blaðið - 04.07.2007, Qupperneq 20
24
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2007
blaöið
ÍÞRÓTTIR
ihrottir@bladid.net
Okkur finnst ákaflega leiðinlegt þegar menn
missa stjórn á skapi sínu eins og gerðist í hita
leiksins í gær. Ég tala nú ekki um þegar starfs-
menn okkar eru farnir að láta til sín taka líka.
SKEYTIN INN
Luís Garcia
skrifaði í gær
undir samn-
ing við spánska
liðiðAtletico
Madrid.Kaupverð-
ið er talið nema 4
milljónum punda eða rúmum 500
milljónum króna. Garcia gekk til liðs
við Liverpool árið 2004 frá Barcel-
ona, lék 121 leik og skoraði 30 mörk.
ins og greint
varffáí
Blaðinu
i gær keypti
Arsenal króatíska
landsliðsmanninn
Eduardo Da Silva
frá Dinamo Zagreb. Kaupverðið
hefur enn ekki fengist uppgefið,
en fjölmiðlar í Króatíu fuUyrða að
Arsenal hafi greitt 24 milljónir evra
fyrir kappann. Það er nákvæmlega
sama upphæð og Barcelona greiddi
fyrir Ihierry Henry á dögunum.
Liverpool er
sagt vera að
ganga frá
kaupum á argent-
ínska bakverðinum
Gabriel Heinze
frá Manchester
United. Heinze er metinn á 5 millj-
ónir punda, 630 milljónir króna.
Heinze yrði þá fyrsti leikmaður-
inn í 43 ár til að fara frá United
til Liverpool. Sá síðasti sem það
gerði var Phil Chisnall árið 1964.
T'\ úrik
|-c Gíslason.ung-
XVjingalands-
liðsmaðurinn sem
leikið hefur með
Charlton undanfar-
in tvö ár, skrifaði í
gær undir þriggja ára samning hjá
danska úrvalsdeildarliðinu Viborg.
Núhefur
endanlega
verið skorið
úr um að West
Ham United haldi
sæti sínu í ensku
úrvalsdeildinni.
Sheffield United, sem féll úr deild-
inni í vor, hafði farið fram á að stig
yrðu dregin af West Ham vegna
brota á reglum er félagið fékk til sín
þá Carlos Tevez og Javier Mascher-
ano. West Ham hefur þegar þurft
að greiða háa sekt vegna málsins.
Blackburn hefúr fest kaup á
hollenska framherjanum
Maceo Rigters frá NAC Breda.
Rigter var eftirsóttur af liðum á borð
við Newcastle, Celtic og Rangers
eftir að hann varð markahæstur
Evrópukeppni landsliða 21 árs og
yngri. Blackburn gekk einnig í
gær frá kaupum á markverði 21 árs
liðs Færeyja, Gunnari Nielsen.
Stenst „ Strákurinn//
pressuna á Anfield?
Femando Torres er á leið til Liverpool og verður dýrasti leikmaður í sögu félagsins
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
Fátt getur komið í veg fyrir að
Fernando Torres gangi til liðs við
Liverpool. Fjölmiðlar í Englandi
héldu því fram f gær að hann hafi
komið fyrr úr frfinu sínu og haldið
til Liverpool, þar sem hann gekkst
undir læknisskoðun og ræddi
samningsatriði.
Verði af kaupunum er Torres lang-
dýrasti leikmaðurinn í sögu félags-
ins, en talið er að kaupverðið nemi
27 milljónum punda, eða 3,4 millj-
örðum króna. Dýrasti leikmaður-
inn í sögu Liverpool fram að þessu
var Frakkinn Djibrill Cissé sem kost-
aði 14 milljónir punda. Það eru þvf
miklar byrðar sem hvila á þessum
unga leikmanni, enda ekki létt verk
að vera dýrasti leikmaður þessa
sögufræga félags þar sem krafan
um árangur er alltaf til staðar.
Sló ungur í gegn
Allt frá því Torres var 10 ára gam-
all var ljóst að hann myndi ná langt.
Þá lék hann með liði sem heitir Rayo
13 og skoraði 55 mörk á sínu fyrsta
tímabili. Það var nóg til að sann-
færa forráðamenn Atletico Madrid
um að þarna væri hugsanleg stór-
stjarna á ferð og var honum boðið
að ganga í unglingalið félagsins. Þar
sló hann aftur í gegn. Fyrst með 14
ára liðinu sem undir hans forystu
vann Nike Cup Europe þar sem lið
á borð við Real Madrid, Barcelona,
Manchester United og Juventus
öttu kappi. Á mótinu var hann út-
nefndur besti leikmaður Evrópu í
sínum aldursflokki.
Torres skrifaði undir atvinnu-
mannasamning hjá Atletico árið
1999, þá aðeins 15 ára gamall. Eftir
að hafa leitt 16 ára landslið Spán-
verja til sigurs í Evrópukeppninni,
þar sem hann varð markahæstur
og skoraði sigurmarkið í úrslita-
leiknum, lék hann sinn fyrsta leik
FERNANDO TORRES
W. Torres heitir fullu nafni Fern-
ando José Torres Sanz.
Torres er fæddur 20. mars
árið 1984 og ólst upp í Fu-
enlabrada-hverfinu í Madríd.
