Orðlaus - 01.12.2004, Blaðsíða 29
Tiny: Nei, það á þetta einhver annar núna, ég var að
lesa það.
Sveppi: Ogvodafone var náttúrulega að kaupa
Norðurljós en svo þegar öllu er á botninn hvolft þá
eiga þeir þetta örugglega.
Tiny: Já gamli forstjóri Ogvodafone, hann Óskar
Magnússon, hann er gamall félagi fósturpabba míns
og fínn kall, hef ekkert á móti honum. En hann var
að vinna í Hagkaup þegar feðgarnir kaupa það og
Óskar er með einhvern ágreining út í Jón Ásgeir og
hann bara „Fokk off þú ert rekinn!" Ok, þá fer hann
að vinna einhvers staðar annars staðar og er bara
að vinna þar þangað til Jón Ásgeir kemur og segir
„Sorry en þú ert rekinn!" Síðan verður hann forstjóri
Ogvodafone og hann kaupir það lika og aftur „Sorry
þú ert rekinn!"
Sveppi: Hehehe, búinn að reka hann þrisvar.
Tiny: Já, þetta er bara svo mikil yfirlýsing. Þú fokkar
ekkert í þessum gaurum því þá...
Sveppi: Færðu bara aldrei aftur vinnu í þessum bæ.
Tiny: Já nákvæmlega, það fokkar enginn í þeim.
Hann ræður.
OFURHUGI
Tiny: Látið þið hann Huga gera allt það versta í
þættinum?
Sveppi: Já, sko þegar hann kom til starfa þurftum
við einhvern dagskrárlið fyrir hann. Þá hljómaði
Ofurhugi náttúrulega mjög vel, þar sem hann væri
að reyna ofurhugadót.
UM TENGDÓ
Sveppi: Þú átt kærustu?
Tiny: Já.
Sveppi: Ertu búinn að hitta foreldrana, ræða málin
og allt svoleiðis?
Tiny: Já já já.
Sveppi: Hvernig eru tengdaforeldrarnir?
Tiny: Þeir eru fínir.
Sveppi: Taka því vel að þú sért í rappinu?
Tiny: Já, þau eru voða inn. Pabbi hennar er held ég
52 ára og hann litar hárið og er svaka töffari. Ég held
meira að segja að hann hafi keypt sér leðurjakka um
daginn.
Sveppi: Já, það er cool.
Tiny: Mamma hennar er líka tappi.
Sveppi: Er hún skvísa, hvað er hún gömul?
Tiny: Hún er líka í kringum fimmtugt en lítur alls
ekki út fyrir að vera það. Lítur út fyrir að vera svona
35 ára.
Sveppi: Þú ert að skora fullt af stigum hjá henni ef
þetta verður birt.________________________________
UM NYLON-FLOKKINN
Tiny: Heyrðu, ég verð að spyrja þig. Hvaða Nylon-
stelpa finnst þér sætust?
Sveppi: Ég veit það ekki, ég á rosa erfitt með að
gera upp á milli af því ég hef ekki hugsað um það
Tiny: Já, mér hefur verið líkt við hann. En stundum
ákveðum við concept og síðan gerum við líka oft
það sem við köllum „jocking the dick"" þar sem ég
kem með eitthvað eins og bara... „ ég kem og.... ég
sting gaddavír upp í rassgatið á þér" eða þú veist
bara eitthvað. Síðan vinnum við út frá því... en það
er eitthvað allt annað en t.d. Straight Execution,
maður er miklu lengur að semja hann og mikið um
viðlíkingar og svona flóknara lag.
Sveppi: Er best að semja reiður?
Tiny: Já, það er lang þægilegast.
Sveppi: Eins og með okkur þá er til dæmis mjög gott
að fara fúll í falda myndavél. Þá er okkur einhvern
veginn miklu meira sama. Þá ruglar maður bara í
fólkinu og er alveg skítsama þótt að þetta fólk verði
brjálað út í mann. Ég ætla að fara og hrista aðeins
upp í því.
UM FÓLK SEM GERIR ALLT
FYRIR PENINGA
Tiny: Mér finnst alveg brilliant hvað þið gerið við
fólkið í stjórnun.
Sveppi: Já, það er fallegur dagskrárliður.
Tiny: Mér finnst að það ætti að vera skylda hjá
hverjum einasta landsmanni að horfa á þetta. Vegna
þess að ef þú lentir í þessu sjálfur þá verðurðu að
láta fólkið vita að þetta var ekki svona.
Sveppi: Það er nefnilega fullt af fólki eins og t.d.
Gísli Marteinn. Hann var alveg á nálum af því hann
varð að segja öllum sem hann talaði við að þetta
væri grín. Það er svo óþægilegt að fara heim og það
Tiny: Já já.
Sveppi: Þetta er svipað og ég var að gera þegar ég
var að byrja, í Sveppahornunum. Hugi er líka svo
grillaður, hann gerir allan fjandann. Það eina sem
við eigum eftir að ná í gegn er að fá hann til að
stökkva ofan af Gullinbrúnni.
