blaðið - 17.03.2007, Side 4

blaðið - 17.03.2007, Side 4
4 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 blaðið INNLENT Fimm ungmenni lentu utan vegar Bíll með fimm ungmennum valt á Ólafsfjarðarveginum á ellefta tímanum á fimmtudagskvöldið. Eitt ungmenn- anna var flutt á slysadeild til athugunar, en er ekki talið alvarlega slasað. Hin sluppu án meiðsla. Lög- reglan á Akureyri telur að hálka hafi valdið óhappinu. LOTTÓ Vinningshaf i fundinn Um síðustu helgi var einn með allar tölur réttar í get- raunaleik Islenskrar getspár. Vann hann tæpar 32 milljónir króna. Nokkra daga virðist hafa tekið fyrir vinningshafann að átta sig, en hann hefur nú gefið sig fram en vill ekki koma fram í fjölmiðlum. UMFERÐIN Töluvert um óhöpp og ölvun Töluvert var um umferðaróhöpp síðasta sólarhring á höfuð- borgarsvaeðinu, enda snjór og hálka á vegum. Einnig voru nokkur óhöpp í kringum Borgarnes, meðal annars var keyrt á tvö hross. Þá voru þónokkrir teknir fyrir ölvun við akstur, en sjö voru teknir á höfuðborgarsvæðinu einu. Nauðgunarákæra: Tvö ár frá kæru Fjórir piltar hafa verið ákærðir fyrir nauðgun á ungri stúlku. At- vikið átti sér stað fyrir tveimur árum, og var stúlkan þá aðeins fjórtán ára gömul en drengirnir á aldrinum fimmtán til sautján ára. Fram kom 1 fréttum Stöðvar tvö að meint brot hafi átt sér stað í samkvæmi á höfuðborgarsvæð- inu, og að stúlkan hafi ekki þekkt drengina fyrir. Einnig kom fram að drengirnir fjórir hafa allir kom- ist áður í kast við lögin. Málið var þingfest í Héraðs- dómi Reykjavíkur í vikunni. Lög- reglan neitaði að gefa upplýsingar um málið. Það væri ekki lengur í hennar höndum. Ungverjaland: Óeirðir í Búdapest Óeirðir brutust út milli hægri öfgamanna og lögreglu á götum Búdapest, höfuðborgar Ungverja- lands, á fimmtudagskvöld. Á frétta- vef BBC segir að til átaka hafi komið eftir að Gyorgy Budahazy, leiðtogi þjóðernissinna, var handtekinn en handtökuskipun á hendur honum var gefin út í september. Lögregla dreifði mannfjöldanum með því að beita táragasi og vatnsdælum. Mótmæli stjórnarandstæðinga höfðu farið friðsamlega fram fyrr um kvöldið, en kröfur um afsögn forsætisráðherrans, Ferenc Gyurcs- any, hafa verið háværar um margra mánaða skeið. Gyurcsany viður- kenndi í fyrra að hafa logið til um stöðu efnahagsmála landsins til þess að hafa sigur i kosningum. LÁTIÐ FAGMANN VINNA VERKIÐ! - Dúkalögn - Veggfóörun - Teppalögn dukur@simnet. is - www.dukur.is Félag dúldagninga- og veggfóörarameistara Guðmundur Baldvinsson l'oreleiim Elísson EUert tngason útfaraijijdnusta útfaraijijónusta útfararþjónusta ffeyar ancfíáí Ser að höncfum oiDp Önnumsíaíía bcettiútfai-arinnar •■011* ÚTFARARSTOFA \ J KIRKJUGARÐANNA mPtiGMsr .......................... • www.utfor.is AmórLPálsson framkvæmdastjóri (sleifurjónsson útfaraistjóri Frímann Andrfeson útfaraifijónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Forysta minnihlutans Hélt blaðamannafund og firraði sig allri ábyrgð. BlaÖiÖ/Eyþór Gunnar Helgi Kristinsson um auðlindafrumvarpið: Málið lyktar af paník ■ Sjálfstæðisflokkurinn ekki áhugasamur ■ Gátu rætt málið fyrr Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur heida@bladid.net Formenn stjórnarflokkanna lýsa ábyrgð á hendur flokkum stjórnar- andstöðunnar fyrir að ákveðið hafi verið að auðlindafrumvarpið verði ekki afgreitt á þessu þingi. Ekki eru formenn stjórnarandstöðunnar sáttir við ummæli þeirra og segja þetta vera á ábyrgð stjórnarflokk- anna þar sem aldrei hafi verið óskað eftir samstarfi við þá. Gunnar Helgi Kristinsson, pró- fessor í stjórnmálafræði við Há- skóla íslands, segir að vel geti verið að saka megi stjórnarand- stöðuna um hitt og þetta en málið sé ekki á þeirra ábyrgð. Eðlilegast sé að beina því að Framsóknar- flokknum og Sjálfstæðisflokknum séu menn ósáttir við niðurstöðuna. „Það var náttúrlega ljóst á þessari . atburðarás allri að Sjálfstæðis- flokkurinn var ekki áhugasamur um þessa lagasetningu. Það er vont fyrir flokk að hlaupa frá því sem hann er búinn að semja um í ríkisstjórnarsáttmálanum." Gunnar segir að það hefði verið hægt að ræða málið fyrr ef til þess hefði verið einhver vilji. „Að hlaupa í þetta mál á síðustu dögum þingsins lyktar svolítið af paník. Ég held að framsóknarmenn sitji svolítið uppi með það að þetta hafi ekki verið trúverðug aðgerð af þeirra hálfu til þess að hreyfa við þessu máli.