Orðlaus


Orðlaus - 01.03.2004, Síða 20

Orðlaus - 01.03.2004, Síða 20
mm 'T” ■ B w B 2Í **** w 1—1 . 1'%.’%^ 1 www.skidavikan.is/aldreisudurl Viðtal við Mugison og PapaMug! Aldrei fór ég suður - hulunni svipt af Rokkhátíð Alþýðunnar! Ekki verður þverfótað í miðbæ Reykjavíkur þessa dagana fyrir mistrúlegum sögusögnum um einhverskonar geigvænlega risarokkhátíð um páskana. Tnsafirði. af óllum sfoðumt Ymis nofn eru jatnan ner n a Tí^^íumvWumræSíáa'f\aí\^',~a[íf\ra1&\ork u Íj úðmú nasdottun'sóngkonu, tiröSfaTfemían'nsr Með aðstoð miðstýrðs rokk-gagnasöfnunarkerfis Orðlauss og nokkurra góðra rokk-kunningja tókst rokkrýni að verða sér út um svar við öllum þessum spurningum (og fleiri!) auk simanúmera helstu hvatamanna hátíðarinnar, feðganna Arnar Elíasar Guðmundssonar (betur þekktur í vissum kreðsum sem tónlistarmaðurinn Mugison) og hafnarstjórans Guðmundar M. Kristjánssonar (sem er kallaður Muggi). Þeir feðgar samþykktu að eiga óformlegt stefnumót við lesendur Orðlauss á kaffihúsinu Prikinu einn gráan föstudag, hér eftir fylgir lausleg endursögn af samræðum okkar viö þá: Bestu hugmyndirnar kvikna yfir bjórglösum „Sko, ( fyrrasumar vorum við á útimarkaði í London, sem heitir Spitz, og Rúna kærastan mín var svo lengi að versla að við pabbi ákváðum að finna okkur pöbb til að setjast inn á og fá okkur nokkra bjóra," segir Mugison og þeir feðgar halda áfram. „Eftir að umræðuefni þrautfórum við að velta fyrir okkur hvort það væri ekki fyndið að halda svona rokkhátíð á ísafirði, þar sem að heimamenn sæju um stuðið ( bland við allt helsta meik-gengi landsins. Sáum fyrir okkur plaggat þar sem stæði stórum stöfum „Dóri Hermanns syngur Shakin' the Blues Away", en í smáa letrinu væru öll „frægu" böndin. Eftir því sem bjórunum fjölgaði leist okkur betur og betur á hugmyndina og útslagið gerði svo að hún var enn til staðar þegar við vöknuðum daginn eftir. Pegar heim var komið héldum við áfram að spá í þessu. Það var svo þegar vinur okkar Ragnar Kjartansson, Rassi, blandaðist í málið að hjólin fóru að snúast, hann talaði við fólk sem talaði við fólk... og nú er þetta orðið að veruleika. Tónleikarnir verða laugardaginn fyrir páska, þann 10. apríl, og standa frá kl. 16 um daginn og fram yfir miðnætti. Staðsetningin er skemmtileg, við verðum niður á höfn í yfirgefinni fiskvinnslu - það ætti að gefa stemmningu. Alls koma fram á þriðja tug listamanna og plötusnúða yfir daginn. Hægt verður að kaupa bjór þarna á kostnaðarverði og sushi með, en aðgangur á sjálfa tónleikana er ókeypis. Þetta er beisiklí hugsað sem gott partý og við vonum að sem flestir geti komið og skemmt sér með okkur og hljómsveitunum." Óþarfi að detta í einhvern nasisma Þetta er nú ekki lítið fyrirtæki, að halda svona risarokktónleika. Og það ókeypis risarokktónleika. Hvernig er þetta hægt, með leyfi? Og af hverju? „Hugmyndin var að bjóða nokkrum vinum úr bransanum vestur og í leiðinni sýna þeim af hverju við feðgar búum á mörkum hins byggilega heims. Ástæðan er nátturulega augljós: fólkið. Án þess að detta í einhvern nasisma, þá finnst okkur samt fólkið þar með eindæmum skemmtilegt og opið, hér eru allir sérvitringar og hafa skoðanir á öllu. Okkur fannst hreinlega kominn t(mi til að minna fólkið sjálft á þessa staðreynd og um leið sýna vinum og kunningjum hversu skemmtilegt getur verið fyrir vestan. Allir sem við töluðum viö tóku mjög vel ( þetta, allir tónlistarmenn koma fram frítt, gefa vinnu sína og Isafjarðarbær gerði leið okkar greiðari á ýmsa vegu. Það hefur fjöldi fólks lagt hönd á plóginn til að gera þetta að veruleika." Partýpizza Nú er slatti af ísfirsku listafólki þarna, ( bland við alþjóðlegar stórstjörnur. Er tónlistarsena að tala um fyrir vestan? „Okkur sýnist vera nóg að gerast. Þarna eru kórar ( hverju húsi og annað hvert barn er f tónlistarskóla. Svo er fullt af hljómsveitum, allt frá rosalegum rokkurum eins og BMX til hins indæla Unaðsdals, sem leikur blúgrass-skotna sveitatónlist. Yngsta tónlistarfólkiö sem leikur á hátíðinni er 15 ára, hljómsveitin Appollo og aldursforsetinn er Kklega Villi Valli djassari. Viö erum