blaðið - 17.03.2007, Síða 10
j Vellcominn á kynningu í
j Green appie Laugavegi 20
í í dag £rá klukkan 14:00
LAUGARDAGUR 17. MARS 2007
blaðið
Lögreglumenn drepnir fyrir mistök
Talsmaður afgönsku lögreglunnar segir að hermenn á
vegum alþjóðlega herliðsins í Afganistan hafi fyrir mis-
tök skotið fimm afganska lögreglumenn til bana í hinu
róstusama Helmand-héraði í gær. Hermennirnir skutu
á menn sem þeir töldu uppreisnarmenn talibana.
Tsvangirai útskrifaður af sjúkrahúsi
Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Simbabve, yfirgaf
sjúkrahús í höfuðborginni Harare í gær. Sagt er að Tsvangirai hafi höf-
uðkúpubrotnað og orðið fyrir öðrum meiðslum eftir að hafa þurft að
þola barsmíðar í haldi lögreglunnar. Tsvangirai var handtekinn um síð-
ustu helgi eftir að lögregla leysti upp fjöldafund stjórnarandstæðinga.
Englatár - www.englatar.is - 551 8686
Minningarkort
Minningar- og styrktarsjóðs
hjartaskjúklinga
HjartaHeill
simi 552 5744
Gíró- og kreditkortþjónusta
Athugasemd
í Blaðinu í gær var fjallað um
kyrrsetningu eigna fyrrum
forsvarsmanna Byrgisins.
Meðal eignanna var sumarhús
Guðmundar Jónssonar, fyrrver-
andi forstöðumanns Byrgis-
ins. Myndin sem birtist við
fréttina var ekki af sumarhúsi
Guðmundar.
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Sverrir Einarsson
Hermann Jónasson
Geir Harðarson
Bryndís Valbjamardóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Sumarefnin
komiiLM úrval
Höfum einnig opnað barnafatadeild
með hágæða barnafatnaði
Linnetsstíg 2, Hafnarfirði, sími 551 0424
i
® töframassinn
Án skaðlegra efna • Fitu- og kýsilleysandi
Húðvænt • Náttúrulegt • Mjög drjúgt
Ótrúlega góður árangur
Svampur fylgir með
Eftir
Hreinsar, fægir og verndar samtímis. Hentar vel til
þrifa á blöndunartækjum, vöskum, ryðfríu stáli,
silfri, áli, gulli, kopar, messing, gleri, plasti,
lökkuðum flötum, krlstal, keramiki, postulíni ofl. ofl.
Sölustaðir: Húsasmiðjan - Byko - FJarðarkaup - Verslanlr Rönning -
Miðstöðin Vestmannaeyjum - Pottar og prik Akureyri - Rafsjá Sauðárfcróki ■
Verkfæralagerinn - Skipavfk Stykkishólmi - Áfangar Keflavfk
Helldsöludreifing: Ræstivörur ehf.
Bandarískur hermaður ákærður fyrir morð á óvopnuðum írökum:
Hryggur en myndi
endurtaka leikinn
■ Átta hermenn ákærðir fyrir morð á 24 írökum
Eftir Atla isleifsson
atlii@bladid.net
Bandarískur hermaður sem er
ákærður fyrir að hafa drepið óvopn-
aða Iraka segir að hann harmi dauða
tnannanna, en að hann myndi taka
sömu ákvarðanir stæði hann aftur
frammi fyrir sömu aðstæðum. Frank
ýVuterich, 26 ára liðsstjóri, sagði í við-
tali að hann hefði skotið fimm óvopn-
iða Iraka þar sem hann taldi þá ógna
félögum sínum í herdeildinni. Irösk
/itni segja hins vegar að drápin hafi
rerið hefndaraðgerð hermannanna
regna sprengjuárásar sem hafði
drepið félaga þeirra nokkrum klukku-
stundum fyrr.
Átta hermenn hafa verið ákærðir
[ málinu fyrir þátt sinn í morðum á
»4 óbreyttum íröskum borgurum í
Haditha í nóvembermánuði árið 2005.
Fjórir þeirra eru ákærðir fyrir morðin
sjálf og fjórir til viðbótar fyrir að hafa
tekið þátt í að reyna að hylma yfir
drápin. Wuterich hefur sjálfur verið
ákærður fyrir að hafa drepið tólf Ir-
ika og fyrirskipað félögum sinum
að drepa sex til viðbótar. Verði menn-
irnir fundnir sekir eiga þeir á hættu
að verða dæmdir í lífstíðarfangelsi.
