blaðið - 04.07.2007, Síða 9
blaðiö
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2007
FRÉTTIR
9
Bergþóra Guðmimdsdóttir hefur setið irrni í 7 ár
Eg ætla að standa mig úti í þjóðfélaginu
Bergþóra Guðmundsdóttir segist
hafa verið komin alveg í klessu af
neyslu amfetamíns og allra mögu-
legra annarra efna, eins og hún
orðar það, þegar hún varð manni
að bana árið 2000. Hún hefur nú af-
plánað 7 ár af 12 ára fangelsisdómi
sem hún hlaut fyrir glæpinn. Þessi
7 ár hefur hún setið í fangelsinu að
Kópavogsbraut 17.
„Það þyrfti að vera til stærra
fangelsi og deildaskipt fyrir konur
sem afplána langa fangelsisdóma.
Maður gæti þá farið inn á opnari
deild eftir 2 til 3 ár og kannski
farið út að ganga með fangaverði
í nokkrar klukkustundir á dag.
Þannig yrði maður leiddur út í sam-
félagið hægt og rólega,“ segir Berg-
þóra sem vonast til að afplánun
hennar ljúki næsta sumar.
„Þá verð ég búin að afplána tvo
þriðju dómsins. Ég vonast til að
komast út þá en ég er búin að sækja
um að komast inn á Vernd strax í
haust. Ég hef verið hér í 7 ár og það
er dágóður tími í þessu litla húsi.
Ég vona það besta.“
Bergþóra kveðst bæði kvíða fyrir
og hlakka til að komast út. Tilhlökk-
unin er samt meiri en kvíðinn. Og
hana dreymir um að eignast sitt
eigið heimili. „Ég ætla að reyna
að komast í félagslega íbúð og eign-
ast mitt eigið heimili. Ég ætla að
standa mig úti í þjóðfélaginu."
Hún getur vel hugsað sér að
starfa á hóteli eða í verslun eða eitt-
hvað annað sem til fellur. „Ég vann
áður á hóteli, bæði sem þjónn og
við að búa um rúm og svoleiðis.“
1 fangelsinu hefur hún starfað
við ræstingar. „Ég horfi svo aðal-
lega á sjónvarp og geri handavinnu
þegar ég nenni því. Ég er líka í úti-
vist,“ tekur hún fram og hún hefur
vissulega nýtt góða veðrið að und-
anförnu. Við handavinnuna situr
hún inni á klefa þar sem hún hefur
sjónvarp og tölvu.
Starfsfólkið er mjög gott, að sögn
Bergþóru, og samkomulagið í hús-
inu hefur verið fínt í langan tíma.
„Það hafa stundum orðið vandræði.
Þá hefur kannski einhver fangi
verið með stæla við fangaverði.
Þetta er annars mjög gott miðað
við hvað húsið er lítið. Það þolir
ekki læti.“
Bergþóra kveðst vera í meðferð
hjá sálfræðingi. Hún fékk hins
vegar enga meðferð við fíkniefna-
neyslunni. „Ég fór beint í fangelsið
Fangelsisgarðurinn I garðinum
eru sóistólar og grill, svipað og í
görðum nágrannanna.
og fékk enga meðferð. Það var al- deildir fyrir fólk sem er í óreglu og
veg rosalegt. Það vantar meðferðar- lendir í svona eins og ég.“
Hliðinu lokið upp Guðbjartur Kjartansson varðstjóri er með lyklavöldin. Guðmundur Gíslason fangelsisvörður
stendur hjá.
f eldhúsinu Fangaverðirnir Jóhanna Dagbjartsdóttir og Brynja Rós Bjarnadóttir.
■ —
'
Matsalur og setustofa Börn dvelja stundum I fangelsinu með
mæðrum sínum eða koma í heimsókn.
Heimsóknarherbergi Hámarksfjöldi gesta hverju sinni er 3.
BfJ
ivi m ,
Skoðunarherbergið í kjallaranum Læknar og hjúkrunarfræðingar
sinna vitjunum.
Landiö er fallegra á löglegum hraða
Umferðahstofa
Feröamátastofa
www.ferdalag.is