Orðlaus - 01.12.2004, Síða 25
Gera: Fyrir utan það augljósa
(Splatter og klám) þá eru nokkrar
frábærar myndir sem ættu að passa
í videótæki hvaða rokkara sem er:
Evil Dead serían, Blues Brothers, allt
með uppvakningum, The Last Waltz,
Stop Making Sense, This is Spinal Tap,
Blade Runner, Cruisin', Robocop og
Cocksucker Blues.
Ekki Gera: Ekki fá spólu að láni hjá
vinum þínum. Horfið á bíómyndir
saman. Þú gleymir að skila þeim og
hún týnist á endanum. Og í hvert sinn
sem vinur þinn vill sjá myndina og
grípur í tómt hulstur þá hugsar hann
illa til þín.
Gera: Sem þumalputtaregla, gildir "því
síðara, því betra". Ef það fer að detta
úr, endilega haltu því síðu í hliðunum.
Að raka af sér hárið um leið og það fer
að þynnast er ekkert annað en önnur
tegund af comb-over.
Ekki Gera: Ef þú ert rauðhærð/ur,
ekki vera í afneitun eins og asni. Það
er ógeðslegt að sjá rauðhært fólk með
aflitað eða svart hár. Sjáðu Brian Jones,
Axl Rose eða Josh Homme. Að finnast
rauða hárið sitt Ijótt er fyrir smábörn.
Gera: Rokk snýst ekki um að berja
fólk. Þú mátt bara ráðast á einhvern
ef hann ræðst á þig eða þína nánustu
að fyrra bragði. Ef þú getur ekki friðað
viðkomandi eða einfaldlega gert grín
að honum þá skortir þig grundvallar
samskiptahæfileika og ert þar af
leiðandi félagslega þroskaheftur.
Ekki Gera: Ef að valda öðru fólki
sársauka er ástríða þin, hundskastu þá
í ofbeldisbransann og láttu DV ofsækja
þig. Rokk snýst um bróðerni, ekki að
vera ofbeldisfullur api sem engum
líkar við.
Að æla í leigubílinn
Kokkteilar
Strípur
Allar hljómsveitir
með bæði
gítarleikara
og plötusnúð
innanborðs
■ Bítlarnir
■ Eftirsjá
■ Barir sem
fótboltaleikmenn
sækja
• Kínversk tákn
• Nærbuxna
strengir upp úr
buxunum
• Hakkísakk
• Kvenfyrirlitning
• Svitabönd
• Þessar loðnu
bomsur
• Friends
• Að fara í Ijós
Eru svitabönd, litað hár og Scooter eitthvað sem heillar þig? Er draumur þinn að komast á forsíðu Séð & Heyrt eða vinna á FM 95,7? Hér á eftir eru nokkur
ráð til að vera aðalpopparinn en við skulum ekki gleyma reglu númer eitt, til að vera megapoppari þarftu að henda þínum smekk og kaupa allt sem þér er
selt. Kíktu á MTV og PoppTíví og veldu þér idol, eða farðu í idol, vertu „sell out" og sem mest „commercial".
Gera: Strípur og aftur strípur en þær
virðast ekki ætla að detta úr tísku.
Einnig er eiginlega alveg möst að vera
með styttur eða einhverja línu í hárinu.
Síðan nóg af vaxi, spreyi eða geli.
Ekki Gera: ALLS ekki safna hári og
vera alskeggjaður. Stelpur, alls ekki
vera með stutt hár.
BÍÓMYNDIR
DJAMMID
Gera: Blossi er málið ... setning eins
og „Við þurfum að finna einhverja
plánetu og halda partýinu gangandi"
er eins og töluð út úr munni hnakka og
þvi skyldueign. Einnig allar amerísku
skólamyndirnar, American Pie 1, 2,
og 3, allt með Adam Sandler, Fast
and the Furious 1 og 2 og auðvitað
Powersýningar í bíó.
Ekki Gera: Ekki leigja heimildarmyndir,
evrópskar myndir eða myndir sem enda
ekki vel. Þú ert bara ekki týpan fyrir
þær enda hefur þú engan áhuga á því
sem ekki er í lagi. Haltu þig bara við
Hollywood.
GR/l JIJU
Gera: Sveitaböll, Eldhúspartý og böll.
Að fara á djammið er eitt af þeim
skiptum þar sem hnakkinn lætur Ijós
sitt skína. Þar nota strákarnir pikköpp
línur óspart en stelpurnar fara í míní
pils og flegna boli. Það er líka mjög
vinsælt að vera með kassagítarpartý
og syngja lög eins og stál og hnífur,
djamma með Nýdönsk og fleiri íslenskir
hittarar, hitta alltaf beint í mark.
Ekki Gera: Ekki vera í eftirpartýi fram
á nótt. Reyndu frekar að næla þér í
einhvern/einhverja til að taka með þér
heim.
