blaðið - 28.08.2007, Page 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2007
blaóið
FÉOGFRAMI
vidskipti@bladid.net
Það er nú þannig með íslendinga að þegar
þeir eru að gera eitthvað í viðskiptum, þá
fæ ég oft að heyra að þetta sé í fyrsta skipti
sem það er gert í heiminum.
M5 opnaöur
Verðbréfavefurinn M5 var opn-
aður í Færeyium á vefslóðinni
m5.fo í gær. I tilkynningu segir
að vefsíðan sé sú fyrsta sinnar
tegundar í Færeyjum sem fjallar
eingöngu um færeyska verðbréfa-
markaðinn. Aðstandendur M5
segja mikinn metnað vera lagðan
í vefinn og að vonir standi til að
hann muni nýtast Færeyingum
vel ásamt erlendum fjárfestum
sem hafi áhuga á að fjárfesta í
Færeyjum. aí
í Færeyjum
Áminning og févíti verði afturkölluð
Mál Atorku Group hf. gegn
Kauphöll fslands var tekið
fyrir í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Atorka fer fram
á að ákvörðun Kauphallar-
innar um að áminna félagið
og beita það févíti upp á
2,5 miiljónir króna verði
afturkölluð.
Kauphöllin beitti þessum
viðurlögum þar sem hún
taldi að Atorka hefði sent
frá sér villandi tilkynningu
í tengslum við sex mánaða uppgjör félagsins í fyrra. í fyrirsögn tilkynn-
ingarinnar var sagt að hagnaður Atorku Group hefði verið tæplega 4,9
milljarðar króna á fyrri helmingi ársins. Við lestur uppgjörsins kom
hins vegar í ljós að hagnaður samstæðu Atorku var 187 milljónir króna.
Þær lykiltölur sem komu fram í tilkynningunni voru aðeins lykiltölur
móðurfélagsins en engar lykiltölur voru um samstæðuna. Þetta taldi
Kauphöllin að hefði verið gert til að villa um fyrir fjárfestum og því
um brot á reglum að ræða. mge
Marel vill
eignast Stork
Marel hefur áhuga á að eignast
hollenska fyrirtækið Stork að
fullu. Fréttastofa Reuters hefur
þetta eftir Maarten Muller, lög-
fræðingi LME-eignarhaldsfélags,
sem er í eigu Marels, Landsbank-
ans og Eyris. Marel er stærsti
einstaki hluthafi Stork, en áður
hafði komið fram að Marel
hefði áhuga á að eignast Stork
Food Systems, dótturfélag Stork.
Aðspurður sagði Muller að allir
möguleikar væru opnir, þar á
meðal að gera yfirtökutilboð í
allt hlutafé Stork.
Selja sement
til Grænlands
Forsvarsmenn Sementsverk-
smiðjunnar hf. hafa samið um
að afhenda um 1200 tonn af Port-
Jandssementi vegna byggingar
15 megavatta virkjunar á Vestur-
Grænlandi. fstak vinnur að
verkinu á Grænlandi fyrir Orku-
stofnun Grænlands. Virkjunin
verður í byggingu næstu þrjú árin
og er við Sisimut, annan stærsta
þéttbýliskjarnann á Vestur-Græn-
landi. Fyrsti farmurinn, 200 tonn,
hefur þegar verið afhentur og á
næstu mánuðum verða um 400
tonn afhent í viðbót, en 650 tonn
næsta vor. skessuhorn.is
I urinn 'be.r
-
iqv1
jfi
5
Kári Eyþórsson MPNLP
Viltu læra aðferðir sem að
raunverulega breyta lífi þínu?
