blaðið - 17.03.2007, Qupperneq 16
LAUGARDAGUR 17. MARS 2007
blaöi
Útgáfufélag:
Stjórnarformaður:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árog dagurehf.
Sigurður G. Guðjónsson
Trausti Hafliðason
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Elín Albertsdóttir
Ráðherra með
eigin verðskrá
Samkvæmt lögum eiga foreldrar að fá 75 prósent af tannlæknakostnaði
barna og unglinga upp í 18 ára aldur endurgreidd. Það segir þó ekki neitt því
Tryggingastofnun ríkisins greiðir einungis 75 prósent af þeirri upphæð sem
ráðherra telur að tannlækningar kosti. Tryggingastofnun hefur sína eigin
verðskrá og eftir henni er farið í endurgreiðslunni en ekki hinum raunveru-
lega taxta. Ráðherrataxtinn hefur ekki hækkað í mörg ár á meðan allnokkrar
hækkanir hafa orðið hjá tannlæknum, eins og í öðrum þjónustugreinum. Tann-
læknar mega ekki hafa samráð heldur eiga að starfa á samkeppnisgrundvelli.
Ráðherra hefur hins vegar aðeins einn taxta. Foreldrum bregður því oft í brún
þegar þeir fá kannski aðeins 10 prósent tannlæknareikningsins endurgreidd.
Tannheilsu barna hefur hrakað stórlega hér á landi á undanförnum árum.
í könnun sem gerð var af Munnís og birt var í lok janúar kom fram að tann-
heilsa íslenskra barna væri verst á öllum Norðurlöndum. Á hinum Norðurlönd-
unum er allur tannlæknakostnaður greiddur af hinu opinbera allt upp í 20 ára
aldur. Tíðni tannskemmda fer vaxandi hér á landi og stór hópur barna og ung-
linga fer ekki í reglubundið eftirlit hjá tannlækni. I fréttum Ríkisútvarpsins í
fyrradag sagði dósent í tannlækningum við Háskóla íslands að sum leikskóla-
börn væru jafnvel með allar tennur skemmdar.
Skólatannlækningar voru aflagðar fyrir nokkrum árum, enda þóttu þær
koma í veg fyrir eðlilega samkeppni tannlækna. Sú ákvörðun hefur leitt til
þess að börn og unglingar fara mun sjaldnar til tannlæknis með þeim afleið-
ingum að tannheilsu hefur hrakað mjög. Mun minni þátttaka almannatrygg-
inga í tannlækningum á hér auðvitað líka sök að máli.
Tannlæknar segja að foreldrar hafi ekki lengur efni á að fara með börn sín
til tannlæknis og það getur vel verið rétt, enda eru tannviðgerðir dýrar. Sú
spurning vaknar þó óneitanlega hvernig geti staðið á því að leikskólabörn séu
með svo margar skemmdar tennur? Er sökina kannski líka að finna í mata-
ræði barnanna? Eru börn hætt að bursta tennurnar? Þótt reglubundið eftirlit
með tannheilsu sé afar nauðsynlegt verða foreldrar auðvitað að sjá til þess að
börnin hugsi vel um tennurnar.
f könnun Munnís kom fram að glerungseyðing finnst hjá 30 prósentum
15 ára unglinga. Strákar eru þar stærri hópur en stelpur. Komið hefur fram
í könnunum að strákar drekka meira af gosdrykkjum en stelpur en staðfest
hefur verið að gosdrykkjaneysla hefur mjög slæm áhrif á tennur. Það eru því
ekki eingöngu færri ferðir til tannlæknis sem útskýra lélega tannheilsu heldur
líka óhollar neysluvenjur barna og unglinga. Alls kyns sykraðir ávaxtasafar
eru einnig mjög óhollir fyrir tennur svo og sætindaát.
Tannlæknar eru vel tækjum búnir og geta greint glerungsskemmdir á byrj-
unarstigi og þannig stöðvað frekari þróun sjúkdómsins. Reglulegt eftirlit hjá
tannlækni kemur því í veg fyrir erfiðar og dýrar tannlækningar.
