Bændablaðið - 24.02.2006, Qupperneq 8

Bændablaðið - 24.02.2006, Qupperneq 8
8 Þriðjudagur 28. febrúar 2006 Í síðasta Bændablaði er grein eftir Einar E. Gíslason, bónda á Syðra- Skörðugili, undir fyrirsögninni „ Afkoma sauðfjárbænda.“ Ekki kemur á óvart að Einar hafi skoð- anir á málefnum sauðfjárbænda og setji þær fram með skeleggum hætti. Hitt kemur á óvart að þar sé að finna dylgjur í hálfkveðnum vísum. Einar segir orðrétt í grein sinni. „Það verður að teljast skammar- legt fyrir stjórnina að kröfur henn- ar urðu lægri en sláturleyfishafar buðu í kjötið, er nam að meðaltali 4 kr. pr. kg. Hafa einhverjir af samningamönnum okkar hags- muni beggja megin við borðið? Vonandi ekki.“ Hefði nú ekki ver- ið mannlegra að segja það bara hreint út að þú teljir það orka tví- mælis, hafi jafnvel skaðað sauð- fjárbændur, að formaður L.S sé jafnframt stjórnarformaður Fjalla- lambs á Kópaskeri? Fráleitur hugsunarháttur Ég hef verið stjórnarformaður Fjallalambs allt frá stofnun þess árið 1990. Sú staða lá ljós fyrir þegar ég tók að mér formennsku í L.S. og jafnframt þ a ð að ég væri ekki tilbúinn til að af- sala mér rétti til að gegna trúnað- arstöðum fyrir sauðfjárbændur á mínum heimaslóðum, samhliða formennsku í L.S. Ég get hins vegar fullyrt með góðri samvisku eftir þessi tæplega þrjú ár að sú tenging og aðkoma að málefnum sláturleyfishafa, sem ég hef haft í gegnum Fjallalamb, hefur reynst mér notadrjúg við að vinna að málefnum sauðfjárbænda á þeim vettvangi. Það er svo aftur annað mál hvort sú staða, að hafa forsvars- mann í kjarabar- áttu sauðfjárbænda fyrir stjórnarformann, er ásættanleg fyrir Fjallalamb. En ekki ætti það að standa Einari fyr- ir svefni. Svo mikið er þó víst að þetta ágæta fyrir- tæki hefur verið í fremstu röð hvað varðar afurða- verð til sauðfjárbænda. Ég held að það sé einmitt af hinu góða að sauðfjárbændur hafi sem allra mest ítök í stjórn- un á slátur- og afurðasölu- fyrirtækjum sauðfjáraf- urða og líti á þau sem mikilvægan hlekk í því að koma framleiðslu- vörum sínum á markað, en tel það fráleitan hugsunarhátt að líta sífellt á þau sem óvini og andstæðinga. Skammarleg lending? Heils hugar get ég tekið undir það með Einari að afurðaverð hefði þurft að hækka meira en raun varð á sl. haust. Allt frá árinu 2001 hefur útgefið viðmiðunarverð L.S. ekki verið virt af sláturleyfishöfum, þangað til í haust. Það ár braut á ákveðinni viðurkenningu milli sauðfjárbænda og sláturleyfishafa um útgáfu viðmiðunarverðs, sem hefur tvímælalaust verið ein af ástæðunum fyrir kjararýrnun sauð- fjárbænda undanfarin ár. Haustið 2004 tók svo stjórn L.S. þá ákvörð- un að gefa ekki út viðmiðunarverð og taldi það betri kost en gefa út verð sem fyrirsjáanlega yrði ekki farið eftir. Í framhaldi af því urðu svo allsnörp átök um afurðaverð, sem enduðu með því að allir slátur- leyfishafar hækkuðu áður útgefnar verðskrár um 2%. Held ég að báðir aðilar hafi nokk- uð lært af þessari snerru. Sl. haust tók svo stjórn L.S. þá ákvörðun að gefa út v i ð m i ð u n a r v e r ð sem hækkaði verð til bænda um 11% frá meðaltalsverði sláturleyfishafa haust- ið 2004. Á þeim tíma- punkti var ljóst að sú verðhækkun var meiri en fólst í kortum slát- urleyfishafa, en jafnframt líka að hún yrði virt sem ákveðinn verð- grunnur. Sú ánægjulega staða kom svo upp að ákveðin samkeppni um sláturfé myndaðist milli sláturleyf- ishafa, sem kom fram í hærri verð- tilboðum til bænda. Einar telur þessa lendingu skammarlega fyrir stjórn L.S. en lengra töldum við okkur ekki komast. Hafi það verið gerlegt er annað hvort um að kenna dómgreindarleysi, eða þá að við kunnum ekki að skammast okkar. Vel leyst verkefni Einar