blaðið - 04.07.2007, Side 22
26
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚIi 2007
blaóið
1575 8900
SáMMMíi / ÁLFABAKKA
EVAN ALMIGHTY kl. 4-6-8-10:10 L
BLIND DATING kl. 4-6-8-10:10 10
SHHEK3M' traul*; kl. 4-6-8-10:10 l
EVAN ALMIGHTY VIP kl. 4-6-8-10:10 L
SHREK3W-ISLIAI kl.4-6 L
OCEAN'S 13 kl. 8-10:30 7 '
PIRATES 3 kl. 5:30 10
Z0DIAC kl.9 16
SdM}ki23!á / KRINGLUNNI
SHREK3W-fclIAL kl. 6:15
SHREK3V - kl. 8:15-10:20
C0DE NAME CLEANER kl.6-8 10
OCEAN'S 13 kl. 10:10 7
PIRATES 3 kl. 5:30-8:40 10
SBH / AKUREYRI
SHREK 3ISLTAL kl.6
SHREK 3 M ErckuTAL ld.6-8
BLIND DATING M.8 10
Sám*Æt. / KEFLAVÍK
EVAN ALMIGHTY kl.8-10
DIE HARD4 kl. 8-10:30 14
450 kr. í Ml Eltllr í Hlv lýilagv wklr hí naiil
REGn iDGÍnn
DIE HARD 4.0 M.5.40,850ofl11 14
PREM0NITI0N M. 5.45,8 og 10.15
FANTASTIC FOUR 2 M. 6 8.20 og 1000 L
THE HOAX M. 5.30 og 8
28 WEEKS LATER kl. 10.30 16
j£ snrtHH^Bló j!
EVAN ALMIGHTY ld.4,6,8og10 L
DIEHARD4.0 W. 5,8 og 10.45 14
DIEHARD4DLÚXÚS kl. 5,8 og 10.45 14
FANTASTIC F0UR 2 H3.40,5S0,8og 10.10 L
H0STEL2 M.8og10.10 18
SPIDER MAN 3 ld.5 1Ó
§
: EVAN ALMIGHTY kl.4,6,8og 10 L |
DIEHARD4.0 W.7.30og1OfOWER 14 |
SHREK 3 enskt tal M.4,6og10 L
. SHREK 3 fslenskt tal kl. 4,5.45 og 8 L 1
haSkólabíó
% EVAN ALMIGHTY kf. 6,8 og 10 L (
1 DIEHARD4.0 kl. 5.15,8 og 10.45 Jí I
| PREMONITION M. 5.45,8 og 10 i
1 FANTASTIC F0UR 2 kl.6.8oq10 T| 1
I _
. - W
1 EVAN ALMIGHTY M. 6,8og 10 L
1 DIEHARD4.0 M.8og 1020 14
PREMONITION M. 6
HHmnHK
ORÐLAUSLÍFIÐ
ordlaus@bladid.net
Ég er auðvitað mjög ánægður með að vera á
plötu með þessum hópi listamanna. Ég er bú-
inn að fá e-mail frá mörgum sem sýna laginu
áhuga og útlitið er mjög gott.
Benni spilar í
Bandaríkjunum
Tónleikaferð Benna Hemm
Hemm um Bandaríkin hefst
um helgina og hafa fjölmargir
tónleikar verið bókaðir þar ytra.
Á heimasíðu hljómsveitarinnar
kemur fram að öll eru þau gríð-
arlega spennt fyrir ferðalaginu
og hyggjast spila fyrir Kanann á
hverjum degi út júlí.
Tók giftingar-
hringinn af sér
Lisa Kudrow hefur gefið sögu-
sögnum um vandræði í hjóna-
bandi hennar og Michel Stern byr
undir báða vængi og bendir nú
margt til þess að skilnaður sé yfir-
vofandi. Frá því á síðasta ári hefur
hún aldrei látið sjá sig með honum
og nú síðast sást til hennar í Los
Angeles án giftingarhringsins.
Lag Brynjars Más fær góðar viðtökur ytra
*
A safnplötu með
Madonnu og Kom
Eftir Halldóru Þorsteinsdóttur
halldóra@bladid.net
Útvarps- og tónlistarmaðurinn
Brynjar Már Valdimarsson varð á
dögunum þess heiðurs aðnjótandi
að fá lag sitt valið á safnplötu fyrir-
tækisins RadioExpress.
Á plötunni er að finna sérvalin
lög sem þeir síðarnefndu mæla með
í útvarpsspilun og var henni dreift
á allar útvarpsstöðvar í heiminum.
Meðal listamanna á plötunni eru
þau Madonna, Korn og Kanye West
svo að óhætt er að fullyrða að árang-
urinn sé góður.
