Orðlaus - 01.12.2004, Qupperneq 12
Þaö er hægara sagt en gert að fanga þann sem
þig langar í. Það er þó til ráð við öllu í nútíma
samfélaginu og með eftirfarandi gullnu reglum
geturðu aukið kynþokkann, komist að því á
fyrstu mínútunum hvort hann eða hún hafi
áhuga eða ekki og síðast en ekki sist tékkað á
bólfimi hans áður en haldið er upp í rúm. Hvað
er hægt að biðja um meira?
Hvernig veistu hvort hún hafi áhuga eða ekki?
Stelpur jafnt sem strákar senda frá sér ótal skilaboð þegar
þau hafa áhuga, þó mismunandi eftir kynjum en það er
þitt að taka eftir því og leika með. Þess vegna er jafn
mikilvægt að þú sért með það á hreinu hvaða merki þú átt
að taka eftir og hver þú gefur frá þér til að leika leikinn.
Stelpa að sýna áhuga
Hún horfir mikið á munninn á þér.
Hún strýkur laust yfir lærið.
Hún skoðar rassinn á þér.
Hún lætur hlýra renna út af öxlinni.
Hún nuddar á sér hálsinn.
Hún sýnir úlnliðina.
Hún sleikir á sér varirnar, lyftir hárinu og snurfusar sig á
ýmsan hátt meðan hún horfir á þig.
Hendur hennar taka að strjúka yfir handleggi hennar og
háls.
Hún hvíslar og hallar sér nær.
Hún hallar höfðinu nær þér.
Hún situr þannig að innanlærið sést.
Hún brosir breytt.
Hún fitlar við fötin sín.
„Hún lítur hvað eftir annað snöggt á þig.
Þetta merkir: „Af öllu sem ég gæti verið að skoða, finnst
mér þú áhugaverðastur"."
Strákur að sýna áhuga
Varirnar opnast.
Nasavængir hans þenjast og andlitssvipurinn verður allur
„opnari".
Hann reynir að ná athygli þinni.
Hann strýkur yfir bindið og sléttir kragann.
Hann sléttir eða ýfir á sér hárið.
Hann fitlar við sokkana sína og hysjar þá upp.
Hann lætur þig sjá að hann er að skoða á þér líkamann.
Hann stendur með hendur á mjöðmum.
Hann fitlar við hnappana á jakkanum sínum, hneppir að
sér eða frá.
Hann snertir andlitið á sér oft meðan hann horfir á þig.
Hann stýrir þér með því að taka um olnbogann á þér eða
leggja höndina á mjóhrygginn á þér.
Hann lánar þér yfirhöfn eða peysu.
„Hann lyftir ögn brúnum meðan þið spjallið saman.
Eilítill spurnarsvipur þýðir að honum finnst þú heillandi.
Eðasnarklikkuð.Sattaðsegjaerhvorttveggjaákjósanlegra
en karlmaður sem horfir á þig með sléttar og kyrrar brúnir
og augu. Þeim gæja finnst þú bara leiðinleg. "
Ráð til að auka kynþokkann
Lærðu að laða fram þinn eigin kynþokka. Það sem einum
finnst kynþokkafullt finnst öðrum kannski hörmung. Við
höfum öll eitthvað og þú verður að komast að því h vað það
er í þínu fari sem fólk laðast að. Tileinkaðu þér ákveðna
tækni og einblíndu á þínar bestu hliðar þegar kemur að
samskiptum við hitt kynið, hvað það er við þig sem gerir
þig sérstaka/nn.
Líttu út eins og kynfærið á þér!
Kannski ekki bókstaflega en allt sem minnir okkur á kynlíf
kveikir yfirleitt í okkur. Sköpin okkar verða „þrýstin", rök
og dökk á lit við kynferðisörvun þannig að það er ástæða
fyrir því að strákar falla fyrir þrýstnum, gljáandi, rauðum
vörum...
Gerðu varirnar á þér eins stórar og mögulegt er
Stórar varir og stór augu eru samkvæmt könnun talin mjög
aðlaðandi í fari kvenna.
Æfðu fallegt göngulag
Losaðu þig við stífnina og leyfðu mýktinni að taka
yfirhöndina.
Reyndu að eignast peninga - fyrir karlmenn
Eins sorglegt og það er þá laðast konur að peningum og
fallegu útliti. Það sem er þó enn sorglegra er að ef þær
þyrftu að velja á milli þessara tveggja þá yrðu peningar
fyrir valinu! (samkvæmt könnun sem var framkvæmd fyrir
Súperflört)
Forðastu oflof
Það er gott að hrósa en ef þú gerir of mikið af því verðurðu
óþolandi.
Láttu vita að þú heillist af manneskjunni
Við kunnum vel við fólk sem kann vel við okkur, láttu
aðdáun þína í Ijós.
Þú kannt að nota einn súper-sexí svip
„Besti svipurinn sem ég hef nokkurn tímann séð var á strák
sem sat andspænis mér á veitingahúsi. Hann leit uppeftir
mér, náði við mig augnsambandi, hélt því föstu, hallaði
sér aftur á bak, lagði frá sér hníf og gaffal og starði bara
á mig. Varirnar kipruðust í daufu brosi sem kom mér til
að líta niður á munn hans og þá beit hann í neðri vörina,
sleppti takinu hægt og svo, þegar augu mín leituðu aftur
upp aö hans, brosti hann. Það var ekki mig-langar-að-
kynnast-þér-bros. Það var ekki einu sinni ég-sá-þig-vera-
að-fylgjast-með-mér-bros. Þetta var rándýrs-bros: Við-
vitum-bæði-að-ég-gæti-gert-þig-örvita-af-nautn-bros.