Varla viljum við hafa komandi kynslóðir tannlausar, eða er það nokkuð,
Siv?
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
blaöi
Auglýsingasíminn er
510 3744
16
blaöiö
Ör ^ *
Nefndanefndanefndin
Það er merkilegt þetta með
nefndirnar. Ég var í einni slíkri
hjá menntamálaráðherra sem skil-
aði niðurstöðu árið 2004 um að
langvarandi skort á stuðningi við
blind og sjónskert skólabörn þyrfti
að bæta. Einkum skyldi það gert
með því að stofna þekkingarmið-
stöð sem hjálpað gæti skólum og
kennurum að kenna þessum nem-
endum. Síðan þetta var eru liðin
þrjú skólaár. Hingað hafa komið
erlendir sérfræðingar og staðfest
mikla þörf fyrir þjónustuna og við-
töl hafa birst við foreldra sem tekið
hafa sig upp með rótum og flutt til
annarra landa til að fá viðunandi
þjónustu við börnin sín. Blindra-
félagið var farið að spyrja hvort
blindir þurfi menntun og ég ákvað
því að inna hæstvirtan mennta-
málaráðherra eftir því hvað þekk-
ingarmiðstöð liði.
Og viti menn. Ráðherra upplýsti
að nærri þremur árum eftir að
hennar eigin nefnd skilaði tillög-
unni hafi hún skipað aðra nefnd!
Síðast þegar fréttist voru 246
nefndir starfandi á vegum mennta-
málaráðuneytisins og í þeim sátu
2052 nefndamenn, eða um 1% af
vinnuafli á Islandi.
Nú skortir hvorki góð orð,
fundi, skýrslur, nefndir og velvilja
menntamálayfirvalda í þessu máli.
Það skortir bara aðgerðir. Enda
um smámál að ræða fyrir mennta-
málaráðherra, en stórmál fyrir þá
sem þjónustuna þurfa. Þetta er eitt
af þessum málum þar sem kerfin
benda hvert á annað og þrátt fyrir
hverja nefndina á fætur annarri
gerist ekkert nema ráðherra taki
sjálfur af skarið. Það mun sú ágæta
kona eflaust gera og vonandi fyrir
kosningar enda þverpólitísk sam-
staða um þetta litla mál. En það er
umhugsunarefni hve langan tíma
það hefur tekið og var afhjúpandi
í svari ráðherra að hún tók skýrt
fram að nýja nefndin sem hún
væri að skipa væri ekki bara enn
ein nefndin, svo notuð séu hennar
eigin orð, heldur ætti þessi sem
sagt að gera eitthvað í málinu!
Helgi Hjörvar
VestQarðanefndanefndin
Enn ein nefndin, af þeirri gerð
sem ekkert gerir og á bara að
svæfa málin var svar ríkisstjórnar-
innar við ákalli almennings á Vest-
fjörðum. Ráðþrota stjórnvöld sem
gáfu vinum sínum fiskinn á Vest-
fjarðamiðum skipa nefnd um vand-
ann. Ég er löngu hættur að muna
hvað þeir hafa skipað margar
nefndir um vanda Vestfjarða, en
það voru bara enn einar nefnd-
irnar. Enn einu nefndirnar virðast
vera skipaðar til að láta líta út fyrir
að menn séu að gera eitthvað, en
gera svo ekki neitt.
Þannig hefur ríkisstjórninni
ekki ennþá tekist, árið 2007, að
malbika veg til ísafjarðar frá
Reykjavík. Má það þó heita mann-
réttindamál að byggðakjarninn
í heilum landshluta sé í vegasam-
bandi við höfuðborgina og hefði
átt að koma langt á undan ýmissi
gangagerð. En ríkisstjórnin brást í
þessu því hún taldi mikilvægast að
slá á þenslu með því að fresta fram-
kvæmdum á samdráttarsvæðum.
