blaðið - 24.08.2007, Side 19

blaðið - 24.08.2007, Side 19
blaöið FOSTUDAGUR 24. AGUST 2007 27 Gæsaveiðin er byrjuð Margir á leið í skotveiðar V*■ 'x. Nóg af gæs Veiðimenn munu nota helgina til að xv fara á gæsaskyttirí. ■V ^ v Gæsaveiðitíminn er byrjaður og veiðimenn eru farnir af stað en margir ætla til veiða núna um helgina. Mikið var af gæs í Norður- árdalnum í vikunni og heilu hóp- arnir á flugi yfir Fornahvammi í Norðurárdal. Blaðamaður hitti gæsaveiðimenn í Miðfirðinum en þeir sögðust ekki hafa hitt marga veiðimenn en höfðu heyrt að margir ætluðu að fara um helgina. „Eg held að þessir hörðustu hafi farið fyrstu dagana,” sögðu veiði- mennirnir og létu sig síðan hverfa ofan í skurð við Miðfjarðará. Blaða- maður lét sig þá hverfa líka. Eitthvað hefur fengist af fugli fyrstu dagana en hann heldur mikið til uppi á fjöllum í berjum, þar sem nóg er af þeim. Það verður gaman að sjá hvað fæst um helgina. Margir eru farnir að huga að veiði og líklegt að margir láti verða af því um helgina. „Við erum að koma okkur fyrir hérna í Þykkvabænum. Það verður gaman að sjá hvernig gengur,’ sögðu veiðimenn sem Blaðið ræddi við í gær. Elliðaámar Laxinn dyntóttur Laxinn var dyntóttur við Elliða- árnar í vikunni. Blaðamaður verður vitni að því þegar veiðimaður kastar flugunni á Höfuðhylinn í Elliða- ánum en fiskurinn tekur illa, laxinn stekkur en tekur lítið. Það er kastað grimmt á hylinn og skipt um flugu, fiskurinn er alls ekki í tökustuði. Blaðamaður heldur áfram göngu meðfram ánni og heldur á aðrar slóðir. Veiðifélagarnir færa sig neðar i ánni og eru komnir niður undir sjó. Nýir laxar eru að ganga á hverju flóði og það er flóð núna, laxinn er mættur. Nýr lax stekkur á Breiðunni og það er kastað á hann en hann fæst ekki til að taka almennilega. „Þetta var ótrúlegt, fiskurinn rauk á fluguna hvað eftir annað en náði ekki að festast, þrátt fyrir að þetta væri glænýr fiskur,” sagði Sigurdór Sigurdórsson blaðamaður þar sem hann var að veiða við Breiðuna og hélt áfram að kasta, fiskurinn tók fluguna aftur hjá honum en sleppti henni aftur. í allri ánni var fiskurinn ekki i neinu tökustuði. Fyrir hádegi þennan dag veiddust alls sjö laxar, eftir hádegi veiddist enginn. Loksins fór að rigna Hjaltadalsá orðin að stórfljóti „Það er allt annað að sjá veiði- árnar núna eftir að það tók að rigna verulega en flestar voru orðnar rnjög þurrar. Við hættum veiðum, áin er orðin að stórfljóti og ekki hægt að veiða lengur. Það veiddist einn lax,” sagði Ása Ólafs- dóttir sem var meðal veiðimanna í Hjaltadalsá í Skagafirði í gær- kveldi í miklum vatnavöxtum. „Um leið og byrjaði að rigna fóru 300 laxar um Glanna í Norðurá í Borgarfirði, svo það fer eitthvað að gerast þar um leið og hann rignir," sagði Bjarni Júlíusson, for- maður Stangaveiðifélags Reykja- víkur, við Blaðið en aðeins á eftir að veiða í Norðurá í 10 daga. Áin hefur gefið 880 laxa og gæti farið HJALTADALSÁ Hjaltadalsá er í norðanverð- um Skagafirði, í nágrenni við Hofsós Áin er gjöful sjóbleikjuá en einnig veiðist þar lax Veiðitímabil er frá 20. júní til 30. september il’ Veiðihús fylgir veiðileyfi í 1000 laxa. Veiðimenn reyndu að finna lax í Leirvogsá en áin var orðin að stórfljóti og erfitt að finna fiskinn í henni. Næstu daga gæti orðið veisla í henni, mokveiði. Góð laun í boði fyrir duglegt fólk - Laun árangurstengd Blaöiö óskar eftir duglegum, metnaöarfullum og kraftmiklum sölumönnum til starfa á auglýsingadeild Blaðsins sem fyrst. Viö leitum að fólki með frumkvæði, ódrepandi áhuga, vilja og getu til að vinna í krefjandi og erilsömu umhverfi og hressleikann að leiðarljósi. v. H [.'!■!f.BB y Umsóknir sendist á steini@bladid.net

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.