefur
unnið með okkur í gegnum árin og er
orðið gott í þessari vinnu. Ég hugsa að
við hefðum aldrei getað gert þetta án
þeirra,“ segir Randver og bætir við að
vitanlega reyni Spaugstofan alltaf að
vera ferskir með fréttir og annað sem
liggur á þjóðinni. „Við erum stjórn-
arandstaða, höfum alltaf verið það
og viljum vera það. Ég vona að við
tölum fyrir hönd þjóðarsálarinnar,
sennilega gerum við það stundum
og stundum ekki. Stundum hneyksl-
ast þjóðarsálin á okkur og finnst við
ósanngjarnir og stundum leiðinlegir
en stundum tölum við máli hennar."
Gjöful þjóð
Hvort heldur sem er virðast Spaug-
stofumenn gera ansi margt rétt því
áhorfið á þættina hefur alltaf verið
mjög gott. „Það er alveg með ólík-
indum hvað við höfurn alltaf verið
með gott áhorf. Spaugstofan hefur
verið vinsælasti þátturinn undan-
farin ár og við erum mjög stoltir
af því. Það gleður okkur mikið að
þjóðin skuli taka okkur svona vel og
vilji hafa okkur fyrir augunum á laug-
ardagskvöldum. Við reynum hvað
við getum að gera þetta að þátt sem
allir geta horft á og ég held að áhorf-
endahópur okkar sé mjög breiður,“
segir Randver sem tekur fyrir að
erfitt sé að vera með ferskt efni viku-
lega. „Stundum er þjóðin voða gjöful
og er að gera einhverja tóma vitleysu,
þá er gaman að vera til. Stundum
koma tímar þar sem lítið gerist en þá
reynum við að búa eitthvað til. Það er
ekkert erfitt, maður bara reynir það
sem hægt er.“
Erum ekki svo slæmir
Þrátt fyrir að flestir þættir Spaug-
stofunnar falli í kramið hjá land-
anum varð einn þáttur efni mikillar
umræðu í þjóðfélaginu. Eftir þátt
sem sýndur var um páskana árið 1997
voru Spaugstofumenn sakaðir um
guðlast og málið fór alla leið til lög-
reglunnar. „Það átti að dæma okkur
fyrir guðlast en varð aldrei af. Ég
held að þjóðin sé viðkvæm fyrir öllu
sem snýr að kirkjunni og trúmálum.
Ætli þjóðin sé ekki svolítið tvöföld í
roðinu með þetta en hún verður voða-
lega viðkvæm þegar tekið er á ein-
hverju í Biblíunni. Eins og það sé guð-
last að vera með aðra sýn á Biblíuna
en þessa venjulegu og hátíðlegu. Við
erum ekki einir um að hafa gert það
og það eru meira að segja til heilu bíó-
myndirnar sem fjalla á gamansaman
hátt um Biblíuna. Það var svo sem
ekkert þægilegt að standa í þessu
því okkur fannst ekki að það þyrfti
að taka þáttinn svona alvarlega. Það
er til dæmis ofsalega lítið um það
að stjórnmálamenn verði ósáttir við
okkur, ef það er nokkuð. Ég held að
menn verði að minni ef þeir reyna
að finna að svona, ekki nema að það
sé eitthvert persónulegt níð sem ég
held að við höfum alveg verið lausir
við. Það er kannski ekkert þægilegt
að horfa á einhvern herma eftir sér í
sjónvarpinu og láta þjóðina hlæja að
sér. En þetta er víða gert og við erum
ekki svo slæmir.“
Stoltur af Ijölskyldunni
Randver segist vera mikill fjöl-
skyldumaður, enda á hann góða fjöl-
skyldu sem hann er stoltur af. „Ég er
giftur Guðrúnu Þórðardóttur sem er
leikkona. Við eigum tvö börn, Halla
Björg sem er nýútskrifaður bók-
menntafræðingur og Árni Þórður
sem er að fara í samræmdu prófin
í vor.
Ég held að góð fjölskylda sé grunn-
urinn að öllu en ég kynntist Guð-
rúnu árið 1974 vestur á Bolungavík
þar sem hún var í sumarvinnu og ég
var í heimsókn.“ Þegar Randver er
inntur eftir því hvernig hægt sé að
viðhalda hamingjusömu sambandi
svona lengi segist hann hreinlega
ekki vita það. „Felst það ekki bara í
því að bera virðingu fyrir makanum,
sýna honum trúnað og reyna að
láta hana umbera mann? Það hefur
virkað hjá mér hingað til."
svanhvit@bladid.net
eso
dekor
BÆJARLIND 12 - S: 544 4420
Tilboðsvörur í mars