Bændablaðið - 24.02.2006, Qupperneq 20

Bændablaðið - 24.02.2006, Qupperneq 20
20 Þriðjudagur 28. febrúar 2006 Ásthildur Skjaldardóttir, Bakka á Kjalarnesi: Kýrnar glaðari í nýjum haga Við byrjum á því að beita kúnum snemma á tún sem í hafði verið sáð háliðagrasi en okkur tókst aldrei að slá það nógu snemma til að kýrnar vildu éta af því heyið. En sem beit í maí nýttist það mjög vel. Auðvitað ræður tíðarfarið mestu hvenær við getum byrjað, en hér á Bakka vorar snemma og undanfarin ár hefur beitin hafist í kringum miðjan maí. Við erum með nýrækt með vallarfoxgras- blöndu og þar er borið snemma á. Eftir að við tókum lausagöngufjós í notkun höfum við ræktað gömlu heimatúnin í kringum fjósið upp og nýtum aðallega til beitar. Kýrnar hafa alltaf aðgang að fjósinu og nýta sér það orðið óspart ef tíðin er leiðinleg, en annars velja þær frekar að vera úti. Kýrnar hafa allt sumarið frjálsan aðgang að heyi og kjarnfóðurgjöfin fer eftir því á hvaða tíma mjaltaskeiðsins kýrnar eru. Við höfum ekki flokkað þær eftir nyt á beitiland en ætlum næsta sumar að taka geldkýr sér. Kúnum er beitt á nýleg tún og beitarspildur sem ræktaðar hafa verið í úthaganum. Við erum með sér tún fyrir þær á nóttunni og á daginn er beitarstykki þeirra samsett af af beitarspildum, úthaga og vetrarrepju. Okkur finnst þær vera glaðari að vera ekki alltaf á sama stað þó að beitin sé góð. Í nokkur ár höfum við ræktað vetrarrepju til beitar. Fyrst aðeins fyrir haustbeitina en síðustu ár höfum við sáð eins snemma og við getum, oftast í apríl hluta af vetrarrepj- unni til sumarbeitar og hefur það gefist mjög vel. Við reynum að byrja á þeirri beit kringum mánaðamótin júní og júlí og för- um hægt af stað. Reynslan sýnir að kýrnar nýta úthagann og aðra beit miklu betur en áður samhliða grænfóðurbeitinni. Seinni sáningin er síðan í byrjun júní og reiknum við með að sú spilda dugi fram í október. Ekki þó mikið lengur en viku til tíu daga af október. Við randbeitum vetrarrepjuna og hluta af túnunum og þó að slíkt sé auka- vinna skilar hún sér margfalt. Við erum að endurrækta gömul tún og sáum bæði byggi til þroska og erum einnig með hafra og rýgresi sem við sláum og gef- um síðan þegar kýrnar eru lokaðar inni. Það kom okkur dálítið á óvart hvað þær eru dug- legar við heyát, þó að þær hafi aðgang að góðu beitilandi. Heyátið fer að vísu aðalega fram á mjaltatíma og ef veður er leiðinlegt. Jóhann Nikulásson, í Stóru - Hildisey II í Landeyjum: Rýgresi og brynningarker Við höfum fyrir reglu hér á bæ að setja kýrnar ekki út fyrr en kominn er góður hagi fyrir þær, vallarfoxgras orðið um það bil þverhandarhátt sem er yfirleitt um 20. maí. Kýrnar höfum við inni á nóttinni fram undir mánaðamót júlí og ágúst. Að hýsa kýrnar svo lengi fram eftir sumri og fóðra þær skil- ar meðal annars því að slæmir rigningardag- ar hafa engin áhrif á framleiðsluna þar sem kýrnar eru vanar að vera fóðraðar inni og kippa sér ekkert upp við það að þurfa að vera inni dag og dag. Með þessu móti fáum við þær líka til að eta mun meira af heima- ræktuðu byggi, en nærri lætur að það sé um 30% af fóðurþörf kúnna yfir árið. Kýrnar eru fóðraðar inni með heilfóðurblöndu sem í er vothey heimaræktað bygg og kurluð kjarnfóðurblanda með háu póteinhlutfalli ásamt steinefnum. Þetta gerist á meðan þær eru hýstar á nóttinni. Þá er þeim kúm, sem mjólka allra mest, gefið lítilsháttar af kjarn- fóðri Úti eru allar mjólkandi kýr hafðar í ein- um hóp og beitt á sama beitilandið sem eru nýlegar spildur, yngri en þriggja til fjögurra ára, vaxnar hreinu vallarfoxgrasi. Hér á bæ er notuð blanda af hólfa- og skiptibeit og beitt bæði á tún og grænfóður. Beitarhólfin eru hálfur einn hektari hvert um sig og við erum með þrjú til fimm hólf í notkun í senn handa 30 til 35 kúm. Grasvexti er haldið niðri með sérstakri beitarsláttuvél ætlaðri til að loðslá gras í hluta beitarhólfanna í upp- hafi beitartímabils. Þá er vélin líka notuð við að toppa beitarhólfin Það er grundvallar- atriði í beitarstjórnun að hólfið, sem á að fara að beita, sé hæfilega loðið, ekki of snöggt því að þá eru kýrnar of lengi að bíta og ef grasið er of hátt þá troða þær það nið- ur. Ef vel er að þessu staðið þá er hægt að beita sama beitarhólfið margsinnis yfir sum- arið Við sáum alltaf í einn ha af sumarrýgresi og tvo ha af vetrarrýgresi sem eingöngu er ætlað til beitar. Því er sáð eins snemma og hægt er, oftast í kringum 20. apríl. Það er áramunur hvenær hægt er að byrja að beita sumarrýgresið en oftast er það í byrjun júlí, vetrarrýgresið er fullsprottið nokkrum dög- um síðar. Eftir að sprettan á rýgresinu er komin vel af stað þá er kúnum eingöngu beitt á það. Fóðurkáli til beitar höfum við ekki sáð í nokkur ár, finnst rýgresi henta mun betur við okkar aðstæður. Hér bindum við kýrnar inni um miðjan september því að þá eru mjólkandi kýr orðnar mjög fáar en margar kýr hjá okkur bera í byrjun október. Því þarf að venja þær við það fóður sem þær eiga að fá og okkur finnst alls ekki borga sig að halda nýborn- um kúm að beit í þeirri rysjóttu tíð sem svo oft vill vera á haustin Það er eitt atriði í viðbót, sem við teljum mjög mikilvægt, en það er aðgengi að góðu vatni. Brynningarker með nægjanlegu vatnsmagni, þannig að nokkrar kýr geti drukkið í einu, þarf að vera við öll beitar- hólf. Þá skiptir staðsetning beitarhólfanna líka máli það er ekki gott ef kýrnar þurfa að ganga langar leiðir til að komast á beit. Eggert Pálsson, á Kirkjulæk I í Fljótshlíð: Gef hey með beitinni allt sumarið Hér á Kirkjulæk hleypum kúnum út í kring- um 20. maí og þá miða ég við tíðarfarið eins og hefur verið undanfarin ár. Þetta ræðast annars af ástandi gróðurs og ég hef líka sem reglu að daginn sem ég hleypi kúnum fyrst út sé hvorki rigning né sterk sól. Ég gef kúnum hey með beitinni allt sumarið. Hef því kýrnar á húsi yfir nóttina fyrstu vikurnar eftir að hleypt er út og á básunum fá þær hey. Því verða áhrif fóðurbreytinga mildari en ella. Yfir vetrartímann gef ég nythæstu kúnum kjarnfóður þrisvar á dag. Þegar kemur svo fram á sumarið og útbeitina gef ég kjarn- fóðrið aðeins tvisvar yfir daginn, það er við morgun- og kvölmjaltir. Við beit fá allar kýrnar aðgang að sama haga, ég skipti þeim ekki upp í hópa með tilliti til nytar til dæm- is. Beitinni stýri ég þannig að kýrnar eru á sitthvoru svæðinu á daginn og nóttunni. Næturhaginn er tíu hektara tún sem við end- urvinnum á fimm ára fresti, tvo hektara á ári. Yfir daginn fara kýrar á nýlegar sléttur, en hafa jafnframt aðgang að úthaga. Þau stykki, sem við sláum svo fyrst, eru síðan nýtt til beitar, ég hleypi kúnnum á þau um leið og há er sprottin. Í dagbeit skipti ég kúnum á milli hólfa en á grænfóðurökrum viðhef ég randbeit; tek ofurlitla sneið einu sinni til tvisvar á dag. Ég rækta ekki græn- fóður til vorbeitar, en rýgresi og kál nota ég til síðsumarsbeitar. Grænfóðri sái ég fyrstu dagana í júní og rýgresi skömmu síðar. Hluta af káli grænfóðursins set ég svo í rúllubagga og gef kúnum eftir að þær eru teknar á hús á haustin, oft um október. Þá Hvað segja bæn B æ nd ab la ði ð/ Jó n Ei rík ss on .

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.