blaðið

Ulloq

blaðið - 17.03.2007, Qupperneq 33

blaðið - 17.03.2007, Qupperneq 33
blaðið LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 33 Hin fullkomnu gæludýr Ég á tvær 5 ára gamlar læður, systurnar Ronju og Línu. Á þeim tíma sem ég hef átt þær hef ég komist að því að þetta eru ótrúlega klár dýr. Einu sinni þurftum við að setja þær í pössun í öðru sveitarfélagi og þá tóku þær upp á því að ganga heim og það vakti mikla furðu og aðdáun á mínu heimili. Þá voru þær aftur settar i pössun og gengu þær aftur heim þannig að það var útséð að það var ekki hægt að setja þær í svona útlegð, enda höfðu þær sýnt með áþreifanlegum hætti að þær vildu vera heima og hvergi annars staðar. Ronja og IJna eru ofsalega gæfar og kelnar sem er kannski óheppilegt í mínu tilfelli þar sem ég hef ofnæmi fyrir köttum. En ég læt mig hafa það að taka eina pillu á dag og það er sannarlega þess virði til að geta átt þær. Við hjónin ákváðum á sínum tíma að fá okkur einn kött en þegar við fórum að sækja hann voru tveir kettlingar eftir og við tókum þá báða. Það hefur reynst mjög vel þar sem Ronja og Lina hafa félagsskap hvor af annarri og fyrirhöfnin af tveimur köttum er varla meiri en af einum. Ég held það sé óhætt að segja að kettir séu hin fullkomnu gæludýr. Bestu vinirnir Ég á þrjá hunda sem heita Mandla, Kleina og Hlenni Knöttur. Þeir eru af langhunda- tegund og eru einnig gjarnan kallaðir pylsu- hundar. Hlenni og Mandla eru þriggja ára hálfsystkini og Kleina er eins árs hálfsystir Hlenna og bróðurdóttir Möndlu, þannig að þau eru skemmtilega skyld. Mömmur þeirra voru fluttar sérstaklega inn frá Suður-Afríku til ræktunar. Þau eru öll einstök og mjög skemmtilegir ka- rakterar. Hlenni er mjög athugull og Mandla er meira inn í sig og í raun frekust af þeim þótt hún líti ekki út fyrir það. Kleina er enn þá hálf- gert barn, hleypur út um allt og er oft með dá- lítinn æsing. Sennilega á hún eftir að verða lík Hlenna þar sem hún er skyldari honum. Ég hef átt hunda frá árinu 1978 og stundum þrjá í einu eins og núna. Það hefur oftar en ekki komið fyrir að hundarnir hafa slegist um athygli mína, en þessi þrjú sem ég á núna lifa blessunarlega í sátt og samlyndi. Það fylgir því töluverð fyrirhöfn að eiga hund og það er skemmst frá því að segja að þegar foreldrar fara í frí geta þeir alltaf fengið pössun fyrir börnin en enginn fæst til að passa hundinn. En þrátt fyrir fyrirhöfnina sem fylgir þeim gæti ég ekki hugsað mér að vera án hundanna minna sem eru mínir bestu vinir. Hrafnhildur Gunnarsdóttir, ■*> formaður Samtakanna 78 Blíðust af öllum blíðum Ég á tíkina Jöklu sem verður 3 ára i næsta mán- uði og er síberískur sleðahundur. Vegna upprun- ans verður henni aldrei kalt hér nema síður sé. Á nóttunni vill hún helst liggja við útidyrnar, helst ofan á flísunum. Ég finn að þegar það er snjór úti og kalt verður hún kampakát og finnst afar notalegt að liggja og hvíla sig úti á hjarni. Ef það er hins vegar rigning snýr hún upp á sig og neitar að fara út. Ég fékk hana Jöklu frá Svíþjóð þegar hún var 7 mánaða gömul og þar sem ég var á svo miklu flakki ákvað ég að ég þyrfti að vera með með- eiganda sem er Unnur Jökulsdóttir rithöfundur. En Unnur er nú komin með hvolp undan Jöklu þannig að ég er núna mestmegnis með hana. Þegar Jökla kom til landsins þurfti hún fyrst að vera í einangrun í Hrísey og hún virðist hafa fengið áfall þar. Hún fríkar út þegar ég skil hana eftir og þess