Bændablaðið - 24.02.2006, Page 21

Bændablaðið - 24.02.2006, Page 21
21Þriðjudagur 28. febrúar 2006 tekur kálgjöfin við og oft eigum við kál- birgðir fram undir nýár. Heygjöf er ævinlega hluti af þessu þó að hún sé auðvitað stórum meiri yfir veturinn en í annan tíma. Í beitarbúskapnum og fóðurgjöf verður annars að aka seglum eftir vindi. Á hverjum degi koma upp úrlausnarefni sem mæta verður og finna bestu lausnina á og þannig er starf bóndans raunar; að geta leyst sér- hvern vanda sem upp kann að koma þó að lausnin blasi ekki við í fyrstu. Guðný Helga Björnsdóttir og Jóhann Birgir Magnússon, Bessastöðum við Hrútafjörð: Kjarnfóðurgjöfinni er stjórnað eftir nyt Við erum með lausagöngufjós með löng- um fóðurgangi og kjarnfóðurbási. Við viðrum kýrnar um leið og orðið er þurrt um á vorin eða seinnipart vetrar. Þá eru þær hafðar í tæplega hektara stóru hólfi við fjósið. Fjósið er opnað alla daga eftir hádegi, nema sé vitlaust slagveður. Þær hafa auðvitað enga beit af viti á þessum tíma en hafa gott af að viðra sig. Kýrnar eru á fullri gjöf vel framan af og heygjöfin er minnkuð eftir því sem kýrnar sjálfar vilja. Framan af beitartímanum er þeim gefið hey á morgnana og svo hleypt út um klukkutíma seinna. Stundum koma þær inn yfir daginn til að fá sér meira hey og/eða kjarnfóður. Kjarnfóðurgjöfinni er stjórnað eftir nyt kúnna. Þær, sem eru í 12-15 kg nyt, fá lítið sem ekkert kjarnfóður, fer að- eins eftir þroska kúnna. Kýrnar eru allt sumarið hýstar á nóttunni og gefið þá eins mikið hey og þær vilja éta. Geldkýr eru ekki hafðar með mjólkur- kúnum. Þær eru hafðar á ábornum úthaga með kálfunum og svo á óábornum háar- stykkjum þegar líður á sumarið. Þær, sem og fyrsta kálfs kvígur, eru teknar inn í mjólkurkúahópinn um mánuði fyrir tal. Mjólkurkúnum er beitt á gömul tún við fjósið framan af sumri. Það er á stefnu- skránni að endurrækta þessi gömlu tún til beitar, en stykki til heyskapar hafa haft forgang hingað til, enda bera allar kýrnar hjá okkur fyrri part vetrar og því engin í rífandi nyt framan af sumri. Þegar fer að gróa er borinn hálfur tún- skammtur á gömul tún nálægt fjósinu og farið að randbeita þau stykki viku seinna eða svo. Með því að randbeita ónýtist ekki beitilandið með traðki, kúadellum og legu- blettum eftir kýrnar. Hluta af þessum gömlu túnum fá kýrnar ekki til beitar fyrr en búið er að slá þau fyrir eða um miðjan júní. Slægjan er reyndar ekki mikil þá, en orðið það loðið að fljótlega yrði það of- sprottið til að nýtast vel til beitar. Við stundum mikið endurræktun á tún- um og látum ferlið taka þrjú ár. Sáningar- tími ræðst mikið af vorinu, en við kapp- kostum að vera búin að sá í öll stykki fyrir lok maí. Hvaða stykkjum er lokað fyrst ræðst meira af jarðvegi þeirra en þeirri notkun sem þau fara í, það er við byrjum að vinna melatún, sem eru fljótust að þorna. Þannig notum við rekjuna sem er enn í þeim eftir veturinn til að hjálpa okk- ur að mylja torfurnar og nauðsynlegt er að koma fræi í þau áður en þau verða of þurr. Fyrsta árið er akurinn lítið unninn, en sáð í hann í blokkir vetrarhöfrum, vetrarrýgresi og vetrarrepju/nepju. Undanfarin tvö ár höfum við haft nepju í stað repjunnar og líkar okkur mjög vel við hana. Hafrarnir eru yfirleitt fyrstir til og því er byrjað á að beita þá, svo þegar fyrstu kýrnar eru born- ar um miðjan ágúst er rýgresið og nepjan orðin tilbúin til beitar. Annað árið í endur- ræktun setjum við yfirleitt sumarrýgresi, sem við sláum og beitum svo á endurvöxt- inn, stundum árar svo að við sláum líka endurvöxtinn og beitum þriðja vöxtinn. Stundum berum við á rýgresið eftir fyrsta slátt. Fer svolítið eftir árferði og hvort okkur vantar mikið beitiland eða fóður. Þriðja árið í endurræktun setjum við fullan skammt af hreinu vallarfoxgrasi og 50- 75% sáðskammt af vetrarhöfrum. Fyrir miðjan ágúst sláum við svo hafrana og rúllum. Ef við værum með mikið af síð- bærum eða vorbærum myndum við kapp- kosta