Bændablaðið - 24.02.2006, Page 4

Bændablaðið - 24.02.2006, Page 4
4 Þriðjudagur 28. febrúar 2006 Bjarni Jónsson hjá Norður- landsdeild Veiðimálastofnunar sagði í erindi sem hann flutti á Fræðaþingi landbúnaðarins að talsverðir ónýttir möguleikar væru hér á landi í álaveiðum. En tilfinnanlega skorti meiri rann- sóknir og þekkingu á lífssögu álsins, vexti, aldursdreifingu og stofnstærð eftir svæðum svo að skipuleggja megi sjálfbærar veiðar á álum á Íslandi. Sérstak- lega virðast veiðar á bjartálum geta gefið góða raun. Bjarni hefur manna mest rann- sakað ál á Íslandi frá árinu 1999. Þær rannsóknir hafa ekki síst beinst að göngum glerála til lands- ins, útbreiðslu, vistfræði og teg- undasamsetningu ála. Þessar rann- sóknir sýndu fram á að ál er að finna í öllum landshlutum. Glerál- ar hafa veiðst á 30 stöðum á land- inu. Tvær megintegundir ála eru til í heiminum: Evrópuáll og Ameríku- áll. Ísland er eina landið þar sem bæði er að finna Evrópuál og kyn- blending við Ameríkuál. Hér á landi nýtir állinn sér fjölbreytt bú- svæði í ám og vötnum og þá er hann að finna í heitum lækjum, köldum og dimmum hraunsprung- um eða í fullsöltum sjó við strönd- ina. Áður var talið að glerállinn væru þrjú ár úr Þanghafinu, þar sem állinn gýtur, og til Íslands. Rannsóknir á daghringjum í kvörnum glerála sýna að hann er ekki nema eitt ár á leiðinni. Hér á landi er meirihluti ála hrygnur en kynákvörðun ála er umhverfisháð og fer kynjahlutfall ála almennt annars staðar á útbreiðslusvæði þeirra eftir búsvæðum. Hrygnan er eftirsóttari til veiða en hængurinn vegna þess að hún hefur meiri vaxtarmöguleika og verður stærri en hængurinn. Vannýttir möguleikar eru fyrir hendi í álaveiðum á Íslandi Hitastig hefur farið hækkandi á jörðinni síðustu áratugi. Vís- indamenn eru nú farnir að tengja breytingar á lífríki við hnattrænar breytingar veður- fars. Í íslenskum vatnakerfum hafa langtímamælingar á ástandi laxa- seiða sýnt fram á aukinn vaxtar- hraða laxaseiða, aukningu í heild- arlífþyngd seiða á flatareiningu og lækkandi aldur gönguseiða. Á sama tíma fækkar bleikju í vötnum en urriði sækir víða í sig veðrið. Veruleg breyting hefur orðið á dvalartíma laxins í sjó þannig að stórlaxi fækkar verulega en fjöldi smálaxa stendur í stað eða fjölgar. Ný tegund flatfisks hefur gert sig heimakomna á ósasvæðum áa. Leitt er að því líkum að allar þess- ar breytingar séu hugsanlega fyrstu vísbendingar um áhrif hnatt- rænnar hlýnunar á lífríki fersk- vatns hérlendis. Þetta kom m.a. fram í erindi þeirra Þórólfs An- tonssonar og Guðna Guðbergsson- ar, starfsmanna á Veiðimálastofn- un, á Fræðaþingi landbúnaðarins. Hefur áhrif á umhverfi og lífríki Í útdrætti, sem gefinn var út fyrir þingið, segir að nú sé almennt viðurkennt að hitastig á jörðinni fari hækkandi og því hefur verið spáð að það komi til með að hækka um 3°C fyrir lok þessara aldar. Í erindi Þórólfs og Guðna segir að þekkingu skorti á því á hvern hátt hækkandi hitastig muni koma fram á umhverfi og lífríki. Líklegt sé að útbreiðslu- mörk tegunda muni færast norðar og jafnframt hærra yfir sjó þar sem svo