blaðið - 04.07.2007, Blaðsíða 11
blaóiö
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2007
FRETTIR
11
Geir H. Haarde forsætisráðherra
Stýrir samráðshópi
Ákveðið var á ríkis-
stjórnarfundi í gær að
koma á fót samráðsvett-
vangi ríkisins, aðila
vinnumarkaðarins og
sveitarfélaga um aðgerðir
og langtímamarkmið á
sviði efnahags-, atvinnu-
og félagsmála. Fyrsti
fundurinn verður í vik-
unni en Geir H. Haarde
forsætisráðherra mun
stýra samráðsfundunum.
Aðilar að þessum vettvangi verða
Samtök atvinnulífsins, Alþýðusam-
band Islands, Samband íslenskra
sveitarfélaga, BSRB og BHM. Er
búið að senda þeim bréf og
óska eftir tilnefningum á
fundina, að sögn Sigrúnar
Ólafsdóttur, sérfræðings
hjá forsætisráðuneytinu.
Auk forsætisráðherra
verða fulltrúar ríkisstjórn-
arinnar utanríkisráð-
herra, félagsmálaráðherra,
fjármálaráðherra og aðrir
ráðherrar eftir þörfum.
Gert er ráð fyrir að ann-
ars vegar verði samráðsfundir ráð-
herra og forystumanna félaganna og
hins vegar sérfræðingahópur sem
undirbýr fundi ráðherranna.
heida@bladid.net
Brakandi þurrkur og dræm laxveiði
Góð silungsveiði
Það er ekkert lát á blíðunni, ekkert
hefur rignt í margar vikur og veiði-
árnar margar hverjar eru að þorna
upp.
„Við vorum að byrja í Hrútafjarð-
ará og Skíká og árnar eru orðnar ansi
vatnslitlar, fiskurinn á erfitt með
að komast á milli veiðistaða,” sagði
Gunnar Sigurgeirsson en hann var
við veiðar í ánum í gærdag. „Við
höfum séð laxa en þeir hafa ekki tekið
ennþá. Laxinn er allavega kominn á
svæðið,” sagði Gunnar ennfremur.
Veiðimenn við Álftá á Mýrum
voru að gera sig klára fyrir veiðina
í gærkvöld en þar hefur aðeins einn
lax veiðst.
Litlar sem engar veiðisögur hafa
orðið til í Laxá á Ásum en nokkrir
laxar hafa veiðst í ánni, sem er sæmi-
lega vatnsmikil þessa dagana.
Straumfjarðará er ekki komin með
lax ennþá og aðeins hafa veiðst tveir
laxar í Laxá í Leirársveit, nokkrir dag-
ar hafa ekki gefið neitt í Laxá í Kjós.
Eitthvað hefur togast upp úr ánni af
fiski.
Það er ef til vill lýsandi fyrir
ástandið að síðdegis í gær birtist frétt
á vefsíðunni Agninu um
„skot” í Miðfjarðará. Skotið reynd-
ist vera 4 laxar. Fyrir nokkrum árum,
hefði „skot” verið talið 40-50 laxar.
Þrátt fyrir að laxveiðin gangi illa
er silungsveiðin víða feiknagóð eins
og á Skagaheiði, víða í vötnum lands-
ins og á Arnarvatnsheiði.
Veiðimenn sem voru að koma af
Skagaheiði veiddu 150 fiska annar
hópurinn og hinn fékk 100 fiska.
Þar skiptir vatnið ekki eins miklu
máli og í laxveiðinni, þar sem það
skiptir öllu fyrir fiskinn að komast
upp í árnar og veiðimennina líka.
STUTT
• Hálendið Vegagerðin hefur
opnað alla hálendisvegi en
biður vegfarendur að sýna
varúð við akstur um hálendið,
sérstaklega við óbrúaðar ár.
Kanna þarf straum, dýpt og
botngerð áður en farið er yfir
vatnsföll.
• Aðstoðarmaður Jón Þór
Sturluson hefur verið ráðinn
aðstoðarmaður Björgvins G.
Sigurðssonar viðskiptaráð-
herra. Hann tekur til starfa 1.
ágúst. Jón Þór er fæddur árið
1970 og var um árabil sérfræð-
ingur hjá Hagfræðistofnun
Háskóla íslands ásamt því að
sinna stundakennslu þar. Þá
var hann dósent hjá Viðskipta-
háskólanum á Bifröst.
• Neyðarhjálp Sólveig Þor-
valdsdóttir jarðskjálftaverk-
fræðingur hélt til Pakistans í
gær til neyðarstarfa á vegum
Rauða kross íslands vegna
flóða í suðurhluta landsins. Er
Sólveig i níu manna neyðar-
teymi Alþjóðasambands Rauða
krossins sem mun aðstoða pak-
istanska Rauða hálfmánann við
neyðaraðstoðina.
• Sundlaugarverðir Hækka
þarf lágmarkslaun sundlaug-
arvarða við næstu kjarasamn-
inga. Þetta ritar Vilhjálmur
Birgisson, formaður Verka-
lýðsfélags Akraness, á
heimasíðu félagsins. „Hjá
sundlaugarverði eru grunn-
laun hjá byrjanda 130.719 plús
6000 krónur í mánaðarlegum
eingreiðslum. Á þessu sést
að laun sundlaugarvarða eru
til skammar sé tekið tillit
til þeirrar miklu ábyrgðar
sem fylgir starfi þeirra.“
• Hraðakstur Tíu ökumenn
voru stöðvaðir fyrir hraðakstur
í umdæmi lögreglunnar á
Blönduósi síðdegis í gær. Að
sögn lögreglunnar var einungis
einn þeirra ferðamaður á bíla-
leigubíl en átak mun hafa verið
gert í að láta bílaleigur gera
ferðamönnum grein fyrir hraða-
takmörkunum hér á landi.
• Gjaldþrot Héraðsdómur
Vestfjarða kvað upp úrskurð
í gær þar sem samþykkt var
beiðni stjórnar rækjuverk-
smiðjunnar Miðfells á ísafirði
um að fyrirtækið yrði tekið
til gjaldþrotaskipta. Fjörutíu
starfsmenn missa vinnuna.
PICANTO DISIL
LÆKKAÐ VERÐ
1.450.000 KR.
KIA Picanto er einkar lipur, fallegur og sparneytinn
smábíll meö skynsamlegri rýmisnýtingu. Nú getum viö
boðið glœsilegan fimm dyra Picanto dísil meö fjarstýröum
samlœsingum og álfelgum á lœkkuöu veröi, 1.450.000 kr.
(verö áöur 1.560.000 kr.). Picanto er einnig fáanlegur
sjálfskiptur, einn fárra smábíla.
Engin útborgun, 21.257 kr . á mánuði*
#M.v. 100% lán og 84 mánaöa gengistryggt bílalán frá AVANT.
©AVANT
Í3ES
KIA umboðið á Islandi er í eigu HEKLU
KIA • Laugavegi 172 • Reykjavík • sími 590 5700 • www.kia.is
KIA MOTORS
The Power to Surprise■"