blaðið - 28.08.2007, Qupperneq 8
8
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2007
blaðió
STUTT
• Kosningar Herstjórnin í
Taílandi hefur boðað til þing-
kosninga þann 23. desember
næstkomandi, þeirra fyrstu frá
því að fyrrum forsætisráðherra,
Thaksin Shinawatra, var hrak-
inn frá völdum á síðasta ári.
• Umferðarslys Rúmlega
sjötíu manns létust og tugir
slösuðust þegar fólksflutninga-
bíll valt í fjalllendi í austur-
hluta Úganda í gær. Flestir
hinna látnu voru hermenn á
leið til herstöðvar við kenísku
landamærin.
VIM.IK
Eltak sérhæfir sig ■ sölu
og þjónustu á vogum
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
Bjóðum mesta úrval
á íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu santhand
Grikkland logar
B Flestir skógareldarnir loga á Pelópsskaga og á eyjunni Evia ■ Aðstoð við slökkvistarf
hefur borist erlendis frá ■ Á fjórða tug manna handteknir vegna gruns um íkveikju
Eftir Atla Isleifsson
atlii@bladid.net
Lögregla á Grikklandi hefur hand-
tekið á fjórða tug manna, grunaða
um að bera ábyrgð á þeim miklu
skógareldum sem nú geisa í Grikk-
landi. Eldarnir hafa þegar kostað
tæplega sjötiu mannslíf síðustu þrjá
daga og hafa grískir saksóknarar
nú til skoðunar hvort íkveikjurnar
geti verið teknar til meðferðar
sem hryðjuverk. Slíkt myndi veita
grískumy firvöldum víðtækari heim-
ildir við rannsókn málsins og björg-
unarstörf. Flugvélar og þyrlur hafa
borist Grikkjum frá öðrum ríkjum
til að aðstoða við að ná tökum á eld-
unum sem hafa logað viðs vegar um
landið frá því fyrir helgi.
Skipulögð glæpastarfsemi
Fordæmalaus eyðilegging
í Grikkiandi Um 250 skóg-
areldar hafa blossað upp i
landinu frá því á föstudaginn.
Þurrt og vindasamt hefur verið
í Grikklandi síðustu daga og hefur
það gert slökkviliðsmönnum sér-
staklega erfitt fyrir. Lögregla hefur
boðið 87 milljónir króna í verðlaun
til þeirra sem veita upplýsingar sem
leiða til handtöku brennuvarga.
Hinir handteknu eru margir taldir
tengjast skipulögðum glæpasam-
tökum, sem vilja eyða skógum til
að þar megi rísa byggingar. Spyros
Flogaitis, innanríkisráðherra Grikk-
lands, segir eyðilegginguna í Grikk-
landi vera hrikalega og fordæmis-
lausa. „Við gerum allt sem í okkar
valdi stendur til að aðstoða fólk og
bjarga mannslífum."
Eldarnir hafa flestir brotist út á
Pelópsskaga, en einnig í kringum
SKÓGARELDAR
W. Talsmaður grískra yfirvalda
^ segir að 89 nýir skógareldar
hafi blossað upp á sunnu-
daginn.
► Grunur leikur á að skipu-
lögð glæpasamtök beri
ábyrgð á skógareldunum,
þar sem þau vilji reisa bygg-
ingar þar sem nú stendur
skógur.
► Grískir stjórnarandstæðing-
ar hafa sakað stjórnarflokk-
ana um vanhæfni í málinu.
Þingkosningar eru fyrirhug-
aðar í Grikklandi í næsta
mánuði.
höfuðborgina Aþenu og á eyjunni
Evia í norðri. Fleiri hundruð bygg-
ingar hafa orðið eldunum að bráð
og þúsundir manna hafa neyðst
til að flýja heimili sín. Nýir eldar
við jaðar höfuðborgarinnar Aþenu
brutust út í gær, þar sem skógar í
hlíðum Ymittos-fjalls loguðu og
ógnuðu úthverfi höfuðborgarinnar.
