blaðið - 15.03.2007, Blaðsíða 14

blaðið - 15.03.2007, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 1S. MARS 2007 blaöið fólki folk@bladid.net HEYRST HEFUR SAMKVÆMT fréttum er Jude Law á leiðinni aftur til landsins. Að þessu sinni verður hann einn á ferð og heimsóknin því miðuð að skemmtun frekar en fjölskyldusam- veru eins og síðast. Islenskar konur mega því fara að gera sig klárar því síðast sátu þær um piltinn svo tugum skipti á Hótel Nordica. Þó er það ein sem á væntanlega meiri séns en aðrar, Halla Vilhjálmsdóttir. Spurningin er aðeins hvort hún sé sátt við piltinn, sem ku hafa gert sér dælt við aðrar yngis- meyjar í millitíð- inni... BAUGSBÁTURINN Thee Viking var fullur af Bítladiskum eins og kom fram í vitnisburði í Baugsmál- inu. Tryggvi Jónsson, sá er keypti diskana, virðist því smekkmaður á tónlist. Eflaust hefði Jón Ásgeir getað fengið þá Paul McCartney og Ringo Starr til að koma og spila um borð en gárungar segja þóknun þeirra dekka kostnað geisladiska- kaupanna hjá Tryggva... COCA COLA kynnir nú nýjan gosdrykk, Zero, eða núllið. Drykk- urinn er sykurlaus og verður markaðs- setningin á honum sú stærsta sinnar tegundar að sögn Vífilfells. Flaskan skartar meðal annars fáklæddri konu og ten- ingum sem gætu staðið fyrir fjár- hættuspil. Má þvívænta orða í belg frá femín- istum og SÁÁ á næstunni...? HVAÐ Fundust engin fingraför Fir^NST eftir hitalampaþjófinn? ÞER? „Nei, en hann hlýtur að vera með græna fingur." Helga Braga Jónsdóttir Verður með uppistand i kvöld Mynd/Ámi Sæberg H -á A. ... \ fflfl ■K.. ^ - •v^P' Franskar konur fitna víst! Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net Helga Braga Jónsdóttir er ein fyndn- asta kona landsins. Hún hefur líka nóg að gera og mun skemmta áhorf- endum í kvöld á Fyndnasta manni íslands. En hún sinnir einnig öðru. Hún kennir daður, sjálfstyrkingu og er fararstjóri í Frakklandi, nánar til- tekið í París. „Já, ég og Edda Björgvins leikkona erum með kvennaferðir til Parísar og það er orðið uppselt! Þetta er svakalega gaman og mikið fjör hjá okkur. Ég þekki París ágætlega síðan ég var þar sem au pair eftir að ég útskrifaðist með stúdentsprófið. Ég kann líka frönsku - Parlez vous francais?“ Blaðamaður svaraði þvi neitandi. Helga varð vör við mikinn ágang franskra karlmanna á sokkabands- árum sínum í París. „Já, Guð! Þegar ég var þarna fékk ég mér alltaf rauðvín og ís og fitn- aði svolítið. Svo er sagt að franskar konur fitni ekki! Ég fitnaði í Frakk- landi en það var bara til að verjast ágangi karlmanna! Ég át bara á mig aukakíló til að hrinda þeim í burtu, eitthvað verður maður að gera, skil- urðu! “ Helga segir Islendinga geta lært að daðra betur. „Þegar ég varþama þá fékk ég mér alltaf rauðvín og ís og fitnaðí svolítið. Svo ersagtað franskar konur fitni ekki! En ég fitn- aði í Frakklandi en það var bara til að verjast ágangi karímanna!