blaðið - 10.03.2007, Qupperneq 55
blaðið
LAUGARDAGUR 10. MARS 2007 55
Stöð 2 kl. 20.25
Lengi lifi suðrið
The Dukes of Hazzard er eldhress
gamanmynd um frændurna Bo og
Luke Duke sem komast að því að
spilltur embættismaður áformar
að rífa sveitabæ fjölskyldunnar.
Söngkonan Jessica Simpson er
hér í sinu fyrsta kvikmyndahlut-
verki. Kvikmyndin er byggð á
samnefndum sjónvarpsþáttum
sem nutu mikilla vinsælda í Banda-
ríkjunum. Fyrir utan hlut Jessicu
Simpsons í myndinni þá leika þeir
Sean William Scott og Johnny
Knoxvilee aðalhlutverkin en einnig
bregður gamla brýnið Willie Nel-
son fyrir í myndinni.
Leikstjóri myndarinnar er Jay
Chandrasekhar en hann er hluti af
Broken Lizard genginu sem hefur
meðal annars gert myndirnar
Super Troopers og Beerfest.
SkjárEinnkl. 21.50
Raunir framtíðar
Framtíðarþáttaröðin Battlestar
Galactica á dyggan hóp aðdá-
enda. f þáttunum er fylgst með
klassískri baráttu góðs og ills
eftir að hinir iilskeyttu Cylons
réðust á jarðarbúa og tortímdu
milljörðum manna. Aðeins örfá
geimskip komust undan og eru
sfðasta von jarðarbúa.
Cylons elta þau uppi en áhöfn
Galactica-orrustugeimskipsins
gefst ekki upp fyrr en í fulla hnef-
ana. Þetta er lokaþáttur þannig
að von er á mikilli spennu og
látum. Upphaflegu þættirnir um
Battlestar Galactica hófu göngu
sína árið 1978 og hafa síðan
þá verið í miklu uppáhaldi hjá
vissum hópum.
Stöð 2 Bíó kl. 00.00
Elskan, ég er
njósnari
Kvikmyndin True Lies er hörku-
spennandi. Hún fjallar um
njósnarann Harry Tasker sem er
karl í krapinu. Hann starfar sem
njósnari en telur fjölskyldu sinni
trú um það að hann sé í raun og
veru sölumaður. Hann þreytist
ekki á að bjarga landsmönnum
frá hryðjuverkamönnum en getur
hann bjargað hjónabandi sínu?
Eiginkona hans þráir spennu
sem hinn leiðinlegi lífstíll eig-
inmanns hennar getur engan
veginn veitt henni og fer þá af
stað atburðarás sem er í senn
spennandi og bráðfyndin.
Með aðalhlutverk fara Arnold
Schwarzenegger og Jamie Lee
Curtis en á meðal annarra leik-
ara eru Tom Arnold, Bill Paxton,
Tia Carrere og Eliza Dushku.
Spielberg tryggir sér réttinn aö Tinna
Teiknimyndapersónan Tinni,
sem ætti að vera íslendingum góð-
kunnur, mun kannski innan tíðar
birtast á hvíta tjaldinu. Svo mikið
er víst að margir bíða eflaust spennt-
ir eftir því að geta geta barið Tinna,
Tobba, Kolbein Kaptein, Prófessor
Vandráð og treggáfuðu lögreglu-
þjónana Skafta og Skapta augum á
hvíta tjaldinu.
Það er enginn annar er stórleik-
stjórinn Steven Spielberg sem hef-
ur tryggt sér kvikmyndaréttinn af
ævintýrum Tinna. I gær var það
formlega tilkynnt að Herge Studios
hefði afsalað sér réttinum til fyrir-
tækis Spielberg. Ólíklegt er talið að
Spielberg muni sjálfur setjast í leik-
stjórastólinn heldur framleiði þess í
stað myndinna. Það hefur ekki verið
neitt leyndarmál að Spielberg hefur
verið að eltast við kvikmyndaréttinn
að Tinna síðan á níunda áratugnum.
Ekki en enn ljóst í hvaða formi
myndin verður en heimildir herma
að hundurinn Tobbi verði tölvuteikn-
aður og hefur Spielberg undir hönd-
um myndefni frá Weta fyrirtæki Pet-
er Jacksons þar sem Jackson sjálfur
er að leika við tölvuteiknaðan Tobba.
Svo mikið er víst að margir bíða
eflaust spenntir eftir ævintýrum
Tinna en svo er það bara spurning
hvort einhver af hinum 23 Tinnabók-
um verði kvikmynduð eða hvort að
skrifuð verði alveg ný saga.
Kaffið frá Te & Kaffi
Te & Kaffi býður nú þrjár gæðablöndur í hagkvæmum
400 g umbúðum. Þú finnur kaffi við þitt hæfi frá
Te & Kaffi í verslunum um land allt.
stimdin - bragðið - stemningin