blaðið - 15.03.2007, Page 31
blaðið
FIMMTUDAGUR 15. MARS 2007
39
Skjár einn kl. 22.00
Óvenjulegur
læknir
House er bandarísk þáttaröð
um lækninn skapstirða, dr.
Gregory House og samstarfs-
fólk hans. Ung móðir fær
óstjórnlega vöðvakrampa og
lendir í árekstri. House og hans
lið reyna að komast til botns í
málinu á sama tíma og House
og Stacy reyna að átta sig á
því hvað gerðist á milli þeirra í
Baltimore.
Cameron er hrædd við að taka
alnæmispróf af ótta við niður-
stöðuna. Sem fyrr er það Hugh
Laurie sem fer algjörlega á
kostum í hlutverki House.
Stöð 2 kl. 21:40
Umsátursástand
Standoff eru nýir spennuþættir
með Ron Livingston úr Beð-
málum í borginni og Rosemarie
DeWitt úr Rescue me. Þættirnir
fjalla um samningamenn í gísla-
tökudeild FBI sem þykja þeir
bestu í greininni.
Matt (Livingston) og Emily (De-
Witt) eru þjálfuð í því að tala sig
út úr erfiðum aðstæðum og þau
vita alltaf hvað fólk er að hugsa.
Þau eiga einnig í ástarsambandi
sem þau vilja fyrir alla muni
halda leyndu. I kvöld skapast
hættuástand á flugvelli þegar
reiður flugumferðarstjóri tekur
starfsfólk flugturnsins í gíslingu.
Gíslatökumaðurinn var nýlega
dreginn til ábyrgðapfyrir ^lvar-
legt flugslys en MáÖ og Émily
komast að því að liánn á við
fleiri vandamál að Jftríða.
Stöð 2 Bíó kl. 22:00
Blóðsjúgandi
greifinn
Bram Stoker's Dracula er kvik-
mynd gerð af hinum magnaða
leikstjóra Francis Ford Cop-
pola og byggir tryggilega á
sígildri sögu Brams Stokers.
Þar fylgjumst með greifanum
frá Transylvaníu sem sest að í
Lundúnum á nítjándu öldinni.
Um aldir hefur hann dvalið einn í
kastala sínum en kemst nú loks
í nána snertingu við mannkynið
þegar lögfræðistofa sendir unga
lögfræðinginn Jonathan Harker
til Transylvaníu til að funda með
greifanum.
Svo virðist sem hinn blóðþyrsti
greifi sé orðinn leiður á heim-
kynnum sínum og er stefnan
sett á London þar sem blóðið
mun flæða. Með aðalhlutverk
fara Keanu Reeves, Winona
Ryder og svo fer sjálfur Gary
Oldman á kostum í hlutverki
hins truflaða greifa. Ómissandi
mynd fyrir þá sem hafa gaman
af klassískum hryllingssögum.
Úr fornöld til framtíöar:
Gerard Butler sem Snake Plissken
íslandsvinurinn Gerard Butl-
er er um þessar mundir að trylla
jafnt könur og menn í nýjustu
kvikmynd sinni, 300, þar sem
hann bregður sér í hlutverk spart-
verska konungsins og kyntröllsins
Leonidas. Myndin sú hefur vakið
gríðarmikla athygli kvikmynda-
áhorfenda og er myndin nú þegar
í ^56. sæti yfir bestu kvikmyndir
sögunnar á kvikmyndavefnum
IMDb.com með einkunn upp á
8.4.
Margir hafa velt fyrir sér hvert
næsta skref Butlers muni verða
en leikarinn hefur svo sannar-
lega fastneglt sig á stjörnuhimn-
inum með frammistöðu sinni
í 300. Nú eru farnar að berast
fréttir um næsta verkefni leikar-
ans og verður að segja að það er
líklega það síðasta sem fólk bjóst
við. Leikarinn ku vera sterklega
orðaður við hlutverk Snake Plissk-
en í endurgerð kvikmyndarinnar
Escape from New York frá árinu
1981. í upprunalegu myndinni
fór Kurt Russell með hlutverk
Snake og átti það hlutverk stóran
þátt í því að vekja athygli á leik-
aranum. Svo er það bara spurn-
ing hversu vel Skotanum sterka
tekst að flýja New York-borg
framtíðarinnar.
FULLMÓTAÐU
PERSÓNULEIKA
HEIMILISINS
H E I M I L I Ð
HANAK
'A innréttinsar
H'ÖNNUN - RÁÐGJÖF ÞJÓNUSTA
Síðumúla 35 108 Reykjavlk Sfmi 517 0200
H E I L D
heild@heild.is