blaðið - 04.07.2007, Qupperneq 19
blaðið
MIÐVIKUDAGUR 4. JULI 2007
LÍFSSTÍLLHEIMILI
heimili@bladid.net
Ég sá þessa flugvél á sínum tíma og það
fyrsta sem mér datt í hug var að breyta
henni í sumarbústað
Dakota-vélin sinnir nú frið-
samlegri tilgangi en áður
Óvenjulegt afdrep fyrir austan:
Breyttu flugvél í bústað
Hjónin Helgi Jóhannes
Jónsson fasteignasali
og Áslaug Skeggjadótt-
ir hárgreiðslumeistari
eiga heldur óvenjulegan
sumarbústað. Líkt og
margir íslendingar kjósa
þau að eiga afdrep úti
á landi í sveitasælu sem
þau notast við þegar ys
og þys stórborgarinnar
verður þeim ofviða. En
sumarbústaðurinn er
ekki beint hefðbundinn,
heldur Douglas Dakota
DC-3 flugvél!
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
„Ég sá þessa flugvél á sínum tíma
og það fyrsta sem mér datt í hug
var að breyta henni í sumarbústað,"
segir Helgi stoltur. Flugvélin var
áður í eigu Bandaríkjahers sem
lét hana lönd og leið eftir að hún
skemmdist við flugtak.
„Já, hún fór út af brautinni og
skemmdist illa. Þetta var árið 1974
minnir mig, þegar kalda stríðið var
í hámarki. Þeir hreinsuðu hana þvi
af öllum tækjum og tólum og not-
uðu í varahluti. Þeir tóku meira að
segja vængina af henni og stélið. Þá
notuðu þeir hana sem veiðiskúr við
eitt vatnið þarna í sveitinni þar sem
hún stóð í mörg ár. Þegar ég sá hana
var hún í frekar slæmu ásigkomulagi
en ég var staðráðinn í að gera hana
upp. Ég spurði bóndann sem átti
landið sem hún var á hvort ég mætti
eiga hana. Hann tók vel í það og sagð-
ist gefa mér hana gegn því skilyrði
að ég flytti hana sjálfur. Það þurfti
síðan tvær hjólaskóflur og einn
trailer-vagn til þess að flytja hana
þangað sem hún er núna, að Háfelli
á Nesjum," segir Helgi sem vann tím-
ana tvenna við að dytta að véhnni.
„Ég sótti stélið á Sólheimasöndum,
þar sem samskonar vél fórst einnig
á sínum tíma. Ég skipti um allar
rúður og þurfti heilmikið að laga
skrokkinn á henni, sem var mikið
laskaður. Síðan byggðum við um tíu
fermetra garðskála við hana til að
auka aðeins innanrýmið, en vélin
sjálf er kannski 20-30 fermetrar.
Þá máluðum við hana í sínum upp-
SUMARBÚSTAÐURINN
Óvenjulegur sumarbústaður
er að Háfelli á Nesjum.
Hann er af gerðinni Dou-
glas Dakota DC-3 sem var
notuð sem flutningavél í
Kóreustríðinu á árunum
1950-1953.
runalegu litum, kunnum ekki við
að halda þessum hergræna lit, sem
væri kannski ekki svo slæmt, þar
sem hún hefur fengið mikla athygli!
Flugumferð yfir Hornafjörð hefur
stóraukist þegar þetta spurðist
út, bæði flugvélar og þyrlur hafa
sveimað hér yfir og margir komið
og skoðað. Vélin á sér auðvitað sögu;
hún var notuð sem flutningavél í
Kóreustríðinu en það hefur verið erf-
itt að nálgast aðrar upplýsingar um
hana, þar sem Sámur frændi í Wash-
ington segir slíkar upplýsingar vera
hernaðarleyndarmál."
Aðeins á eftir að innrétta vélina
„Það verður ráðist í það verkefni
þegar tími og efni gefast. Annars er
alveg nóg að gera hjá okkur hjónum
í bili þar sem okkur fæddust tví-
burar fyrir stuttu. En sem betur
fer þarf maður ekki að hafa miklar
áhyggjur af viðhaldi á vélinni, þar
sem hún er auðvitað úr áli,“ sagði
Helgi að lokum.
Gátlisti fyrir
heimilið
Til þess að auðvelda þrifin á
heimilinu er gott að gera gátlista.
Það þarf að fara vel yfir skipu-
lag hússins áður en gátlisti er
gerður, setja upp vikuplan og
fylgja því eftir. Skipulögð þrif
auðvelda heimilishaldið, hægt
er að fylgjast með hvað er þrifið,
þá gleymist ekkert. Hver einstak-
lingur getur haft sínar skyldur og
fer það að sjálfsögðu eftir aldri
og getu. T.d geta yngri börn haft
það hlutverk að fara með ruslið
í tunnuna og merkt við það á
gátlistanum. Þannig eru allir þátt- - »
takendur í verkefnum heimilisins.
Kertastjakar
frystir
Það er mjög vinsælt að hafa kerti
í glærum kertaglösum. Það getur
verið mjög erfitt að hreinsa vaxið
og ná niðurbrenndu kertinu úr
glasinu. Margir bregða á það
ráð að setja kertaglasið ofan í
heitt vatn. Ef það er gert safnast
vaxið fyrir í niðurfallinu og
getur vaidið stíflu síðar meir,
því er þetta ekki góð lausn. Best
er að setja glasið inn í frysti í
smástund og þegar glasið er tekið
út dettur kertavaxið af.
Meindýraeyðir:
Einfalt að losa sig við geitunga
Geitungar og geitungabú eru
fylgifiskar sumarsins. Róbert Ól-
afsson meindýraeyðir segir að það
sé mun meira að gera á sumrin.
„Mörg útköll eru þess eðlis að hús-
ráðendur geta losað sig við mein-
dýrin sjálfir. Til þess þarf að eiga
garðúðunarbrúsa og kaupa Parm-
asect-eitur sem fæst í öllum helstu
garðvöruverslunum. Fólk verður
að gæta þess að nota einfaldan
hlífðarbúnað eins og gúmmí-
hanska, maska fyrir vitunum og
hlífðargleraugu. Nota skal sömu
blöndu og notuð er til að úða tré,
setja þrýsting á kútinn og standa
í þriggja metra fjarlægð. Það er
best að gera þetta á miðnætti þegar
ró er komin á búið, en samt ekki
nauðsynlegt. Ef bú er sprautað um
miðjan dag þá eru fáir geitungar
inni í þeim, en þeir koma seinna
um kvöldið, fara í búið og drepast.
Þeir ættu allir að vera dauðir innan
sólahrings,“ segir Róbert.
Hann ráðleggur fólki ekki að
taka bú sem eru undir súð eða við
aðrar erfiðar aðstæður. „Það er
ekki ráðlegt að fara að búum sem
erfitt getur verið að forða sér frá
með góðu móti. Geitungarnir geta
verið skaðlegir. Ef búin eru sýnileg
og fólk er með hlífðarbúnað og í
hæfilegri fjarlægð, þá er akkúrat
ekki nein hætta. Þetta er ofboðs-
lega einfalt, það er bara búið að
hræða fólk of mikið. Sagan um
að geitungar séu árásargjarnir á
haustin er þvættingur. Þeir eru að
yfirgefa búin sín og þar af leiðandi
er meira af þeim í umhverfinu,“
segir Róbert.