blaðið - 15.03.2007, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 15. MARS 2007
blaðið
INNLENT
HÉRAÐSDÓMUR
Tveggja mánaða fangelsi
Karlmaður var í gær dæmdur í tveggja mánaða fang-
elsi fyrir að hafa skallað og slegið annan mann. Hann
marðist í andliti og hlaut brot á hægri augntóft fyrir
utan skemmtistaðinn Vegamót í miðbæ Reykjavíkur í
nóvembersíðastliðnum.
HEIÐMÖRK
Óvíst með kærur
Óvissa ríkir um hvort úrskurðarnefnd skipulags- og bygg-
ingamála fjalli efnislega um kæru Náttúruverndarsamtaka
íslands og Landverndar vegna vatnslagna í Heiðmörk. For-
maður nefndarinnar, sagði við RÓV að kannað verði hvort
samtökin eigi kærurétt sem þau ættu almennt ekki.
SVÍÞJÓÐ
Ráðist á íslending
Ráðist var á Björgu Sigurðardóttur, sem ekur leigubíl
í Borás í Svíþjóð, og hún kjálkabrotin á laugardags-
kvöldið. Þetta kemur fram á vef blaðsins Borás Tidning.
Árásarmaðurinn er 24 ára og hafði verið hent út af krá
eftir að hafa hótað gestum staðarins með hnífi.
Markaðurinn:
Hlutabréf lækka
íslensk hlutabréf lækkuðu
um 2,13 prósent í gær. Lækkunin
er sambærileg við lækkun í Sví-
þjóð, Danmörku og Finnlandi, en
heldur lægri en í flestum löndum
Evrópu. Lækkanirnar í Evrópu
stafa af fréttum af hugsanlegum
gjaldþrotum og fjármálamisferli
húsnæðislánastofnana í Bandaríkj-
unum, og hafa þær áhrif á íslenska
markaðinn. Þá er líklegt að mögu-
legendurskoðunlánshæfismatsfyr-
irtækisins Moody’s á aðferðafræði
sinni, sem sagt var frá í Blaðinu á
þriðjudaginn, hafi neikvæð áhrif
á íslensk hlutabréf. jónas Gauti
Friðþjófsson hjá greiningardeild
Glitnis sagði 1 samtali við Blaðið
að líklega væri um tímabundna
lækkun að ræða.
Inniheldur hátt hlutfall Omega
3 fitusýrur
ÓRTÚLEGUR ÁRANGUR
POLAROLÍU!!!!!
"Eftir að hafa verið of þungur í
mörg ár og þjáðst af verkjum í
liðum og stoðkerfi tók ég mig
til og létti mig um 65-70 kg. Ég
sat eftir með þessar þjáningar
og reyndi allt til að mér liði
betur. Það var ekki fyrr en ég
uppgötvaði POLAROLÍU að
þjáningar mínar hurfu og nú
get ég þess vegna hlaupið
100 m grindarhlaup."
-------------N
Polarolje
Selolía
einstökolía
Gott fyrir:
* Liðina
• Maga- og þarma-
starfsemi
* Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
Polarolían fæst í apótekum, heilsuhúsum og Fjarðarkaupum
L J
Jónína Benediktsdóttir vitnar í Baugsmálinu:
Baugsmenn hlógu
að trúgirni Davíðs
■ Ætluðu að ná tökum á ríkisstjórninni ■ Áttu bátinn saman
Eftir Heiöu Björk Vigfúsdóttur
heida@bladid.net
Jónína Benediktsdóttir var ein af sjö
vitnum sem voru yfirheyrð í Baugs-
málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur
í gær. Sagði hún að tengsl Davíðs
Oddssonar við Baugsmenn hefðu
verið afgerandi og kvaðst hafa orðið
vitni að fundi þeirra. Að sögn Jónínu
ætluðu Baugsmenn að ná tökum á
ríkisstjórninni. Jónína sagðist hafa
litið á það sem siðferðilega skyldu
sína að láta vita af viðskiptaháttum
Baugsmanna og hafi hún meðal ann-
ars átt samskipti við Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur vegna þessa.
Jónína sagðist hafa orðið vitni að
því þegar Jón Ásgeir Jóhannesson og
Hreinn Loftsson, stjórnarformaður
Baugs, hefðu komið hlæjandi af
fundi Davíðs Oddssonar, þáverandi
forsætisráðherra, í stjórnarráðinu.