háttar til. Jafnframt að syðri útbreiðslumörk tegunda muni einnig færast norðar. Í erindinu segir að á undan- förnum árum hafi komið fram breytingar á fiskstofnum fersk- vatns á Íslandi. Sýnt hafi verið fram á áhrif umhverfisþátta á stofnstærð fiskistofna og sameig- inlegar sveiflur á stórum haf- svæðum. Verulegar breytingar á fiskistofnum ferskvatns Fram kom að kerfisbundnar mælingar á stærð og ástandi fiskistofna ná ekki langt aftur í tímann, en þrátt fyrir það eru mælingar farnar að nema veru- legar breytingar á fiskstofnum ferskvatns og jafnvel tegunda- samsetningu hin allra seinustu ár. Sem dæmi má nefna að veru- leg breyting hefur átt sér stað í meðallengd laxaseiða í Selá og Hofsá frá því mælingar hófust árið 1979. Meðallengd eins árs seiða í lok tímabilsins er orðin meiri en meðallengd tveggja ára seiða í upphafi tímabilsins og meðallengd tveggja ára meiri en þriggja ára. Marktækur munur er á meðallengd fyrstu 10 áranna og síðustu 10 áranna innan hvers ár- gangs bæði í Selá og Hofsá. Þessi lengdaraukning með tíma gæti á hinn bóginn bent til lang- tímabreytinga í umhverfisþátt- um. Áhrif loftslags- breytinga á fiski- stofna í ferskvatni Spurt eftir byggingalóðum á Blönduósi Í langan tíma hefur íbúðahúsnæði ekki verið byggt á Blönduósi en að undanförnu hefur verið spurt um byggingalóðir. Þess vegna tók bæjarráð málið fyrir á fundi sínum fyrir skömmu. Þar var lagður fram listi um lausar lóðir en þær eru við Garðabyggð, Brekkubyggð, Sunnubraut og Smárabraut. Einnig hefur svæðið við Blöndubyggð, frá blokk við bakka Blöndu og niður til sjávar verið deiliskipulagt og er þar gert ráð fyrir 10-12 lóðum. Síðan eru til stakar lóðir í gömlu hverfunum. Ágúst Þór Bragason, formaður bæjarráðs, sagði að þeir sem væru að spyrja um lóðir væru bæði fólk sem hyggur á flutning til Blönduóss og sömuleiðis heimamenn sem vilja byggja og breyta til. Atvinnuástand á Blönduósi er gott um þessar mundir að sögn Ágústar. Verið er að byggja upp iðnaðarhúsnæði sem brann í fyrra og fyrirtækjum á Blönduósi hefur gengið þokkalega vel. Hann segir menn sjá fram á eflingu í sláturhúsinu og kjötinu. Síðan fjölgar störf- um á sýslumannsskrifstofunni þegar sektarinnheimtan fyrir landið verður flutt til Blönduóss. ,,Við sjáum því fram á einhverja fólksfjölgun og viljum vera til- búnir í lóðamálunum þegar þar að kemur,“ sagði Ágúst Þór Bragason. Þessir heiðursmenn voru að hlaða vöruflutningabíl hjá MS á Selfossi þegar Bændablaðið bar að. Frá vinstri, hleðslusérfræðingarnir Magnús Eyjólfsson, og Þórarinn Daði Sverrisson og bílstjórinn Tómas Hassing. „Aðalfundur Félags kúabænda á Suðurlandi, haldinn 13. febrúar 2006 í Árhúsum, Hellu, beinir því til Landssambands kúa- bænda að fá kjarnfóðurskatt niðurfelldan nú þegar.“ Þannig hljóðar tillaga, sem var sam- þykkt með öllum greiddum at- kvæðum á fundi FK. Í greinar- gerð með tillögunni segir: „Kjarnfóður á Íslandi er um 50% dýrara en í nágrannalönd- um okkar og stafar það af kjarn- fóðurtollum til að vernda inn- lendar fóðurverksmiðjur gegn innflutningi tilbúins kjarnfóð- urs. Er raunin sú að aðeins eru tvær fóðurverksmiðjur eftir og virðast þær vera búnar að skipta markaðnum á milli sín. Engin virk samkeppni virðist eiga sér stað og verðmyndun kjarnfóð- urs á Íslandi virðist vera úr sam- bandi við heimsmarkaðsverð á kornvörum og gengi krónunn- ar.