blaðið - 15.03.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 15.03.2007, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2007 blaAiA fyrir heilsuna og bragðlaukana o S l o I VOGABÆR j? Sími 424 6525 www.vogabaer.is GEKA/ÞIGGJA UTAN ÚR HEIMI FRAKKLAND Le Pen kominn með undirskriftirnar Jean Marie Le Pen, formaður franska hægri öfgaflokksins Front National, tilkynnti í gær að hann gæti boðið sig fram í frönsku forsetakosningunum í næsta mánuði. Le Pen hafði gengið erfiðlega að safna þeim fimm hundruð undirskriftum kjörinna fulltrúa sem til þarf til að hægt sé að bjóða sig fram. Sjö frambjóðendum hefur nú tekist að safna nægilegum fjölda undirskrifta. ísland og Evrópusamband- ið Evrópunefndin kynnti niðurstöður skýrslunnar á þriðjudag. Mynd/Kristinn Evrópunefnd um hugsanlegar aðildarviðræður við ESB: ísland fengi sömu hlutdeild og Malta ■ Breyta þarf stjórnarskránni fyrir inngöngu ■ Aðildarferlið tekur tvö til þrjú ár Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net Island fær sömu hlutdeild og Malta innan stofnana Evrópusambandsins fari svo að Island gangi í Evrópusam- bandið. Malta er það riki sem hefur minnsta hlutdeild allra innan sambandsins. Þetta kemur fram í skýrslu þver- pólitískrar nefndar um Evrópumál sem Davíð Oddsson, fyrrum forsætis- ráðherra, skipaði í júlí 2004. Nefndin var skipuð tveimur fulltrúum úr hverjum stjórnmála- flokki, utan Frjálslynda flokksins sem átti einn fulltrúa i nefndinni. Þrátt fyrir að Evrópunefndin hafi í skýrslu sinni ekki tekið sameiginlega afstöðu um hvort Island ætti að gerast aðili að Evrópusambandinu, var farið itarlega yfir ýmis álitamál ðr lúta að hugsanlegri aðild. ísland ekki í biðröð Eitt þeirra mála sem nefndin kynnti sér var ferli hugsanlegra að- ildarviðræðna og er niðurstaðan sú að ísland þyrfti ekki að bíða í biðröð yrði gengið til aðildarviðræðna. I við- tali við Olli Rehn, sem fer með stækk- unarmál innan ESB, kemur fram að ekki ætti að taka nema tvö til þrjú < ár fyrir Island að gerast aðili að sambandinu. Er verið að tala um tímann frá því að aðildarviðræður hefjast og þar til gengið er formlega í ESB. Þetta kemur til vegna þess að ísland er lítið ríki og því þyrfti ekki mikinn mann- afla af hálfu ESB til viðræðnanna. Enn fremur flýtir fyrir að ísland er nú þegar aðili að samningunum um Evrópska efnahagssvæðið (EES) og Schengen og því myndu viðræðurnar að mestu leyti snúast um málaflokka utan þessara samninga. Annar hluti ferlisins er að gera þyrfti breytingar á íslensku stjórnar- skránni því aðild að Evrópusamband- inu felur í sér framsal til yfirþjóðlegra stofnana. Breytingar á stjórnarskrá krefjast samþykkis tveggja þinga með þingrofi og almennum kosningum á milli. Enn fremur hefur komið fram í máli allra stjórnmálaflokkanna að aðild að ESB yrði borin undir at- kvæði þjóðarinnar. I því samhengi má benda á að Noregur hefur tvívegis sótt um aðild að Evrópusamband- inu en í bæði skiptin hafnaði norska þjóðin aðildinni. Á sama báti og Malta Evrópusinnar hafa löngum bent á að með fullri aðild að ESB fái Island fullan aðgang að ákvarðanatöku innan stofnana sambandins og þar með að taka þátt í mótun löggjafar innan ESB. Sá aðgangur er í dag undir EES-samningnum takmarkaður við upphafsstig löggjafarferlisins. Hversu mikla hlutdeild ísland fengi í stofnunum ESB við aðild er samkomulagsatriði og viðfangsefni aðildarviðræðna. Þó verður að teljast líklegt að Island fengi sömu hlutdeild og Malta þar sem löndin hafa svip- aðan íbúafjölda.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.