Fannst þeim hann mjög trúgjarn
að hafa trúað því að álagning á mat-
vöru væri átta prósent þegar hún
væri í raun og veru mun hærri.
Jónína sagðist hafa kynnst Jóni
Gerald Sullenberger á Flórída og að
hann hafi ávallt verið með þeim Jó-
hannesi þegar þau fóru þangað.
Sagðist hún ekki hafa átt
þátt í því að Jón Ger-
ald hafi leitað til lög-
reglu í ágúst 2002
og hafi ekki vitað af
því fyrr en daginn
áður. Kvaðst hún
frekar hafa dregið
úr honum varðandi það heldur
en hvatt.
Jónína sagðist hins hafa átt þátt í
því að fá Jón Gerald til að tala við
Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttarlögmann. Styrmir Gunnars-
son, ritstjóri Morgunblaðsins, hafi
bent henni á að hann væri góður
lögfræðingur en einnig hafi verið
haft samband við aðra. Jón Gerald
var að sögn Jónínu hikandi við að
leita til lögmanns á íslandi þar sem
hann hafi vitað, eins og hún sjálf,
af tengslum Tryggva Jónssonar og
Hreins Loftssonar í samfélaginu.
Átjándi ákæruliður snýst um fjár-
drátt í tengslum við fjármögnun og
rekstur á skemmtibátnum Thee Vik-
ing. Jónína sagði að Jón Gerald og
feðgarnir Jóhannes og Jón Ásgeir
ættu bátinn saman. Sagði hún
að kaupin hefðu verið
fjármögnuð að mestu
með lánum sem
hefðu verið á nafni
Jóns Geralds þar sem
hann hafði tengslin
við bankann. Hafi
alltaf verið ákveðið að
Baugur borgaði af bátnum
en það hafi hún meðal ann-
ars heyrt heima hjá sér.
Gestur Jónsson, verjandi Jóns
Ásgeirs, kom með ljósrit af frétt
úr Fréttablaðinu frá 24. september
2004 sem ber heitið „Eyddu fingra-
förum Morgunblaðsins". í fréttinni
er vitnað í tölvupósta Jónínu til
Styrmis um Jón Gerald en þar spyr
hún meðal annars Styrmi hvort
hann haldi að Davíð væri til í að
hringja í Jón Gerald.
Jónína sagði að í fréttina vant-
aði mjög alvarlega hluti sem voru
framar og aftar í póstinum. Sagði
hún að það hafi ekki þótt hagur eig-
enda Fréttablaðsins að birta póstinn
í heild sinni.
lMIJCiS
Siglingar Landhelgisgæslunnar til Færeyja eftir olíu á varðskipin:
Spara skattfé í Færeyjum
„Þetta er eingöngu sparnaðarað-
gerð svo að við getum veitt almenn-
ingi betri þjónustu. Það kostar pen-
inga að sigla þetta, ríkið er ekki
að verða af neinum tekjum heldur
kostar þetta ríkið. Það óeðlilega er
að við þurfum að eyða opinberu fé til
þess að spara,“ segir Georg Lárusson,
forstjóri Landhelgisgæslunnar.
Landhelgisgæslan siglir til Fær-
eyja til að taka olíu á varðskipin
þrátt fyrir að hægt sé í sumum til-
fellum að finna lægra grunnverð
hjá íslenskum söluaðilum. Ástæðan
er sú að gæslan þarf að greiða virð-
isaukaskatt af olíunni og nær stofn-
unin að spara í kringum tuttugu
milljónir með þessum hætti. Meðan
á siglingu stendur eru varðskipin
óhjákvæmilega ekki tiltæk hér við
land og þónokkur kostnaður hlýst
jafnframt af þessum siglingum.
Baldur Guðlaugsson, ráðuneytis-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, hefur
lýst því yfir að ef það ætti að und-
anþiggja Landhelgisgæsluna því að
greiða þennan skatt, væri rökrétt
að lækka fjárveitingar til stofnunar-
innar sem því næmi.
Georg ítrekar að Landhelgis-
gæslan sé innan allra laga og reglna
með þetta. Hann telur mikilvægt að
fella niður ákvæði um að fyrirtækið
þurfi að greiða virðisaukaskatt
af olíu. „Það væri þó skömminni
skárra að draga af fjárveitingum til
okkar, við værum þó meira til taks
hér við land og ekki bundin með
skip fyrir utan lögsöguna marga
daga á ári,“ segir Georg.