Bændablaðið - 24.02.2006, Page 10

Bændablaðið - 24.02.2006, Page 10
10 Þriðjudagur 28. febrúar 2006 Iðnaðurinn er að missa traust neytenda Matvælaeftirlitið kvartar yfir því að það ráði ekki við að fylgjast með nema litlum hluta fyrirtækja. Þekktur matvælafræðingur í Þýskalandi, Udo Pollmer, hefur í sjónvarpsviðtali haldið því fram að stjórnmálamenn séu allt annað en saklausir vaðandi það hvernig þessum málum sé komið. Þeir hafa, segir hann, alltof lengi trúað fögrum fyrirheitum kjötfyrirtækjanna. Á hinn bóginn líða heiðarleg fyrirtæki fyrir hið slæma orð sem fer af kjötiðnaðinum. Traust neytenda á þessum iðnaði hefur beðið alvarlega hnekki. Sérfræðingar fullyrða að gamla kjötið sé ekki beinlínis heilsu- spillandi, þó að það sé ekki neysluhæft. Þýskaland hefur þó sent út viðvörun gegnum aðalstöðvar ESB, en ljóst er að gallaðar kjötvörur hafa verið fluttar út frá Þýskalandi til annarra landa sam- bandsins. Nýr landbúnaðarráðherra, Horst Seehofer, hefur nýlega tekið við embætti í Þýskalandi. Eitt fyrsta verk hans var að efna til ráðstefnu til að ræða hvernig taka skuli á kjöthneykslinu. Áðurnefndur Udo Pollmer hefur ekki trú á því að stjórnmálamenn geti komist til botns í öllu því svindli í þessum efnum, sem grafið hefur um sig árum saman. Hið fyrsta sé þó að stórefla mat- vælaeftirlitið. Hækkun meðalhita í Evr- ópu veldur áhyggjum Það hlýnar í Evrópu. Meðalhitinn árið 2005 var sá mesti sem mælst hefur í 150 ár að sögn Veðurstof- unnar í Bretlandi. Sérfræðingar í umhverfismálum vara við þurrkum og skógareldum á komandi ára- tugum. Árin 1998, 2002, 2003 og 2004 hafa verið heit- ustu ár síðan mælingar hófust. Árið 2003 hurfu 10% af jöklum Alpafjalla. Með sama áframhaldi verða þrír fjórðu hlutar af jöklum í Sviss horfnir árið 2050. Í Evrópu hafa ekki orðið viðlíkar breyt- ingar á hitastigi síðustu 5000 ár, segir í skýrslu frá Umhverfisstofnun EES í Kaupmannahöfn. kýrslan Umhverfi í Evrópu, ástand og horfur 2005 ( The European Environment State and Outlook 2005), birtir mat á ástandi umhverfisins í 31 landi Evrópu sl. fimm ár. Auk breytinga á veð- urfari fjallar skýrslan um líffræðilega fjölbreytni, lífríki sjávar, stöðu ræktunarlands, aðgang að vatni, mengun andrúmslofts og heilbrigðismál. Hitinn vex hratt í Evrópu Í skýrslunni er í fyrsta sinn borið saman ástand umhverfismála og útlit þeirra í öllum löndum Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Það eru 25 lönd ESB, ásamt Búlgaríu, Íslandi, Lichtenstein, Noregi, Rúmeníu, Sviss og Tyrklandi. Samkvæmt skýrslunni hækkaði meðalhiti í Evrópu um 0,95%°C á tímabilinu 1900 - 2000. Það er um 35% meiri hitaaukning en meðalhita- aukning á jörðinni á sama tíma, sem var 0,7°C. Búist er við að hitinn haldi áfram að stíga. ESB hefur sett það markmið að hiti á jörðinni hækki ekki meira en um 2°C miðað við ríkjandi hitafar áður en iðnvæðingin hófst. Verði ekkert að gert getur aukinn hiti leitt til þess að ís á norðurheimsskautssvæðinu bráðni, jafnframt því að eyðimerkur breiði úr sér norður á bóginn. Afleiðing þess gæti orðið sú að íbúar Evrópu byggju einkum um miðhluta álfunnar. Í skýrslunni kemur fram að lagasetning í um- hverfismálum í Evrópu hefur borið árangur. Vatn og andrúmsloft hefur orðið hreinna, notkun á ózoneyðandi efnum hefur aukist sem og endur- vinnsla úrgangs. Þá hefur lofthreinsibúnaður í bílum leitt til þess að mengun frá útblæstri bíla hefur stór- minnkað. Án búnaðarins væri mengunin tífalt meiri en raun ber vitni. Aukin þéttbýlismyndun Aðgerðir í umhverfismálum í Evrópu eiga við það vandamál að glíma að líf fólks lengist og æ fleira fólk býr í einbýlishúsi, sem taka meira pláss en fjölbýlishús. Á áratugnum 1990 - 2000 voru meira en 800 þúsund hektarar af ræktunarlandi teknir undir byggingar í Evrópu, sem samsvarar þre- faldri stærð Lúxemborgar. Ef sú þróun heldur áfram mun þéttbýli í Evr- ópu tvöfaldast að stærð á