• Friends
• Brúnkuklefar
• Kokteilar
• Strípur og aflitað
hár
• Kínversk tákn,
Tribal tattoo
• G-Strengir
Gera: Bíll er algjört möst og þá helst ■
einhver lítill eins og Polo Mp3, Peugot I
206 eða Yaris með mega græjum í
þannig að þú getir blastað þær þegar |
þú keyrir niður Laugaveginn eða bara
út í sjoppu. Einnig er möst að vera með ■
flottan síma og þá helst setja hann I
utanum hálsinn.
Ekki Gera: Ekki aka um á druslu, |
það væri félagslegt sjálfsmorð ef það
myndi sjást til þín. Það er líka bannað ■
að vera með eldri en eins árs, þeir sem I
eru popp eru (eða vilja) alltaf vera með
allt það nýjasta.
Sólarlandaferðir
Idol
Pikköpplínur
Beisik
Heitt og sætt
með Kalla Lú
Heiðar Austmann
Líkamsrækt
Vínylplötur
Bjór
Hárlubbi
Dillon
’ Alskegg
Leðurbuxur
Bíldruslur
Lopapeysur
Dry áfengi
Kúrekastígvél
Hefur þig langað að upplifa lokaatriðið I 8mile og heyra ókunnungt fólk öskra nafnið þitt með hendur uppí lofti eins og það væri I Sómalíu að berjast fyrir
brauðhleif? Ertu orðin/n þreytt/ur á þröngu Diesel gallabuxunum og farin/n að kitla soldið í að klæðast baggies ? Ef svo er, þá mæli ég með að þú farir eftir
eftirfarandi ráðgjöf
, T"l\
i’ )h(
BÍÓMYNDIR
Gera: Ef þú átt ekki Scarface þá máttu
mín vegna skokka á vegg! Númer 1,2
og 3 að eiga hana. Svo eru myndir
eins og Menace 2 Society, Boyz N Tha
Hood, Training Day, Friday, Goodfellas,
og La Haine sem eru fokkin klassík! Ný
heimildarmynd um Jay-Z er á leiðinni
„Fade 2 Black", trailerinn er frekar
næs! Og siðast en ekki síst að fylgjast
með The Sopranos á RÚV. Ef ekki eiga
seríurnar á DVD, hver vill ekki vera eins
og Tony? HA!
Ekki Gera: Buffy The Vampire Slayer,
The Core (nema þú viljir míga í þig
úr hlátri) og sama með Driven (váá!).
Reyndu að halda þér frá öllum þessum
táningamyndum nema það búi smá R.
Kelly peepee týpa í þér og þú sért fyrir
gelgjuna. Fokkaðu þér þá!
DJAMMIÐ
Gera: Byrja á því að vera heima hjá
þér með mega hittara í blasti í stereo
græjunum og fá þér nokkur glös þar,
hringja I eitthvað lið (eins margar
stelpur og hægt er) og bjóða því til þín
með þeim skilyrðum að taka eins mikið
áfengi með sér og hægt er. Glúgg ...
glúgg ... glúgg. Röltu svo með liðinu
niður í bæ með Heine í einni og penna
í hinni til að bleka strætóskýlin, nema
þú búir upp í sveit (Grafarvogi og þar)
taktu þá bara Taxa. Byrjar á að fara á
staði eins og Kaffibarinn og reyna að
ná borði, sturta aðeins i þig þar og
beilaðu á liðinu til þess að fara að hitta
kærustuna á Prikinu. Jiggaðu aðeins
þar og bjóddu henni og vinkonum
hennar svo í hanastél niðrá BarBianco
og fáðu þér einn Campari, ladies love
it! svo bara bada búmm bada bing!!
Ekki Gera: Strákar: Fara á sopa fyllerí
og enda dauður heima hjá gellunni
sem þér fannst vera svo sexí en var svo
alveg hrikalega nastí morguninn eftir
og hún lætur þig ekki í friði næstu
mánuðina. Stelpur: Ekki grúbbíast of
mikið, alveg óþolandi að hafa ykkur
nagandi eins og hrægamma stundum.
SLANGUR
• iPod
I • Strætó
* • Antlew Maximum
„ • Koníak
I • Enska
• Sopranos
• Gullkeðjur
• Hettupeysa
• Peningar
• Körfubolti
• Afró hár
• Phillies
Gera: „Holla", „Back in '83", „Dunnie" ^
og öll sænsk slang!
Ekki Gera: „Meik 'ett ekki marr", I
„Bíddu.. ætlar'kki að djamma eðaa!",
allt sem tengist því að breyta ensku I
slangi yfir i íslensku til dæmis beatbox *
= kjaft taktur og eitthvað þannig! of _
ullarpeysulegt eitthvað!
• Trukkaderhúfa
• Kókaín
• Debetkort
• Ibiza
• Fótbolti
•Bónus
Suðurríkjafáninn
Motta
Kúrekahattur
Pee Wee Herman
Salem
Lögreglan