Tiny: Er hann ekkert að meika það eða?
Sveppi: Hann er búinn að segja já en við erum alltaf
að bíða eftir því að það verði flóð.
Tiny: Þið verðið nú að henda björgunarvesti í hann.
Sveppi: Já, við verðum til staðar með einhverja
spotta og eitthvað dót.
Tlny: Mér finnst að það ætti að
vera skylda hjá hverjum einasta
landsmanni að horfa á þetta.
Vegna þess að ef þú lentir í
þessu sjálfur þá verðurðu að
láta fólkið vita að þetta var ekki
svona.
þannig.
Tiny: Jú jú, þegar ég
talaði við þig um daginn.
Ég veit ekki hvort þú
varst búinn að fá þér
nokkra bjóra eða...
Sveppi: Jú, ég meina,
þetta eru sætar stelpur,
enda myndi Einar Bárða
aldrei velja Ijótar stelpur
í þetta.
Tiny: Já maður verður
samt hálf móðgaður
því að 20-30 prósent
af markaðssetningunni
gengur út á það að þær
séu sætar.
Sveppi: Þú fílar Nylon.
Tiny: Ha! Já, ég er svona
nettur Nylonpervert.
Sveppi: Hlustarðu
þær?
Tiny: Nei, bara það sem
ég hef heyrt. En mér
finnst þetta bara... ég
meina, þetta eru sætar
stelpur.
Sveppi: Já, þær eru
ágætar.
Tiny: Svona beisik!
Sveppi: Hehehe.
Tiny: Hehehe.
Sveppi: En þetta er samt
svona, það er rosalega
mikið gert út á fegurð.
Tiny: Já, það er ekki eins
og þú sért í sjónvarpinu bara af þvi þú ert fyndinn.
Sveppi: Nei, það er af því að ég er gullfallegur.
Hehehe...
REIÐI EYKUR SKÖPUNAR-
GLEÐI & LÆTUR MANN
VERA SAMA!
Tiny: Þegar maður er reiður og byrjar að skrifa þá
koma textarnir bara á fimm mínútum.
Sveppi: Þá breytistu í Eminem.
Tiny: Ha, jaaaa...
Sveppi: Hehe, þér hefur nú verið líkt við hann.
er fullt af fólki sem heldur að þú sért bara eitthvað
klikkaður.
Tiny: Já nákvæmlega.
Sveppi: Það er mjög fyndið og við ætlum að halda
þessu áfram þegar við komum upp á Stöð 2. Þá ætlum
við að halda áfram að vera með stjórnun en gera það
aðeins betur. Eins og að hafa kannski myndavélar á
fólki þannig að við sjáum viðbrögðin þeirra.
Tiny: Já, af hverju farið þið ekki og fokkið einhverjum
pólitíkus upp með því að láta t.d. Leoncie, hún
skemmtir fyrir 25.000 kall og strippar fyrir meira.
Sveppi: Nei!
Sveppi: En það er nefnilega dagskrárliður sem við
erum með sem heitir geggjuð græðgi. Þar sem við
ætlum að fara út í bæ með 50.000 kr. í beinhörðum
peningum og spyrja fólk: „Ertu tilbúinn til að pissa í
buxurnar fyrir 50.000 kr? Eða eitthvað.
Tiny:Já.
Sveppi: Það gæti orðið svolítið skemmtilegt að sjá
hvað íslendingar eru tilbúnir til að ganga langt fyrir
peninga.
Tiny: Ég held að þetta eigi eftir að virka vel. Því eins
og Bingó-þátturinn þar sem fólk er að láta tattoo á
sig. Ég var að reyna að koma vini mínum að og talaði
við Villa. Hann sagði bara: „Það eru milljón manns á
biðlista og það er ekki nema hann vilji gera eitthvað
rosalegt, eins og að tattooa á sér punginn.
UM GAMLÁRSKVÖLD
Sveppi: Hvað á að gera á gamlárskvöld?
Tiny: Það er bara partý, partý. En þú, bara rólegur?
Sveppi: Já gamlárskvöld er alveg hundleiðinlegt
kvöld.
Tiny: Ég man eftir því þegar ég var tekinn af
löggunni kvöldið áður. Þá vorum við búnir að kaupa
alveg fullt af froskum (grænir kínverjar sem springa).
Þá var einhver gaur sofandi í kjallaraherbergi í blokk
þar sem við geymdum þetta og það kviknaði í öllu
hjá honum.
Sveppi: Já... fórstu í fangelsi?
Tiny: Nei, ég var allt of ungur, ég var svona 12 ára en
ég fékk ekki að fara út á gamlárskvöld.
Sveppi: Það er líka allt í lagi því gamlárs er bara
tvöfalt dýrari leigubílar. Tvöfalt erfiðara að fá þá og
kostar alltaf rúmlega 2.000 kr. inn á staði, þá tímir
maður ekki að fara út af staðnum og siðan er allt vín
líka dýrara.
Texti: Hrefna Björk.
Myndir: Gúmbi.