blaðið - 04.07.2007, Qupperneq 14
14
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLi 2007
blaóió
FÉOGFRAMI
vidskipti@bladid.net
Borðin hjá okkur eru kringlótt og
bjóða þannig upp á líflegri stemningu
en jafnframt öðruvísi nálgun
Sigurður gestur á Mön
Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, verður sérstakur
gestur við þingsetningu Tynwald á eynni Mön í írlandshafi á þjóðhá-
tíðardegi Manar á morgun. Sigurður er fyrsti maðurinn úr bankageir-
anum sem er sérstaklega boðið á þingsetningu á Mön.
Ríkari en
Bill Gates
Mexíkóski auðjöfurinn Carlos
Slim er orðinn ríkari en Bill
Gates, stofnandi og stjórnarfor-
maður Microsoft, samkvæmt
mexíkóska viðskiptavefnum Sent-
ido Común. Slim hefur auðgast
gríðarlega á fjarskiptamarkaði
í Suður- og Mið-Ameríku á und-
anförnum árum. Eignir Slims
eru nú metnar á 68 milljarða
Bandaríkjadala, samanborið við
59 milljarða Gates.
Kaupþing í
kengúrubréfin?
Kaupþing banki hyggst kynna
sig fjárfestum í Ástralíu til að
meta eftirspurn eftir hugsanlegri
útgáfu skuldabréfa bankans
þar í landi, svokallaðra „keng-
úrubréfa". Fréttavefur Reuters
greinir frá þessu. Kynningar eru
áformaðar í Sydney, Brisbane
og Melbourne og sjá fjárfesting-
arbankinn ANZ og RBC Capital
Markets um framkvæmdina.
Fleiri komi
að viðræðum
G-io hópurinn innan Alþjóða-
viðskiptastofnunarinnar (WTO)
hefur kallað eftir því að fleiri að-
ilar komi að Doha-viðræðunum
svokölluðu sem sigldu í strand
í síðasta mánuði. Viðræður
fulltrúa G-4 hópsins hafa gengið
brösulega til þessa, en Doha-við-
ræðurnar snúast meðal annars
um viðskipti með landbúnaðar-
vörur. ísland, Japan og Norgur
mynda ásamt öðrum ríkjum G-io
hópinn.
—' I ^ "■
Fljúga til Lúxem-
borgar í haust
Iceland Express hefur flug til Lúx-
emborgar í haust. Áætlað er að
fljúga í sex vikur og verður fyrsta
flugið 28. september. Flogið
verður á þriðjudögum og föstu-
dögum og verður farið frá Kefla-
vík síðdegis en frá Lúxemborg að
kvöldi. Beinar flugsamgöngur
milli Keflavíkur og Lúxemborgar
hafa legið niðri frá ársbyrjun
2000.
Marel sagt íhuga yfirtöku á Stork
Marel er að vinna að yfirtökutilboði í hollenska iðnaðarfyrirtækið
Stork ásamt ónafngreindu fjárfestingarfélagi. LME eignarhaldsfélag
í eigu Landsbankans, Eyris og Marels á 16,9% hlut í Stork. Hollenska
dagblaðið Financieele Dagblad hefur þetta eftir heimildarmanni ná-
tengdum málinu.
Samkvæmt heimildum blaðsins mun Marel hins vegar ekki leggja fram
yfirtökutilboð í Stork nema félagið ákveði að selja ekki dótturfélagið,
Stork Food Systems, til Marels.
Marel lagði fram yfirtökutilboð í dótturfélagið á síðasta ári.
Evrópska fjárfestingarfélagið Candover lagði fram yfirtökutilboð í
Stork í síðustu viku en tilboðið verður tekið fyrir á hluthafafundi Stork
í ágúst. Til að tilboðið, sem hljóðar upp á 47 evrur á hlut, nái fram að
ganga þurfa 80% hluthafa að samþykkja það.
mbl.is
Opið hús Frjálsleg
stemning umlykur
útibúið.
