blaðið - 17.03.2007, Blaðsíða 25
blaóiö
LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 25
Senn líður að frumsýn-
ingu á söngleiknum
Gretti í Borgarleikhús-
inu en hann var fyrst
sýndur í Austurbæjar-
bíói árið 1980. Þórar-
inn Eldjárn er einn af
þremur höfundum verksins, ásamt
Ólafi Hauki Símonarsyni og Agli Ól-
afssyni. Þegar Þórarinn er spurður
hvort honum þyki vænt um gömlu
verkin sín segir hann: „Já, mér þykir
vænt um þau en samt ekki svo vænt
að ég hafi gríðarlegar áhyggjur af því
hvernig þau leggjast í fólk. Ég er til
dæmis ekki einn af þeim höfundum
sem föndra við gömlu ljóðin sín og
breyta þeim. Mér finnst þau tilheyra
sínum tíma og jafnframt eru þau
heimild um sig sjálf. Ég hef reynt að
hafa það fyrir sið í ritmennskunni,
eins og í lífinu, að dvelja ekki um of
við mistök og á sama máta að halla
ekki höfðinu alltof mjúklega á lárvið-
arsveigana ef þeir skyldu bjóðast."
Finnst þér þú hafa gert mistök á
skáldaferlinum?
„Nei, alls ekki, allt eru þetta tök.
En auðvitað misjöfn tök. Sumt bara
harla gott og annað afleitt. En þegar
litið er um öxl stemmir margt engan
veginn við það sem maður hélt á
sínum tíma. Sumt sem átti að vera
frábært eldist mjög illa, en annað
sem lofaði ekki góðu sækir í sig
veðrið og reynist drjúgt. Um þetta er
ómögulegt að segja fyrirfram en ég
held það sé aldrei hægt að líta á það
sem mistök að skálda eitthvað og
senda frá sér. Frekar eru það mistök
að láta það eiga sig. Verk sem er ekki
til fær aldrei að reyna sig.“
Áunnið eðli
Varðstu snemma orðhagur, var
þetta meðfceddur eiginleiki eða var
eitthvað í umhverfinu sem orkaði
svona á þig?
„Ég hef alltaf haft gríðarlegan
áhuga á tungumálinu og velt mér
upp úr endalausum möguleikum
þess og blæbrigðum. Ég man ekki
eftir mér öðruvísi. Að einhverju
leyti er þetta meðfæddur eiginleiki
en líka áunninn eða uppeldisatriði.
Eigum við ekki bara að kalla þetta
áunnið eðli.
Ég ólst upp við það að pabbi kunni
vísur, tilvitnanir og tilsvör sem féllu
að nokkurn veginn öllu sem gerðist.
Að auki var hann sjálfur afskaplega
hagmæltur. Það að dást að vel ortri
vísu eða meitlaðri setningu er þess
vegna í innra minninu. Það var þó
ekki fyrr en ég var kominn í gagn-
fræðaskóla sem yrkingar og skrif í
skólablöð urðu keppikefli og árátta.
I menntaskóla voru bókmenntir af
öllum toga orðnar aðaláhugamálið
og auðvitað lá þar að baki löngun til
að geta sjálfur starfað við slíkt. Svo
gerðist það smátt og smátt.“
Faðir þinn Kristján Eldjárn var
afar ástsœll forseti. Fannstu mikið
fýrir því á sínum tíma að vera
forsetasonur?
„Ég var orðinn nokkuð vel stálp-
aður þegar hann fékk nýja starfið
árið 1968, nítján ára. Þetta breytti
sáralitlu eða engu. Að auki skipti
miklu máli að foreldrar mínir litu
ekki á embættið sem vegtyllu eða
vegsemd heldur fyrst og fremst sem
mjög sérstakt trúnaðarstarf sem
þeim hafði verið falið. Þau lögðu
reyndar mikla áherslu á að þetta
stand yrði ekki kross á okkur systk-
inunum. Okkur fannst þetta ekkert
merkilegt. Kannski hefur það samt
breytt afstöðu einhverra og sett
okkur dálítið á bersvæði í hugum
fólks, líka út af nauðasjaldgæfu
og sérkennilegu ættarnafninu. En
maður vissi þá svo sem ekkert af því
og kom það ekki við.“
Ólíkir karakterar
Svo komu Matthildarþcettirnir
með Davíð Oddssyni og Hrafni
Gunnlaugssyni sem urðu gríðarlega
vinsœlir.
