Orðlaus - 01.12.2004, Side 52
Umræda um Freysa og útvarpsþáttinn
hans á X-inu var mikil á dögunum
vegna þess að fólki fannst hann vera
of kjaftfor. Vissulega getur verið að
mörgum finnist það en gleymir þá
kannski að rýna í texta á lögum sem
geta verið mjög grófir ... til dæmis
segist Igor aldrei segja nei við grasi og
Krummi i Mínus segist heita kókaín.
Ef við lítum til baka er fyndið að sjá
hvernig siðferði manna hefur breyst
með árunum og skoða það sem var
bannað þá hjá BBC.
Á\
&
ÍHáJ
eee^ Eiríkur - Conversation
& fm <&) <2l &
Invite Block View Profilc Send File Save
j To:Einkur <kolbrunarskald@hotmail.com>
Lög sem hafa verið bönnuð ...
Ricky Valance
Tell Laura I Love Her (1960).
Þetta einslagsundur er um mann sem
deyr i kappakstri og var bannað á BBC
vegna tilvísunar í dauðann.
The Beatles
A Day In The Life (1967).
Útvarpsstöðin var ekki hrifin af
textasmíðum þeirra um holur í Royal
Albert Hall, þar sem þeir töldu það
vera tilvísun í eiturlyf.
The Beatles
The Ballad Of John And Yoko
(1969)
Orð John Lennons „Christ, you know it
ain't easy" fóru jafn mikið fyrir brjóstið
á sumum eins og fyrri ummæli hans
um Jesú „The Beatles are bigger than
Jesus". Þrátt fyrir að BBC bannaði lagið
náði það á topp vinsældalistans.
The Beatles
Come Together (1969)
Lagið var bannað vegna reglu BBC við
auglýsingum í lögum, en Coca Cola
kemur fyrir í textanum.
Jane Birkin & Serge Gainsbourg
Je t'aime (1969)
Þú þarft ekki að skilja frönsku til að
heyra að hér eru samfarahljóð á ferð.
Þegar lagið náði á toppinn var spiluð
„instrumental"-útgáfa af laginu í Topp
of the Pops.
John Lennon & Plastic Ono Band
Working Class Hero (1970)
Tvö „fuck" tryggðu það að BBC gæti
bannað lagið sem er af fyrstu sólóplötu
Johns.
Max Romeo
Wet Dream (1969)
BBC trúði ekki afsökun reggie-
stjörnunnar Romeo um að lagið væri
um loftið í svefnherberginu hans!
The Kinks - Lola (1970)
Líkt og í „Come together" með
Bitlunum kom orðið Coca Cola fyrir í
textanum hjá Kinks. Þeir breyttu því
síðan seinna í Cherry Cola.
Rolling Stones
Star Star (1973)
Loksins náði Stones að tryggja sér
sæti á bannlista BBC með orðinu
„Starfucker".
Dead Kennedys
To Drunk To Fuck (1980)
Ameríska punkgoðið, Jello Biafra, varð
seinna talsmaður málfrelsis og barðist
gegn alls kyns ritskoðun. Lagið náði
á topp 40 á breska vinsældalistanum
með laginu sem var bannað .... getiði
af hverju?
Frankie Goes To Hollywood
Relax (1983)
„Suck to it" og „"When you wanna
come"" voru setningar sem fóru fyrir
brjóstið á dj-inum Mark Read. Hann
lét því banna fyrsta lag leðurklæddu
Liverpoolverjanna, „Frankie Goes to
Hollywood".
George Michael
I Want Your Sex (1987)
Hefði hann verið kominn út úr
skápnum á þessum tíma hefði lagið án
efa verið bannað um allan heim. Þrátt
fyrir að þeir hefðu ekki haft hugmynd
um kynhneigð hans fannst þeim lagið
of gróft.
Stranglers - Peaches (1977)
Pönkararnir breyttu seinna texta
lagsins þar sem hinu „móðgandi" orði
„clitoris" var skipt út fyrir „bikini".
Birtist í Mojo-special adition 2004.
Never give out your password or credit card number in an instant message conversation.
Bókmenntir eru
ekki vinsælar
- Eiríkur Örn Norðdahl og Hugsjónadruslan hans.
Haukur [hauxotron@hotmail.com] says:
Hæ Eiki. Ég var að spá að taka við þig viðtal hérna, af því að
þú varst að gefa út þína fyrstu skáldsögu, Hugsjónadrusluna.
Ert sívinsæll á öldum Ijósvakans. Túraðir landið með Ödda
Mugison. Varst í Silfri Egils. Almennt fínn gaur. Vinsæll í
partýum. Meistari sjokkljóðsins. Etc. Þú til í það?