Kaffihúsastemning
í framtíðarútibúinu
■ Stofnanabragur víkur fyrir frjálslegri áherslum í bankaútibúum
■ Heimsóknum viðskiptavina í bankann fækkar á tækniöld
Eftir Björgu Magnúsdóttur
bjorg@bladid.net
BANKAÚTIBÚ
„Um leið og viðskiptavinurinn
kemur inn í húsið tekur brosandi
andlit á móti honum,“ segir Björn
Sveinsson útibússtjóri um framtíð-
arútibú Glitnis á Kirkjusandi. „Hugs-
unin með þessu nýja útibúi, sem
verður innleidd í öll útibú bankans,
er að stytta leiðina milli viðskipta-
vina og starfsmanna.“
Björn segir tilganginn að minnka
formlegheit og umgjörðin sé öll til
þess gerð að viðskiptavininum líði
sem best. „I stað þess að starfsmaður
sitji á bak við skrifborð sem getur
verið eins og hálfgerð hindrun þá
fær fólk sæti í sófa og ræðir sín fjár-
mál við ráðgjafa." Sérstakir básar
eru fyrir fyrrnefnda ráðgjafa, þar
sem heilu fjölskyldurnar geta sam-
einast á fjármálafundum og tekið i
leiðinni framtíðarákvarðanir.
Bankaheimsóknum fækkar
Kristján Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri útibúasviðs Glitnis,
►
Nýtt útibú Glitnis á Kirkju-
sandi var opnað fyrr á árinu.
► Hjá Glitni starfa um 1.000
manns á íslandi og tæplega
helmingurinn í höfuðstöðv-
unum á Kirkjusandi.
segir heildarskipulagið hafa
sprottið upp vegna þess að heim-
sóknum landsmanna í banka hafi
fækkað í kjölfar netvæðingar og
aukinnar símaafgreiðslu bankavið-
skipta. „Þess vegna er mikilvægt að
viðskiptavinir upplifi með meira af-
gerandi hætti en áður hvað bankinn
stendur fyrir. Við horfðum meðal
annars til aðila í almennum versl-
unarrekstri og kaffihúsamenningar
meðal yngri kynslóða. En borðin
hjá okkur eru kringlótt og bjóða
þannig upp á líflegri stemningu en
jafnframt öðruvísi nálgun.“
„Það er torg í miðju útibúsins þar
sem ýmsar uppákomur hafa verið,
til dæmis hafa komið hingað rithöf-
undar og lesið upp úr verkum sínum
sem og tónlistarfólk. Auk þess er hér
kaffiaðstaða þar sem fólk getur lesið
tímarit eða bækur,“ segir Björn.
Bankinn er orðinn hálfgerð af-
þreyingaraðstaða og ekki eru allir
þar í stórfelldum fjármálahugleið-
ingum. „Fólk getur komið hingað
ef það hefur bil í stundaskránni
eða vill einfaldlega vera í lifandi
umhverfi."
