blaðið - 04.07.2007, Blaðsíða 8
8
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2007
blaðiö
"I
Dæmd i 12 ára fangelsi Bergþóra ■
Guðmundsdóttir segir deildaskipt I
fangelsi nauðsynleg til að hægt sé
að leiða kvenfanga hægt og rólega I
út i samfélagið. Biaöið/Ásdís
Óviðunandi aðstaða
fyrir kvenfangana
■ Alltof þröngt í Kópavogsfangelsinu fyrir kvenfanga sem þurfa að dvelja þar lengi
H Tíminn lengi að líða þegar verkefni skortir, segir Guðmundur Gíslason forstöðumaður
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
I garðinum við Kópavogsbraut 17
erusólstólaroggrillsemaðsjálfsögðu
hefur verið notað af íbúum hússins í
blíðunni að undanförnu. Ekki hafa
þó allir íbúar hússins viljað nýta
sér góðviðrið því að garðurinn er
200 fermetra fangelsisgarður sem
allir sem leið eiga hjá geta séð inn
í. Útivistin er þó algjör nauðsyn því
að það er þröngt innandyra.
I fangelsinu að Kópavogsbraut
17, sem tók til starfa 1989, hafa
undanfarið ár verið 8 til 9 konur að
jafnaði af þeim 12 föngum sem rými
er fyrir. Nú dvelja þar 7 konur og 4
karlar. „Þetta hefur alltaf verið rekið
sem blandað fangelsi þótt þetta hafi
verið kallað kvennafangelsi vegna
þeirra kvenfanga sem hér hafa
dvalið,“ segir Guðmundur Gíslason
sem verið hefur forstöðumaður
fangelsisins frá því að það var
opnað. Þá var Kópavogshælið næsti
nágranninn og töluvert langt í
burtu en nú hefur byggðin færst nær.
„Fangelsið er nú inni í miðju hverfi
og hér er dagheimili við hliðina,“
bendir Guðmundur á en tekur um
leið fram að nágrannar hafi ekkert
haft út á fangelsið að setja.
Hann segir kvenföngum á íslandi
hafa fjölgað, einkum útlendum,
þótt hlutfall kvenna sé enn aðeins 5
prósent af heildarfjölda fanga. Áður
hafi kvenfangarnir verið 2 til 4 að
jafnaði. Brotin sem konur fremja
eru af öllum toga, eins og til dæmis
brot tengd fíkniefnaneyslu, gróft
ofbeldi og manndráp.
Alltof þröngt
„Aðstaðan hér er viðunandi fyrir
fanga sem þurfa einungis að dvelja
hér í stuttan tíma en fyrir fanga sem
þurfa að vera hér lengi er hér alltof
þröngt. Karlfangar geta flust á milli
fangelsa en konur sem dæmdar eru
til langrar fangelsisvistar sjá ekki
fram á neitt annað en að vera um
kyrrt hér. Með góðri hegðun og
með þvi að nýta sér fangavistina á
markvissan hátt geta karlfangar flust
milli fangelsa og fengið tilbreytingu
en það geta konurnar ekki eins og
staðan er í dag.“
Guðmundur kveðst binda vonir
við að hægt verði að koma upp
aðstöðu fyrir litlar kvennadeildir
í einhverjum hinna fangelsanna
sem áætlað er að breyta og
stækka og sérstaklega þegar
Hólmsheiðarfangelsið verður komið
í gagnið . „Fjöldi kvenfanga er svo
sveiflukenndur að menn hafa ekki
séð fram á að sérstakt kvennafangelsi
sé góður kostur, hvorki rekstrarlega
né út frá samskiptalegu sjónarmiði."
Sérvaldlr karlfangar
í Kópavogsfangelsinu er sérstakur
gangur fyrir konur og annar fyrir
karla en ekki hefur alltaf verið hægt
að fara alveg eftir þvi. „Reglan er
sú að karlar mega ekki vera inni á
klefum kvenna og öfugt. Karlar og
konur ganga saman til vinnu, matast
saman og eru saman í útivist. Það
er reynt að hafa umgengnina sem
eðlilegasta. Það er hins vegar ekki
leyfilegt að stofna til sambanda.
Við höfum þann varnagla á að
karlmenn séu hér svolítið upp á náð
og miskunn því að ef þeir gerast
brotlegir eru þeir sendir í annað
fangelsi."
Karlarnir sem afplána fangavist
í Kópavogsfangelsinu eru sérvaldir,
að sögn forstöðumannsins. „Við
tökum ekki hingað inn fanga sem
hafa gerst sekir um gróft ofbeldi
gegn konum og börnum. Til að fá
að vera hér þurfa fangar jafnframt
að hafa sannað sig með góðri
umgengni.“
Mæður með börn
Frá því að fangelsið tók til starfa
hafa um 10 konur verið með ung
börn hjá sér í töluvert langan tíma
en þó ekki lengur en tvö ár, að sögn
Guðmundar. „Þau hafa dvalið hér
með mæðrum sínum ef þau hafa
verið mjög ung þegar afplánun
hófst eða ef þau hafa fæðst á meðan
á afplánun stóð.“
Brýnastþykirforstöðumanninum
að tryggja stöðuga vinnu fyrir
fangana. „Hér er ágætis aðstaða
fyrir smáverkefni. Við höfum fengið
verkefni frá einkaaðilum, eins og til
dæmis bönkum, tryggingafélögum
og ferðaþjónustufyrirtækjum.
Stundum er engin vinna og þetta
mætti vera stöðugra. Fangarnir
eru þá látnir sinna viðhaldi og
garðvinnu en það dugir skammt.
Þeir horfa þá á sjónvarp og þá er
tíminn ansi lengi að líða.“
Förum varlega í akstri um ísland og höfum hugfast að ferðalagið
er jafnmikil upplifun og áfangastaðurinn. Landið hefur upp á
ótalmargt að bjóða og aldrei að vita hverju þú missir af þegar
farið er um í óðagoti. Stillum hraðanum í hóf, göngum vel um
landið okkar og komum heil heim.
www.ferdalag.is
Ljósmyndasamkeppni
Á ferdalag.is finnurðu ýmiss konar upplýsingar sem tengjast
ferðalögum um (siand. Kynntu þér fáséðar perlur utan alfaraleiðar
og sjáðu með eigin augum. Safnaðu Ijósmyndum og sendu inn í
Ijósmyndasamkeppnina okkar. Sú stendur í allt sumar og vegleg
verðlaun eru í boði.