„Það var margt sérstakt við þennan
skemmtiþátt, ekki síst að forminu
til. Þetta var hröð útvarpsrevía eða
kabarett um líðandi stund, skop-
stæling á þjóðfélaginu. Við beittum
„Stundum er því haldiðfram að ekki beri að taka alvar-
lega þá sem erufyndnir, hjá þeim skorti dýpt og skáld-
skapargildi. Það held ég að sé mesti misskilningur en
hefsvosem engar áhyggjur afþví. Efmenn eru á þeirri
skoðun þá gerir það ekkert til. Það skaðar mig ekki neitt.
Égfer mína leið eigi að síður og á góða ferðafélaga. "
ákveðnum húmor sem síðan hefur
mikið verið brúkaður. Meðal ann-
ars orðaleikjum og útúrsnúningum
sem fólk verður stundum afskaplega
þreytt á og kennir við aulahúmor
en er alltaf jafn fyndinn og liður í
umgengninni við tungumálið. Við
þremenningarnir vorum og erum
sjálfsagt allir mjög ólíkir karakt-
erar en í þessum þáttum bætti hver
og einn upp það sem vantaði hjá
hinum. Við höfðum mismunandi
skoðanir en það kom ekki að sök í
þessu verkefni og var reyndar bara
til góðs vegna þess að það dreifði því
hvar skotin lentu. Það er mjög slæmt
ef pólitískar revíur eru einsleitar eða
draga taum einhvers eins afls því þá
leggjast þær fyrst og fremst á sveif
með rétttrúnaðinum sem er í gangi
hverju sinni og það er ekki góð upp-
skrift að húrnor."
Haldið þið félagarnir sambandi?
„Við hittumst afskaplega sjaldan
en það eru mjög góðar taugar á milli
okkar sem auðvelt er að endurnýja
hvenær sem er og hvar sem er.“
Nú er Davíð stórt nafn í pólitískri
sögu 20. aldar á íslandi. Hvernig
finnst þér hann sem pólitíkus og
maður?
„Á báðum sviðum fyrst og fremst
gegnheill og drenglundaður og afar
hlýr persónuleiki. Hann hefur alltaf
búið yfir snerpu og skerpu sem gerir
honum auðvelt að sjá kjarna hvers
máls. Þetta er stundum kallað gott
pólitískt nef og mörgum þótti það
sjálfsagt óþarflega þefvíst. Ef hann
hefði ekki þessa eiginleika hefði
hann aldrei nokkurntíma náð þeim
árangri að vera forsætisráðherra
lengur en nokkur annar Islendingur.
Eftirmaður hans er að vísu afburða-
maður en mér sýnist nú samt að Dav-
íðs sé sárt saknað, ekki síst af þeim
sem byggðu tilveru sína á að hata
hann.“
Vitja um netin
Ert þú pólitískur?
„Það held ég ekki. Sem ungur
maður var ég klassískur vinstrisinn-
aður herstöðvaandstæðingur og
allt í þeim stílnum. Síðan hafa þau
mál þróast jafnt og þétt þannig að
það heyrir sögunni til. Ég hef aldrei
gengið í stjórnmálaflokk og færist
stöðugt fjær því að geta hugsað mér
það. Auðvitað er ég pólitískur á
þann hátt að ég fylgist með því sem
gerist og hef áhuga á því en ég hef
enga sérstaka þörf fyrir að viðra þær
skoðanir í sífellu fyrir öðrum. Það
er ekki þar með sagt að lífsafstaða
komi ekki fram í því sem ég skrifa,
Láttu drauminn rcetast
frábœr fermingartilboð á
rúmum & svefnsófum
Karolin tungusvefnsófi ■ Karolin 3ja sæta svefnsófi
Doris 1 20 x 200cm
Verð. 39.900 - áður 61.600,-
Suprima
90x200cm v/33.280,- áður 41.C00,-
1 20x200cm V/ 42.400,- áður 53.000.
1 40x200cm V/ 49.360,- áður b i .700
>3
cs
o
svæöa pokagormadyna og botn
Electai20x200 v/ 59.980 áður 6/.300
HÚSGAGNAVERSLUN
TOSCANA
SMIÐJUVEGI 2, KOP S:587 6090
HÚSGOGNIN FÁST EiNNIG í HÚSGAGNAVAL, HÖFN S: 478 2535