blaðið - 17.03.2007, Side 45
blaöið
LAUGARDAGUR 17. MARS 2007 45
Gömlu meistararnir
Tríó Reykjavíkur heldur tónleika
í Hafnarborg á morgun, sunnu-
dag, klukkan 20. Flutt verða
þrjú af öndvegisverkum gömlu
meistaranna Haydn, Beethoven
og Brahms. í Tríói Reykjavíkur
eru Peter Maté, Guðný Guð-
mundsdóttir og Gunnar Kvaran.
Barnakóramót
Kórar úr Akureyrarkirkju, Glerár-
kirkju og Eyjafjarðarsveit koma
fram á tónleikum í Glerárkirkju
klukkan 15 í tilefni af barnakóra-
móti ÆSKEY. Aðgangseyrir er
500 krónur.
Sálumessa í
Kristskirkju
Kammerkórinn Carmina flytur
Requiem (Sálumessu) eftir
spænska endurreisnartón-
skáldið Tomás Luis de Victoria
i Kristskirkju í dag og á morgun.
Tónleikarnir hefjast klukkan 16
báða dagana.
Tónleikar
Frímúrarakórsins
Frímúrarakórinn heldurtónleika
í hátíðarsal Frímúrarareglunnar
að Skúlagötu 55 í dag klukkan
16. Stjórnandi er Jón Kristinn
Cortez og Jónas Þórir leikur á
píanó. Aðgangseyrir er 1500
krónur og verða miðar seldir við
innganginn.
Kórtónleikar
á Suðurnesjum
Kvennakór Suðurnesja heldur
tónleika I Safnaðarheimilinu I
Sandgerði á morgun, sunnu-
dag, klukkan 17. A efnisskrá
tónleikanna eru íslensk lög,
þjóðlög, ítalskar aríur og syrpur
úr söngleikjum. Aðgangseyrir er
1500 krónur.
Hryðjuverkaógnin
Samtök hernaðarandstæðinga
halda opinn fund
undir yfirskriftinni
Er hryðjuverkaógnin
raunveruleg? á skrif-
stofu Vinstri grænna,
Hafnarstræti 98, á
Akureyri I dag kl. 14.
E1 Grillo á Seyðisfirði
Sýningin El Grillo verður opnuð
I menningarmiðstöðinni Skaft-
felli á Seyðisfirði I dag klukkan
16. Sýningin er samstarfsverk-
efni nemenda við Listaháskóla
íslands og Dieter Roth Akadem-
íunnar og Skaftfells.
Sýning ungra listnema
Opnuð verður sýning á verkum
nemenda I Myndlistarskólanum
I Reykjavík I Gallerýi Tukt í Hinu
húsinu í dag klukkan 16.
Sveifla á Vélsmiðjunni
Geirmundur Valtýsson og
hljómsveit halda uppi stuðinu í
Vélsmiðjunni á Akureyri í kvöld.
Húsið verður opnað klukkan 22
og er frítt inn til miðnættis.
Vilborg les ljóð
f tilefni af opnun myndlistarsýn-
ingar Kristínar Þorkelsdóttur f
Artóteki mun Vilborg Dagbjarts-
dóttir lesa Ijóð eftir sig í Borg-
arbókasafni ÍTryggvagötu 15 í
dag klukkan 16.
Sigurður Fáfnisbani
Richard Wagner-félagið sýnir
óperuna Sigurð Fáfnisbana
í Norræna húsinu á morgun,
sunnudag, klukkan 13. Sýnt
verður myndband af uppfærslu
frá Festspielhaus í Bayreuth.
Loðna og rúið sauðfé
Sauðfé verður rúið í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum á morgun, sunnu-
dag, milli klukkan 13 og 15:30. Guð-
mundur Hallgrímsson, ráðsmaður
á Hvanneyri, verður að störfum í
fjárhúsi garðsins og segir gestum
frá um leið.
Hér gefst því borgarbörnum gott
tækifæri til að kynna sér rúnings-
verk og segir Tómas Óskar Guðjóns-
son, forstöðumaður Fjölskyldu- og
húsdýragarðsins, að það sé vel þess
virði fyrir alla sem ekki hafa séð
það áður.
Fleira forvitnilegt er að sjá í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum þessa
dagana því að þar er nú hægt að
berja lifandi loðnu augum.
„Sunnubergið sem var á loðnu-
veiðum í Faxaflóa veiddi fyrir
okkur lifandi loðnu og kom með
til okkar hingað í garðinn og við
erum kannski með um 1000 lif-
andi loðnur í sjávardýrasafni hjá
okkur,“ segir Tómas. „Þetta er fisk-
ur sem er gríðarlega fallegur. Ég er
sjálfur að sjá loðnu í fyrsta skipti
lifandi í svona miklu návígi,“ segir
hann.
Loðna drepst yfirleitt að hrygn-
ingu lokinni en nú er hún farin að
hrygna í búrum Fjölskyldu- og hús-
dýragarðsins.
„Eggin eru á mismunandi þroska-
stigi. Þau eru frjóvguð og við sjáum
augu og hreyfingu. Loðnan er byrj-
uð að éta hjá okkur þannig að við
gerum okkur vonir um að eitthvað
af henni lifi áfram,“ segir hann.
„Loðnan sem hún dregur nafn sitt
af sést mjög vel. Þetta eru tvær upp-
hleyptar rákir á hliðinni á fisknum
og það er ótrúlegt að fylgjast með
þessu,“ segir Tómas.
Loðna til sýnis Gestum Fjölskyldu- og húsdýragarðsins gefst nú einstakt
tækifæri til að sjá lifandi toðnu.
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar
auglýsir fasteignir til sölu
Byggingar
2102
2104
2106
2110
2112
510 2114
520 2118
528 2120
2122
2126
2128
2435
2453
Tilgreindar fasteignir á starfsvæði Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar eru hér með auglýstar til
sölu. Við mat á tilboðum verður einkum horft til kaupverðs og tilhögunar á greiðslu þess. Félagið
áskilur sér hins vegar rétt til að taka tillit til hugmynda bjóðenda um nýtingu fasteignanna ásamt
því hvaða áhrif sú nýting hefur á eftirspurn eftir öðrum eignum félagsins á svæðinu. Ekki er um
útboð á eignunum að ræða heldur sölu. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar áskilur sér því rétt til
að taka þeim tilboöum sem talin eru hagstæðust, m.a. út frá ofangreindum þáttum eða hafna
öllum. Eignirnar verða til sýnis frá og með mánudeginum 19. mars og verða seldar frá og með
mánudeginum 28. mars nk.
Frekari upplýsingar um eignirnar má nálgast á
heimasíðu eða á skrifstofu félagsins.
KADECO
Þróunarfélag Keflavikurflugvallar
www.kadeco.is