“ Fósturvísar verði fluttir inn Aðalfundurinn samþykkti einnig - með 23 atkvæðum gegn 10 - til- lögu um innflutning á erfðaefni til kynbóta á íslensku kúnni. Tillagan hljóðar svo: „Aðalfundur Félags kúabænda á Suðurlandi, haldinn 13. febrúar 2006 í Árhúsum, Hellu, beinir því til Landssam- bands kúabænda að sækja um heimild til að flytja inn fósturvísa úr erlendu kúakyni. Þeir verði nýttir í tilraun með kynbætur á ís- lenskum kúm.“ „Íslenskir kúabændur eru að verða verulegir eftirbátar ná- grannaþjóða okkar með kúakyn þar sem íslensku kýrnar ná ekki að mjólka nærri jafnmikið og stöllur þeirra erlendis, einnig er júgurgerð þeim langt að baki. Vegna lítils ræktunarhóps á Íslandi verður munurinn á okkar kúm og öðrum stórum ræktunarkynjum sífellt meiri. Þetta gerir það að verkum að munurinn á framleiðslukostnaði á Íslandi og nágrannalöndum okk- ar verður sífellt meiri,“ segir í greinargerð með tillögunni. Sunnlenskir kúabændur Vilja innflutning á fóstur- vísum og niðurfellingu kjarnfóðurskatts Vel fram- gengnar kind- ur eftir vetur- langa útiveru Fé sem hafði verið úti í allan vetur var tekið inn í hús í Breiðuvík á laugardag en þykir það óvenju seint. „Þetta fé hefur verið við fjöru í allan vetur og er það með ólíkindum hvað kindurnar eru vel framgengnar eftir veturinn. Það má sjá á þessum kindum hversu það er kindinni eðlilegt að vera úti, fremur en að kúldr- ast í húsum í allt að sjö mánuði á ári“, segir í frétt á breida- vik.net. Í Breiðuvík er vestasta gistihús í Evrópu enda aðeins 12 km frá Látrabjargi sem er vestasta horn álfunnar. Ferða- þjónustuna reka hjónin Keran Ólason og Birna Mjöll Atladótt- ir ásamt sauðfjár-ræktinni og halda um 700 fjár sem þau segja fara ágætlega saman. Styrkur til uppbyggingar á gamla hest- húsinu í Bölta Landbúnaðarráðuneytið hefur úthlutað styrk til uppbyggingar á gamla hesthúsinu í Bölta í Skaftafellsþjóðgarði. Búið er að hreinsa hesthústóftina, hlaða veggi hennar og undir- búa fyrir lokaáfanga verksins, segir Ragnar Frank þjóðgarð- svörður. Byrjað verður á verk- inu 25.júní í sumar og til vinnu við það fáum við nokkra sjálf- boðaliða frá Englandi. Einnig hefur Ari Jóhannsson, sérfræð- ingur í hleðslu úr torfi og grjóti, verið ráðinn til verksins en hann hlóð upp veggina sem komnir eru í tóftinni. Í maí koma nokkrir evrópskir sjálf- boðaliðar á vegum EFTA og er það samkvæmt beiðni frá bandalaginu og greiðir það með þeim ferðir og fæði en við munum sjá þeim fyrir gistingu, segir Ragnar við samfélagsvef Hornafjarðar. Tilmæli frá frjótæknum Aðalfundur Frjótæknafélags Íslands, sem haldinn var á dögunum, beinir þeim tilmælum til bænda með lausagöngufjós að þeir komi upp aðstöðu í fjósum sínum til að frjótæknar þurfi ekki að sæða á legubásunum. Bændablaðið kemur næst út: þriðjudaginn 14. mars

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.