blaðið - 15.03.2007, Blaðsíða 22
30
FIMMTUDAGUR 15. MARS 2007
blaóiö
heilsa
á
heilsa@bladid.net
Húðæxlum fjölgar
Tíðni húðæxla hefur tvöfaldast hér á landi á síðustu tíu árum og nú
greinast að meðaltali 55 manns á ári með sortuæxli í húð, 55 með
önnur húðæxli og um 210 manns með svokölluð grunnfrumuæxli.
Sortuæxli eru alvarlegasta tegund húðkrabbameins.
Heilsa á vefnum
Á vefsvæðinu island.is sem opnað var á dögunum má með-
al annars nálgast upplýsingar um ýmislegt sem tengist
heilsu og heilbrigðiskerfinu, allt frá almannatryggingum og
réttindum sjúklinga til bráðaþjónustu og heilsugæslu.
Mikil gosdrykkjaneysla hefur slæm áhrif á heilsuna
Tengsl offitu og
gosdrykkjaneyslu
Gosdrykkir slæmir fyrir heilsuna
ÍSamhengi er á milli gosdrykkjaneyslu og
slæms mataræðis auk þess sem henni
fylgir aukin hætta á offitu samkvæmt
niöurstöðum samantektar vísindamanna
við Yale-háskóla.
T7T r
Of mikiö koffín
Koffínmagn reyndist yfir leyfilegum
mörkum í þremur orkudrykkjum
í könnun sem Umhverfisstofnun
lét gera í árslok 2005. Koffínmagn
annarra drykkja var innan leyfilegra
marka. Mældir voru sjö orkudrykkir,
tíu almennir gosdrykkir, tveir
kakódrykkir og einn jurtadrykkur.
Leyfileg mörk eru 150 mg/l en í
þremur tilfellum fór magniö yfir
það. Drykkirnir Bomba, Cult og
blár Magic reyndust allir vera yfir
þessum mörkum.
Koffínmagn drykkja var einnig mælt
árið 1999 og voru mælingarnar nú
gerðar á sama hátt og þá. Þegar
mælingar á sömu drykkjum eru
bornar saman kemur í Ijós að koffín-
magn flestra hefur aukist verulega.
m
MUITI-VIT
Náttúruleg fjölvítamín
með steinefnum
Véhn béctietm tyrir þarfir lilvndmgé
180 töflur
Inniheldur 22 valin bætiefni,
12 vítamín og 10 steinefni.
CaSpj n9í heilsa
ilvii -hafðu þaö gott
Skýrt samband er á
milli neyslu sykraðra
gosdrykkja (ekki diet-
gosdrykkja) og slæmr-
ar næringar fólks auk
þess sem henni fylgir
aukin hætta á offitu
og sykursýki. Þetta
eru niðurstöður samantektar sem
vísindamenn við manneldismiðstöð
Yale-háskóla gerðu og birt er í nýj-
asta hefti ritsins American Journal
ofPublicHealth.
Vísindamennirnir báru saman og
greindu niðurstöður nærri 90 rann-
sókna sem gerðar hafa verið á þessu
sviði. Komust þeir að þeirri niður-
stöðu að sterk vísindaleg rök mæli
með því að almenningur dragi úr
neyslu gosdrykkja.
Gosdrykkir og sykursýki
Ein rannsóknin náði til meira en
91.000 kvenna sem fylgst var með í
átta ár. í ljós kom að þær konur sem
drukku meira en einn gosdrykk á
dag voru tvisvar sinnum líklegri til
að fá áunna sykursýki á þeim tíma
„Kannanir á mataræði
bama og unglinga á
íslandi hafa leitt í Ijós að
gosdrykkjaneysla ermikil
meðal þeirra, ekki síst
hjá drengjum og hefur
sú neysla veríð tengd við
aukna tíðni offitu og of-
þyngdar hér á landi."
sem rannsóknin fór fram en þær
sem drukku einn gosdrykk eða færri
á mánuði. Magn gosdrykkjarins
er ekki tilgreint nánar í greininni
en tekið er fram að neysla eins gos-
drykkjar á dag sé undir landsmeðal-
tali í Bandaríkjunum.
Þegar konur drukku sykurskerta
gosdrykki (diet-gosdrykki) í stað
sykraðra jókst ekki hættan á að þær
fengju sykursýki. Vísindamennirnir
álykta að þessar niðurstöður einar
og sér gefi tilefni til að fólk hafi alvar-
legar áhyggjur af gosdrykkjaneyslu,
ekki síst í ljósi þess hve áunnin sykur-
sýki hafi aukist hjá börnum.
Dr. Ingibjörg Gunnarsdóttir, mat-
væla- og næringarfræðingur við
Rannsóknastofu í næringarfræði,
segir að erfitt sé að sýna fram á að
sykurneysla valdi beinlínis sykur-
sýki og fáir séu á þeirri skoðun.
„Það eru þekkt tengsl á milli of-
þyngdar og gosdrykkjaneyslu og
ofþyngdin er náttúrlega einn af
sterkustu áhættuþáttum fyrir áunna
sykursýki þannig að mig grunar að
það sé nú líklegri skýring að tengslin
séu þar í gegnum offituna en að gos-
drykkjaneyslan geti beint haft áhrif
á sykursýkina sem slíka,“ segir hún.