Mig grunar að það hafi verið rétt hjá honum af því að það
lá við að ég missti ráð og rænu þar og þá, án þess að hann
kæmi einu sinni við mig."
5 atriði sem koma upp um hann í rúminu áður en
þú sefur hjá honum!
Hvernig matast hann?
Gefur hann sér tíma til að njóta hvers munnbita eða skóflar
hann í sig matnum? Gæjar sem klára sig af í rúminu i hvelli
og kveðja svo, klára líka BigMac á tíu sekúndum sléttum.
Ef hann er ekkert fyrir
tilbreytingu og tilraunir
í mataræðinu er hann \
varla liklegur til að fara í —gegnum -
Kama Sutra með þér þegar I svefnherbergíð
kemur. Sem sagt: einhæfar og íhaldssamar matarvenjur =
einhæft og íhaldssamt kynlíf.
Hvernig hreyfir hann sig?
Leitaðu að gæja sem dansar af innlifun’en virðist kæra
sig kollóttan um hvað öðrum finnst. Einhverjum sem
greinilega skynjar taktinn í tónlistinni. Ef hánn getur tapað
sér í henní er ekki ólíklegt að hann verði jafn ófeiminn í
svefnherberginu og til í að sökkva sér í sælu augnabliksins
-og þig.
Hlustaðu á hann tala
Náunginn sem fórnar höndum til áherslu og slær jafnvel
þjóninn óvart í leiðinni er fullur lífsgleði og ástríðu. Ef
ástríðurnargrípahannsvona utan veggjasvefnherbergisins
hvernig verður hann þá þegar þangað er komið?
Hvernig snertir hann þig?
Klappar hann vinum sínum á bakið og tekur þétt í hönd
þeirra? Eða stirðnar hann upp þegar aðrir voga sér of
nálægt honum? Þvi auðveldar sem hann á með að tjá
væntumþykju þeim mun umhyggjusamari og innilegri er
hann í kynlífinu.
Hvernig kyssir hann?
Prófsteininn! Ef kossinn er frábær verður kynlífið það
líka.
Fyrstu verðlaun í keppninni um „Efnilegasta elskhugann
á grundvelli kossa einna saman" fær þó gæinn sem notar
blandaða tækni - nartar, nagar, bitur og sleikir - og lætur
engan kima munns þíns ókannaðan.
Þetta allt og miklu miklu meira er að finna i bókunum
Súperflört og Súpersex eftir hina reynsluríku Tracey Cox.
Bækurnar eru frábær lesning fyrir einhleypa sem og pör
til að krydda upp á ástarlifið. Þar er að finna ótrúlegustu
staðreyndir um samskipti kynjanna og brögð fyrir þig til
að geisla af kynþokka.
EMT
til að geta náð öllu af?" Og til hvers að taka ALLT
af? Flestar þeirra sem hafa farið í gegnum þetta,
segja sér líða mun „hreinni" og „ferskari" og að
þetta auki sjálfsálitið hjá þeim um að minnsta kosti
nokkur stig.
Þetta fær mann kannski til að staldra örlítið við
og hugsa. Er kynlífsvæðingin orðin svo mikil og
pervertísk hér á landi að kvenmenn, sem komnar eru
af kynþroskaaldrinum verði að líta út fyrir að vera á
honum ennþá til að þeim finnist þær aðlaðandi? Að
sjálfsögðuertími Rauðsokkanna löngu liðinn og talið
er sjálfsagt að kvenfólk raki eða vaxi á sér lappirnar.
Og að sjálfsögðu þykir það ekki mjög aðlaðandi ef
þykkur brúskur gægist undan handarkrikanum, en
er ekki til einhver millivegur á milli þess að líta út
eins og meðal mammúti eða 9 ára barn að neðan?
íslendingar eru mjög nýjungagjarnir eins og flestir vita. Samkvæmt DV, sem greinarhöfundur
blaðaði í gegnum fyrir skömmu, erum við með kynóðustu þjóðum í heimi. Og eins og það sé ekki
nóg, virðumst við vera í efsta sæti yfir þá sem nýta sér aðstoð „hjálpartækja" í rúminu.
Ofantaldar staðreyndir hefði maður talið nóg til að
blygða siðgæðiskennd meðalhóru út í heimi, en þá
kom upp í huga minn nýjasta æðið sem gripið hefur
ungmeyjarlandsins. Þaðerhinsvokallaða „brasilíska"
vax-meðferð. Æf leiri stúlkur um eða yfirtvítugu skella
sér í eina slíka um það bil mánaðarlega. Til eru dæmi
þess að heilu saumaklúbbarnir séu haldnir í kringum
þetta, eða svokölluð „píkupartý" (er hér kannski
komin nýjasta fantasían hjá karlmönnum?) Heilu
hóparnir af stelpum í g-streng eða berar að neðan,
1-2 stykki snyrtifræðingar eða snyrtifræðinemar sem
þekkja til einhverra/r úr hópnum og PÚFF! Forboðni
þríhyrningurinn horfinn!
Þær sem ekki hafa prófað slíka vaxmeðferð furða
sig kannski á tilganginum, eða hreinlega hvernig
farið er að því að útfæra svona „aðgerð". „Verður
manneskjan ekki að hagræða einhverju þarna niðri
Hrafnhildur Hrafnsdóttir