blaðið - 17.03.2007, Síða 26

blaðið - 17.03.2007, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 blaðið áföstudögum Auglýsingasíminn er 510 3744 hún hlýtur að gera það. En ég hef engan sérstakan áhuga á að greina skrif mín og túlka þjóðfélagslegt erindi mitt. Það myndi kæfa skáld- skapinn. Ég hef oft sagt að ég vil ekki vera of meðvitaður um það sem ég er að gera. Ég vil vera lausbeislaður og málpípa fyrir eitthvað sem ég veit ekki hvað er. Ég vitja um netin og gái hvað kemur.“ Þú hefur örugglega verið spurður hundrað sinnum um fyndni ogskáld- skap. Ég œtla samt að spyrja: Hvert er hlutverkfyndninnar í skáldskap? „Fyndni þýðir ekkert annað en fundvísi. Fundvísi á hið rétta orð eða orðalag er oft það sem skáld- skapur snýst um, ekki síst ljóðlist. Því er ekkert eðlilegra en að fyndni og skáldskapur geti átt farsæla sam- leið en þar með er alls ekki sagt að allur skáldskapur verði að vera fyndinn. Sumir rithöfundar beita fyndni sem aðferð og ég er einn af þeim. Stundum er því haldið fram að ekki beri að taka alvarlega þá sem eru fyndnir, hjá þeim skorti dýpt og skáldskapargildi. Það held ég að sé mesti misskilningur en hef svosem engar áhyggjur af því. Ef menn eru á þeirri skoðun þá gerir það ekkert til. Það skaðar mig ekki neitt. Ég fer mína leið eigi að síður og á góða ferðafélaga. Svo má benda á að margir rithöf- undar, þar á meðal ýmsir þeir allra bestu, hafa beitt húmor í ákaflega ríkum mæli. Nærtækasta dæmið fyrir okkur íslendinga er Halldór Laxness. Hann er auðvitað marg- slunginn höfundur en í eina röndina ef ekki fleiri alveg einstaklega fynd- inn. Hann leyfði sér á öllum tímum að fara mjög glannalega á því sviði. Sama gildir um Jónas Hallgrímsson, hann var líka húmoristi. En ef menn hafa ekkert annað en húmor þá getur vel verið að það sé hárrétt að slíkt endi sem glamur. Húmor eða fyndni er síðan mjög oft viðbragð við því sem á sér alvarlega hlið og al- varlegan undirtón. Ég held reyndar að allur sannur húmor sé þannig.“ „Ég er á þeirri skoðun að trúarbrögð og opinber iðkun þeirra sé oft og ein- att mikið böl í heimi hér. Og því miður vaxandi nú um stundir. Helst myndi ég vilja að víðtækt sam- komulag yrði gert um að öll trúarbrögð séu einka- mál. Og síst aföllu tengd stjórnmálum." Undirtónn sorgar og trega Þú hefur misst tvo syni. Hversu mikið hefurþað breyttþér? „Slík reynsla markar fólk óhjá- kvæmilega fyrir lífstíð. Það er ekki hægt að „jafna sig“ á slíkum áföllum né sætta sig við þau. En áföll eru ekki það sama og óhamingja, þó þau kunni stundum að leiða til hennar með óviðráðanlegum hætti. Allt brey tist í einu vetfangi og þegar rofar til og maður er svo heppinn að geta náð áttum á ný er maður staddur á einhverjum allt öðrum stað en áður. Maður kemur gangandi úr nýrri átt og sér hlutina í öðru ljósi. Það er erfitt að útskýra hvernig það birt- ist en það að hafa gengið í gegnum slíkt ferli skerpir sýnina á það hvað skiptir máli. Maður skilur ekki ýmsar fánýtar áhyggjur sem maður hafði áður. Umburðarlyndi gagnvart manngerðu veseni snarminnkar." Annar sonur þinn sem lést varfatl- aður. Það hlýtur að vera mikil reynsla að fylgjast með slíkum einstaklingi. „Flestir, ef ekki allir, ganga út frá því að þegar barn fæðist sé það á allan hátt gleðilegur atburður og allt í fínasta lagi. Bara það eitt að eitthvað smávegis bjáti á er stórt áfall í bili. Víðtæk þroskahömlun leiðir af sér erfiða ævilanga baráttu, fyrst og fremst fyrir barnið sjálft en einnig foreldra, systkini og fjöl- skyldu. Þetta fá margir að reyna en