blaðið


blaðið - 08.05.2007, Qupperneq 16

blaðið - 08.05.2007, Qupperneq 16
32 • KOSNINGAR 2007 ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2007 blaöiö Mikil uppstokkun 1 þéttbýliskjördæmunum: Reynsluboltar og ráðherrar af þingi Rúmur þriðjungur þeirra 33 þing- manna sem koma úr Reykjavíkur- kjördæmunum og Suðvesturkjör- dæmi hefur hætt á kjörtímabilinu eða hættir þingmennsku eftir kosn- ingarnar 12. maí. Þar af eru sjö ráð- herrar eða fyrrverandi ráðherrar með samanlagt rúmlega hundrað ára reynslu af þingi. Reykjavíkurkjördæmi norður: Davtð Odds- son, fyrrverandi formaðurSjálfstæð- isflokksins og for- sætisráðherra, lét af þingmennsku í lok september 2005 eftir 14 ára þingmennsku. Davíð var fyrst kjörinn á þing vorið 1991 og myndaði þá sína fyrstu ríkisstjórn með Alþýðuflokki. Að loknu kjör- tímabilinu myndaði Davíð þrisvar sinnum ríkisstjórn með Framsókn- arflokki áður en hann sagði af sér og tók við stöðu seðlabankastjóra. Ásta Möller settist á þing við brott- hvarfDavíðs. Halldór Ás- grímsson, fyrr-. verandi formaður Framsóknarflokks- ins og forsætis- ráðherra, lét af þingmennsku í september í fyrra eftir 22 ára setu á þingi. Halldór settist fyrst á þing í október 1974 og var meðal annars sjávarútvegsráðherra, utanríkisráð- herra og síðast forsætisráðherra. loknum kosningum, eftir rúmlega 16 ára setu á þingi. Sólveig tók fyrst sæti á þingi haustið 1987 sem vara- þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Guðmundur Hallvarðsson, Sjálfstæðisflokki hættir þing- mennsku eftir kosningar en hann á að baki fjögur kjörtímabil á þingi, samtals 16 ár. Suðvesturkjördæmi: Guðmundur Árni Stefáns- son, Samfylk- ingunni, lét af þingmennsku í september 2005 eftir rúmlega 12 ára setu á þingi. Guðmundur Árni var um tíma heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og síðar félagsmálaráðherra. Guðmundur Árni tók við embætti sendiherra í Svíþjóð. Ásgeir Friðgeirsson, fyrsti varaþingmaður Samfylkingar- innar í Suðvesturkjördæmi, sagði sig frá þingsætinu og tók Valdimar Leó Friðriksson því sæti á þingi í stað Guðmundar Árna. Valdimar Leó gekk rúmu ári síðar til liðs við Frjálslynda flokkinn. Gunnar Ingi Birgisson, Sjálf- stæðisflokki, sagði af sér þing- Árni Magnús- son, fyrrverandi félagsmálaráð- herra lét af emb- ætti í fyrravor eftir þriggja ára þing- setu fyrir Fram- sóknarflokkinn. Guðjón Ólafur Jónsson og Sæ- unn Stefánsdóttir tóku sæti þeirra Halldórs og Árna á þingi. Guðrún Ög- mundsdóttir,Sam- fylkingunni, lætur af þingmennsku að loknum kosn- ingum. Guðrún hefur setið á þingi síðustu tvö kjörtímabil. Bryndís Hlöð- \ versdóttir, Sam- fylkingunni, sagði af sér þing- mennsku i ágúst 2005 eftir tíu ára setu á Alþingi. Bryndís er nú aðstoðarrektor og for- seti lagadeildar Háskólans á Bifröst. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tók sæti á Alþingi í stað Bryndísar. Reykjavíkurkjördæmi suour: Sólveig Pét- ursdóttir, forseti Alþingis og fyrr- verandi dóms- og kirkjumálaráð- herra, lætur af þingmennsku að mennsku í október 2005 og settist í stól bæjarstjóra í Kópavogi. Gunnar hafði þá setið á þingi í sex og hálft ár. Sigurrós Þorgrímsdóttir tók sæti Gunnars á Alþingi. Sigurrós situr hins vegar það neðarlega á framboðs- lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvest- urkjördæmi að hún tekur ekki sæti á þingi að loknum kosningunum. Rannveig Guð- mundsdóttir, Sam- fylkingunni.hættir þingmennsku eftir 12. maí. Rannveig á að baki tæplega 18 ára þingsetu. Hún tók sæti á Alþingi 1989 eftir að hafa setið þrjú kjör- tímabil í bæjarstjórn Kópavogs. Pól- itiskur ferill hennar spannar fjóra áratugi. Sigríður Anna Þórðardóttir, Sjálfstæðisflokki, lætur af þing- mennsku eftir 16 ára setu. Sigríður Anna var um skeið umhverfisráðherra. GunnarÖrn Ör- lygsson, Sjálfstæð- isflokki, sest ekki á þing að loknum kosningum á laug- ardag. Gunnar var kjörinn á þing fyrir Frjálslynda flokkinn í Suðvesturkjör- dæmi en gekk til liðs við Sjálfstæð- isflokkinn á miðju kjörtímabilinu. Gunnar situr í 10. sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins i Suðurkjördæmi og nær því trauðla kosningu 12. maí. wmmmmmmm Samfylklngln ISLANDS HREYFINGIN U^xjuLíLmuí ATKVÆÐI VINSTRI GRÆNIR |] Framsókn FRAMSÓKNARFLOKKURINN SJALFSTÆÐISFLOKKURINN FRJÁLSLYNDI FLOKKURINN ir á sáttmálaaðgerð irs sjá www.framtidarlandid.is KYST ÞU GRÆNT? VILJUM VIÐ LÁTA NÁTTÚRÚNA NJÓTA VAFANS NÆ5TU 4 ÁR? KYST ÞU GRATT? EÐA VILJUM VIÐ FULLVIRKJA ISLAND OG UTILOKA AÐRA FRAMTIÐARMOGULEIKA? FRAMTIÐARLANDIÐ Framtíðarlandið er þverpólitískt félag sem styður alla stjórnmálaflokka til góðra verka.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.