vegna fylgir hún mér við hvert fót- mál, í vinnuna og á fundi. En það er ekkert vanda- mál þar sem hún er blíðust af öllum bliðum og alveg einstakur hundur. Meira að segja fólk sem er hrætt við hunda hænist að henni og hún þarf aldrei að vera í bandi, enda fylgir hún mér eins oe hvítur skueei. Heldur að ég sé konan hans Ég á tvo hreinræktaða norska skógarketti sem heita Askur og Andrá. Þau eru systkini og verða ársgömul þann 7. apríl næstkom- andi. Þau eru mjög ólík en bæði mjög yndisleg. Askur er alger kelirófa og heldur hreinlega að ég sé konan hans. Hann sefur alltaf uppi í hjá mér og um leið og hann hittir fólk leggst hann alltaf á bakið og gefur frá sér ákveðið hljóð sem þýðir að það á að klappa honum. Oft er sagt að rauðir fresskettir hafi nokkurs konar keligen í sér og það sést vel á honum. Andrá er þokkafullur og fíngerður köttur og er sú klára af þeim systkinum. Hún er mjög fim, eltir mig út um allt og finnst mjög gott að vera nálægt mér þó hún sé minna fýrir að láta kela við sig. Hún er ofboðslega sérvitur og drekkur til dæmis bara vatn úr krana. Fram að tvítugu var ég með mikið ofnæmi fyrir köttum og hélt mig fjarri þeim. En þá breytti ég um mataræði og þegar mamma fór að rækta ketti komst ég að þvi að ofnæmið var horfið. Þá kynntist ég þeim upp á nýtt og bráðn- aði gjörsamlega, enda sá ég hvað þeir voru æðis- legir. Ég er handviss um að það sé brey ttu mata- ræði að þakka að ég losnaði við ofnæmið. Sólveig Eiríksdóttir, mat- arhönnuður og ráðgjafi í Himneskri hollustu .K-.S: 1P ii Með nokkuð sterkum rökum má segja að í borgum og bæjum nútímans sé ettgin þörffyrir dýraeign. Bílar og strætisvagnar hafa leyst hest inn af hólmi sem farartæki og öjJugir lásar og þjófavarnarkerfi hafa leyst hundintt afhóltni sent heimavörn. En óháð allri nytsemi verður ekki annað sagt ett að mannskepnunni sé hollt að umgangast aðrar dýrateguttdir. Ratinsóknir hafa sýnt að gæludýr á borð við huttda og ketti hafa góð áhrifá andlega og líkamlega heilsu fólks, ekki stst barna og gamalmenna. BJaðið hafði sambattd við fitttttt stolta Itunda- og katta- eigendur og forvitnaðist ttm reynslu þeirra af þessutn vingjarnlegu ferfætlingum. væi'Limf Fullgildur fjölskyldu- meðlimur Ég á eina 18 ára gamla læðu sem býr á efri hæðinni hjá foreldrum mínum, og svo á ég eina 5 ára gamla læðu heima hjá mér. Sú eldri heitir Doppa en það er nafn sem ég ber ekki ábyrgð á af því að bróðir minn skírði hana. Sú yngri heitir Katzen og reyndar átti ég líka áður kött- inn Gelben sem ákvað upp á sitt ein- dæmi að skipta um eigendur og flytja inn til fjölskyldu sem bjó neðar í göt- unni, þar sem henni fannst of þröngt á þingi á heimili með tveimur öðrum köttum. Ég er mikill kattamaður og finnst heilmikið í þessi dýr spunnið. Þeir hafa mjög þægilega nærveru og þar sem ég eyði miklum tíma með Katzen er hún orðin að fullgildum fjölskyldumeðlimi. Fólk sem á ekki gæludýr skilur þetta ekki en það verður samt að læra að taka þessu. Það heldur kannski að kettir séu heimsk dýr sem þeir eru alls ekki. Að því sögðu má ég til með að segja að ég verð mjög hneykslaður þegar ég heyri að fólk láti lóga dýrunum sínum þegar það er á leið í sumarfrí. Ég held að þeir sem gera svoleiðis séu alls ófærir um að skapa tengsl við dýrin. Það er mikil synd, og sjálfur myndi ég aldrei láta mér detta í hug að gera svoleiðis. Óttar Norðfjörð, rithöfundur

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.