►
Torres gengur undir nafninu
El Nino, sem útleggst á
íslensku sem Strákurinn
og er það til komið vegna
barnslegs útlits hans.
fyrir Atletico í lok maí 2001. Viku
síðar skoraði hann sitt fyrsta mark
í leik gegn Albacete.
Síðan þá hefur stjarna hans risið
hratt. Alls hefur hann skorað 91
mark í 243 leikjum fyrir Atletico og
hann var valinn i A-landslið Spánar
í september 2003, aðeins 19 ára gam-
all. Það sama ár varð hann fyrirliði
Atletico og varð þar með yngsti fyrir-
liðinn í sögu félagsins.
Bætist í hóp Spánverja
Torres er í guðatölu meðal stuðn-
ingsmanna Atletico, ekki síst vegna
þeirrar hollustu sem hann hefur
sýnt félaginu fram til þessa. Stórlið
Evrópu hafa ítrekað reynt að bera
víurnar í strákinn, en hann hefur
alltaf haldið tryggð við Atletico
sem þó hefur ekki náð að blanda
sér í hóp bestu liða Spánar. Líklega
er það þess vegna sem Torres lætur
slag standa og gengur til liðs við Li-
verpool. Þrátt fyrir að gengi Atletico
hafi batnað á undanförnum árum
hefur félagið ekki náð að koma sér á
þann stall sem Torres vill sitja á.
Liverpool er hentugur ákvörðun-
arstaður fyrir Torres. Þjálfarinn
Rafael Benítez er spánskur sem og
tveir lykilleikmenn félagsins, Xabi
Alonso og José Reina. Það ætti ef-
laust að hjálpa honum að aðlagast
enskum aðstæðum sem margir
suðrænir leikmenn hafa átt í erfið-
leikum með. Einnig virðist Torres
hafa verið stuðningsmaður Li- bandi Torres sem bar áletrunina:
verpool í laumi, því í leik með Atlet- „You’ll never walk alone.“
ico í vetur náðist mynd af fyrirliða-
Sauð upp úr á Valbjamarvelli í leik Þróttar og Fjölriis
Vallarþulur skarst í leikinn
Fjölnir vann mikilvægan sigur
á Þrótti í toppslag 1. deildar í fyrra-
kvöld í miklum markaleik, 4:3. Leik-
urinn á þó eftir að draga dilk á eftir
sér, því allt fór í háaloft eftir að Sig-
mundur Pétur Ástþórsson skoraði
sigurmark Fjölnis, þegar fimm mín-
útur voru komnar fram yfir venju-
legan leiktíma.
Leikmenn Þróttar vildu meina
að Sigmundur hefði brotið á Jóni
Ragnari Jónssyni er hann skoraði
markið. Upphófst mikil rekistefna
sem endaði með því að þrír Þrótt-
arar fengu að líta rauða spjaldið,
þeir Jón Ragnar, Arnljótur Ástvalds-
son og aðstoðarþjálfarinn Þorsteinn
Halldórsson. Arnljótur hafði þegar
verið tekinn af leikvelli er hann
fékk að líta rauða spjaldið. Meira
að segja vallarþulurinn á Valbjarn-
arvelli skarst í leikinn og vandaði
öðrum aðstoðardómaranum ekki
kveðjurnar, áður en hann tilkynnti
í kallkerfi vallarins að mark Fjölnis
hefði verið ólöglegt.
Finnbogi Hilmarsson, formaður
knattspyrnudeildar Þróttar, harmar
atvikið og segir að tekið verði á því
innan félagsins. „Okkur finnst ákaf-
lega leiðinlegt þegar menn missa
stjórn á skapi sínu eins og gerðist í
hita leiksins í gær. Ég tala nú ekki
um þegar starfsmenn okkar eru
farnir að láta til sín taka líka.“ Finn-
bogi, líkt og aðrir Þróttarar, var þó
ekki sáttur við störf dómarans, Val-
geirs Valgeirssonar, í leiknum og
furðar sig á því að KSl skuli senda
svo reynslulítinn dómara á svo mik-
ilvægan leik. „Það var öllum ljóst
sem þarna voru á vellinum að það
hallaði gríðarlega á annað liðið í
þessum leik. Ég get svo sem skilið
að menn hafi misst stjórn á sér, en
það afsakar ekki neitt.“
Birkir Sveinsson, starfsmaður
dómaranefndar KSl, hafði ekki
fengið leikskýrsluna í sínar hendur
og gat því ekki tjáð sig um þetta ein-
staka atvik. Aganefnd KSI mun úr-
skurða í málinu á þriðjudag.
Óvænt úrslit
á Wimbledon
Óvænt
úrslit
litu dags-
ins ljós á
Wim-
bledon-
mótinu
í tennis.
Hin tékk-
neska Va-
idisova
sigraði
þá meist-
arann frá því í fyrra, Ameilie
Mauresmo frá Frakklandi, í
þremur settum, 7:6,4:6 og 6:1.
Þrisvar sinnum varð að gera
hlé á leiknum vegna veðurs.
Vaidosova, sem er einungis
x8 ára gömul, var í skýjunum
eftir leikinn sem stóð yfir í
fjóra tíma. „Þetta var frábær
sigur í dag. Ég finn að leikur
minn fer batnandi dag frá
degi. Ég er þó ekki farin að
setja augun á titilinn. Ég tek
bara einn leik fyrir í einu.“