1 frétt Guardian segir að mikinn
eldstrók hafi lagt frá fjallinu, auk
þess sem brunalykt lagðist yfir
höfuðborgina.
Aðstoð erlendis frá
Yfirvöldum í Grikklandi barst í
gær aðstoð meðal annars frá Ítalíu,
Frakklandi, Þýskalandi, Noregi og
Spáni, en stöðgt erfiðara reynist
að slökkva eldana. Forsætisráðherr-
ann, Costas Karamanlis, lýsti yfir
neyðarástandi í landinu um helgina.
Hann bað um aðstoð Evrópusam-
bandsins og sagði umfang skógar-
eldanna einfaldlega vera of mikið
til að Grikkir gætu ráðið við þá.
Talsmaður slökkviliðsins sagði elda
nú loga um meira en hálft landið.
Hann er svartsýnn á að takast muni
að ná tökum á eldunum á næstunni,
þrátt fyrir aðstoð erlendis frá og að
vind hafi nokkuð lægt.
ÞEKKIR ÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
TILBOÐ
Gildir út 31.12.07
^ á tilboði 17.900 kr. eða
aðeins um í rÁ *§I 5 <
I
ICELAND
SPA & FITNESS
Gonzales
Alberto Gonzales hefur sagt af sér
embætti dómsmálaráðherra Banda-
ríkjanna. Heimildarmenn CNN
segja að Bush forseti muni skipa
Micheal Chertoff, ráðherra heima-
varna, sem arftaka Gonzales.
Hart hefur verið sótt að Gonzales
að undanförnu og hafa margir kraf-
ist afsagnar hans. Andstæðingar
Gonzales segja þá ákvörðun hans að
reka átta ríkissaksóknara úr starfi á
síðasta ári hafa verið af pólitískum
ástæðum og hann hafi svo logið til
um ástæður uppsagnanna. Gonza-
les bar vitni fyrir þingnefndum í
báðum deildum Bandaríkjaþings
vegna málsins, og sökuðu ýmsir öld-
Rússland
Tíu manns
handteknir
Tíu manns hafa verið handteknir
vegna morðsins á rússnesku rann-
sóknarblaðakonunni Önnu Pol-
itkovskaya sem ráðinn var bani á
síðasta ári. Rússneskir fjölmiðlar
sýndu myndir af saksóknara í
gær sem gekk á fund Vladimírs
Pútíns Rússlandsforseta til að
greina honum frá handtökunum
og að hinir grunuðu yrðu brátt
ákærðir.
Morðið vakti víða mikla reiði og
voru rússnesk stjórnvöld mikið
gagnrýnd fyrir aðgerðaleysi í
kjölfarið, en Politkovskaya var
harður gagnrýnandi stefnu Pú-
tíns forseta. aí
hættir
Alberto Gonzales Tók við embætti dóms-
málaráðherra fyrir tveimur og hálfu ári.
ungadeildarþingmenn hann um að
hafa logið eiðsvarinn.
Gonzales tók við embætti fyrir
tveimur og hálfu ári, en hann á að
hafa skilað inn afsagnarbréfi sínu
síðasta föstudag. atlii@bladid.net
Afganistan
Framleiðsla á
ópíum eykst
Ópíumframleiðsla í Afgan-
istan hefur aukist um þriðjung
síðastliðið ár og aldrei verið
meiri, samkvæmt nýrri skýrslu
Sameinuðu þjóðanna. í skýrsl-
unni segir að framleiðslan í
Helmand-héraði í suðurhluta
landsins hafi aukist gríðarlega
að undanförnu og er héraðið
nú stærsta framleiðslusvæði
ópíums í heimi.
Þrátt fyrir veru tugþúsunda
erlendra hermanna í landinu eru
um 193 þúsund hektarar lands
nýttir til ræktunar á valmúajurt-
inni, sem ópíuni er unnið úr.
aí