blaðið - 04.07.2007, Blaðsíða 2
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 4. JULI 2007
blaðiö
Urvalsvísitalan hækkar mikið .
Ekki innistæða fyrir hækkuninni
Úrvalsvísitalan hækkaði um
29,5% á fyrri helmingi þessa árs
og er hækkunin mjög mikil sam-
anborið við flestar hlutabréfa-
vísitölur heims.
Sandra Fairbairn hjá greiningar-
deild Landsbankans segir verð
íslenskra hlutabréfa vera orðið
mjög hátt og telur að ekki sé
innistæða fyrir hækkun undan-
farinna mánaða. „I upphafi árs
gáfum við það út að við teldum
verðlag á hlutabréfamarkaðnum
vera sanngjarnt. Nú eru hækk-
anir hins vegar komnar vel fram
úr því sem við teljum vera inni-
stæðu fyrir. Það sem er að keyra
úrvalsvísitöluna upp eru bank-
arnir og fjárfestingarfélögin.
Hækkanir þar eru miklu meiri
Sveiflur úrvalsvísitölunnar
á tyrri helmingi árs
39,7%
-17,2%
en í framleiðslufyrirtækjum,“
segir Sandra.
Sem dæmi hækkaði Kaupþing
um 35,6%, Exista um 58,5% og
Landsbankinn um 45,6% á fyrri
helmingi þessa árs. hso
Menntun í stað niðurskurðar þorsks
Ljóst er að verulegur niðurskurður verður á aflaheimildum. Þetta
sagði Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra að loknum ríkis-
stjórnarfundi í gær.
„Ríkisstjórnin hefur mikinn skilning á þeirri stöðu sem myndast í
mörgum sjárvarbyggðum þegar þorskveiðiheimildirnar skerðast á
næsta ári. í fyrsta lagi þarf að huga að tímabundnum aðgerðum í ljósi
þess að við lítum svo á að um tímabundið ástand sé að ræða. í öðru
lagi þarf að huga að uppbyggingu innviða þessara bæjarfélaga. Hið síð-
arnefnda er það sem skiptir mestu máli, og þarf þá að huga að bættri
menntun, betri samgöngum og öflugri fjarskiptum til að hægt sé að
efla atvinnuvegi bæjarfélaganna."
Einar ætlar að gefa sér tíma fram að miðjum mánuði til að ákveða
aflamark helstu nytjastofna og mun nota næstu daga til að ræða við
hagsmunaaðila í sjávarútvegi.
Hafrannsóknastofnunin hefur lagt til að þorskveiðiheimildir verði
skornar niður úr 193 þúsund tonnum í 130 þúsund tonn, eða um rúm 30
prósent. hos
Fimmti
hlýjasti júní
Síðastliðinn júnímánuður var sá
5. hlýjasti samkvæmt mælingum
síðustu 130 ára. Hlýjast var þó
á Vestfjörðum þar sem hiti var
meira en þremur stigum yfir -
meðallagi áranna 1961 til 2000.
Meðalhiti í Reykjavík var 10,7 stig
og er það 1,7 stigum yfir með-
allagi. Júní var yfirhöfuð mjög
þurr, einkum á Akureyri þar
sem aldrei hefur mælst jafnlítii
úrkoma. Sólsskinsstundir höfuð-
borgarinnar voru 195 talsins og er
það langt yfir meðallagi. Hæsti
hiti mánaðarins mældist á Eg-
ilsstöðum og fór upp í 23 gráður.
Upplýsingarnar tók Trausti Jóns-
son veðurfræðingur saman.
Lánshlutfall
lækkaö í 80%
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra hefur undirritað
reglugerð sem kveður á um að
hámarkslánshlutfall f búðalána-
sjóðs skuli lækkað úr 90% í 80%
frá og með 4. júlí.
Lánshlutfallið var hækkað úr 80
prósentum í 90 prósent í febrúar
með reglugerð sem Magnús Stef-
ánsson, þáverandi félagsmálaráð-
herra, gaf út og hámarksfjárhæð
almennra lána var jafnframt
hækkuð úr 17 milljónum króna í
18 milljónir.
í tilkynningu frá félagsmálaráðu-
neytinu segir að undanfarið hafi
fasteignaverð farið hækkandi á
nýjan leik. Þetta hafi stuðlað að
meiri verðbólgu og hærra vaxta-
stigi en ella sem mikilvægt hafi
verið að bregðast við.
í hálffimmfréttum Kaupþings
segir að greiningardeild bankans
meti það svo að aðgerðirnar ættu
að sporna við frekari þenslu á fast-
eignamarkaði og þar með draga
úr þeim verðbólguþrýstingi sem
enn sé til staðar í hagkerfinu.
mbl.is
Þverbrjóta reglur
um merkingar
■ Stöndum nágrönnum langt að baki hvað vegamerkingar varðar
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
Merkingum vegna vegafram-
kvæmda hér á landi er stórlega
ábótavant og stöndum við ná-
grannaríkjum okkar langt að baki.
Vankantar eru á að reglum sé fylgt
í þeim efnum. Á meðfylgjandi
mynd má sjá þær malbikunarfram-
kvæmdir sem fyrirhugaðar eru í
austurhluta borgarinnar í sumar, en
sambærilegt kort fyrir vesturhluta
Reykjavíkur birtist í Blaðinu í gær.