að endurrækta beitarstykkin þannig að hægt væri að randbeita kúnum á vallar- foxgras og sá eins snemma og við gætum sumarrepju og sumarhöfrum til beitar. Við myndum örugglega líka velta fyrir okkur vetrarrúgi og fjölæru rýgresi. Kýrnar fá fullan kvöldskammt af ný- ræktarheyi þegar kemur fram í ágúst og þær farnar að bera. Kjarnfóðrið stjórnast af nyt þeirra, óháð því hvort þær eru á beit eða ekki. Þegar annar gróður en grænfóðr- ið er farinn að minnka að gæðum gefum við kúnum hey áður en þær fara út á morgnana. Þegar farið er að síga á seinni- hluta septembermánaðar eru kýrnar jafnvel komnar á fulla morgun- og kvöldgjöf. Þá er oft ekki opnað fyrir kúnum fyrr en undir hádegi og þær fá að vera úti eins og þær vilja fram að kvöldmjöltum. Þá fara þær iðulega beint í grænfóðrið og bíta þar eins og þær lístir, fara svo aðeins og bíta í eldri túnum, koma aftur í grænfóðrið, fara inn til að bæta á sig heyi eða kjarnfóðri og fara svo aftur í grænfóðrið. Við leyfum þeim að fara út á daginn eins lengi og haustið leyfir og stefnum að því að eiga grænfóðurbeit fyrir þær frá byrjun ágúst til loka október. Ef hins vegar haustið er leiðinlegt og kýrn- ar ná ekki að nýta grænfóðrið notum við geldpening til að ljúka við það. Sverrir Magnússon, Efri-Ási í Hjaltadal: Beitt á öklaháa repjuna Ef tíðin er góð hleypi ég kúnum gjarnan út snemma í maí til að þær fái hreyfingu og helst þá át á heyi og kjarnfóðri betra þegar beit byrjar. Gef kúnum alltaf hey með beit- inni til að forðast of mikil umskipti í fóðri. Eins fá kýrnar kjarnfóður allt árið í sam- ræmi við nyt og ég nota alltaf fremur fiski- mjölsríka blöndu yfir beitartímann. Allar mínar kýr hafa aðgang að sama beitilandi, óháð nyt. Ég byrja beitina á eins hektara akri með rýgresi og byggi, sem er sáð snemma í maí, og get byrjað að beita hann um fjörutíu dög- um eftir sáningu. Ég randbeiti með léttri raf- magnsgirðingu sem þarf að færa tvisvar á dag. Með því að taka mátulega rönd í hvert skipti næst ágæt nýting og árangurinn af þessu fyrirhafnarinnar virði. Þegar akurinn er fullbeittur eru kýrnar settar á annað beitiland. Þá sprettur rýgresið fljótt aftur og ég randbeiti það þá stundum aftur en oftast fá kýrnar að valsa um það allt. Sumarrepju sái ég í maí en helst ekki svo snemma að hætta sé á að hún frjósi. Hana fer ég að beita fyrri hluta júlí, þá um 50-60 dögum eftir sáningu. Er repjan þá ökklahá, um 15 cm. Sumarrepjuakurinn er 0,7 ha og passar hann fyrir 50 kýr í um 20 daga. Eftir að sumarrepjan klárast tekur við beit á vetrarrepju og fóðurnæpu sem ég sái saman. Einnig sái ég fóðrurnæpu einni og sér og fer að beita hana líka í ágústlok. Mér finnst samfelld grænfóðurbeit frá því eins snemma að vorinu og hægt er, áfram með túnbeitinni allt sumarið og svo haustbeit eins lengi og hægt er að setja kýrnar út, skila bestum af- urðum af beitinni. Mín reynsla er einnig sú að nauðsynlegt sé að bera á tún sem beita á eftir fyrri slátt, annars verður beitin næring- arsnauð og ólystug. ndur um beitina? Kúabeitin - fyrsti hluti Söluaukning á mjólk og mjólkurvörum á innalandsmarkaði kallar á aukna framleiðslu. Innvigtunartölur síðustu vikurnar lofa góðu um að framleiðslan nái að fylgja söluaukningunni eftir og undirritaður leyfir sér að fullyrða að ráðgjafarátak búnaðarsambandanna og BÍ eigi þar nokkurn hlut að máli. Mikilvægt tímabil í mjólkurframleiðslunni er framundan, - sumarbeitin og nýting hennar til hagkvæmrar framleiðslu. Í þessu eintaki Bbl hefjum við umfjöllun um kúabeit, beitarskipulag, ræktun grænfóðurs og ýmsa fleiri þætti sem máli skipta. Í næstu blöðum verða birt viðtöl við kúabændur sem náð hafa góðum árangri í nýtingu beitar. Einnig verða birtar greinar og pistlar um málefnið. Ráðunautanámskeið, sem fjallar eingöngu um beit verður haldið í byrjun mars. Markmiðið er að verkja sem kostur er athygli á nýtingu beitar til mjólkurframleiðslu.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.