Eiríkur [kolbrunarskald@hotmail.com] says:
Já já, hinkraðu samt augnablik, það eru einhverjir túristar hérna
sem ég þarf að afgreiða.
Eiríkur says:
Ok, skjóttu.
Haukur says:
Hvað, þú ert alltaf að skrifa bækur og svona?
Eiríkur says:
Jú jú, sískrifandi.
Haukur says:
Telurðu þig vera rithöfund? Eða íhlaupamann?
Eiríkur says:
Ég tel mig bara vera Eirík, eiginlega
skáld, höfundur, rithöfundur,
ihlaupamaður, næturvörður,
íhlaupamaður, brandarakarl,
skemmtanast jóri, meistari hins islcnska
viðtals, og svo framvegis. Ef þú skilur
hvað ég meina.
Haukur says:
Um hvað er þessi bók þin eiginlega?
Eiríkur says:
Það er voðalega leiðinlegt að tala nm
söguþráð, ég er búinn að þurfa að kynna
mig til leiks við upplestra svona 5
þúsund sinnum á síðastliðnum tveimur
vikum, og er satt að segja kominn með
skítleið á því að ljúga því upp að ég
geti sagt frá því um hvað bókin fjallar
í nokkrum skorinorðum setningum. Ef
það væri hægt, þá hefði ég ekki skrifað
bókina, heldur nokkrar skorinorðar
setningar.
Haukursays:
Ókei. En er þetta „þroskasaga
ungs karlmanns" eins og Úifhildi
Dagsdóttur er tíðrætt um? Þroskast
söguhetjan Þrándur eitthvað?
Að hve miklu leyti er persóna
prótagónistans Þránds fulltrúi Eiriks
Arnar Norðdahl og er sagan að
einhverju leyti sannsöguleg?
Eiríkur says:
Upprunalega var á henni undirtitillinn
‘vanþroskasaga’. Það er að mörgu leyti
pælingin á bak við hana. Þetta er tilraun í nánd, og hvað getnr
komið fyrir fólk sem sækist raunverulega eftir nánd, frekar en
bara að sætta sig við að „konur séu frá Mars og karlar frá Venus“
eða hvernig það var. Ég bjó Þránd til, hann er karakter sem er
eitthvað skyldur mér, það eru í okkur sameiginlegir þræðir. Eitt
af vandamálunum sem fylgir því hins vegar að hafa klárað svona
bók, fyrstu persónu skáldsögu, er að ég, sem afskaplega áhrifagjarn
einstaklingur, hef orðið fyrir miklum áhrifum af Þrándi, og hef
eftir að bókinni lauk mætt krísum af viðlíka taugaveiklun og
Þrándur. Það er svo annað mál að það eru atriði í bókinni sem
hafa komið fyrir fólk, bæði mig og aðra, en það er ekkert öðruvísi
en í öðrum bókum.
Haukur says:
Er Þrándur þá inni í þér? Og áttu kannski einhverja fleiri
fulltrúa innan sögunnar?
Eiríkur says:
Hann var það aðallega síðasta sumar... Nú er ég undir áhrifnm frá
öðrum - en þetta fólk er auðvitað meira og minna fulltrúar mínir,
ég er nú einu sinni maðurinn sem skrifaði þau...
Haukur says:
En heyrðu já, er ekki nóg talað um þessa bók? Eða jú mig
langar aðeins að vita eitt. Hvaða væntingar hefurðu til
hennar nú þegar hún er komin í búðir? Áttu von á því að
verða rithöfundur og fá borgað og vera elskaður? Gestur í
Gísla Marteini? Eða virðingu frá jafningjum þínum?
Eiríkur says:
Ég veit ekki hvers ég á að vænta. Einhver benti mér á að Arnaldur
hefði sjálfur ekki byrjað að selja bækur fyrr en á sinni fjórðu -
þannig að ég geri síður ráð fyrir að hún seljist. Ég geri aðallega
ráð fyrir að skrifa nýja bók. Og kannski fá smá svefn milli jóla og
nýárs.
Haukur says:
Þú ert líka skáld - af hverju eru Ijóð svona vinsæl núna? Hvað
gerðist? Ég fór á Grandrokk á Ijóðakvöld um daginn og það
var bara miklu meira af liði en á tónleikum. Fólksfjölgunars
prengingin?
Eiríkur says:
Sko...Já,cruljóðvinsæl?Æi...Égvildisamtaðþauværuskemmtilegri,
öll skemmtilegri - ég elska nýhil og finnst nýhilkvöldin brilljant,
en þau eru lika að verða endurtekningasöm - ég hef verið á þeim
öllum næstum því, bæði hér heima og i Berlin, og ég er kannski
bara kominn með leið á þvi að heyra sömn Ijóðin aftur og aftnr...
