blaðið - 15.03.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 15.03.2007, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2007 blaöið VEÐRIÐ I DAG Lægir Dregur úr vindi síðdegis. Slydduél eða skúrir á vestanverðu iandinu og rigning eða slydda um tíma suðaust- anlands. Hiti 0 til 7 stig, hlýjast á Austfjörðum. Á MORGUN Slydduél syðra Vestlæg átt, 8-13 m/s og dálítil snjókoma norðan- lands, en slydduél fyrir sunnan. Hiti kringum frostmark. VÍÐAUMHEIM 1 Algarve 18 Amsterdam 12 Barcelona 18 Berlín 11 Chlcago 9 Dublln 13 Frankfurt 14 Glasgow Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Montreal 11 New York 12 Orlando s Osló 11 Palma u París ífl Stokkhólmur 6 Þórshöfn 10 16 9 22 14 10 9 Ósáttur íbúi í Asparfelli vegna inngöngu verktaka í leyfisleysi: Ótrúlega mikill ruddaskapur Rótuöu í nærfötum ■ Búin aö kæra ■ Vitleysa, segir talsmaöur verktakans Fóru inn af svölunum Ung kona segir verktaka hafa farið inn og rótað í ■■ dóti hennar. mmm Á FÖRNUM VEGI TRÚIR ÞÚ Á DRAUGA OG HULDUFÓLK? Elna María Tómasdóttir, nemi Nei, það geri ég ekki. Ingvar Óskar Sveinsson Nei, ég hef aldrei gert það. Elfsabet Jónsdóttir, nemi Nei. Halldór Hrafn Erlendsson, nemi Neits. Gunnhildur Pétursdóttir, nemi Nei, en ég er samt ekki alveg viss. Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Þeir fóru inn í íbúðina mina í leyfis- leysi og án erindis. Þeir rústuðu öllu hjá mér og rótuðu meðal annars í nærfataskúffunni. Þetta er ekkert annað en nauðgun á heimili mínu og einkalífi,“ segir Heiðdís Hafdísar- dóttir, íbúi í Asparfelli í Reykjavík. Starfsmenn á vegum bygginga- verktakafyrirtækisins Betri bær fóru inn um ólæstar svaladyr á íbúð Heiðdísar fyrir viku. Ibúðin er á sjöttu hæð. Verktakafyrirtækið ber því við að starfsmennirnir hafi skipt um rúðu í íbúðinni en Heiðdís þvertekur fyrir að það hafi verið gert. Daginn eftir kærði hún atburð- inn til lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu sem rannsakar nú málið. Farið inn án leyfis HeimirRíkarðsson.aðalvarðstjóri hverfisstöðvar höfuðborgarlögregl- unnar í Breiðholti, segir kæruna lúta að svokölluðu húsbroti þar sem hús- eiganda hafi ekki verið kunnugt um að farið yrði inn. I skýrslum lögregl- unnar liggur ekki fyrir staðfesting hvort skipt hafi verið um rúðu eða ekki. „Verktaki ber þvi við að lengi hafi staðið til að skipta um rúður í húsinu og að illa hafi gengið að ná í alla íbúa. Þeir hafi því ákveðið að fara inn og skipta,“ segir Heimir. „Málið er til rannsóknar hjá okkur og er komið í ferli. Mér sýnist málið snúa að þeirri staðreynd að farið var inn i íbúðina án leyfis en iðnaðar- mennirnir töldu sig hafa leyfi.“ Fjárhagslegt tjón Heiðdís segir umganginn hafa verið sóðalegan og að skemmdir hafi verið unnar á gólfum og gólflistum íbúðarinnar. Hún segist hafa tekið samstundis eftir því að farið hafi verið inn í íbúðina. „Um íbúðina voru fótspor um allt og grátt kítti á gólfunum sem ég næ ekki af. Síðan var búið að dreifa einangrunarull út um alla stofuna, meðal annars yfir koddann minn og sæng sem voru í sófanum,“ segir Heiðdís. „Þeir eyði- lögðu gólflista undir gluggunum í stofunni og því um fjárhagslegt tjón að ræða. Verktakinn gaf lögregl- unni þá skýringu að þeir hafi verið að skipta um glugga en það er bara ekki satt.“ Vísar málinu á bug Guðmundur Hreinsson, tals- maður Betri bæjar og bygginga- stjóri verksins, vísar ásökununum alfarið á bug og segir erindi starfs- mannanna alveg ljóst. Hann segir útilokað að atburðirnir hafi átt sér stað. „Það var bara verið að skipta um rúðu og það er alveg klárt. Þeir sem eru í glerskiptingum hjá okkur eru sextugir menn frá Vestmanna- eyjum og ég get ekki ímyndað mér neinn ribbaldagang hjá þeim,“ segir Guðmundur. „Þeir eru orðnir svo gamlir að þeir eru örugglega búnir að missa kynhvötina þessir karlar. Þetta getur ekki staðist og ég vísa þessu alfarið til föðurhúsanna.