„Þetta er fyrirtæki sem sér út-
varpsstöðvum fyrir nýjum lögum í
spilun og velur sérstaklega lög sem
þeir rnæla með hverju sinni,“ segir
Brynjar Már, sem er að vonum him-
inlifandi með stöðu mála. Lagið,
sem ber heitið In My Place, er nú
einnig fáanlegt á iTunes.
„Ég er auðvitað mjög ánægður
með að vera á plötu með þessum
hópi listamanna. Ég er búinn að fá
e-mail frá mörgum sem sýna laginu
áhuga og útlitið er mjög gott. Ég
bjóst samt aldrei við svona miklum
viðbrögðum við fyrsta lagi mínu,“
segir Brynjar, sem hyggst gefa út
breiðskífu í lok ársins.
Heimsþekktur útsetningarstjóri
Lagið In My Place er eftir Brynjar
Má sjálfan en Shirley Petrandis
sá um textagerð. Útsetning var í
höndum Ken Lewis, en hann hefur
unnið með ekki ómerkari stjörnum
en Lenny Kravitz, Beasty Boys,
Snoop Dogg, Jay-Z, Mary J. Blige,
Whitney Houston og Kanye West.
„Að fá svona pródúsent er auð-
í skýjunum Brynjar kveðst
himinlifandi með viðtökur
ins enda bjóst hann ekki við
þessu eftir fyrsta lagið.
I/Golll
MAÐURINN
Brynjar Már er tónlistar-
^ stjóri á útvarpsstöðinni
FM 957.
► Hann er fæddur í Reykjavík
þann 19. desember árið
1978
► í lýsingu á sjálfum sér á vef
FM 957 ritar Brynjar: „Ég á
það oft til að vera of góður
við sjálfan mig og stundum
of góður við aðra."
vitað þvílíkur heiður. Hann vinnur
með alla flóru tónlistar og er búinn
að vinna gull og platínu fyrir popp,
rokk, rapp og annað. Þetta er eitt-
hvað sem ég var búinn að undirbúa
vel og lengi og mig langaði alltaf að
vinna með svona alvöru gæja - fara
aðeins út fyrir rammann og gera
þetta eftir mínu höfði í stað þess að
vera í hefðbundinni íslenskri sveita-
ballatónlist,“ segir Brynjar.'
Með mikla tónlistarhæfileika
Blaðið setti sig í samband við pró-
dúsentinn Ken Thomas, en hann
kveðst þess fullviss að Brynjar eigi
eftir að ná langt með tónlist sinni.
„Brynjar hefur náð góðum tökum
á tónlistinni og hvert lag sem ég hef
fengið frá honum ber vott um mikla
tónlistarhæfileika. Lagið In My Place
er mjög gott, enda útset ég ekki lög
fyrir tónlistarmenn sem mér líkar
ekki. Við vinnum lögin saman þar
til við komumst að góðri niðurstöðu.
Það er einmitt mikilvægt fyrir góða
listamenn að ná vel til fólksins með
tónlistinni og Brynjar getur það svo
sannarlega. Svo var hann líka nógu
klár til að fá sér góðan pródúsent,"
sagði Ken og brosti út i annað.
Harður heimur
hjá Kate Moss
Ofurfyrirsætan Kate Moss er í
öngum sínum eftir framhjáhald
Pete Doherty með suðurafrísku
fyrirsætunni Lindy. Moss mun
hafa hætt við að sýna á tískusýn-
ingu sem haldin var í tilefni af
sextugsafmæli Christian Dior,
klukkutíma áður en hún átti
að stíga á sviðið. Þar hafði hún
bókað sig ásamt stallsystrum
sínum Naomi Campbell og Lindu
Evangelistu.
Enginn hjóna-
bandsdjöfull
Cameron Diaz hefur brugðist við
ásökunum og orðrómi þess efnis
að hún hafi eyðilagt hjónaband
Mindfreak-stjörnunnar Criss
Angel vegna stefnumóta þeirra.
Diaz hefur vísað ásökununum
rakleiðis til föðurhúsanna og
sagði talsmaður hennar að Cam-
eron og Criss hefðu hist í maí
á þessu ári, en þá hafi hann og
eiginkonan verið aðskilin í rúmt
ár og skilnaður á leiðinni. „Cam-
eron og Criss fóru á fjögur stefnu-
mót fyrir rúmum mánuði og eru
ekki í neinu sambandi núna.“
trippen rsr
Tvífarar vikunnar
Tvífarar vikunnar eru þær Birgitta Birgisdóttir leikkona og söngkonan
Norah Jones. Það er ekki laust við að einhver svipur sé með þessum
tveimur dökkhærðu konum sem báðar leggja lag sitt við listina.
Birgitta Birgisdóttir Það er ekki fjarri
lagi að íslenska leikkonan Birgitta Birg-
isdóttir minni um margt á Noruh Jones.
Ekki dónalegt það!
Norah Jones Það er spurning hvort
söngkonan geðþekka gæti fengið hina
íslensku Birgittu til að leika sig í einhverju
myndbandinu.