rúmlega 100 árum. Í skýrslunni er bent á að það sé afar mikilvægt að stöðva stækkun þéttbýlisins til að vernda ræktun- arlandið. Losun flutningatækja á gróðurhúsalofttegund- um vex hraðar en í nokkurri annarri grein. Fjöldi flugfarþega er t.d. talinn munu tvöfaldast á ára- bilinu 2000 - 20030. Skoðanakönnun sýnir að meira en 70 að- spurðra vilja að umhverfismál hafi jafn mikið vægi í opinberri stjórn og efnahagsmál og félags- og atvinnumál. Í skýrslunni er lögð áhersla á það að tengja umhverfismál við atvinnugreinar, svo sem flutn- ingastarfsemi, landbúnað og orkumál. Þá er lagt til að vettvangur skapist fyrir einstaklinga jafnt og fyrirtæki að láta til sín taka í umhverfismálum. ESB vinnur að aukinni dýravernd Embættismannaráð ESB hefur lagt fram fimm ára verkefnaáætlun í því skyni að auka áherslu á dýrvernd. Að því er stefnt að allir þjóðfélagshóp- ar ESB verði sér betur meðvitaðir um málefni dýraverndar. Það er Evrópuþingið og stjórn landbúnaðar- mála sem hefur staðið fyrir gerð verkefnaáætl- unarinnar. Tilgangurinn er að skýra gildandi reglur um dýravernd og koma með nýjar tillög- ur þar sem núverandi reglur duga ekki. Á sviðum eins og landbúnaði, umhverfisvernd og rannsóknum og þróun á varnarefnum, skal séð um að hagsmunir dýraverndar verði tryggð- ir samkvæmt gildandi fyrirmælum ESB sáttmál- ans um dýravernd og meðferð dýra. Verkefnaáætlunin er unnin í samstarfi við fjölda stjórnarskrifstofa, sem tengjast málefnum dýraverndar, svo sem landbúnaðar, umhverfis, efnahagsmála, fiskveiða, rannsókna, orku og verslunar- og flutningastarfsemi. Verkefnaáætlunin skiptist í nokkra megin- þætti. Þar má nefna að auka og styrkja það lág- mark um aðbúnað sem dýr skulu njóta, með því að setja upp viðmið, sem fylgja ber, t.d. um rými o.fl. Þessum upplýsingum verði komið á fram- færi með skipulegum hætti. Aukin framlög og hertar reglur Þá hyggst ESB einnig styrkja rannsóknir sem komið geta í staðinn fyrir tilraunir á dýrum. Einnig á að auka framlög til alþjóðlegra dýra- verndarsamtaka. Ennfremur má nefna að reglur um dýravernd skulu hertar með það að markmiði að staðlar ESB verði hinir ströngustu í alþjóðlegu sam- hengi. Embættismannaráðið stefnir að því í framtíð- inni að matvæli, svo sem kjöt, mjólkurafurðir og egg, fái vottun um að við framleiðslu þeirra hafi verið fylgt gildandi reglum um dýravernd. Þá hyggst ESB vinna þessum málum brautar- gengi innan alþjóðlegra stofnana, svo sem Al- þjóða viðskiptastofnunarinnar, WTO. Í starfi sínu að þessum málum vísar embættis- mannaráðið til þess að íbúar sambandsins hafi í Fréttir að utan Hún Guðríður Baldvinsdóttir, Lóni 2, Kelduhverfi, birti meðfylgjandi mynd á heimasíðunni sinni og velti fyrir sér hvað fólk kallaði þetta sérkennilega hárfar á snoppunni. Féskúfur eða féröst? Eða jafnvel fjárröst? „Það virðist allavega vera mismunandi eftir landshlutum hvað það fyrirbæri á snoppunni heitir sem örin bendir á. Vefari hefur aldrei áður heyrt annað en að þetta heiti féskúfur en hefur fengið tvo pósta þar sem þetta er kallað féröst/fjárröst. Annað bréfið var að austan en hitt af vesturlandinu. Nú væri gaman að vita hvort þetta er landshlutabundið og þá hvaða nafn menn þekkja og jafnvel ef skúfurinn gengur undir enn fleiri nöfnum. Féskúfur virðist vera þekkt í Þingeyjarsýslum og féröst í Borgarfirði. Féfjöður eða fjárfjöður er þekkt í Dalasýslu. Fjöður eða fjárskúfur á Vestfjörðum og jafnvel féþúfa í sumum sveitum þar fyrir vestan,“ sagði Guðríður og hvetur fólk til að senda línu á guggaloni@simnet.is Framkvæmdir standa nú yfir við hús Heklusetursins á Leiru- bakka í Landsveit á ný eftir nokkuð hlé, en eigendaskipti urðu að Leirubakka sl. vor er hjónin Valgerður Kr. Brynjólfs- dóttir og Anders Hansen keyptu jörðina. Anders sagði í samtali við Bændablaðið að um væri að ræða tæplega 500 fermetra hús sem í yrði auk Heklusafnsins ráðstefnu- og