blaðið - 15.03.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 15.03.2007, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2007 bla6ið INNLENT BRUNI Eldur í byggingu Landsnets Eldur kviknaði í tengibyggingu Landsnets skammt frá Hellisheiðarvirkjun rétt fyrir miðnætti í gær. Engan sakaði og lítið var um skemmdir, og segir lög- reglan á Selfossi að rétt viðbrögð starfsmanns hafi valdið því að ekki fór verr. SKÝRSLA FRÁ UMHVERFISSTOFNUN Óleyfilegt magn koffíns í orkudrykkjum Að minnsta kosti þrír orkudrykkir sem fást hér á landi inni- halda óleyfilegt magn koffíns, en leyfilegt magn er 150 mg í hverjum lítra. Drykkirnir eru Bomba, Cult og blár Magic. Þetta kom fram I mælingu matvælasviðs Umhverfisstofn- unar sem gerð var í lok árs 2005. sambærileg rannsókn. DÓMSMÁL 280 þúsund fyrir að sparka í bílstjóra Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær karlmann til að greiða 180 þúsund króna sekt í ríkissjóð og tæþlega 100 þúsund krónur í skaðabætur fyrir að hafa sparkað tvívegis í strætisvagnabílstjóra við Hlemm með þeim afleiðingum að hann marðist á vinstri handlegg. Bagdad í írak: Færri dauðsföll Iraski hershöfðinginn Qassim Musawi segir að hert sókn banda- rískra og íraskra öryggissveita gegn uppreisnarmönnum í Irak hafi skilað miklum árangri í höf- uðborginni Bagdad. Þrátt fyrir að sjálfsvígsárásir séu enn daglegt brauð, hefur tala látinna frá upp- hafi sóknarinnar þann 14. febrúar lækkað í 265, samanborið við 1.440 mánuðinn áður. Þá fækkaði bílsprengjum úr 56 í 36 á sama tímabili. Fjöldi látinna hefur hins vegar aukist á mörgum svæðum utan höfuðborgarinnar þó að hershöfð- inginn hafi ekki gefið upp neinar tölur þar að lútandi. Baugsmalið: Poppstjarnan Jón Frank Williams, eigandi Willi- ams Fi-liðsins, skrifar grein í Morgunblaðið í gær þar sem hann hrósar Jóni Ásgeiri Jóhannessyni í hástert. Segir hann meðal ann- ars Jón Ásgeir vera heiðarlegan og ákveðinn, og líkjast frekar á popp- stjörnu en viðskiptajöfri. Williams segist eiga bágt með að trúa því að Jón Ásgeir sé viðr- iðinn viðskiptaglæpi og að hann hafi verið mjög undrandi þegar Baugsmálið svokallaða kom upp. Og hann endar greinina á að segj- ast vona að Jón Ásgeir fái vinnu- frið þannig að „íslenska þjóðin geti notið hinna frábæru hæfi- leika sem Jón Ásgeir býr yfir“. Breska leikfangakeðjan Hamleys sem Baugur á selur leikfangabíla með merkjum Williams-liðsins. Félag dúldagninga- og veggfóðrarameistara LÁTIÐ FAGMANN VINNA VERKIÐ! - Dúkalögn - Veggfóörun - Teppalögn dukur@simnet. is - www.dukur.is veiá/utevtmi.óá • y/Z/ar ferftn- d/ef/r/k"//(eejr)f RYMINGARSALA! VERSLUNIN HÆTTIR í DAG! Opnum LAGERÚTSÖLU í Síóumúla 3-5 mánudaginn 19. mars kl. 12 CARO Ásnum @ Hraunbæ 119 © sími 567 7776 Opið kl. 12-18 Varaformaður Samfylkingarinnar um auðlindafrumvarpið: Bastarðurinn illa skilgreindur ■ Óskýrt frumvarp að mati sérfræðinga ■ Reynt að keyra í gegn með hraði ■ Stjórnarflokkarnir eru samstiga Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Ég get alveg staðfest að það var samdóma álit sérfræðinga að frum- varpið er ekki nægjanlega skýrt, bæði í orðalagi og efnisinnihaldi," segir Eiríkur Tómasson, prófessor í lögfræði við Háskóla íslands. Sérnefnd um stjórnarskrármál fundaði stíft í fyrrakvöld og allan gærdag um frumvarp ríkisstjórn- arflokkanna um auðlindir þjóðar- innar. Fyrir nefndina hefur komið fjöldi sérfræðinga. Ein helsta gagn- rýnin er á þá vegu að frumvarpið sé óskýrt og að það kunni að treysta núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi frekar í sessi. Talsverðar efasemdir Ágúst Ólafur Ágústsson, vara- formaður Samfylkingarinnar og nefndarmaður í sérnefnd um stjórn- arskrármál, telur frumvarpið skapa óvissu eins og það liggur fyrir nú. Hann segir stjórnarandstöðuna einhuga um að tryggja þjóðareign á auðlindunum. „Sérfræðingar hafa talsverðar efasemdir um frum- varpið og telja að réttaróvissa muni aukast. Efasemdir sérfræðinganna eru mjög svipaðar og í þá veru að nú- verandi kerfi myndi styrkjast,“ segir Ágúst Ólafur. „Vinnubrögðin eru gagnrýnd þar sem reynt er að keyra í gegn róttækar breytingar á stjórnarskránni með hraði. Mér finnst skilningur stjórn- arflokkanna vera mismunandi og það er í raun ótækt. I mínum huga er þetta illa skilgreindur bastarður af áður vel unnum hugmyndum auðlindanefndar." Ólíkar athugasemdir Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður sérnefndarinnar, segir verkið hálfnað og að í dag muni nefndin halda áfram að kalla til sérfræðinga. Hann þvertekur fyrir ósamstöðu milli stjórnarflokkanna í málinu þó að einstaka þingmenn geti verið ósammála. „Það hafa komið margar og ólíkar Reynterað keyra í gegn rót- tækar breytingar p« *'* með hraði Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar Mikið ofsagt að mKmjL ýÖ stjórnarflokk- arnir séu ekki Ky ’ ^.r samstiga BirgirÁrmannsson, ! þingmaður Sjálfstæðisflokksins. athugasemdir, það er ekkert laun- ungarmál. Nefndin hefur markvisst leitað til þeirra sem hafa verið að setja fram athugasemdir í umræð- unni,“ segir Birgir. „Ég er eðlilega bjartsýnn á að lending náist. Við erum í miðjum nefndarstörfum en það er mikið ofsagt að stjórn- arflokkarnir séu ekki samstiga. Sá ágreiningur hefur að minnsta kosti ekki komið fram í störfum nefndarinnar." Abbas og Haniyeh 1 Palestínu funda: Kosið um nýja stjórn Ahmed Bahar, forseti palestínska þingsins, segir að þingið muni koma saman, ræða um og greiða atkvæði um nýja þjóðstjórn Palestínumanna á laugardaginn næstkomandi. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, og Ismail Haniyeh forsætisráðherra náðu samkomulagi um skipan stjórn- arinnar og stjórnarsáttmála á fundi sínum í gær. Abbas og Haniyeh munu hittst aftur í dag til að ganga frá lausum endum samkomulagsins. Á heimasíðu fréttastofunnar Ha- aretz kemur fram að liðsmenn úr röðum Hamas-samtakanna muni skipa níu ráðherrastóla, en Fatah sex. Lengri tíma tók að ná samkomulagi milli fylkinganna en vonast var til í fyrstu. Haniyeh og Abbas Þing kýs um ný) á laugardaginn. þjóðstjórn Palestlnumanna NordicPhotos-AFP

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.