“ „Ég kenni ýmis námskeið, t.d. listina að verða dama, förðun, sjálf- styrkingarnámskeið ýmiskonar og svo daður. Islendingar eru pínu feimnir í daðri og kenni ég því um hversu norðarlega við erum á jarðar- kringlunni. Ég bendi á fleiri aðferðir í daðri en við höfum notað hingað til og við mættum taka Itali til fyr- irmyndar sem kyssast 10 sinnum og eru miklu opnari, kunna að tjá sig betur. Við erum svo lokuð oft á tíðum. Nema þegar við dettum í það. Þá bresta allar flóðgáttir. Þannig að við mættum finna einhvern meðal- veg í þessu, sem ég reyni að miðla.“ Helga segir daginn í dag, V-dag- inn, mikilvægan í baráttunni gegn ofbeldi á konum. „Tvímælalaust. Ég sá heimildar- mynd um daginn um konuna sem byrjaði með Píkusögurnar. Þar var innslag með afrískri konu sem hjálp- aði ungum stúlkum sem áttu að gang- ast undir umskurð. Stúlkunum er útskúfað úr samfélaginu ef þær neita aðgerðinni og þessi kona helgaði sig þeim algerlega og skaut yfir þær skjólshúsi ásamt því að fræða þær um afleiðingar umskurðarins. Þar notaði hún stóra mynd af risastórri svartri píku og var kennslan mjög myndræn en áhrifarík. Þessi kona ferðast fótgangandi og berfætt um alla Afríku og er hörkudugleg. Síðan þegar hún varð spurð hvað væri hægt að gera til að hjálpa henni svaraði hún því til að það eina sem hana vantaði væri jeppi! Annars trúi ég því að hver og ein kona þurfi að byrja á sjálfri sér og sínu nánasta umhverfi og reyna að uppfylla drauma sína í stað þess að hjakka í einhverju fari sem aðrir ákveða. Það er raunverulegt frelsi,“ sagði Helga að lokum. BLOGGARINN... Samfylkingar- sjálfsvig „Hrun Samfylkingarinnar er hastar- legra en nokkur álitsgjafi hafði þoraö að spá. Tæplega er það Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að kenna, að önnur hver íslenzk kona er komin yfir í Vinstri græna. Líklegra er, að Samfylkingin hafi misst af umhverfis- lestinni og framið sögulegasta sjálfsvíg íslenskra stjórnmála." Jónas Kristjánsson www.jonas.is Kynferðisofbeldi í auglýsingum „Nú hefur Dolce and Gabbana ákveðiö að hætta að auglýsa á Sþáni. Ástæðan? Jú, auglýsing frá þeim var bönnuð á Spáni og til varnar tjáning- arfreisinu ákvað fyrirtækið að hætta alfarið að auglýsa á Spáni. Dolce og Gabbana eru sem sagt móðgaðir af þvíað þeir máttu ekki auglýsa föt meö þeim hætti að sýna konu sem haldið var niðri af karimanni á meðan aðrir karlmenn stóðu i kring og horfðu á.“ Katrín Anna Guðmundsdóttir hugsadu.blog.is Kyntáknið Davið Þór „Það erunun að fylgjast með því hvernig hann klæðirsig og svo eru hnyttin tilsvörhans eitthvað sem fær mig til að sitja pikkföst við skjáinn yfir spurningakeppni fram- haldsskólanna Gettu betur. Býst líka stöðugt við að hann komi mér á óvart því það er greinilega lítill prakkari í dóm- aranum. Stelpurnar eru sammála mér þó við séum ekki endi- lega á því að þarna sé löðrandi kynþokki á ferð heldur eitthvað allt , annað og (\1 ' jafnvel enn A j betra!" | jTs ir Elly Ármanns ellyarmanns.blog.is Su doku 1 2 4 3 8 6 5 3 1 7 2 2 5 1 8 3 6 1 9 5 9 4 6 7 8 3 3 4 6 5 7 9 Su Doku þrautin snýst um aö raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. HERNIAN eftir Jim Unger C LaughlngSlock Inlomattonal lnc./dist. by Unilod Medía, 2004 Við erum búin að borða heima. Við vildum bara sjá hversu mikið við spöruðum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.