Orðlaus - 01.12.2004, Síða 51
Meiri, meiri peningaaaa ...
Á árinu tóku bankarnir þá ákvörðun að vilja lána
okkur meira. Tölvukaupalán, yfirdráttarheimildir
og bílalán voru ekki lengur nóg fyrir landann. Núna
skyldum við fá 100% íbúðarlán og þar með fengu
bankarnir það sem þeir vildu, fullt vald yfir þegnum
sínum.
það tónleikarnir, góða veðrið,
slúðrið og allt kynlífið sem
situr eftir h]á þér? Hvað um
það ... þetta er eitthvað af
því sem gerðist á árinu!
Kynlifssjúkir íslendingar
Við fengum það staðfest að íslendingar byrja að
stunda kynlíf yngstir allra þjóða þegar árlega Durex
könnunin kom út. Meðalaldurinn var 17,7 ára en
íslendingar byrja að stunda kynlíf rétt rúmlega 15
ára gamlir. Samkvaemt könnuninni erum við líka
ein af þeim þjóðum sem finnst skemmtilegt að
nota hjálpartæki til að krydda upp á kynlífið og
eigum marga rekkjunauta. Þetta kynlífsmet ýtir að
sjálfsögðu undir þjóðarstoltið og fer á blað með
öðrum afrekum okkar.
Tölvuböstið
Margir byrjuðu að svitna í septembermánuði þegar
lögreglan lagði hald á tölvur nokkurra manna
sem höfðu verið iðnir við að hlaða inn tónlist og
kvikmyndum af netinu og dreifa því til annarra.
Slíkar aðgerðir eru ólöglegar en afar einfaldar í
framkvæmd og þvi má áætla að þúsundir annarra
íslendinga séu sekir um lögbrot af þessu tagi. Afar
ólíklegt er að það náist að stöðva þessa þróun og
því verða niðurhalararnir bara að lifa með þetta á
samvisku sinni.
Oópsalar og handrukkarar
Á árinu tók Björn Sigurðsson sig til og birti
nöfn nokkurra meintra dópsala á heimasíðunni
dopsalar.tk sem var stofnuð sérstaklega fyrir þetta
framtak. Skoðanir manna á uppátækinu voru mjög
mismunandi. Sumir sögðu tími til kominn á meðan
aðrirtöldu þetta vera harkalegt mannorðsmorð þar
sem engar sannanir lægju á bak við listann. Auk
þess væru þar nöfn fyrrverandi fíkla og saklausra
einstaklingasemættuekkertheima meðhættulegum
glæpamönnum. Að kröfu Persónuverndar varð Björn
að loka síðunni tímabundið.
Björn var ekki einn um að treysta ekki dómskerfinu
því blaðamenn DV voru einnig orðnir þreyttir á
aðgerðarleysi yfirvalda í ofbeldismálum. Blaðið tók
málin í sínar eigin hendur og höfðaði stríð gegn
handrukkurum sem brugðust við eins og þeir gera
best og réðust á blaðamann. Ritstjórn DV lét það
atvik þó ekki hræða sig og hélt stríðinu áfram. Sama
hvað mönnum þykir um þessi uppátæki hefur þetta
allt saman verið mjög vandræðalegt fyrir lögregluna
og dómsyfirvöld.
•miausnn
Eru Sameinuðu
þjóðimar úreltar?
Fjölmiðlavaldið
Fjölmiðlar spiluðu stóran hlut á síðasta ári og sýndu
og sönnuðu hversu valdamiklir þeir eru. Með því að
fylla blöðin, fréttatíma og umræðutíma á rökum
með og á móti fjölmiðlalögunum náðu fjölmiðlarnir
að draga alla þjóðina inn í umræðuna. Allir virtust
hafa skoðun á málinu, þrátt fyrir að vita varla hvaða
lög var verið að ræða um.
Á árinu ákváðu símafyrirtækin líka að kaupa stærstu
miðlana. Síminn keypti Skjá 1 og Ogvodafone nældi
sér í Norðurljósarisann.