Stjórnarskrárnefndin
NýrformaðurFramsóknarflokks-
ins féll svo á fyrsta vorprófinu sínu
hér við þinglokin með fráleitri
framgöngu í stjórnarskrármálum.
Það gönuhlaup allt í stjórnarskrár-
nefndunum sýnir kannski betur
en nokkrar aðrar nefndir uppdrátt-
arsýkina í stjórnarsamstarfinu og
hversu erindi þeirra við þjóðina
er þrotið. Þegar Geir og Jón voru al-
gjörlega hættir að geta varið eigið
frumvarp og ekki síður virðingar-
leysi sitt við stjórnarskrána þá vís-
uðu þeir sínu eigin frumvarpi út
úr þinginu án afgreiðslu og í enn
eina nefndina. Nefnilega stjórn-
arskrárnefndina sem starfaði
lengi og hafði undirbúið vandaða
breytingu á stjórnarskrá um eign-
arhald á auðlindum sem aldrei
verður flutt. Enda var það bara
enn ein nefndin. Hún lagði að vísu
samhljóða til að ákvæði um þjóð-
aratkvæði við breytingar á stjórn-
arskrá ætti að setja inn. En það
verður ekki einu sinni gert. Enda
er ríkisstjórn Geirs og Jóns löngu
hætt að gera neitt, nema auðvitað
í nefndum.
Höfundur er þingmaður Samfylkingar
Klippt & skorið
að er víðar eitt-
hvað rotið en í
Danaveldi. ( vik-
unni tilkynnti Geir Haarde
forsætisráðherra um
skipun nefndar vegna
byggðavandans á Vest-
fjörðum. Heimamenn hváðu við þær fréttir
enda löngu Ijóst orðið hvað gera þarf og enn
ein nefndin skipuð fólki sem hefur aðeins
séð Vestfirði á landakorti breytir engu þar
um. ðnnur nefnd sem Geir skipaði og átti að
koma með tillögur um bætta lýðheilsu skilaði
niðurstöðum. Lagt er til að grunnskólar bjóði
upp á hollar skólamáltíðir!!! Er þetta grín? Er
virkilega verið að greiða „fagfólki" fyrir slíkar
niðurstöður sem hver einasta sál með snefil af
skynsemi séríhendi sér?
Mikið húllumhæ
út af engu fer
nú fram víða þar
sem Vífilfell kynnir nýjustu
vöru sína Coke Núll. Ekki
að drykkurinn heiti það en
benda mááaðtil erfullkom-
lega gott íslenskt orð yfir zero. Drykkurinn á að
höfða til karlmanna og eru auglýsingar allar
meira ögrandi en ella samkvæmt fréttatilkynn-
ingu. Færa má rök fyrir því að karlmenn hljóti að
vera afskaplega innantómar sálir að mati Coke.
Slagorð á borð við „af hverju ekki stöðumæla-
verðir meðzero prikf rass***inu" eða „af hverju
ekki geggjaður bíll sem eyðir zero bensíni" eru
vart til þess fallin að fá lunga karlmanna til að
hlaupa til eftir flösku af sykurlausum drykk sem
líkist kóki... en samt ekki alveg.
Dreifingarfyrirtækið
Selecta sem hefur á C.A T,s;.
umsjón með K
stærstum hluta þeirra sjálf-
sala sem víða finnast í fyr-
irtækjum hefur að mestu SelectS
gefist upp á að bjóða þar
eitthvað hollara en Mars, Magic og rækjusam-
lokur. Hefur ýmislegt verið reynt gegnum tíð-
ina en hollt góðgæti ekki átt upp á pallborðið.
Eru þær vörur dýrari en hefðbundin óholl-
usta og áhugi almennings virðist mun minni
en ætla mætti. Getur verið að áhugaleysið sé
raunverulega fjármagnsleysi enda hollar, iíf-
rænt ræktaðar vörur í verslunum nær alltaf
mun dýrari en hefðbundnarvörur.
albert@bladid.net