veitingaaðstaða. Hann sagðist hafa tekið eftir því síðastliðið sumar hver þörfin fyrir svona safn væri orðin brýn. ,,Við þurftum að snúa tugum ef ekki hundruðum manna frá en fólkið taldi víst að hér væri Heklu- safn. Við vorum að reyna að gefa fólki leiðbeiningar um fjallið því það er ekki til svo mikið sem fjór- blöðungur um fjallið til að gefa ferðamönnum,“ sagði Anders. Á Leirubakka er nú rekin fjöl- breytt ferðaþjónusta. Þar er hótel, veitingasala, tjaldstæði, bensínaf- greiðsla, verslun, hestaleiga og hrossabúskapur. Næsta sumar stendur til að bjóða daglega upp á Hekluferðir yfir háannatímann. Stefnt er að því að opna hluta Heklusafnhússins í vor, en í húsinu mun verða sett upp fullkomin ráð- stefnuaðstaða og sýning um eld- fjallið Heklu, sögu fjallsins og sambúð lands og þjóðar í ellefu aldir. Hús Heklusetursins er nær fullgert hið ytra, og standa nú yfir framkvæmdir við innréttingar, en það er fyrirtækið Viður ehf. í Þor- lákshöfn sem er aðalverktaki. Hús- ið er sérstaklega hannað og byggt til að hýsa sýningu um Heklu. Arkitektar eru EON-arkitektar. Mikil áhersla verður lögð á samstarf við vísindamenn um þátt- töku í starfsemi Heklusetursins, þar sem nýjungar og rannsókna- niðurstöður verða kynntar, bæði í formi sýninga og ráðstefna. Sér- stakar ráðagerðir eru um fræðslu fyrir skólanema hvaðanæva að af landinu, sem og hópa frá útlönd- um. Í Heklusetrinu er ætlunin að hafa starfandi Ferðamannaupplýs- ingastöð, sem leiðbeini ferðafólki um allt nágrennið, Heklu þar með talda og í athugun er að skipu- leggja daglegar ferðir á fjallið frá Hellu og Leirubakka fyrir ferða- menn. Áætlað er að Heklusetrið og tengd starfsemi á Leirubakka muni veita 6 - 8 manns atvinnu allt árið og að auki 6 - 10 á sumrin. Heklusetrið hlaut styrk af fjár- lögum Alþingis 2006 og unnið er að samstarfi við fjölmarga sjóði, sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga um uppbyggingu og rekstur safnsins. Mikill fjöldi fólks kemur að Leirubakka allt árið, en þar er rekið hótel og veit- ingasala, tjaldstæði, bensínaf- greiðsla, lítil verslun, hestaleiga og hrossaræktarbú. Leirubakki hefur ekki síst verið vinsæll áfangastað- ur þeirra sem leggja leið sína á Heklu, í Landmannalaugar eða á aðra staði á sunnanverðu hálend- inu. Heklusetrið á Leiru- bakka opnað í vor Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir og Anders Hansen fyrir utan Heklusetrið, ásamt verktakanum Elíasi Hafsteinssyni hjá Viði ehf. í Þorlákshöfn. /Bændablaðið BH Hugmyndasamkeppni um þjóðgarðsafurðir Í byrjun ársins var haldið mál- þing á vegum NEST, sem stend- ur fyrir þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu á norrænum slóðum. Að málþinginu loknu var hugmyndasamkeppni á veg- um NEST um þjóðgarðsafurðir hleypt af stokkunum. Slík hug- myndasamkeppni fer fram sam- tímis í öllum NEST-löndunum, sem eru Ísland, Skotland, Sví- þjóð og Finnland. Stella Sigfúsdóttir var verk- efnastjóri NEST þegar hug- myndasamkeppnin hófst. Hún sagði að samkeppnin gengi út á hugmyndir um vörur eða þjón- ustu, sem endurspegluðu það svæði sem samkeppnin fer fram í. Hér á landi er svæðið að þessu sinni ríki Vatnajökuls. Finnar munu gefa 1. verðlaun sem eru 2.500 evrur, fyrirtæki innan Sveit- arfélagsins Hornafjarðar gefa 2. verðlaun, 80.000 krónur, og Skaftárhreppur gefur 3. verðlaun, 40.000 krónur. Miklar vonir eru bundnar við hugmyndasamkeppnina innan NEST og segir Stella að það verði gaman að fylgjast með því, hver útkoman verður. Þarna skap- ist auk þess gott tækifæri til þess að kynna verkefnið og svæðið sem þróað er, bæði hér og erlend- is. Þá er þess vænst að samkeppn- in muni skila hugmyndum að vör- um og þjónustu, sem yrðu at- vinnuskapandi á svæðinu og muni auk þess hafa mikið minjagripa- og auglýsingagildi fyrir ferða- þjónustuna í ríki Vatnajökuls. Féskúfur eða féröst?

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.