Wuterich biðst afsökunar á dráp-
unum í viðtalinu sem birtist í frétta-
skýringaþættinum 60 mínútur í
bandarísku sjónvarpi á morgun. „Ég
get ekkert sagt til að bæta fyrir dauða
þessara barna og kvenna, og ég er
mjög hryggur vegna þess sem gerðist
þennan dag.“
Wuterich sagðist hins vegar geta
réttlætt það að hafa skotið karlmenn-
ina, þar sem þeir væru menn á her-
skyldualdri í bíl nærri stað þar sem
sprengja hafði drepið bandarískan
hermann skömmu áður. Hann sagði
Irakana hafa reynt að flýja í stað þess
að fara eftir skipun bandarísku her-
mannanna um að gera það ekki. „Ég
myndi taka sömu ákvörðun í dag.
Þetta eru ákvarðanir sem þarf að
taka í miðri orrustu og ég trúi því að
ég hafi neyðst til að taka þær ákvarð-
anir sem ég tók.“
Eftir að hafa skotið írösku karl-
mennina í bílnum sendi Wuterich
menn sina inn í tvö hús í nánd við
staðinn þar sem írakarnir voru
drepnir. I viðtalinu segir hermaður-
inn að þeir hafi ráðist til atlögu eftir
að hafa heyrt skothríð úr öðru húsinu,
þó að íraskir sjónarvottar segi að svo
hafi ekki verið. Hermennirnir hentu
handsprengju inn í eitt herbergi húss-
ins áður en þeir héldu inn. Þrjár konur
og sex börn létu lífið í þeirri árás.
Wuterich segir að þrátt fyrir að
hann hafi séð konurnar og börnin
deyja í árásinni hafi það ekki stöðvað
Frank Wuterich Viðurkennir að
hafa skotið fimm Iraka til bana.
árásina inn í það næsta. „Ég sá að bak-
dyrnar voru opnar og ég gerði ráð fyrir
að leyniskyttan hefði flúið út um þær
og inn í næsta hús. Það var á mína
ábyrgð að enginn minna manna léti
lífið, og á þeirri stundu var ég fullviss
um að ég hefði ekki átt að hætta við
árásina í seinna húsið.“ I þeirri árás
létust karl, tvær konur og fjögur börn
á aldrinum tveggja til fjórtán ára. I
viðtalinu segist Wuterich hafa farið
eftir settum reglum hersins um inn-
rás i hús til að tryggja ákveðið svæði.
Mál Wuterich og hinna sjö her-
mannanna er einungis eitt af fjöl-
mörgum málum þar sem bandarískir
hermenn eru sakaðir um að hafa
drepið óbreytta Iraka með ólöglegum
hætti.
Barnaníðingurinn úr Vogahverfi:
Stúlkurnar fá stuðning
Barnavernd Reykjavíkur hefur
yfirumsjón með málefnum þeirra
stúlkna sem karlmaður á þrítugs-
aldri áreitti kynferðislega í Voga-
hverfi í janúar og febrúar. I samstarfi
við Barnahús hefur stúlkunum, og
ekki síst foreldrum þeirra, verið
veittur stuðningur undanfarið og sú
vinna mun halda áfram næstu mán-
uði. „Þessi mál taka langan tíma og
við reynum að vinna slík mál í sam-
fellu með Barnahúsi. Þar hafa börnin
og foreldrar þeirra fengið aðstoð við
áföllunum," segir Vilborg Þórarins-
dóttir, verkefnastjóri hjá Barnavernd
Reykjavíkur. „Það fer eftir aldri barn-
anna hversu vel þau eru í stakk búin
til að takast á við svona. Foreldrar
yngstu stúlknanna hafa helst þurft á
stuðningi að halda.“
Niu kærur hafa verið lagðar fram
hjá höfuðborgarlögreglunni. Stúlk-
urnar eru á aldrinum fimm til tólf
ára en maðurinn er kærður fyrir
kynferðisbrot gegn tveimur yngstu
stúlkunum. Hinar kærurnar lúta að
tilraun til kynferðisbrots. Maðurinn
situr í gæsíuvarðhaldi fram til 28.
mars.
Björgvin Björgvinsson, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn höfuðborgarlögregl-
unnar, telur líklegt að tíunda kæran
verði lögð fram á næstunni. Hann
segir öll málin hafa átt sér stað á áður-
greindu tímabili og öll beri þau svipuð
einkenni. „Brotin eru öll á svipuðum
nótum. Rannsókn málsins stendur
yfir og til að forðast að fólk í hverfinu
fyllist skelfingu er best að segja sem
rninnst," segir Björgvin.
í Barnahúsi Barnahús hefur veitt
stúlkunum, sem kaert hafa karlmann
fyrir kynferðislega áreitni í Voga-
hverfi, stuðning. Þar fá foreldrar
stúlknanna einnig aðstoö.