blaðið - 10.03.2007, Page 43
blaöið
LAUGARDAGUR 10. MARS 2007 43
Bíó um helgina
KvikmyndaklúbburinrTFjalakött-
urinn stendur fyrir kvikmyndasýn-
ingum í Tjarnarbíói á morgun og á
mánudag. Klúbburinn hefur það
að markmiði að stórauka kvik-
myndaúrval hér á landi með því
að bjóða upp á sýningar á annars
konar myndum en hefur tíðkast
í kvikmyndahúsum borgarinnar
undanfarin ár. Að þessu sinni verða
eftirfarandi myndir sýndar:
11. mars
Kl. 15 Dauðinn áferð
Kl. 17 Trönurnar fljúga
Kl. 19 Syndir feðranna
Kl. 21:15 Solaris
12. mars
Kl. 17 Andrei Rublev
Kl. 20 I fyrir Indland
Kl. 22 Austan við Eden
Félagsgjald á vormisseri Fjalakatt-
arins er 4000 krónur sem veitir
aðgang að öllum sýningum á
tímabilinu (um 30 myndir). Einnig
eru í boði stakir miðar á 900 krónur.
Nánari upplýsingar um Fjalaköttinn
má nálgast á filmfest.is.
UM HELGINA
Kammermúsík í
Bústaðakirkju
Erling Blöndal Bengtsson selló-
leikari, Nina Kavtaradze píanó-
leikari og Einar Jóhannesson
klarínettuleikari koma fram á
tónleikum Kammermúsíkklúbbs-
ins í Bústaðakirkju sunnudaginn
11. mars klukkan 20.
Afmælistónleikar
kammerkórs
Kammerkór Reykjavíkur heldur
afmælistónleika í Laugames-
kirkju í dag klukkan 17. Flutt
verða sönglög sem kórinn hefur
flutt á þeim fimm árum sem
hann hefur starfað.
Tónsprotinn í
Háskólabíói
Tónsprotinn er yfirskrift tónleika
Sinfóníuhljómsveitar Islands í
Háskólabíói í dag klukkan 15.
Flutt verða verk eftir Mozart,
Berlioz, Atla Heimi og fleiri.
Stjórnandi er Bernharður Wilkin-
son og einsöng syngur Guðrún
Ingimarsdóttir.
Myndlist á Akureyri
Myndlist-
arkonan
j.. Karen Dúa
Kristjáns-
dóttir opnar
sýningu
sína „Draugurinn - ég“ á Café
Karólínu í dag klukkan 14.
Pönk í Hljómalind
Pönktónleikar verða haldnir í
Hljómalind á morgun, sunnu-
dag, klukkan 19.30. Meðal
þeirra sem fram koma eru
hljómsveitirnar Innvortis, Death-
metal Supersquad, The Best
Hardcore Band in the World og
The Brat Pack. Aðgangseyrir er
500 krónur.
Frægur fjallagarpur
Hinn víðfrægi fjaHagarpur Steve
House heldur fyrirlestur og
veröur með myndasýningu um
ævintýri sín (sal Ferðafélags
íslands, Mörkinni 6, mánudag-
inn 12. mars klukkan 20. Hann
er staddur hér á landi í tilefni af
30 ára afmæli (slenska Alpafé-
lagsins.
Fatamarkaður menntskælinga
Hópur nemenda í Menntaskólan-
um í Kópavogi mun í samstarfi við
Kópavogsdeild Rauða kross íslands
halda fata- og nytjamarkað um helg-
ina til styrktar ferðasjóðs Dvalar,
athvarfs fyrir geðfatlaða. Markaður-
inn er haldinn í sjálfboðamiðstöð
Kópavogsdeildar Rauða krossins að
Hamraborg n í dag og á morgun og
stendur frá kl.n til 16 báða dagana.
Allur ágóði af fata- og nytjamarkað-
inum rennur í ferðasjóð Dvalar.
Þar verða notuð föt og ýmis varn-
ingur til sölu á vægu verði. Meðal
annars verða á boðstólum föt á kon-
ur og karla á öllum aldri, barnaföt,
skór, handtöskur, leðurjakkar, úlp-
ur, borðbúnaður, bækur og dúkar.
Fötin flokkuð Nemendur við Menntaskólann
í Kópavogi flokka föt fyrir markað sem haldinn
verður um helgina til styrktar ferðajóði Dvalar,
athvarfs fyrir geðfatlaða.
Markaðurinn er lokaverkefni Rauða krossins sem boðið er upp á
í áfanga um sjálfboðaliðastarf í Menntaskólanum í Kópavogi. MK
var fyrsti framhaldsskóli landsins
sem kennir slíkan áfanga en þetta
er þriðja önnin í röð sem hann er
kenndur við skólann.
Auk þess að skipuleggja markað-
inn vinna nemendurnir sjálfboðin
störf fyrir Kópavogsdeild Rauða
krossins í um einn til tvo tíma á _
viku hverri. Meðal annars starfa
þeir með ungum innflytjendum, að-
stoða aldraða og langveik börn og
veita geðfötluðum í Dvöl stuðning.
Markmiðið með starfsemi Dval-
ar er að rjúfa félagslega einangrun,
draga úr fordómum og auka lífs-
gæði þeirra sem eiga við geðræna
sjúkdóma að stríða. Athvarfið er nú
að hefja sitt níunda starfsár.
$ SUZUKI
—er lífsstíll!
I BILAR HF.
’. Sími 568 5100.
ilbúinn fyrir
útivistarfólkið!
Suzuki Swift 4x4
Verð 1.799 þús.
Afborgun á mánuði*
kr. 19.676