Bæði úr eigin munni og annarra, mér leiðist þetta, ég vil að það
fari að gerast eitthvað fleira en bara að fólk mæti á Ijóðakvöld og
það séu læti. Það er kannski að verða til eitthvað venue - verða til
fullt af bílsskúrsböndum, en það vantar rokkst jörnurnar. Og ég
myndi nú heldur ekki segja að þó að 60 manns mæti á Grandrokk
einu sinni i mánuði, þá þýði það að Ijóðið sé orðið vinsælt.
Haukur says:
Hvernig stóð annars á þessari mugímaníu? Að þú fórst á
túrinn og hvað gerðist í honum?
Eiríkur says:
Já, ég fór bara af þvi við Öddi erum vinir, og okkur langaði að
hanga saman, eiginlega, og vorum báðir með pródúkt til að kynna
sem var að koma út á sama tíma, svo túrinn var ágætis afsökun til
að detta i það út um allt land.
Haukursays:
Hann hefur fengið meginþorra athyglinnar?
Eiríkur says:
Ha ha... já, auðvitað, eins og ég
segi, bókmenntir eru ekki vinsælar.
Menntaskólakrakkar sögðu við
mig án þess að blikna að þeim hefði
þótt lesturinn frábær, og þetta væri
ábyggilega skemmtileg bók, en þau
læsu hana alveg garanterað ekki.
Af því þau læsu bara almennt ekki.
Á Egilsstöðum hópuðust svona 40
flissandi smástelpur í kringum
Ödda - sem hafði nota bene ekkert
við þær að gera enda hálfgiftur
maður með barn á leiðinni - og
hlógu að bröndurunum hans meðan
hann áritaði diska. Til mín kom
einn bólugrafinn strákur úr fyrsta
bekk og spurði hvort þetta væri
ekki erfitt, að vera svona óvinsæll.
Haukur says:
Var þetta þá ein vonbrigðaferð?
Eiríkur says:
Nei, ferðin var mögnuð. Öddi er
magnaður ferðafélagi, og fullt af
fólki var mjög ánægt með lcsturinn.
En það er það sem ég segi: Það er
þetta með samanburðinn, ef maður
færi á túr með Tom Waits myndi
maður ábyggilega skjóta sig í
hausinn eftir fyrsta giggið - en já,
þetta var bara frábært, frábærlega
tekið á móti okkur alls staðar, gott
að borða, gaman gaman, frábært,
orð fá því ekki lýst.
Haukur says:
Engin ævintýri sem komast fyrir í
einni málsgrein eða svo?
Eiríkur says:
Hmmm... nei varla, læsti mig einu sinni út af hótelherbergi... Lárus
í 12 tónum daðraði stanslaust við mig (hann er eina grúppian
mín)... Dýri á hótel Öldunni hellti okkur augafulla og var almennt
bara ótrúlega magnaður.
Haukur says:
Hér koma nokkur random skot: Er merkilegt að vera frá
ísafirði? Af hverju? Breytir það einhverju fyrir þig? Er ekkert
skrýtið að þeir unglingsstrákar sem fá bókina þína í jólagjöf
eigi eftir að rúnka sér við hana? Og hefur þú rúnkað þér við
hana? Hvað finnst þér um klám á netinu? Ertu feministi?
Eiríkur says:
Já, það er merkilegt að vera frá ísafirði. Fyrst og siðast af því
ísland er að verða meir og meir Rcykjavíkurmiðað samfélag, þar
sem 101 hringsnýst í kringum rassgatið á sjálfu sér - í samfélagi
hinna blindu er ncfnilega eineygði maðurinn svolítið spes.
Haukur says:
Hatarðu þá 101 fólkið eða ertu að gefa því merkilega innsýn
I eigin tilvistarkreppu?
Eiríkur says:
Nei, ég hata engan - en 101 er að verða svolítið einsleitt krú,
kannski var það það alltaf og ég bara tók ekki eftir því. „Og já, ég
er femínisti, en ekki eins og þú heldur,“ segir Eirikur og dregur
augað i pung til að leggja áherslu á mál sitt.
Haukur says:
Þetta er rugl - ég held það sé nóg komið. Sendi þér sennilega
yfirlestur á morgun. Þú kúl með það?
Eiríkur says:
Já, fínt, fer líka að liða að skúringu hjá mér.
Haukur says:
Heyrðu, whatever. Ég ætla beila góða nótt Eiki! og gangi þér
vel að skúra!
Eiríkur says:
Ókídókí. Blæbbs.
hauxotron@hotmail.com
4 Font “ » Emoticons
Sertd