Námskeið í KjQJP tækni
NLP Námskeið
verður haldið 21.-23. og
28.-30.september 2007
OCopyright cKari.com í
www.ckari.com: Mail: rosa@ckari.com; Sími:894-2992
Fyrir alla Sveinn segir að nemend-
ur í raunvísindum hafi verið fljótari
að tileinka sér rafræn gagnasöfn en
nemendur í félags- og hugvísindum.
liSHSSliliM&liMW \ \i T*. 0* 5
& , S VN r' I
al! 1 11
\ i r/
Hafsjór upplýsinga
fyrir atvinnulífið
■ Aðgangur að tímaritum tengdum viðskiptum og stjórnun hefur
stóraukist á hvar.is ■ Miklir möguleikar eru fólgnir í gagnasöfnun
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
Frá því að byrjað var að bjóða
upp á landsaðgang að rafrænum
gagnasöfnum og tímaritum árið
1999 hefur aðgengi almennings að
hvers kyns upplýsingum aukist til
muna. Þetta á ekki síst við um tíma-
rit á sviði viðskipta og stjórnunar,
en nemendur í þessum greinum eru
um 3 þúsund talsins í dag. Sveinn
Ólafsson, umsjónarmaður landsað-
gangs, segir að miklir möguleikar
séu fólgnir í gagnasöfnunum, bæði
fyrir nemendur og atvinnulífið.
Úr tveimur í tvö hundruð
Til marks um hversu miklar
breytingar hafa orðið, þá voru ein-
ungis tvö rit á sviði markaðsfræði
í áskrift á íslenskum bókasöfnum
fyrir 10 árum. Nú eru tæplega 200
rit á þessu sviði í landsaðgangi og
fer þeim fjölgandi. Tímaritum á
öðrum sviðum viðskipta og stjórn-
unar hefur einnig fjölgað til muna,
ekki síst með tilkomu Ebsco-gagna-
safnsins sem bættist við mikið safn
viðskiptatímarita sem fyrir voru í
ProQuest 5000.
HVAR.IS
► Á heimasíöunní er hægt að
nálgast yfir 14 þúsund tíma-
rit án endurgjalds.
► Hægt er að leita í MIT Sloan
Management Review eða
Economist frá árinu 1990 til
dagsins í dag.
►
Hægt er að lesa allan texta
Harvard Business Review
frá fyrsta tölublaðinu í okt-
óber 1922.
Sveinn segir að helsta kostinn við
gagnasafnið þann að allt efnið sé
leitarbært. Það spari bæði ómældan
tíma og fyrirhöfn. „Þetta er miklu
einfaldara fyrir notandann og ég tel
að við höfum sparað ófáar bílferðir.
Að því leyti erum við umhverfisvæn.
Fólk sem er í fjarnámi notar þetta
mjög mikið og þetta gerir fólki
kleift að vinna mun meira heima
hjá sér en ella.“
Umhverfisvæn gagnaöflun
Notkun á rafrænumgagnasöfnum
á borð við hvar.is er töluvert meiri
hér á landi en í nágrannalöndunum
og vill Sveinn þakka það ókeypis
landsaðgangi. Háskólanemar og
starfsmenn rannsóknarstofnana
eru algengustu notendurnir, en
Sveinn telur að atvinnulífið geti fært
sér safnið meira í nyt en það gerir.
„Það er nú þannig með Islendinga
að þegar þeir eru að gera eitthvað
í viðskiptum, þá fæ ég oft að heyra
að þetta sé í fyrsta skipti sem það er
gert í heiminum. Svo þegar maður
fer að kíkja á það kemur oft í ljós að
viðlíka hlutir hafa verið gerðir ann-
ars staðar. Ég held að fólk geti lært
heilmikið á því að kynna sér þetta.“
Aðgangur að gagnasafninu kostar
um 100 milljónir á ári og er þriðj-
ungur þess greiddur af ríkinu. Af-
gangurinn dreifist niður á tæplega
200 bókasöfn, stofnanir og fyrir-
tæki sem taka þátt í áskriftarkostn-