fjallar nokkuð um nýjan sauðfjársamning í grein sinni og telur það veganesti, sem síðasti að- alfundur L.S. gaf væntanlegri samninganefnd, fremur rýrt í roð- inu. Sú stefnumörkun byggir á nið- urstöðu starfshóps sem kosinn var á aðalfundi 2004 og vann milli að- alfunda 2004- 2005. Að mínu mati leysti þessi starfshópur erfitt og vandasamt verkefni mjög vel. Hann leitaði eftir skoðunum allra sauðfjárbændafélaga í landinu og einnig bestu fáanlegu upplýsingum um þær skorður sem væntanlegir alþjóðasamningar munu setja. Reyndi síðan að sætta ólík sjónar- mið í niðurstöðu sinni með það að markmiði að gera einfaldari og skilvirkari samning. Að öðru leyti kýs ég svo að fjalla ekki nánar um margt annars ágæta grein Einars. Mun hins vegar ekki setja mig úr færi að taka hús á karli við tækifæri og ræða málin. Þarf þá væntanlega ekki að taka með mér nesti, ef ég þekki rétt. Afkoma sauðfjárbænda -Fáeinar línur vegna orða Einars á Syðra-Skörðugili um skammarlega frammistöðu stjórnar L.S. Jóhannes Sigfússon, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda Tvær tillögur um að kjarnfóð- urtollar verði afnumdir liggja fyrir Búnaðarþingi 2006 sem hefst sunnudaginn 5. febrúar næstkomandi. Önnur tillagan er frá Svínaræktarfélagi Ís- lands þar sem lagt er til að toll- arnir verði lagðir niður. Hin til- lagan er frá Landssambandi kúabænda þar sem lagt er til að málið verði skoðað. Ingvi Stefáns- son, formaður Svínaræktarfé- lags Íslands, sagði að um tvenns konar tolla væri að ræða. Annars vegar er um að ræða 7,80 kr. toll á hvert kíló af tilbúinni kjarnfóðurblöndu sem lagt er til að felldur verði nið- ur í áföngum. Hins vegar er um að ræða 80 aura á kíló af hráefni eins og bygg og hveiti og fleira og vilja menn leggja hann niður strax. Ingvi sagði að ef tollarnir yrðu lagðir niður gætu svínaræktendur flutt inn tilbúnar kjarnfóður- blöndur og þar gæti orðið um umtalsverðan sparnað að ræða. Svínaræktendur hafa ekki reikna það nákvæmlega út hvað menn geta sparað margar krónur á kíló- ið en það yrði eitthvað. Í fyrra voru í gangi viðræður fulltrúa frá svínabændum, kjúk- linga- og eggjabændum og kúa- bændum um tolla og verð á kjarnfóðri og eftir hverju væri að slægjast í þeim efnum. Þórólfur Sveinsson, formaður Landssambands kúabænda, sagði að tillagan sem LK leggur fyrir Búnaðarþing gengi ekki eins langt og tillaga Svínaræktarfé- lagsins um tollana á kjarnfóðri. Hann sagði að þeir hafi verið að reyna að átta sig á hvað það myndi þýða fyrir kúabændur ef kjarnfóðurtoll- arnir yrðu lagðir niður. Það sé hins vegar ekki einfalt mál að reikna það út þannig að hann sagðist ekki geta svarað því á þessari stundu. Það eru marg- ar spurningar sem þarf að svara þegar þessi mál eru skoðuð. Í fyrsta lagi er það spurning um gæði. Hvaða fóður vilja menn nota, hvað leggja menn uppúr því að nota fóður með dýrapróteini, sem er uppistaðan í íslensku blöndunum en ekki í innfluttri fóðurblöndu. Þá segir Þórólfur að því sé líka ósvarað hver verðmunurinn yrði. ,,Þess vegna er engin leið að fullyrða á þessari stundu neitt um hvaða áhrif það hefði ef kjarn- fóðurtollarnir yrðu felldir niður,“ sagði Þórólfur Sveinsson. Tvær tillögur lagðar fyrir búnaðarþing um að fella niður kjarnfóðurtolla Kemur þá aftur að markaðs- skorti, því einstakur neytandi sér hag í því að kaupa hina erlendu vöru, enda er hún ódýrari og „ein lítil jógúrtdós muni hafa hverf- andi áhrif á landbúnaðinn í heild“. Hann tekur hins vegar ekki tillit til þess að hann er að skerða hag allra neytenda vegna þeirra sérstöku eiginleika al- mannagæða að samkeppni í neyslu þeirra er engin. Samdrátt- urinn hefur því áhrif á alla neyt- endur og vel getur