blaðið - 04.07.2007, Síða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2007
blaöiö
blaöi
Útgáfufélag:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfuiltrúi:
Ár og dagurehf.
Ólafur Þ. Stephensen
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Undarleg
einkavæðing
Einkavæðing á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja hefur tekið undar-
lega og óheppilega stefnu. f fyrsta lagi af því að hún virðist ekki ætla að
verða nein einkavæðing. f öðru lagi af því að svo virðist sem þróun mála
muni sízt þjóna þeim tilgangi að auka samkeppni í orkugeiranum.
Allt umhverfi orkufyrirtækjanna hér álandi er brey tt frá því sem áður var.
Ný löggjöf hefur tekið gildi, þar sem gengið er út frá samkeppni á raforku-
markaðnum. Orkufyrirtækin keppa ekki aðeins um virkjanakosti og við-
skipti hér á landi, heldur eru vaxandi möguleikar á erlendum mörkuðum
fyrir útflutning á íslenzkri þekkingu og hugviti á sviði orkuvinnslu.
í þessu nýja umhverfi er æskilegt að einkaaðilar bætist í hóp eigenda
orkufyrirtækja. Það er ekki eðlilegt, þegar reynt er að innleiða samkeppni
á tilteknum markaði, að sú samkeppni sé einvörðungu á milli fyrirtækja
í opinberri eigu. Einkaaðilar hafa aðra sýn og beita öðrum aðferðum í
rekstri, sem veitir opinberu fyrirtækjunum a.m.k. visst aðhald. Og ekkert
bendir til að orkuvinnsla og -sala séu verkefni, sem opinberir aðilar ráði
einir við.
Mál Hitaveitu Suðurnesja virtust í réttum farvegi eftir að einkavæðing-
arnefnd bauð út 15% hlut ríkisins í fyrirtækinu. Einkafyrirtækið Geysir
Green Energy bauð langbezt í hlutinn og framan af leit ekki út fyrir að
HS sjálf eða sveitarfélögin, sem áttu fyrirtækið með ríkinu, hygðust neyta
forkaupsréttar síns. Fyrir siðustu helgi kom það hins vegar skyndilega upp
að Orkuveita Reykjavíkur sæktist eftir hlut í HS og að einhver sveitarfélag-
anna hygðust neyta forkaupsréttar til að geta svo selt OR hlut sinn.
Þessi atlaga OR gengur þvert gegn markmiðum ríkisins með sölunni á
hlut sínum. Þegar hann var auglýstur, var tekið skýrt fram að orkufyrir-
tæki í opinberri eigu mættu ekki bjóða í hlut ríkisins og að eignarhald á
fyrirtækinu lyti ákvæðum samkeppnislaga.
Hvað gengur OR til með því að reyna að ná yfirráðum í Hitaveitu Suður-
nesja? HS er helzti keppinautur Orkuveitunnar. Þolir OR ekki samkeppn-
ina? Hvað eru fulltrúar flokks einkaframtaksins, Sjálfstæðisflokksins, í
stjórn Orkuveitunnar að hugsa þegar þeir ganga með þessum hætti beint
gegn markmiðum flokkssystkina sinna í ríkisstjórn, sem settu hlutinn í
sölu með áðurgreindum skilyrðum?
Það virðist liggja alveg í augum uppi að yfirráð OR í Hitaveitu Suður-
nesja myndu brjóta gegn samkeppnislögum, enda var auglýsing einkavæð-
ingarnefndar orðuð eins og raun bar vitni eftir að haft var samráð við
Samkeppniseftirlitið. Sú ágæta stofnun verður að láta til sín taka í þessu
máli til þess að Orkuveitu Reykjavíkur takist ekki að hola bæði einkavæð-
inguna og samkeppni á orkumarkaði að innan.