“ Ógeðslegur ruddaskapur Aðspurð segir Heiðdís að hún sé í algjöru sjokki eftir atburðinn. Hún telur nokkurn tíma þurfa að líða áður en hún jafni sig að fullu. ,Þegar ég kom inn í svefnherbergi blasti þar við mér galopin nær- fataskúffa og nærbuxurnar mínar stóðu þar upp úr. Ég veit að ég skildi ekki við skúffuna svoleiðis,“ segir Heiðdís. „Þetta er alveg ótrúlegt. Mig langaði fyrst til að kveikja í öllum nærbuxunum en fór með þær allar í þvottavélina. Mér finnst þetta bara ógeðslegt og ótrúlega mikill ruddaskapur." Guðmundur segir útilokað að við slíkar ásakanir verði unað. Hann segir alveg klárt að fullkom- lega hafi verið farið eftir vinnu- reglum. „Þessar ásakanir eru gjör- samlega út í hött og ég er alveg orðlaus. Við erum mjög vanir að vinna fyrir húsfélög og þar er mis- jafn sauðurinn auðvitað. Fásinnan er þvílík og við getum ekki unnið undir svona ásökunum,“ segir Guðmundur. Fjórðungur aldraðra: 30 þúsund eða minna Fjórðungur eftirlaunaþega fær minna en 30 þúsund krónur á mánuði frá Tryggingastofnun ríkisins, og 66 prósent þeirra telja að verslunarstörf henti eftirlaunaþegum vel. Þetta var á meðal þess sem viðhorfs- könnun sem Rannsóknaset- ur verslunarinnar lét gera í síðasta mánuði leiddi í ljós. Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun er skýring- in á 30 þúsundunum sú, að fjármagnstekjur og tekjur úr lífeyrissjóðum eru farnar að vega þungt i heildartekjum margra eftirlaunaþega, og eiga þeir því aðeins rétt á grunnlíf- eyri frá Tryggingastofnun. Roman Abramovich: Dýrustu slit allra tíma Rússneski auðjöfurinn Roman Abramovich og Irena, kona hans, hafa náð samkomulagi um forræði yfir börnum sínum fimm og þá fjárhæð sem Irena fær í sinn hlut vegna skilnað- ar hjónanna. Fjárhæðin hefur ekki verið gefin upp, en breskir fjölmiðlar segja hana nema andvirði rúmlega 700 milljarða króna og er skilnaðurinn þar með dýrasti skilnaður sögunnar. Roman og Irena höfðu verið gift í sextán ár, en ástæða skiln- aðarins ku vera sú að Roman hafi átt í ástarsambandi við Dariu Zhukovu, 23 ára fyrirsætu. Roman skipar sextánda sæti á lista yfir ríkustu menn heims. Dodge Ram 2500 5,9 L Disel. 1. Janúar verða settar 90 km/klst. hraðatakmarknir. Eigum enn til bíla ó lager sem verða ón hraða- takmarkana. Nýtt útlit, Laramie búnaður, leður, allt rafknúið, klædd skúffa, ofl. Tveggja ára ábyrgð, þjónustaður af Ræsi. Sýningarbíll á staðnum. Oklcar verð: 4.400 þús. www.sparibill.is Skúlagötu 17 Sími: 577 3344 Dómur mildaöur vegna óútskýrðra tafa: Tók rúm tvö ár að ákæra „Þetta er algjörlega ótækt. Fordæmi fyrir þessu eru of mörg, ekki síst í kynferðisbrotamálum, þar sem mál ýmist falla niður eða vægir dómar fást. Það er mjög alvarlegt mál ef rannsókn er ábótavant eða hún dregst á langinn, sérstaklega í málum sem ekki alltaf ná alla leið i kæru,“ segir Sigþrúður Guðmunds- dóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf. Á mánudag var karlmaður dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Árásar- maðurinn réðst að konu og barði hana í andlitið með þeim afleið- ingum að hún nefbrotnaði og fékk heilahristing. Þótti fullsannað að árásin hefði átt sér stað en rúm tvö ár liðu hins vegar frá því að brotið var framið og þar til ákæra var gefin út á hendur manninum. í dómnum er sérstaklega tekið tillit til þess hversu langan tíma málið tók og tekið fram að engar skýringar sé að finna á þeim drætti sem varð. Kolbrún Benediktsdóttir, full- trúi hjá ríkissaksóknara, bendir á að ákveðnar vinnureglur séu gefnar út af embættinu til að tryg- gja málsmeðferð innan ákveðins tíma. Hún segir dóm mildaðan ef um óskýrðan drátt sé að ræða. „Það er ekki gert upp á milli mála- flokka en því miður hafa ofbeldis- mál oft tekið of langan tíma. Þetta hefur reynst vandamál og eitthvað sem ákæruvaldið þarf að taka á sig,“ segir Kolbrún. Lengi að ákæra Karlmaður hlaut tveggja mánaða skilorðsbundiö fangelsi eftir að hafa ráðist á konu af tilefnislausu.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.