verið að sam- anlögð neikvæð áhrif á alla neyt- endur séu meiri en verðmunurinn á innlendu og erlendu vörunni, þannig að dragi úr velferð. Slík sníkjuhegðun veldur sam- borgurum neytandans neikvæð- um ytri áhrifum, sem hann tekur ekki tillit til í einkaákvörðunum sínum. Hvatinn til sníkjuhegðun- ar veldur því að framleiðsla hins innlenda landbúnaðar á almanna- gæðum verður minni en þjóð- hagslega hagkvæmt er. Er fjölþættur landbúnaður framtíðin? Lítil umræða hefur farið fram hér á landi um að hve miklu leyti ís- lenskur landbúnaður er fjölþætt- ur. Í því samhengi er mörgum spurningum ósvarað: Hversu um- fangsmikil er framleiðsla íslensks landbúnaðar á almannagæðum? Er mögulegt að hvetja til slíkrar framleiðslu með beinum hætti? Er skilningur og vilji meðal neyt- enda fyrir slíkum breytingum á landbúnaðarkerfinu? Er skilning- ur og vilji fyrir slíkum breyting- um meðal bænda? Nauðsynlegt er að taka upp umræðu um þessi efni því óhætt er að fullyrða að aukinnar sam- keppni er að vænta á komandi árum frá erlendri búvörufram- leiðslu. Ef ekki verða gerðar breytingar á fyrirkomulagi styrkja fyrir framleiðslu almanna- gæða fyrir þann tíma er hætt við að meiri samdráttur verði á þeirri framleiðslu en raunverulegur vilji er fyrir meðal neytenda og alls óvíst hvort mögulegt verði að byggja upp aftur það sem hugsan- lega mun glatast. Sveitarstjórn Skaftárhrepps hef- ur sent erindi til samgönguráð- herra þar sem farið er fram á fund til að fjalla um framkomna ósk sveitarstjórnar um að nýr vegur inn að Lakagígum verði skilgreindur sem þjóðgarðsveg- ur og að Vegagerðinni verði sem fyrst falið að gera útfærðar til- lögur um vegstæði og kostnaðar- meta valkosti. Jafnframt hefur verið farið fram á að strax næsta sumar verði hafist handa við uppbyggingu vegarins þannig að hann verði sem fyrst fær öllum bílum að sumarlagi. Gunnsteinn R. Ómarsson, sveitarstjóri Skaftárhrepps, sagði í samtali við Bændablaðið að þetta mál þyrfti að skoða í stærra sam- hengi. Á haustmánuðum 2004 var þjóðgarðurinn í Skaftafelli stækk- aður og hluti jökulhettunnar, sem liggur innan svæðis Skaftárhrepps og Lakagígasvæðið, tekið inn í þjóðgarðinn. Síðan hefur verið í farvatninu, bæði á Kirkjubæjarklaustri og austur á Hornafirði, að setja á laggirnar svo kallaðar gestastofur. Þjóðgarðar eru skilgreindir sem verndarsvæði með greiðu aðgengi. Þjóðgörðum fylgir jafnframt rann- sókna- og fræðavinna. Í gestastof- unum verði allar upplýsingar um þjóðgarðinn veittar og þar fari líka fram ákveðin rannsóknastarfsemi. Þar sem gert er ráð fyrir að gesta- stofa verði á Kirkjubæjarklaustri verði að greiða aðganginn inn á þjóðgarðssvæðið. Gunnsteinn segir að núverandi vegaslóði inn í Lakagíga sé aðeins fær jeppum og stærri bílum yfir sumarið. Í vatnavöxtum yrðu til viðsjárverð vatnsföll sem fara þarf yfir. Eldvirknisafn á Kirkjubæjarklaustri? Í Skaftárhreppi eru uppi hugmynd- ir um að koma upp eldvirknisafni á Kirkjubæjarklaustri. Sveitarstjórn leggur ríka áherslu á að umhverfis- ráðuneytið og stofnanir þess tryggi fjármagn til þeirrar uppbyggingar sem snýr að hinu opinbera og nauðsynleg er vegna tilkomu þjóð- garðsins. Gunnsteinn segir að eld- virknisafn muni geyma sögulega muni sem tengjast eldvirkni í Skaftárhreppi og síðan yrði það jarðfræðitengt og reynt yrði að setja það upp eins lifandi og mögulegt er. Hann segir að allt þetta tengist atvinnumálum í sveitarfélaginu og mögulegri uppbyggingu í ljósi vaxtar í ferðaþjónustu og fyrr- nefndri stækkun þjóðgarðsins. Vilja nýjan veg inn að Lakagígum og gestastofu á Kirkjubæjarklaustri Landslag er víða hrikalegt sunnan jökla.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.