“ Forsætisráðherra: Iðnaðar- og viðskiptaráðherra: Niðurstaðan vonbrigði Gengu á bak orða sinna „Það eru auðvitað vonbrigði að auðlindaákvæðið skyldi ekki ná lengra heldur en raun ber vitni. Þegar á reyndi kom í Ijós að stjórn- arandstaðan meinti greinilega ekkert með því þegar hún bauð okkur upp á samstarf," segir Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Geir segir að stjórnarflokkarnir hafi tekið stjórnarandstöðuna alvarlega. „Við sáum þegar búið var að halda nokkra fundi í nefndinni að fyrir þeim vakti ekki, og þá sérstaklega ekki Samfylkingunni, að ná einhverju samstarfi við ríkisstjórnina um þetta. Þvert á móti var Framsóknarflokkn- um í þingnefndinni boðið í samstarf við ___ stjórnarandstöðuna til þess að reyna að kljúfa stjórnarflokkana. Við formaður Fram- sóknarflokksins sættum okkur ekki við svona vinnubrögð." Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiþtaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segir það ekki rétt að flokkum stjórnarand- stöðunnar hafi ekki verið boðið að taka þátt í auð- lindamálinu. „Þeir voru virkilega með bæði i þinginu og í nefndinni sem fjallaði um málið. Þetta er einfaldlega ömurlegt yfirplott hjá þeim til að reyna að halda andlitinu sem þeir geta ekki. Þeir héldu fjölmiðlafund og buðust til samkomulags og sögðu að það væri nægur tími til að afgreiða þetta í samkomulagi. Við tókum það alvar- lega. Við erum saman í ríkisstjórn og náðum sameiginlegri niðurstöðu. Þess vegna vildum við sameig- inlega vinna með þeim að lausn málsins. Þeir sviku það og gengu á bak orða sinna. Þeir bera ábyrgð á því hvernig þetta hefur farið." Steingrímur J. Sigfússon: Með ólíkindum „Mér finnst þessi áburður stjórnarflokkanna og sérstaklega Jóns Sigurðssonar aldeilis með ólíkindum", segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. „Staðreyndin er sú að þetta mál hefur alfarið verið á ábyrgð og á vegum stjórn- arflokkanna. Staðreynd málsins er sú að ég er tilbúinn að leggja drengskap minn að veði, og Ingibjörg Sólrún og Guöjón A. Kristjáns- son, að þeir hafa aldrei óskað eftir neinu samstarfi við okkur um þetta mál. Þessi niðurlæging er alfarið stjórnarflokkanna og þeir geta engum kennt um nema sjálfum sér. Það væri miklu heiðarlegra af þeim að viðurkenna bara mistökin sem þeir gerðu. Það hefur aldrei þótt stórmannlegt að kenna öðrum um eigin afglöp og ófarir." Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Sviku kjósendur .Stjórnarflokkarnir hafa gjörsamlega brugðist. Þeir hafa svikið kjósendur,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingarinnar. ,Þetta var mál fyrir síðustu kosningar og þeir settu þetta inn í stjórnarsáttmál- ann en svo var þeim engin alvara. Ef þeir hefðu haft raunverulegan vilja tíl að setja eitthvert ákvæði sem máli skiptir inn í stjórnarskrá um þetta þá stóð ekki á stjórnar- andstöðunni. Hvorki formlega né óformlega hefur verið boðið upp á samstarf við stjórnar- andstöðuna þannig að þeir eiga bara þennan óskapnað sinn sjálfir og urðu sjálfir að ráða niðurlögum hans. Fyrsti flutningsmaður að þessu frumvarpi var formaður Sjálfstæðis- flokksins og forsætisráðherra. Hann verður að bera fulla ábyrgð á sínum gjörðum." Guðjón A. Kristjánsson: Leikrit Það voru þeir fulltrúar ríkisstjórnarinnar sem tóku málið út að eigin frumkvæði," segir Guðjón A. Krist- jánsson, formaður Frjáls- lynda flokksins. „Ég segi nú bara alveg eins og er að í raun og veru ætluðu fulltrúar ríkisstjórnar- innar aldrei að taka neina efnislega umræðu í nefndinni við stjórnarandstöðuna til að lagfæra málið. Það er ekkert hægt að gera annað en að visa þessu leikriti beint á ríkisstjórnina. Það má kannski segja aó það sé þjóðin sem verði fyrir vonbrigðum sem upplifir það að menn meini ekkert með því að reyna að tryggja það að þjóðin eigi þessa auðlind. Það er niðurstaðan. Þeir hafa haft fjögur ár og koma svo með leikritið rétt fyrir kosningar."

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.