Mikil gosdrykkjaneysla
íslenskra bama
Kannanir á mataræði barna og ung-
linga á íslandi hafa leitt í ljós að gos-
drykkjaneysla er mikil meðal þeirra,
ekki síst hjá drengjum og hefur sú
neysla verið tengd við aukna tíðni
offitu og ofþyngdar hér á landi. Þá
hefur þessi mikla neysla slæm áhrif
á tannheilsu barna og unglinga.
„Við vitum það að gosdrykkjaneysla
er mjög sterkur áhættuþáttur fyrir
offitu og við sjáum hjá níu ára strák-
um að þeir sem eru of þungir drekka
meira gos en það er náttúrlega bara
þversniðsrannsókn og við vitum ekk-
ert hvað kemur á undan og eftir í því
samhengi,“ segir Ingibjörg.
Samantekt bandarísku vísinda-
mannanna leiddi einnig í ljós sam-
hengi milli mikillar neyslu á sykruð-
um gosdrykkjum og lítillar neyslu
á mjólk og öðrum vörum sem eru
kalkríkar eða fullar af mikilvægum
næringarefnum.
Svipaðar niðurstöður komu út úr
könnun á mataræði íslenskra barna
og unglinga 2003-2004 þar sem
neikvæð fylgni reyndist vera milli
neyslu gos- og svaladrykkja og mjólk-
urdrykkja.
Samantektin leiddi enn fremur í
ljós að áberandi munur var á niður-
stöðum rannsókna á heilsufarsleg-
um áhrifum gosdrykkjaneyslu eftir
því hvort þær voru fjármagnaðar af
gosdrykkjaframleiðendum eða ekki.
Þannig voru meiri líkur á að nið-
urstöður rannsókna sem nutu fjár-
mögnunar framleiðenda væru þeim
hagstæðari en niðurstöður óháðra
rannsókna.
LÆRÐU AÐ NOTA ILMKJARNAOLIUR
Námskeið um meðferð og notkun ilmkjamaolia
* Áhrif ilmkjarnaolía á líkama og huga
* Blöndun og uppskriftir
* ítarleg umfjöllun um 20 algengar ilmkjarnaolíur
* Vegleg námskeiðsmappa fylgir
* Allt efni innifalið
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Rúna Björk Smáradóttir, ilmkjarnaolíufræðingur.
Palmarosa
Upplýsingar og skráning á www.palmarosa.is eða í síma 691 3129 (Rúna)
Landsbankinn
Traustur bakhjart Islenska dansflokksins
VörÖu- og Námufélagar
fá 50% afslátt á sýningar íd.
SOLITARY
r André Gingras
IN THE NAME OF THE LAND eftir Roberto Oliván
SÝNINGAR: 18.03 - 25.03 - NÆSTSÍÐASTA SÝNING!
MIÐASALA: s. 568 8000 - www.id.is
-----\ ;____________________
Hvort í sínu herbergi
Aðskilin svefnherbergi vinsæl Æ fleiri hjón kjósa að sofa hvort ísinu svefn-
herberginu til að bæta hjónabandið.
Æ fleiri pör í Bandaríkjunum vilja
fá tvö aðskilin svefnherbergi þegar
þau láta byggja ný hús. Það gera þau
í því skyni að styrkja hjónabandið.
I nýlegri könnun sem gerð var á
vegum Samtaka húsasmiða í Banda-
ríkjunum er því spáð að árið 2015
verði aðskilin hjónaherbergi í sex
af hverjum tíu nýjum sérsmíðuð-
um húsum. Að baki þessari þróun
liggur þörf fólks fyrir góðan nætur-
svefn þar sem sérfræðingar segja að
skortur á honum geti valdið spennu
í hjónabandinu. Þeirsegjajafnframt
að aðskilin svefnherbergi hjóna hafi
oft bætt hjónabönd.
Hagsýni ræður för
Hingað til hefur verið litið á það
sem merki um að brestir séu komn-
ir í hjónabandið þegar hjón kjósa að
sofa hvort í sínu herberginu. í mörg-
um tilfellum virðist það þó vera gert
af nauðsyn og hagsýni.
Fullorðinni manneskju er nauð-
synlegt að fá sjö til átta tíma næt-
ursvefn en ýmislegt getur komið í
veg fyrir það svo sem hrotur maka,
ótímabærar salernisferðir, umönn-
un barna og vaktavinna.
Segir ekkert um kynlífið
Breytt hlutverkaskipan kynjanna
hefur gert það að verkum að enn
brýnna er en áður að ráða bót á vand-
anum enda taka bæði kynin þátt i
barnauppeldi og vinna á óregluleg-
um tímum nú til dags.
Stephanie Coontz sem er sérfræð-
ingur í málefnum fjölskyldunnar
sagði í viðtali við bandaríska dag-
blaðið New York Times á dögunum
að mörg pör hefðu fulla trú á að
þau væru í góðu hjónabandi þó að
þau væru ekki sérlega hrifin af því
að sofa í sama herbergi. „Ég held að
það segi ekkert um kynlíf þeirra,‘
bætti hún við.