meö hátíöinni ekki að stilla neinum upp með eða gegn einhverjum, ísfirskar hljómsveitir gegn reykvískum eða landsbyggðartýpum móttrefilklæddum miðborgarbúum. Þetta er bara, eins og áður sagði, gott partý. Pizza. Svona tónlistarpízza. Svo er nú annars nóg um að vera þarna á páskunum - engum ætti aö leiðast. Um að gera að grafa bara kúlið og hringja í frænkuna af ættarmóti slðasta árs og betla gistingu. Grípa svefnpoka og góða skapiö (pakka má vonda skapinu niður og senda til Akureyrar). Koma (partý." Með þessum orðum kveðja Mugi-feögar og halda á vit sinna ævintýra, sá eldri er á leið í frí til Bahama-eyja en yngri mugimaðurinn er að ganga frá tónlist við ónefnda íslenska kvikmynd (alveg bannað að segja hvað hún heitirl). Hvað var annars númerið hjá Rönnu frænku...? TEXTI: hauxotron@hotmail.com Mugison Stimplaði sig endanlega inn í íslenskt tónlistarllf með goðsagnakenndri framkomu sinni á síðustu Airwaves hátfð, þar sem hann lék af miklum ofsa og dáleiddi pakkfullan Pravda með sér í syngjandi sveiflu. Platan Lonely Mountain hefur selst í bdförmum og fengið lostafullar umsagnir í helstu tónlistartlmaritum heims, I kjölfarið hefur hann spilað lögin sln vlðsvegar um heiminn við mikla hrifningu. Um þessar mundir er hann læstur inni I Súðavíkurkirkju, þar sem hann semur tónlist fyrir væntanlega íslenska kvikmynd. Funerals Skipa m.a. liösmenn hljómsveitanna Trabant og Singapore Sling. Þeir sungu sig í hjörtu einmana húsmæðra um land allt með rokk-ópusnum Pathetic Me, sem tekinn var upp eina viskílegna sumarbústaðarhelgi, og hafa síðan þá spilað sín sorglegu lög við ýmis tækifæri. I haust gáfu þeir út aðra sorglega plötu sem gefur frumburðinum fátt eftir. Appollo Eru nokkrir hressir tíundubekkingar frá fsafirði. Þeir hafa getið sér gott orð fyrir spilamennsku I félagsmiðstöðinni á Isafirði og æstu múginn er þeir hituðu upp fyrir hetjurnar sveittu í Mínus sl. febrúar. Strákarnir eru duglegir að æfa sig og lofa kröftugri, en melódískri, framkomu á tónleikunum. Þess má geta að umboðsmaður hljómsveitarinnar, Gunnar Atli Gunnarsson, vakti mikla hrifningu landsmanna er hann kom fram í kastljósþætti á dögunum. Singapore Sling Nefndir eftir hanastélsdrykk og hafa verið ansi áberandi í hinni annars litilvægu reykvísku rokksenu undanfarin ár, enda eru þeir býsna kúl gaurar með sólgleraugu. J&MC-skotið keyrslurokk þeirra á sér marga áhangendur, innanlands sem utan, og margir spá þv( að þeir verði næsta framlag fslendinga á spjöld rokksögunnar. Þeir sitja nú sveittir við upptökur á nýrri hljómplötu, en breiðskifan The Curse of Singapore Sling seldist ágætlega og var gefin út f BNA sl. sumar við nokkrar undirtektir. The Lonesome Traveller Lítið er vitað um þetta einkennilega nefnda band. Þó hefur heyrst að þeir leiki kántrýskotnar ábreiður af Sigurrósarlögum, í mikilli óþökk þeirrar annars blíðu sveitar. Er jafnvel talað um að hipparnir í Sigur Rós hati LT af áður óþekktum ofsa. Þessu er þó öllu slengt fram með fyrirvara. Dóri Hermanns Þessi káti fyrrum skipstjóri frá Ögurvík við ísafjaröardjúp varð sjötugur á árinu og hefur aldrei verið hressari. Sé ætlunin aö skekja blúsinn burt (eöa sheikinöeblúsawei, eins og hann kallar það) er fáum mönnum betur treystandi til verksins. Ekki missa af framkomu hans á hátíðinni, sem mun að Ifkindum verða goðsagnakennd innan fárra ára. Hljómsveitir og listafólk: Athugiö aö listi þessi er birtur meö fullum fyrirvara um breytingar. Aldrei er aö vita nema einhver nöfn eigi eftir aö bætast viö, já eöa detta út. Áhugasamir eru hvattir til aö fylgjast meö á heimasíöu hátíöarinnar, sem er aö finna á www.skidavikan.is/aldreisudur 7oi Appollo BMX Borko Dóri Hermanns Dr. Gunni Funerals Gjörningaklúbburinn Gus Gus Hudson Wayne Jóhann Jóhannsson Kippi Kanínus Mugison PapaMug Siggi Björns Big Band Singapore Sling Skúli Þórðarson Steindór Andersen The 9/1 l's The Lonesome Traveller Tristian Trabant Villi Valli Plötuþeytar og þessháttar: Halldór Halldórsson, bæjarstjóri fsafjarðarbæjar Óli Palli Þórhallur á Þingeyri

x

Orðlaus

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.