Kúrekastigvél og loðkragar
Tiskan árið 2004 einkenndist af second hand stíl frá
toppi til táar. Einnig var mikið um alls kyns fylgihluti;
nælur, slæður, belti, hálsmen og flottartöskur. Stígvél
tröllriðu öllu og þá sérstaklega kúrekastígvélin sem
voru mjög áberandi. Tískan fram á haust einkenndist
þó af tilbreytingarleysi og var einstaklega einsleit.
Gallabuxur, stígvél, gallapils og meiri gallabuxur.
Hausttískan breytti miklu og var þar að finna mun
kvenlegri línur en hafa sést í búðunum í langan tíma
og allt fylltist af ullarefnum, silki og loði sem var
bæði notað sem lausir kragar og í pelsa. Loðbútsin
ógurlegu komu í búðirnar en við vonum að þau fylgi
okkur ekki fram á næsta ár. Diesel hélt síðan áfram
að halda ungu kynslóðinni í gíslingu.
w
tk
Stjörnuskandall
Siðferðismörk íslendinga teygðust á árinu.
Staðið var fyrir góðgerðartónleikum til styrktar
krabbameinssjúkum börnum á dögunum. Ekki
vantaði áheyrendur og safnaðist dágóð summa
fyrir börnin, eða hvað? Nei, einungis brotabrot af
þeim milljónum sem komu i kassann fóru til þeirra
veiku barna sem þurftu á peningunum að halda.
Stórstjörnurnar þurftu að fá eitthvað fyrir sinn snúð
og þá duga auðvitað engir þúsundkallar og heilmikill
kostnaður fór í græjur og annað dót. Já, það er erfitt
að vera stjarna ...
Ekki i okkar nafni
Þjóðarhreyfingin trúir á íslendinga! Já, stórum
hópi manna var gjörsamlega misboðið þegar tveir
ráðherrar ákváðu að styðja innrás Bandaríkjamanna
í írak í íslands nafni. Nú slá nokkrir menn hnefanum í
borðið og Þjóðarhreyfingin hyggst birta auglýsingu
í New York Times til þess að biðja írösku þjóðina
afsökunar. Til þess þurfa þeir þó að safna dágóðri
summu því eins og allir vita eru auglýsingar ekki
ókeypis. Þeir sem vilja sýna stuðning geta hringt í
síma 902-0000 og gefið þúsundkall.
Tæknivætt ísland
Island hélt áfram að umbylta tækninni sinni á
árinu. Fyrstu skrefin að digital íslandi voru tekin í
nóvember og auðvitað vildu allir vera með. Fólk slóst
um örbylgjuloftnetin en þeir sem voru of seinir urðu
bara að bíta í það súra epli og punga út meiri pening.
Þráðlaust net var önnur bóla sem sprakk á árinu og
svokallaðir heitir reitir spruttu út um allt. Nú geta
allir setið tímunum saman á kaffihúsi (eða í bílnum
fyrir utan eitthvert kaffihúsið) eða bara legið uppi í
rúmi og vafrað á netinu eins lengi og þeim lystir og
horft á yfir 40 stöðvar í sjónvarpinu á meðan. Síðan
ákvað netfyrirtækið Hive að bjóða ókeypis niðurhal.
Getum við beðið um meiri lúxus?
Fegursta framhaldsskólamærin
Ef menn héldu að nóg væri komið af
fegurðarsamkeppnum á islandi þá voru menn
eitthvað að misskilja. Að minnsta kosti tókst Ásdísi
Rán að efna til enn annarrar keppninnar á árinu sem
var fegurðarsamkeppni framhaldsskólanna. Keppnin
fékk nafnið isdrottningin og kepptu stelpurnar um
titlana ísdrottningin 2004, Kjörís-stúlkan og Gosh
andlitið.
Fyrsta peepshow búllan opnaði í Reykjavík á árinu.
Það var hann Geiri é Maxims sem ákvað að hressa
upp á miðborgarlífið með því að bjóða gestum og
gangandi upp á erótíska sjálfssalastemmningu. Gæti
verið fín auglýsing fyrir ferðamannaiðnaðinn.