Ólafur Þ. Stephensen
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hédegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á f réttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Norm-X Heimasíðan okkar er
Heitir pottar íslensk framleiösla www.normx.is
Norm-X hefur frá 1982 sérhæft sig í framleiðslu heitra
potta sem henta íslenskum aðstæðum einstaklega vel.
Við bjóðum einnig allan tengibúnað, nudd
og Ijósabúnað og tvær gerðir af lokum.
Samstarfsaðili okkar á Akureyri er Tjalda- og
Seglaþjónustan ehf. sími 461-5077
Grettislaug 1500 L
Setlaug 2050 L
með legubekk
Setlaug 1200 L
Snorralaug 2000 L
Norm-X Auöbrekku 6 Kópavogi Sími 565-8899
www.normx.is normx@normx.is
Sir Salman
Skáldið Salman Rushdie skrif-
aði bókina „Söngvar Satans“ 1989.
í bókinni er geðfatlaður maður
látinn spyrja spurninga í draumi.
Titill bókarinnar visar til þess að
Múhameð, spámaður Allah, gaf
fylgjendum sínum leyfi til að dýrka
heiðin goð. Þegar trúbræður hans
mótmæltu og sögðu það andstætt
öllu sem hann hefði áður sagt, hélt
Múhameð því fram að Satan hlyti
að hafa hvíslað þessu að honum
dulbúinn sem Gabríel erkiengill.
Söguhetja Rushdies spyr hvort
fleiri hlutar Kóransins hafi orðið
til vegna rangtúlkana. Ekki ný
hugsun og umræða í íslamska heim-
inum en afar viðkvæm. Hvað er þá
frá Gabríel og hvað kann Satan að
hafa sagt dulbúinn? Því er neitað í
íslam að Satan hafi haft þessi áhrif.
f þætti 22.51 í Kóraninum er brugð-
ist við þessum þanka og á það bent
hvernig vélar Satans séu en Allah
sjái við þeim öllum. Miðað við það,
er þá goðgá að spyrja um eða fjalla
um söngva Satans?
Eftir útkomu bókarinnar sagði
trúarlegi einræðisherrann í fran,
Ayatollah Khomeini, að taka ætti
Salman Rushdie af lífi. Milljónir trú-
bræðra Khomeini tóku undir þessa
sérstæðu bókmenntagagnrýni.
Milljónunum sem tóku undir með
Khomeini var alvara og Salman
varð að fara huldu höfði í meira en
áratug. Hann naut þess ekki að sjá
son sinn vaxa upp. Hann gat ekki
gengið um götur stórborga. Honum
var meinað það frelsi sem okkur er
svo kært og teljum sjálfsagt. Salman
Rushdie var ofsóttur og lifði í stöð-
ugum ótta vegna bókarinnar.
Enska drottningin veitti Sir
Salman Rushdie riddaratign um
daginn. Nú er hann „meðlimur
breska heimsveldisins“. Hvað sem
segja má um titla og orðuveitingar
þá er Sir Salman meðal fremstu
skálda Bretaveldis. Vegna öfga-
fullra viðbragða við bók hans er
hann í dag einn helsti talsmaður
tjáningarfrelsisins.
Tilgangur Salmans með bókinni
var að vega að bókstafstrú í íslam
og benda á að nauðsynlegt væri
að túlka Kóraninn með sjálfstæð-
l5 VIÐHORF 1
Jón Magnússon
ari hætti en víðast hvar er gert í
íslamska heiminum. Undanláts-
fólk á Vesturlöndum gagnrýndi
Salman. Sagt var að hann hefði
kallað yfir sig réttláta reiði músl-
íma með grófum svívirðingum.
Hann særði trúarskoðanir fólks
sagði þingmaður á enska þinginu.
Annar sagði að bókin væri guð-
last og móðgun við 1800 milljónir
múslíma. Lord Ahmed, fyrsti músl-
(minn sem gerður var að lávarði,
ákærði Salman og sagði að „hendur
hans væru blóði drifnar“. Ráðherra
í Pakistan sagði að hann hefði átt
ráðningu skilið en spurði síðan:
í hvað mikilli hættu var hann?