sem betur fer ekki nándar nærri allir. Óli sonur okkar fæddist með víðtækan heilaskaða, sem olli nær algjörri þroskahömlun. Þegar hann dó árið 1998 var hann 23 ára. Fötlun hans og veikindi gerðu sorgina yfir því þó ekkert minni. Á vissan hátt meiri ef eitthvað er. Þegar við vorum að byrja að hjarna við eftir þetta mikla bakslag kom hitt reiðarslagið tveimur árum síðar, þegar elsti sonur okkar, Krist- ján Eldjárn, sem aldrei hafði kennt sér meins greindist skyndilega með banvænan sjúkdóm 28 ára að aldri. Ekki leið nema eitt og hálft ár af hræðilegri baráttu þar til hann var líka farinn. Þegar ég hugsa um það eftir á finnst mér allt að því óraun- verulegt að við skulum hafa komist lifandi og heil á sönsum í gegnum reynslu eins og þessa sem ekkert er jákvætt við en einhvern veginn tókst það samt og lífið heldur áfram. Við njótum þess að eiga þrjá frábæra syni, yndislegar tengdadætur og barnabörn. Lífið brosir við þeim og okkur þrátt fyrir allt, þó undirtónn sorgar og trega hverfi aldrei. Um allar þessar tilfinningar eru nokkur ljóð í síðustu ljóðabókinni minn, Hættir og mörk sem kom út 2005“ Er ekki skilningssjúkur Trúirðu á Guð? „Ég er trúheftur svo ég noti gott orð sem einn frændi minn bjó til. Ég skil ekki trúarbrögð og tel að aldrei hafi örlað á neinni trúarlegri tilfinningu hjá mér þó ég fyllist auð- veldlega lotningu gagnvart sköpun- arverkinu, hver svo sem skóp það, ef það var þá nokkur: náttúrunni, tónlist, bókmenntum, fögru mann- lífi. Ég hallast samt að því að það sé rétt að líta ekki svo á að maðurinn sé herra tilverunnar. Ég er sem sagt ekki skynsemistrúarmaður sem tel mig geta svarað öllum spurningum af kaldri rökhyggju. Ég er ekki skiln- ingssjúkur. Ég get alveg ímyndað mér afl sem er manninum æðra, afl sem við skiljum ekki, en hugsum til og sækjum styrk til. En ég tengi þá afstöðu á engan hátt við guðstrú eða trúarbrögð. Ég amast ekki við því að fólk ástundi trúarbrögð en þykir smekk- legra að það haldi þeirri iðju fyrir sjálft sig. Ég er á þeirri skoðun að trúarbrögð og opinber iðkun þeirra sé oft og einatt mikið böl í heimi hér. Og því miður vaxandi nú um stundir. Helst myndi ég vilja að víðtækt sam- komulag yrði gert um að öll trúar- brögð séu einkamál. Og síst af öllu tengd stjórnmálum. Mér blöskrar þetta fólk um allan heim, af ýmsum trúarbrögðum, seth hefur Guð með sér í óhæfuverkum og notar trúar- brögð til að réttlæta hvaða hrylling sem er fyrir sjálfu sér og öðrum. Þetta á ríkan þátt i því að ég segi hik- laust: Ég er trúlaus maður." „Þegar ég hugsa um það eftir áfinnst mér allt að því óraunverulegt að við skulum hafa komist lifandi og heil á sönsum í gegnum reynslu eins og þessa sem ékkert er jákvætt við en einhvern veginn tókst það samt og lífið heldur áfram." Hversu miklu máli skiptir vinnan P'g- „Hún skiptir mig öllu máli. Burt- séð frá háfleygum speglasjónum um hlutverk, gildi og erindi skáld- skaparins þá er hann atvinna mín og nátengdur velferð fjölskyldunnar. Atvinna sem ég valdi mér sjálfur af áhuga og með ánægju. Auðvitað skiptast á skin og skúrir en á bak við alla listsköpun liggur samt fyrst og fremst hin gamla, góða, heiðarlega sköpunargleði sem ég held að allir þekki sem einhvern tíma hafa búið til eitthvað úr einhverju. Það að geta svalað þessari gleði og komið hlutum í verk er mér gríðarlega mik- ils virði.“ kolbrun@bladid.net opiö virka daga 10-18 laugardaga 11-16 - Sunnudaga 13-1( Rymum til fyrir nyjum vorum afsl. af öllum indverskum vorum

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.