aðinum. Sveinn segir að enn sem
komið er hafi einkageirinn ekki lagt
jafnmikið til og vonir stóðu til. „Við
erum með þessu að þjóna honum að
mörgu leyti og það var hugmyndin
með að binda þetta ekki við stofnan-
irnar. Ég sé ekki annað fyrir mér en
að fólk á markaði verði að kynna sér
á einhvern hátt það sem er að gerast
annars staðar.“
MARKAÐURINN ÍGÆR
Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á íslandi, 27. ágúst 2007
Viðskipti í krónum Heildar-
ATH. = Athugunarlisti Viðskipta- Hlulfallsl. Dagsetning Fjöldi viöskipti Tilboö í lok dags:
Félög í úrvalsvísítölu verð breytmg viösk.verðs viðskipta dagsins Kaup Sala
▼ Atorka Group hf. 9,25 -1,60% 27.8.2007 11 154.992.233 9,25 9,35
▼ Bakkavör Group hf. 67,60 -0,15% 27.8.2007 15 83.943.548 67,30 67,60
a Exista hf. 34,10 0,29% 27.8.2007 74 473.689.256 34,05 34,15
a FL Group hf. 26,35 0,57% 27.8.2007 13 74.086.623 26,25 26,55
4 Glítnir banki hf. 28,45 0,53% 27.8.2007 53 482.257.951 28,45 28,55
Hf. Eimskipafélag íslands 42,25 - 27.8.2007 28 115.717.729 42,25 42,65
lcelandair Group hf. 27,00 - 27.8.2007 10 34.631.920 26,80 27,00
▼ Kaupþing banki hf. 1167,00 -0,26% 27.8.2007 132 1.601.193.793 1167,00 1168,00
4 Landsbanki Islands hf. 40,75 0,74% 27.8.2007 57 1.756.747.511 40,55 40,80
Mosaic Fashions hf. 17,50 - 17.8.2007 - - - 17,50
♦ Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 20,60 0,00% 27.8.2007 49 360.188.466 20,45 20,60
a Teymi hf. 6,16 6,02% 27.8.2007 35 156.578.030 6,12 6,20
a össur hf. 108,00 0,93% 27.8.2007 4 20.890.971 106,50 108,00
Onnur bréf á Aðallista
♦ 365 hf. 2,83 0,00% 24.8.2007 - - 2,81 2,84
Actavis Group hf. - 20.7.2007 - - - - :
4 Affesca hf. 5,88 0,17% 27.8.2007 3 12.772.562 5,86 5,92
▼ Atlantic Petroleum P/F 1105,00 -0,18% 27.8.2007 10 4.395.101 1095,00 1110,00
v Eik Banki 695,00 -0,14% 27.8.2007 4 1.190.211 693,00 696,00
4 Flaga Group hf. 1,62 0,00% 27.8.2007 1 129.600 1,61 1,63
♦ Foroya Bank 233,00 0,00% 27.8.2007 3 339.548 232,00 240,00
lcelandic Group hf. 5,95 - 22.8.2007 - - 5,90 5,98
a Marel hf. 92,80 0,87% 27.8.2007 6 52.202.500 92,50 93,00
Nýherji hf. 21,50 - 21.8.2007 - * 21,50
4 TryggingamiSstöðin hf. 39,05 0,00% 24.8.2007 - - 39,10 39,80
Vinnslustöðin hf. 8,50 - 22.8.2007 - - - 12,00
First North á fslandi
a Century Aluminium Co. 3070,00 0,85% 27.8.2007 4 18.765.510 3050,00 3070,00
HB Grandi hf. 11,00 - 18.7.2007 - - - 11,00
Hampiðjan hf. 6,50 - 20.6.2007 - - - 6,65
• Mest viðskipti í Kauphöll OMX
í gær voru með bréf Landsbank-
ans, fyrir um 1,8 milljarða króna.
Næstmest viðskipti voru með bréf
Kaupþings, fyrir 1,6 milljarða.
• Mesta hækkunin var á bréfum
Teymis, eða 6,02%. Bréf Össurar
hækkuðu um 0,93% og bréf Mar-
els um 0,87%.
• Mesta lækkunin var á bréfum
Atorku, eða 1,60%. Bréf Kaupþings
lækkuðu um 0,26%.
• Úrvalsvísitalan hækkaði um
0,26% í gær og stóð i 8.304 stigum
i lok dags.
• fslenska krónan styrktist um
0,72% í gær.
• Samnorræna OMX40-vísitalan
lækkaði um 0,22% og þýska DAX-
vísitalan um 0,3% í gær. Breska
FTSE-vísitalan hækkaði um 0,4%.