Eins og merkingum er háttað í dag
skapa framkvæmdirnar bæði hættu
á umferðarteppu og slysum, segir
framkvæmdastjóri Félags íslenskra
bifreiðaeigenda (FlB).
Stað- og tímasetning slæm
„Vegamerkingar hér á landi eru í
algjöru lágmarki miðað við það sem
þekkist í nágrannalöndunum. Hér
er lenska að ökumaður sé kominn
alveg að framkvæmdasvæði þegar
hann verður merkinga var, meðan í
nágrannalöndunum eru merkingar
yfirleitt staðsettar þannig að menn
vita af framkvæmdasvæði löngu
áður en komið er að því,“ segir Run-
ólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri
FÍB.
Runólfur gagnrýnir einnig að fólk
skuli ekki látið vita í tæka tíð. „Auð-
vitað er veður ekki alltaf jafngott og
verið hefur undanfarna daga. En
menn vita með nokkuð góðum fyrir-
vara hvernig veðurlag er framundan.
Því ætti að vera hægt að setja upp
skilti og jafnvel birta auglýsingar
VINNUSVÆÐAMERKINGAR
► Á heimasíðu Vegagerðarinn
ar má finna 20 bls. reglu-
gerð um hvernig vegafram-
kvæmdir skulu merktar.
►
Veghaldarar, sem eru ann-
ars vegar Vegagerðin og
hins vegar sveitarfélögin og
lögregla, eiga að sjá til þess
að reglunum sé fylgt.
með ábendingum um hjáleiðir með
nokkurra daga fyrirvara."
Ekki farið að reglum
Runólfur segir vandamálið ekki
vera skort á reglum um vegamerk-
ingar, heldur það að ekki sé farið
eftir þeim. „Ef reglunum væri fylgt
værum við í svipaðri stöðu og ná-
grannalöndin. Til eru tugir síðna
með reglum um merkingar vegafram-
kvæmda. Og það eru útboðsskyld
gögn, þannig að sá sem gerir tilboð í
verk á að gera ráð fyrir þessum kostn-
aði. En það vantar verulega á að verk-
takar fari að reglunum og einnig að
eftirlitsaðilar, sem eru annars vegar
lögregla og hins vegar veghaldarar,
sinni sínu hlutverki.“
Gunnar Helgi Guðmundsson,
forstöðurmaður árangurs- og eftir-
litsdeildar Vegagerðarinnar, tekur
undir orð Runólfs. „Það verður því
miður að segjast eins og er að þessi
mál eru ekki í lagi. Bæði er verk-
tökum um að kenna og eins hefur
eftirlit Vegagerðarinnar með því
hvort reglunum sé fylgt ekki verið
nógu gott.“
Akvæði í umræddum reglum
kveður á um að útiloka megi verk-
taka frá vegaframkvæmdum fari
hann ekki eftir þeim. „Mér vitandi
hefur þessu ákvæði ekki verið beitt
til þessa. Rætt hefur verið um að
taka upp fésektir fari menn ekki að
reglunum, eins og til dæmis er gert
I Danmörku. Engar ákvarðanir hafa
þó verið teknar um það enn sem
komið er,“ segir Gunnar Helgi.
VEÐRIÐ í DAG
Þurrt og bjart syðra
Eindregin væta norðaustan- og austan-
lands en sunnanlands og vestan verður
þurrt og sæmilega bjart. Hiti 11 til 19 stig,
en 7 til 10 norðaustantil.
ÁMORGUN
Rigning fyrir austan
Norðaustan 5-10 m/s og skýjað og dálitil
rigning með köflum austantil, en bjart með
köflum og þurrt að kalla vestantil. Hiti 11
til 18 stig, en heldur svalara við norður- og
austurströndina.
Sólveig Þorvalds-
dóttir til Pakistans
Sólveig Þorvaldsdóttir jarð-
skjálftaverkfræðingur hélt til
Pakistans í dag til neyðarstarfa á
vegum Rauða kross í slands vegna
flóða í suðurhluta landsins. Er
Sólveig í níu manna neyðarteymi
Alþjóðasambands Rauða krossins
sem mun aðstoða pakistanska
Rauða hálfmánann við neyð-
araðstoðina. Rauði krossinn
segir að gífurlegt úrfelli hafi
verið á þessum slóðum frá því í
síðustu viku og sé óttast að um
250 manns hafi farist í héraðinu
Baluchistan og í hafnarborginni
Karachi. Þá er talið að allt að 250
þúsund manns í Baluchistan hafi
misst heimili sín í flóðunum.
mbl.is
Leiðrétt
Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
VÍÐAUM HEIM
Algarve 27
Amsterdam 16
Ankara 24
Barcelona 27
Berlín 22
Chicago 30
Dublin 15
Frankfurt 16
Glasgow 16
Halifax 19
Hamborg 17
Helsinki 24
Kaupmannahöfn 20
London 19
Madrid 32
Mílanó 24
Montreal 16
Miinchen 14
New York 21
Nuuk 2
Orlando 24
Osló 15
Palma 25
París 17
Prag 17
Stokkhólmur 21
Þórshöfn 10