blaðið - 04.07.2007, Síða 10
10
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLI 2007
blaðið
Ummæli um Hiroshima
Ráðherra
sagði af sér
Fumio Kyama, varnarmála-
ráðherra Japans, sagði af sér
ráðherraembætti í gær eftir
að hafa sætt mikilli gagnrýni
vegna ummæla sem hann lét
falla um að kjarnorkusprengj-
urnar sem Bandaríkjaher lét
varpa á japönsku borgirnar
Hiroshima og Nagasaki árið
1945 hefðu verið nauðsynlegar
til að binda enda á síðari heims-
styrjöldina. Forsætisráðherra
Japans hefur skipað Yuriko
Koike í embættið og er hún
fyrsta konan til að gegna þvi. aí
jr
iflheilsa
Mu -htföu þaö gott
MUITI-VIT
Náttúruleg fjölvítamín
með steinefnum
Vslin bsrtisfni tyrir þsrlir Itlsndings
180 töflur
Inniheldur 22 valin bætiefni,
12 vítamín og 10 steinefni.
im
Hryðjuverkamenn á
heilbrigðisstofnunum
■ Átta manns handteknir vegna hryðjuverka ■ Flugstöðvarbygging á Heathrow rýmd
Eftir Atla Isleifsson
atlii@bladid.net
Átta manns eru nú í haldi löreglu,
grunaðir um tengsl við misheppn-
aðar hryðjuverkaárásir í Lundúnum
á föstudaginn og í Glasgow á laugar-
daginn. Allir hinna handteknu hafa
starfað á sjúkrahúsum í Englandi,
sjö sem læknar eða læknanemar og
einn sem tæknimaður á rannsókn-
arstofu. Tveir til viðbótar voru hand-
teknir á grundvelli hryðjuverkalaga
í Blackburn í gær, en ekki fékkst
staðfest hvort það tengdist atburð-
unum i Lundúnum og Glasgow með
beinum hætti. Mennirnir voru hand-
teknir á iðnaðarsvæði í borginni eftir
að hafa reynt að ná í mikið magn af
gaskútum af sömu gerð og þeir sem
notaðir voru í bílsprengjunum í Lund-
únum og Glasgow.
Meirihluta þeirra sem eru í haldi
eru vistaðir á Paddington Green-lög-
reglustöðinni í Lundúnum. Lögregla í
Ástralíu handtók Mohammed Haneef,
27 ára indverskan lækni sem áður
starfaði á sjúkrahúsi í Cheshire í Eng-
landi, á flugvellinum í Brisbane þegar
hann reyndi að komast um borð í vél
á leið til Indlands. Á fréttavef BBC
segir enn fremur að verið sé að yfir-
heyra annan lækni í Brisbane.
Flugstöð rýmd
Flugstöðvarbygging númer fjögur
á Heathrow-flugvelli var rýmd í gær
eftir að grunsamleg taska fannst,
og neyddust rúmlega þrjú þúsund
manns, bæði flugfarþegar og starfs-
fólk, til að yfirgefa bygginguna.
Jacqui Smith, innanríkisráðherra
Bretlands, hefur enn ekki aflétt
hæsta viðbúnaðarstigi í landinu og
í samræmi við það hefur lögregla
sprengt nokkra grunsamlega bíla,
gaskúta og slökkvitæki undir eftirliti
sem hafa fundist á götum í Glasgow
og Lundúnum síðustu daga.
Hæsta viðbúnaðarstig Lögregla hefur
sprengt nokkra grunsamlega bíla, gas-
kúta og slökkvitæki undir eftirliti.
ÞEKKIRÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
- þegar þú kaupir parket!
———IJI___ Þú getur fengið að vita allt um Quick • Step parket
H ARÐVIÐ ARVAL hjá Harðviðarvaliehf• Krókhálsi4• Sími567 1010
Er listamaður í fjölskyldunni? Engar áhyggjur
Einn besti eiginleiki Quick • Step (laminat/plast) gólfefnisins er ad þad heldur náttúrulegu
og fallegu yfirbragdi sínu í fjölda ára. Yfirbord þess er svo sterkt ad vid veitum 25 ára
ábyrgd á endingu gólfefnisíns við eðlileg heimilisnot. Quick • Step er þar að auki búið
Uniclic smellukerfinu, sem hefur lífstídarábyrgð.
Farið á heimasiðu okkar, parket.is eða hrinyið i síma 567 1010 til að fá upplýsinga-
bækling.
QUICK STEP
floori with onduring bcauty
ouick STEP
UNICLIC
Hjólandi
á bílþaki
Lögreglumenn í hollenska
bænum Alkmaar stöðvuðu bíl á
þjóðvegi skammt utan við bæinn
í gær, þar sem ölvaður maður
hafði komið sér fyrir á hnakki
reiðhjóls sem var uppi á þaki bíls-
ins. Okumaður bílsins og kona
hans voru grunlaus um laumu-
farþegann, en sögðust hafa heyrt
einhver hljóð á þaki bílsins þcgar
þau stöðvuðu bílinn á rauðu ljósi
nokkru fyrr.
Lögregla sektaði hinn 26 ára
laumufarþega fyrir ölvun á al-
mannafæri og fyrir að hafa ekki
verið með persónuskilríki á sér
auk þess að veita lögreglu rangar
persónuupplýsingar.
aí
Skothríð
við mosku
Níu manns létust og tugir særð-
ust í bardögum pakistanskra
öryggissveita og öfgasinnaðra ís-
lamskra stúdenta i og við Rauðu
moskuna í Islamabad, höfuðborg
Pakistans, í gær. Skotbardag-
inn stóð yfir í nokkrar klukku-
stundir áður en tókst að semja
um vopnahlé.
fslamistarnir hafa mótmælt
stefnu Pervez Musharraf, forseta
landsins, kröftuglega að und-
anförnu með mannránum og
öðrum mótmælaaðgerðum og
hvatt til þess að sharía-Iög verði
tekin upp í Pakistan. ai
STUTT
• Stríðsglæpadómstóll Charles
Taylor, fyrrum Líberiuforseti,
mætti fyrir stríðsglæpadómstólinn
í Haag í fyrsta sinn í gær, frá því að
réttarhöld yfir honum hófust fyrir
um mánuði.
• Reiði Þingmenn úr röðum
demókrata hafa lýst yfir mikilli
reiði vegna þeirrar ákvörðunar
Bush Bandaríkjaforseta að
milda dóminn yflr Lewis Libby,
fyrrum starfsmanni Hvíta
hússins.
• Jarðarför Átta sovéskir her-
menn sem létust í síðari heimsstyrj-
öldinni hafa verið jarðaðir á ný í
öðrum kirkjugarði í eistnesku höf-
uðborginni Tallinn. Hermennirnir
voru grafnir upp vegna umdeilds
flutnings á sovéskum stríðsminnis-
varðaívor.
• Hýðing íranskur dómstóll
hefur dæmt konu í þriggja ára
fangelsi og til hýðingar fyrir
þátttöku í mótmælaaðgerðum í
Teheran gegn landslögum sem
mismuna konum.