Dauðadómurinn var frekar tákn-
rænn en raunverulegur. Ólíklegt
þegar haft er í huga að Hitoshi Igar-
ashi, japanskur túlkur Salmans, var
stunginn til bana árið 1991. Aftaka
túlksins var ekki táknræn, hún var
raunveruleg. Ákvæði í íslenskum
hegningarlögum eru þess eðlis að
maður sem skrifar með sama hætti
og Sir Salman getur átt það á hættu
að vera ákærður og dæmdur fyrir
að móðga trúarhóp miðað við for-
dæmi sem til eru úr íslenskri réttar-
sögu. Undanlátssemin á sér marga
fylgismenn. Frjálslynd viðhorf tján-
ingarfrelsis og mannréttinda eiga
oft erfitt uppdráttar. Þess vegna
var sú ákvörðun Elísabetar 2. Breta-
drottningar að aðla Sir Salman kær-
komin viðurkenning á mikilvægi
tjáningarfrelsisins. Mér er þó nær
að halda að hefðu öfgamennirnir
haft það af að taka Sir Salman af
lífi í stað túlksins árið 1991 þá væri
undanlátsfólk við öfgar, hjátrú
og hindurvitni enn að tala um að
hann hefði kallað það yfir sig. Við
megum aldrei sofa á verðinum
þegar frelsið er annars vegar og við
megum aldrei játast undir ok bók-
stafstrúar eða sýna fordómum lin-
kind. Undanlátsfólkið skyldi skoða
í hvaða stöðu breska samfélagið er í
dag, við hvaða ógn það býr. Staðan
væri önnur hefði verið brugðist
við 1989 gegn trúarlegu ógnar-
veldi eins og Sir Salman gerði. En
undanlátsfólkið gerir stöðugt nýja
Munchenarsamninga og neitar að
læra af sögunni.
Höfundur er alþingismaður
KLIPPT 0G SK0RIÐ
Fyrirtækið 365 Media Group
gerði samstarfssamning við
breska
Sky-fjölmiðla-
fyrirtækið
British Sky
Broadcasting
Group plc. í
janúar. Þar
vinna yfir 250
manns og sér-
hæfir fyrirtækið sig í mynd- og
hljóðskeiðum, þá sérstaka af
íþróttaviðburðum. Einnig leikjum
og veðmálum. Fyrirtækið var
stofnað árið 2001. Humm, halda
einhverjir að hér sé rætt um 365
miðla? Neibb. Svo er ekki því 365
miðlar eru stærsta fjölmiðlafyr-
irtæki Islands, sjálfstætt þjón-
ustufyrirtæki sem rekur dagblað,
sjónvarpsstöðvar, útvarpsstöðvar
og aðra fjölmiðla. Það er undirfyr-
irtæki 365 hf. og var samkvæmt
kennitölu stofnað árið 2002! Ætli
Ari viti afþessu?
Haft var eftir Björgvini G.
Sigurðssyni viðskiptaráð-
herra í
hádegisfréttum
Ríkisútvarpsins
í gær að honum
fyndist ekki
réttlætanlegt að
fyrirtæki séu
einkavædd án
pólitískrar umræðu. Framganga
sveitarfélaganna sem fari þá leið
að kaupa til að selja einkafyrir-
tækjum orki tvímælis. Klippari
undrast að það hafi ekki verið í
huga ráðherr-
ans þegar ríkið
ákvað að selja
einkafyrir-
tækinu Geysi
Green Energy
15 prósenta
hlut sinn sem
sveitarfélögin
ætla nú að nýta forkaupsréttinn
að og framselja annað hvort til
Geysis eða Orkuveitu Reykjavíkur.
Klippari veltir fyrir sér hvort ríkis-
stjórnin hafi ekki lagt línurnar?
gag@bladid.net