Frumskógur fjármálanna
„Bankarnir hafa verið stórir í
umfjöllun fjölmiðla og þess vegna
teljum við nauðsynlegt að fólki
líði vel innan þeirra og sé leitt í
gegnum frumskóg fjármálanna,“
segir Björn. Hann segir að fram-
tíðarútibúið hafi notið leiðsagnar
erlendra ráðgjafa sem hafa sérhæft
sig í hönnun hinna ýmsu verslunar-
rýma. „Bankastarfsemi gengur út á
að selja þjónustu og vöru rétt eins og
mat eða aðra hluti til reksturs heim-
ilisins. Við finnum þvi ákveðna sam-
svörum með alls kyns fyrirtækjum
og lærum af þeim.“
MARKAÐURINN í GÆR
Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá 0MX á íslandi, 3. júlí 2007
Viðskipti í krónum Heildar-
ATH. = Athugunariisti Viðskipta- Hlutfallsl. Dagsetning Fjötdi viöskipti Tilboð f lok dags:
Félög í úrvalsvísitölu verð breytmg viðsk.verðs viðskipta dagsins Kaup Sala
♦ Actavis Group hf. 89,60 0,00% 3.72007 26 265.866.576 89,60 89,80
▲ Atorka Group hf. 8,56 2,15% 3.7.2007 8 34.967.600 8,51 8,56
▲ Bakkavör Group hf. 69,10 0,14% 3.7.2007 29 383.953.485 69,10 69,50
▲ Exista hf. 34,65 0,87% 3.7.2007 42 175.898.149 34,55 34,70
▲ FL Group hf. 29,90 1,36% 3.7.2007 26 227.588.011 29,70 29,90
▼ Glitnir banki hf. 28,90 -0,17% 3.7.2007 65 703.016.944 28,85 28,90
T Hf. Eimskipafólag Islands 40,00 -0,50% 3.7.2007 5 457.320 39,90 40,10
▲ lcelandair Group hf. 28,05 0,72% 3.7.2007 15 148.939.148 28,05 28,10
▲ Kaupþing banki hf. 1157,00 2,21% 3.7.2007 102 1.804.237.282 1156,00 1157,00
A Landsbanki íslands hf. 38,65 1,18% 3.7.2007 48 1.137.722.168 38,55 38,80
Mosaic Fashions hf. 17,10 2.7.2007 - - 16,60 17,10
Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 21,85 3.7.2007 100 936.482.193 21,80 21,85
▲ Teymi hf. 5,25 2,34% 3.7.2007 16 24.463.913 5,23 5,25
▲ össur hf. 106,50 1,43% 3.7.2007 10 12.498.585 106,00 106,50
Önnur bréf á Aðallista
▲ 365 hf. 3,45 0,58% 3.7.2007 3 1.832.028 3,42 3,45
A Aifesca hf. 5,56 H72% 3.7.2007 4 12.805.000 5,53 5,61
▼ Atlantic Petroleum P/F 1080,00 ■1,82% 3.7.2007 8 5.218.519 1080,00 1095,00
♦ Flaga Group hf. 1,90 0,00% 29.6.2007 - 1,90 1,92
A Feroya Bank 237,00 3,04% 3.7.2007 34 24.394.644 234,00 237,00
♦ lcelandic Group hf. 6,40 0,00% 3.7.2007 2 288.403 6,40 6,49
A Marel hf. 85,00 0,12% 3.7.2007 8 8.953.930 85,00 85,10
♦ Nýherji hf. 19,20 0,00% 21.6.2007 - - 19,80
♦ Tryggingamiöstööin hf. 39,30 0,00% 20.6.2007 mm ■ flnhhm 39,30 39,65
♦ Vinnslustööin hf. 8,50 0,00% 25.6.2007 - .
First North á íslandi
A Century Aluminium Co. 3470,00 1,05% 3.7.2007 7 64.187.400 3470,00 3490,00
♦ HB Grandi hf. 12,00 0,00% 2.7.2007 - -
♦ Hampiöjan hf. 7,00 0,00% 20.6.2007 - - 7,70
• Mest viðskipti í Kauphöll OMX
voru með bréf Kaupþings, fyrir 1,8
milljarða. Verslað var með bréf
Landsbankans fyrir 1,1 milljarð.
• Mesta hækkunin var á bréfum
Teymis, 2,34%. Næstmest hækk-
aði Kaupþing, um 2,21%.
• Mesta lækkunin á íslandi i
gær var á bréfum Atlantic Petr-
oleum. Þau lækkuðu um 1,82%
eftir að hafa hækkað um 4,76% á
mánudaginn.
• Úrvalsvísitalan hækkaði um
1,08% og stóð í 8.408 í lok dags.
• íslenska krónan styrktist um
0,43% í gær.
• FTSE-vísitalan í Lundúnum
hækkaði um 0,8%, Nikkei-vísi-
talan f Japan um 1,3% og DAX-vísi-
talan í Þýskalandi um 1,2%.